Morgunblaðið - 22.07.2006, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
TÍU dögum eftir að Ísraelsher hóf
mannskæðar loftárásir á Líbanon eru
Ísraelar nú farnir að efast um að
hernaðurinn beri tilætlaðan árangur.
Hernum hefur ekki tekist að binda
enda á flugskeytaárásir Hizbollah á
Ísrael, lífláta leiðtoga hreyfing-
arinnar eða hrekja vopnaða liðsmenn
hennar frá landamærunum.
Ísraelar hafa einnig einsett sér að
hindra vopnaflutninga frá Sýrlandi
eða Íran til liðsmanna Hizbollah með
því að gera loftárásir á vegi, brýr og
alþjóðaflugvöllinn í Beirút. Þá vilja
Ísraelar knýja ráðamenn í Líbanon
til að afvopna liðsmenn Hizbollah í
samræmi við ályktun öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Reynslan af slíkum lofthernaði á
síðustu árum hefur hins vegar sýnt
að loftárásirnar einar og sér duga
ekki til að sigrast á hefðbundnum
herjum, hvað þá skæruliðahópum
sem erfiðara er að finna og uppræta.
Ísraelar hafa því þegar sent sér-
þjálfaða hermenn til að gera „hárná-
kvæmar“ skyndiárásir í sunnanverðu
Líbanon. Þeir búa sig nú einnig undir
að senda fjölmennara innrásarlið á
svæðið. Slíkur landhernaður gæti
endað með miklu mannfalli í liði Ísr-
aela líkt og árið 1982 þegar hundruð
ísraelskra hermanna féllu í innrás í
Líbanon.
„Herinn of sjálfsöruggur“
Þótt Ísraelsher hafi ekki náð meg-
inmarkmiðum sínum hefur hann sýnt
ráðamönnum í Líbanon hversu dýr-
keypt það er að verða ekki við þeirri
kröfu Ísraela að afvopna liðsmenn
Hizbollah og senda hersveitir til suð-
urhluta Líbanons til að hindra árásir
yfir landamærin.
Lofthernaðurinn hefur haft hrika-
legar afleiðingar fyrir íbúa Líbanons.
Um 340 Líbanar hafa beðið bana í
árásunum, flestir þeirra almennir
borgarar og hálf milljón manna hefur
flúið heimili sín.
Liðsmenn Hizbollah hafa skotið
nær þúsund flugskeytum og eld-
flaugum á norðurhluta Ísraels og um
milljón Ísraela á stöðugt á hættu að
verða fyrir árás. Um 30 Ísraelar
liggja í valnum.
„Það er ekki hægt að neita því að
Ísraelar eru í klípu,“ hafði fréttastof-
an AFP eftir ísraelska hermála-
sérfræðingnum Reuven Pedatzur.
„Herinn hefur verið of sjálfsöruggur
og ofmetið möguleika sína á því að
brjóta Hizbollah á bak aftur.“
„Hizbollah virðist halda þetta út og
baráttuhugur liðsmanna hennar er
ekkert farinn að slævast,“ sagði
Shaul Mishal, fræðimaður við Tel
Aviv-háskóla, sérfróður um ísl-
amskar hreyfingar.
Fjölmiðlar svartsýnir
Eins og fleiri sérfræðingar í mál-
efnum Mið-Austurlanda telur Mishal
að ekki verði hægt að koma á friði
nema með samkomulagi milli Ísraela
og Líbana um að Sameinuðu þjóð-
irnar sendi fjölþjóðlegt herlið til suð-
urhluta Líbanons og veiti því víðtækt
umboð til aðgerða. Fjölmiðlar í Ísrael
hafa stutt hernaðinn í Líbanon en eru
nú svartsýnir á að hann beri árangur.
„Þessu stríði lýkur með súru bragði í
munninum,“ sagði dagblaðið Yediot
Aharonot. „Við náum ekki þremur
meginmarkmiðum okkar að fullu. Við
greiðum lausnargjald fyrir hermenn-
ina okkar, sem voru teknir til fanga,
Hizbollah-hreyfingin verður ekki af-
vopnuð alveg og her Líbanons mun
lítið aðhafast jafnvel þótt hann sendi
ef til vill hermenn til suðurhluta
landsins.“
Ísraelar teknir
að efast um að
markmiðin náist
AP
Bandarísk fjölskylda í Beirút á leið í skip sem flutti um 5.000 bandaríska borgara frá Líbanon í gær.
’Landhernaður gætiendað með miklu mann-
falli í liði Ísraela líkt og
árið 1982 þegar hundruð
ísraelskra hermanna
féllu í innrás í Líbanon.‘
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
TIL eru ódýrar tegundir af
Tequila, áfenginu mexíkóska
sem gjarnan er drukkið með
salti og sítrónusneið. En líka
dýrar.
Danska blaðið Jyllands-
posten segir að nýlega hafi
Tequila-flaska verið boðin til
sölu í Mexíkó á 1,325 millj-
ónir danskra króna sem sam-
svarar um sextán milljónum
ísl. kr.
Það var fyrirtækið Tequila
Ley .925 sem bauð þessa vöru
en markmiðið var ekki síst að
komast í heimsmetabók Guin-
ness fyrir að selja dýrustu
flösku allra tíma, a.m.k. með
drykkjarhæfu innihaldi.
Um er að ræða tegund sem
kennd er við bláa agave-jurt,
hefur verið geymd í sex ár og
síðan hellt á flösku úr platínu.
Aðeins 33 flöskur af þessari
gerð voru framleiddar.
Dýrir
dropar af
Tequila
JAPANIR í baðkari fylltu af heitu vatni og krydd-
blöndu í Hakone, vestan við Tókýó. Hermt er að krydd-
blandan, meðal annars rauður pipar og túrmerik, bæti
blóðstreymið í líkamanum og geri húðina fallegri.
Reuters
Baða sig í kryddblöndu
París. AFP. | Að minnsta kosti 30
manns höfðu í gær látið lífið af völd-
um hitabylgju í vestanverðri Evrópu
og íbúar margra landa í álfunni voru
hvattir til þess að kæla sig niður og
forðast sólina.
Spáð var svipuðum hita næstu
daga.
Í Frakklandi hafa um 20 látið lífið
vegna hita, þeirra á meðal 15 mánaða
gamalt barn. Frá byrjun vikunnar
hafa því 30 látið lífið vegna hita í Vest-
ur-Evrópu, samkvæmt tölum frá heil-
brigðisstofnunum. Tveir létust á
Spáni. 168 dóu umfram meðaltals-
dánartíðni í Hollandi og er það m.a.
rakið til hitabylgjunnar.
Búist er við því að hitinn nái 38
gráðum í austanverðu Frakklandi.
Franska veðurstofan hefur ráðlagt
fólki að loka gluggum og hafa hlera
fyrir þeim á daginn, fara oft í sturtu,
drekka 1,5 lítra af vatni á dag hið
minnsta og vera a.m.k. í þrjár klukku-
stundir á dag á loftkældum stöðum.
Fyrir þremur árum, sumarið 2003,
létust 15.000 af völdum hita í Frakk-
landi og helmingi fleiri í Evrópu allri.
Tugir láta
lífið í
hitabylgju