Morgunblaðið - 19.07.2006, Side 32

Morgunblaðið - 19.07.2006, Side 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÓVARGADÝRIÐ INNRA MEÐ MÉR ER SVANGT! MÁ BJÓÐA ÞÉR FERSKT SALAT MEÐ ÁVÖXTUM HVERS KONAR ÓARGADÝR HELDURÐU AÐ ÉG SÉ? HVAÐA GAGN ER Í ÞESSUM SNJÓ? HANN ER EKKI EINU SINNI 3 CM DJÚPUR! HANN ER FALLEGUR JÁ, EN SKÓLANUM ER EKKI AFLÝST VEGNA FALLEGS SNJÓS! AF HVERJU LÍKAR ÞÉR HANN EKKI? ÉG VEIT ÉG ER BARA EKKI HRIFIN AF NOTUÐUM FÖTUM BRETA- DROTTNING ÁTTI ÞENNAN KJÓL SKUNKUR MEIG Á HANN GRÍM MINN! HVAÐ Á ÉG AÐ GERA, LÆKNIR? TAKTU ÞESSA ÞVOTTAKLEMMUR OG HRINGDU SVO AFTUR Í MIG Í FYRRAMÁLIÐ HANN SPÁÐI AÐ ÉG YRÐI BEÐIN AÐ HALDA ÞENNAN FYRIRLESTUR EN ÉG HEF EKKI HEYRT NEITT FRÁ NEFNDINNI KANNSKI ÆTTI ÉG AÐ SENDA ÞEIM BRÉF EN AUÐVITAÐ VERÐ ÉG BEÐIN AÐ HALDA FYRIRLESTURINN... ...KANNSKI ÞARF ÉG BARA AÐ ÝTA AÐEINS Á EFTIR ÖRLÖGUNUM ÆTLARÐU AÐ HALDA ÁFRAM MEÐ MYNDINA ÁN KRAVEN? AUÐVITAÐ, KRAVEN ER EKKERT MERKILEGUR LENGUR ÞAÐ EINA SEM ÉG ÞARF ERT ÞÚ ...OG SVO KÓNGULÓAR- MAÐURINN AUÐVITAÐ MIG? HANN ER KASTARINN OKKAR, BESTI KYLFINGURINN OG FYRIRLIÐI JÁ, VIÐ ERU MEÐ FREKAR SLÆMAN GRUNN Í RAUN OG VERU ÞÁ ER KALLI GRUNNURINN AÐ LIÐINU OKKAR Dagbók Í dag er miðvikudagur 19. júlí, 200. dagur ársins 2006 Víkverji var að reynaað koma sér á lappir í gærmorgun er honum svelgdist um stund á morg- unkaffinu. Kveikt var á sjónvarpinu í eldhús- inu og flutningur í gangi á fréttum NFS. Greint var frá fyr- irhuguðum fjöl- skyldubúðum Íslands- vina við Kárahnjúka og rætt við talsmenn þeirra. Er fréttinni lauk var aftur skipt yf- ir á morgunhressan fréttaþulinn, er sagði eitthvað á þessa leið: Gott mál á ferð- inni. Víkverja finnst ekkert verra en að heyra fréttaþuli gefa fréttamálum einkunn eða ljá þeim persónulega skoðun sína. Vilji NFS skapa sér ein- hvern trúverðugleika, þá gerir hún það ekki með þessum hætti. Varla hefur þulurinn verið að tjá skoðanir sínar á því hve þetta var vel flutt frétt. Víkverji skildi ummælin ekki þannig. Fjölskyldubúðir við Kára- hnjúka eru í sjálfu sér hið besta mál, enda mikilvægt að sem flestir Íslend- ingar kynni sér þessar stór- framkvæmdir fyrir austan, en frétta- menn eiga ekki að tjá þær skoðanir sínar í fréttatímum. Víkverji greindi á dögunum frá aldinni kunningjakonu sem gerði heiðarlega til- raun til að fá öku- skírteini sitt endurnýj- að. Stóðst hún ekki sjónpróf hjá lækninum sínum en hún sætti sig ekki alls kostar við það, þó hún væri svo gott sem hætt að keyra. Nú hefur Vík- verja borist til eyrna að hún hafi ekki gefist auðveldlega upp, held- ur gengið á fund ann- ars læknis. Eitthvað hefur sjónin verið betri (eða læknirinn svona góð- hjartaður) því hún stóðst augnskoð- unina á þeim bænum og gat fengið ökuskírteinið endurnýjað. Tók hún gleði sína á ný, enda getur vinkona okkar ómögulega hugsað sér að kveðja þennan heim próflaus, eins og Víkverji greindi frá síðast. Loks má Víkverji til með að hrósa Sjónvarpinu fyrir hestaþættina Kóngur um stund. Þátturinn á mánu- dagskvöldið um ferð Íshesta um Þingeyjarsýslur var stórskemmti- legur. Nafntogað og hresst fólk með í för sem fékk að finna fyrir því, sumir meira en aðrir. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is           Mannlíf | Inga Dóra brosti sínu blíðasta þar sem hún seldi vegfarendum á Laugaveginum skinnskó og ýmislegt glingur. Eflaust myndu margir kaup- menn bæjarins vilja skipta við hana og fá í sinn hlut áhyggjuleysið og látlaust verslunarplássið, sólarmegin í mannlífinu. Skósali í sólskinsskapi Morgunblaðið/Jim Smart MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleik- urinn öfundar ekki. (I. Kor. 12, 4.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.