Morgunblaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Nýtt sumarhús í Ásgarðslandi, Grímsnesi á 5800 fm eignalóð. Bústaðurinn er fullkláraður að utan en einangraður og plastaður að innan án innveggja og gólfefnis. Búið er að leggja heitt og kalt vatn að húsvegg og tengja 3000 l rotþró. Vandaður bústaður á fallegum og kjarrgrónum stað. V. 13,9 millj. 7361. Steindór sýnir bústaðinn. S: 899 1775. Sýningarhelgi í Grímsnesi á milli kl. 14-17 í dag og sunnudag Ca. 20 fm sumarhús á einstaklega fallegri 7300 fm eignarlóð. Stórkostlegt útsýni er frá landinu. Tilvalin kaup fyrir aðila sem vilja eign- ast fallega lóð í Grímsnesi og geta notað hús- ið sem vinnuaðstöðu meðan á byggingu húss stendur og síðar sem gestahús. V. 6,3 millj. 7362. Steindór sýnir bústaðinn. S: 899 1775. Sumarhús Ásabraut 9 - Grímsnesi Sumarhús - Lokastígur 16 Ásgarðslandi - Grímsnesi Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands hækkaði um 0,31% í gær í 5.458 stig. Viðskipti með hlutabréf námu rúmum milljarði króna en mest viðskipti voru með bréf KB banka eða fyrir 423 milljónir. Gengi bréfa Glitnis hækkaði um 1,8% og gengi bréfa Straums-Burðaráss og FL Group um 1,2%. Gengi bréfa Alfesca lækkaði um 1,4% og bréfa Mosaic Fashions um 1,2%. Krónan veiktist lítillega í gær og kostar dollarinn nú 73,5 krónur, evran 93,1 og pundið 136,5 krónur. Bréf Glitnis hækka ● STEFNT er að því að auka stofnfé Sparisjóðs Skagafjarðar um 200 milljónir króna, úr 100 í 300 milljónir. Í fréttablaðinu Feyki á Sauð- árkróki segir að breytingar hafi orðið á eigendahópi sparisjóðsins og eignaraðildin sé nú dreifðari en áður. Stærsti einstaki eigandi stofnfjár er Sparisjóður Mýrasýslu með rúm 5%. Feykir segir að Kaup- félag Skagfirðinga og tengdir að- ilar hafi minnkað sitt stofnfé en kaupfélagið átti á sínum tíma í deilum við aðra stofnfjáreigendur um eignaraðildina. Haft er eftir Ólafi Jónssyni, stjórnarformanni Sparisjóðs Skagafjarðar og spari- sjóðsstjóra á Siglufirði, að stefna stjórnarinnar sé að efla sjóðinn og finna honum stærra framtíðarhús- næði. Stofnfé Sparisjóðs Skagafjarðar aukið ● HAGNAÐUR Sparisjóðs Mýra- sýslu nam tæpum 603 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins samanborið við rúmlega 213 millj- óna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Fram kemur í tilkynningu spari- sjóðsins að meginhluta geng- ishagnaðar á tímabilinu megi rekja til uppfærslu og innlausnar á eign- arhlut sparisjóðsins í Exista ehf. Sparisjóður Ólafsfjarðar og Sparisjóður Siglufjarðar eru dótt- urfélög Sparisjóðs Mýrasýslu en eru báðir reknir sem sjálfstæðar einingar. SPM hagnast um 600 milljónir ÞAÐ ER of snemmt að fara að líta jákvæðum aug- um á íslensku bankana. Þeir eru rétt að byrja að aðlaga sig nýjum og breyttum aðstæðum eins og raunar allt íslenska hagkerfið. Fjármögnun er veikasti hlekkurinn hjá íslensku bönkunum og þar stendur Kaupþing banki höllustum fæti. Íslensku bankarnir hafa tekið skref í þá átt að losa um krosseignartengsl og það er mikilvægt að núverandi áform í þeim efnum gangi eftir. Hins vegar er ástæða til þess að hafa áhyggjur af lán- veitingum Kaupthing-Exista og Glitnis-Sjóvar til stjórnenda í þessum fyrirtækjum og eins af átök- um í Straumi-Burðarási. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu alþjóðlega fjárfesting- arbankans Merill Lynch sem ber titilinn: Icelandic Banks – To soon to tell. Ávöxtunarkrafa áfram há Sérfræðingar Merill Lynch telja að Kaupþing banki þurfi að afla 6,4 milljarða evra, jafngildi nær 600 milljarða íslenskra króna, fram til loka ársins 2007, til að standa straum af endurfjármögnun og vexti en ekki er raunhæft að ætla að bankinn muni ganga á veltufjármuni sína. En bæði Glitnir og Landsbankinn munu líka þurfa að leita á fjár- magnsmarkaðinn til þess að standa skil á lánum upp á samtals 5,7 milljarða evra eða 535 milljarða króna sem koma á gjalddaga á næsta ári. Af þess- um sökum má reikna með að tryggingarálagið og þar með ávöxtunarkrafan á skuldabréfum allra ís- lensku bankanna muni áfram haldast há þótt álag- ið hafi verið lægra hjá bæði Glitni og Landsbank- anum en Kaupþingi banka. Markaðurinn strangari en yfirvöld á Íslandi Sérfræðingar Merill Lynch segja að þeir geti ekki fellt sig við marga viðskiptahætti sem séu viðhafðir á Ís- landi og nefna sérstaklega í því sambandi kross- eignatengsl, umtalsverðar lánveitingar til hlut- hafa, lán til hlutabréfakaupa fyrir stjórnendur, svo dæmi séu tekin. „En nú er verið að taka á þessum viðskiptahátt- um en ekki vegna þess að löggjafinn skipaði svo fyrir heldur vegna þess að aðilar á lánsfjármarkaði kvörtuðu undan þeim. Hvers vegna var markaður- inn ósáttur við þetta en yfirvöld að því er virðist ekki?“ spyrja sérfræðingar Merill Lynch. Þá benda þeir einnig á að Fjármálaeftirlitið hafi verið seint að bregðast við ítrekuðum ábendingum Seðlabankans um útlánavöxt bankanna til hluta- bréfakaupa. Flest atriði réttmæt í „svörtu skýrslunni“ frá í vor Merill Lynch sendi frá sér afar gagnrýna og á þeim tíma umdeilda skýrslu um íslensku bankana í byrjun mars í vor, Íslensku bankarnir – ekki það sem maður heldur, en sú skýrsla skók bæði hluta- bréfamarkaðinn og íslensku krónuna allhressilega enda kusu sumir að kalla hana svörtu skýrsluna. Sérfræðingar Merill Lynch segja að það sem þeir hafi sett fram í þeirri skýrslu hafi að lang- mestu leyti gengið eftir. Í henni hafi verið bent á hversu viðkvæmir bankarnir væru fyrir ýmiss konar ójafnvægi í efnahagsmálum en þeir séu nú farnir að reyna að takast á við suma af þessum þáttum. „En þetta ferli er bara rétt að hefjast. Á undanförnum mánuðum, svo dæmi sé tekið, hafa menn almennt orðið sammála um að hagvöxturinn verði enginn (ef ekki neikvæður) árið 2007. Þetta var ekki hin útbreidda skoðun þegar okkar skýrsla kom út en mun vissulega hafa áhrif á bankana.“ Fjármögnun íslensku bankanna áfram viðkvæmasti þátturinn Lánsfjármarkaðurinn leiðréttir vafasama viðskiptahætti en ekki íslensk yfirvöld, segja sérfræðingar Merill Lynch Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is                         &' !   !  AB " $(&C$3'7 A'B $3'7 A& $(&C$3'7 A" & $(&C$3'7   "$(&C$3'7 . , $3'7 -$(&C$3'7 (  $,  $3'7 CD $,  $3'7 - ),  $@ )$3'7 ; $3'7 ;& B$ 3 & $3'7 =5$A  B$=&# ! # 8$ 8'7,  $3'7 E$3'7 ( # ' )   $(&C$3'7 :$( ) $3'7 FB ) B$(&C$3'7 +%3 $3'7 G* #  $3'7 6  $3'7 * #"   +, !8'H $$! )$"'7 + -.  / FI1J !   " 7"                             * $'8 '* $" 7"                                K$ L K$ L K$ L K$ L  K$ L K$L K$L K$ L K$ L    K$L K$  L         : ) "  C )   G ,&$ $&$) ? C$$$$$$$$$!  7 7 7 7 7 7  7  7 7 7     7  7                                                   6  C $ $D7$7 AG:7$M$A3     ) "  C                 ● HAGNAÐUR Nýherja eftir skatta á öðrum ársfjórðungi nam 29,4 milljónum samanborið við 21 millj- ón króna á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld (EBITDA) af starf- seminni var 154,2 milljónir eða 7,3% en var 60 milljónir og 4,3% á sama tíma í fyrra. Tekjur Nýherja á öðrum ársfjórðungi losuðu 2,1 milljarð á móti tæpum 1,4 millj- örðum á sama tíma í fyrra. Tekjur Nýherja á fyrri helmingi ársins námu um fjórum milljörðum á móti tæpum 2,8 milljörðum á sama tímabili í fyrra og jukust tekj- urnar því um 44% milli ára. Rekstr- arhagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir var 312,6 milljónir eða 7,8%, en var 100,7 milljónir á fyrri helmingi liðins árs. Hagnaður tíma- bilsins eftir skatta var því 83,7 milljónir. Í tilkynningu félagsins segir að í áætlunum sé gert ráð fyrir að af- koma af rekstri félagsins verði áþekk á síðari helmingi ársins og hún var á þeim fyrri. Mikil tekjuaukning hjá Nýherja BRESKA fjármálajöfrinum David Montgomery og fjárfestingasjóði hans, Mecom, hefur enn ekki tekist að afla nægjanlegs fjár til þess að greiða fyrir umsamið kaupverð fyrir fjölmiðlaveldið Orkla Media, sem m.a. á danska dagblaðið Berlingske Tidende. Fram kemur í frétt norska við- skiptablaðsins Dagens Næringsliv og dönskum fjölmiðlum að hópur fjárfesta hafi kippt að sér höndunum einmitt vegna þess óvissuástands sem skapast hefur á danska dag- blaðamarkaðinum, m.a. vegna fyrir- hugaðrar útgáfu Dagsbrúnar á frí- dagblaði. Því virðist sem Montgomery kunni að reynast erfitt að afla þeirra 6,6 milljarða danskra króna sem hann þarf að reiða af hendi fyrir Orkla Media en í frétt Berlingske Tidende segir að Mecom vanti einn milljarð danskra króna til að geta reitt kaupverðið af hendi. Samkvæmt nýjustu fréttum standa samningaviðræður enn yfir og talsmaður segir að tímafresturinn sé enn ekki útrunninn en enginn vissa sé fyrir því að menn komist að samkomulagi. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Óvissa um söluna á Orkla Media + ) N !O=$         G!1 .AP        IAI$ <;P       <;P$ 3' +         FI1P$ .&Q$9&    !   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.