Morgunblaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
LANDIÐHÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
UPPGRÆÐSLUAMTÖKIN Gróður fyrir fólk í land-
námi Ingólfs (GFF) og Olís skrifuðu á dögunum undir
samstarfssamning um uppgræðslustarf í nágrenni Litlu
kaffistofunnar. Við landgræðsluna er notast við ýmiss
konar lífræn úrgangsefni. Garðaúrgangur er notaður til
að græða upp skíðabrekkur í Bláfjöllum og rofabörð á
Bolaöldum og molta úr lífrænum neysluúrgangi hefur
verið notuð sem meðgjöf og áburður í uppgræðsluverk-
efninu. Kjötmjöl og hrossatað, sem fellur til í miklu
magni ár hvert endar jafnframt á starfssvæði GFF sem
áburður.
Fjöldi aðila leggur uppgræðslustarfinu lið. Verktaka-
fyrirtæki lána vinnuvélar og leggja til efni og þjónustu af
ýmsu tagi. Nemendur vinnuskóla Reykjavíkur og Kópa-
vogs leggja hönd á plóg með starfsframlagi sínu. Unga
fólkið fæst þó ekki einvörðungu við uppgræðsluna sjálfa
heldur er verkefnið lagt upp sem samþætting umhverf-
ismála og upplýsingatækni. Að sögn framkvæmdastjóra
GFF, Björns Guðbrands Jónssonar, er áhersla lögð á að
kenna ungmennunum hina vísindalegu aðferðafræði.
„Við reynum að venja krakkana við ákveðna aðferð og
vera henni trúir. Þeir afla upplýsinga og fylgja þeim eft-
ir. Ungmennin hafa sýnt þessari vinnu meiri áhuga en
hefðbundinni garðavinnu og á góðum degi fíla þau þetta í
botn.“
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra sótti upp-
græðsluliðið heim og plantaði birkiplöntu á bakhlaði
Litlu kaffistofunnar með sömu vistvænu aðferð og nem-
endur vinnuskólanna.
Jónína sýndi verkefninu mikinn áhuga og var ekki
annað að sjá en að ráðherrann félli vel í kramið hjá unga
fólkinu.
Morgunblaðið/Eggert
Féll í kramið Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra var vel tekið af frökkum uppgræðsluhópi GFF.
Uppgræðsla í nágrenni
Litlu kaffistofunnar
Hvolsvöllur | Hjónabandið hélt
úgáfutónleika sína í Sögusetrinu á
Hvolsvelli á dögunum við góðan orðs-
tír. Voru tónleikarnir haldnir til að
fagna útgáfu nýs tólf laga hljómdisks
sem Hjónabandið hefur sent frá sér
og ber heitið Diskur ársins.
Hjónakornin Jón Ólafsson og Ingi-
björg E. Sigurðardóttir, rekstrarað-
ilar Kaffi Langbrókar í Fljótshlíð, og
Jens Sigurðsson og Auður Halldórs-
dóttir, kennarar á Hvolsvelli, skipa
hina bráðfjörugu hljómsveit, og eru
lög og textar frumsamin. Aðspurð um
tilurð laganna á hljómdisknum segja
hljómsveitameðlimir þau hafa orðið
til á undanförnum árum við hin ýmsu
tilefni.
Á tónleikunum komu fram auk
Hjónabandsins, söngflokkurinn Trill-
urnar sem er skipaður þeim Auði og
Ingibjörgu auk Ingibjargar Erlings-
dóttur, tónlistarkennara. Þær syngja
ýmis lög í eigin útsetningum. Auk
þess stigu afkomendur Hjónabands-
ins á stokk við mikinn fögnuð. Ómar
Smári og Andri Geir Jónssynir hófu
leikinn með hljómsveit sinni, Synir
hans Jóns míns, og Kristín Anna
Jensdóttir tróð upp í kjölfarið og flutti
frumsaminn texta við lag föður síns
sem annaðist undirspil.
Hamingjuríkt
Hjónaband
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Hjónabandið í sveiflu Frá vinstri: Jón Ólafsson, Auður Fr. Halldórsdóttir,
Ingibjörg E. Sigurðardóttir og Jens Sigurðsson á útgáfutónleikunum.
Grindavík | Húsfyllir var á styrktartónleikum
Kaldalónsklúbbsins í Grindavíkurkirkju þriðju-
dagskvöldið 11. júlí sl. Valdimar Hilmarsson
baritón og eiginkona hans, Alexandra Rigazzi-
Tarling mezzósópran heilluðu gesti upp úr skón-
um með fallegum söng og glæstri framkomu en
Magnús Gilljam annaðist píanóleik.
Valdimar er Grindvíkingum að góðu kunnur,
enda sonur Hilmars Helgasonar, skipstjóra á
Hrafni Sveinbjarnarsyni GK. Valdimar lauk námi
við Nýja tónlistarskólann í Reykjavík 1999 og eft-
ir útskriftina hélt hann til Lundúna til frekara
náms. Árið 2003 útskrifaðist Valdimar úr Guild-
hall School of Music and Drama með meistara-
gráðu úr óperudeild. Hann stundar nú nám við
Mozart-háskólann í Salzburg. Eins og gefur að
skilja hefur námið verið söngvaranum dýrt og
hélt Kaldalónsklúbburinn þessa tónleika í því
augnamiði að styrkja þennan unga og efnilega
söngvara.
Sjálfur lét Valdimar vel af aðstæðum í Grinda-
víkurkirkju, sagði hljóminn berast vel um húsið
og gott væri að heyra í sjálfum sér. Daginn eftir
tónleikana glöddu Valdimar og Alexandra svo
vistmenn Víðihlíðar með söng sínum og var ekki
að spyrja að frábærum undirtektum.
Frábærar undirtektir Hjónakornin Valdimar
Hilmarsson baritón og eiginkona hans, Alex-
andra Rigazzi mezzósópran, heilluðu tónleika-
gesti upp úr skónum í Grindavíkurkirkju.
Húsfyllir á styrktartón-
leikum Kaldalónsklúbbsins
Reykjanesbær | Aðsókn í
sundmiðstöðina við Sunnubraut
í Keflavík hefur ríflega tvöfald-
ast á fyrstu sex mánuðum árs-
ins miðað við fyrri helming
ársins 2005. Gestir á þessu
tímabili í ár eru rúmlega fimm-
tán þúsund en þeir voru um
sjö þúsund á sama tímabili í
fyrra.
Um síðustu áramót tók bæj-
arstjórn þá ákvörðun að frá og
með þeim tíma yrði aðgangur í
sund ókeypis fyrir öll börn á
grunnskólaaldri. Fyrir þann
tíma var ókeypis fyrir yngri
börn og verður svo áfram. For-
eldrar og aðrir virðast í aukn-
um mæli fylgja yngri kynslóð-
inni því tekjur af miðasölu til
fullorðinna hafa aukist um 13%
það sem af er ári, miðað við
fyrra ár.
Óvænt tekjuaukning
Mestra vinsælda hjá unga
fólkinu nýtur Vatnaveröldin
svokallaða sem opnuð var í maí
sl. Þar sem skammt er liðið
síðan hún var tekin í notkun
má líklegt telja að munur á að-
sókn síðari helming ársins
samanborið við síðasta ár verði
enn meiri en milli fyrstu sex
mánaða áranna. „Við erum
mjög bjartsýn og vonumst til
að þetta verði mikil lyftistöng
fyrir sveitarfélagið. Það hefur
komið okkur á óvart hve marg-
ir Reykvíkingar og Hafnfirð-
ingar hafa komið hingað,“ seg-
ir Hafsteinn Ingibergsson,
forstöðumaður íþrótta-
miðstöðvar Njarðvíkur, sem
áður en það tæmist úr þeim yf-
ir þá sem undir standa.
Þær stöllur gátu þó ekki gef-
ið sér mikinn tíma til að spjalla
þar sem leiðbeinendurnir voru
búnir að kalla krakkana upp úr
til að borða nesti. Að vísu
reyndist það leiðbeinendunum
hægara sagt en gert að smala
krökkunum saman, en þau
virtust skemmta sér kon-
unglega við að busla í lauginni.
laugina hitti blaðamaður fyrir
þær Birtu Rós Davíðsdóttur og
Berglindu Ástu Kristjáns-
dóttur, sem voru í sundferð
með félögum sínum og leið-
beinendum á leikjanámskeiðinu
sem þær sækja.
Aðspurðar sögðu þær að
skemmtilegast væri í Vatna-
veröldinni og að þar væri sér-
staklega gaman að standa und-
ir fötunum sem fyllast af vatni
tók á móti blaðamanni er hann
sótti sundmiðstöðina heim á
dögunum. „Það kom okkur
ekki á óvart að aðsóknin myndi
aukast en tekjuaukningin var
heldur óvænt. En ásamt því að
vera með ókeypis aðgang fyrir
börn þá er fullorðinsgjaldið
með því lægsta sem gerist á
landinu, 220 krónur,“ segir
Hafsteinn.
Í skoðunarferð sinni um
Frítt í sund og tekjur aukast
Ljósmynd/Jóhann Magnús
Í Vatnaveröld Birtu Rós og Berglindi Ástu þykir gaman í Vatnaveröldinni og sérstaklega að fötunum
sem fyllast af vatni og að endingu tæmast. Þar er frítt í sund fyrir börn á grunnskólaaldri og yngri.
Eftir Jóhann Magnús Jóhannsson
johaj@mbl.is