Morgunblaðið - 22.07.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 15
ERLENT
ÍSBJÖRN gæðir sér á frosnum gulrótum sem starfsmenn dýragarðsins í
Berlín höfðu komið fyrir í fótboltalöguðum ísklumpi. Mjög heitt hefur ver-
ið í veðri í Evrópu að undanförnu og í gær fengu ísbirnir dýragarðsins
samtals 10 tonn af ís til að kæla sig niður í sumarhitunum.
AP
Kælandi gulrætur í „fótbolta“
TA MOK, sem var á árum áður einn
helsti leiðtogi Rauðu kmeranna í
Kambódíu, lést í gær á áttugasta og
fyrsta aldursári. Ta Mok, sem hét réttu
nafni Chhit Choen, var yfirhershöfð-
ingi Rauðu kmeranna og gjarnan upp-
nefndur „slátrarinn“, vegna aðildar
sinnar að blóðbaðinu í Kambódíu á sjö-
unda áratugnum, þegar 1,7 milljónir
manna létu lífið í aðgerðum skæruliða-
hreyfingar og síðar ríkisstjórnar
kommúnista.
Ta Mok beið þess að réttað yrði yfir
honum á næsta ári í sérstökum stríðs-
glæpadómstóli, sem nýtur stuðnings
Sameinuðu þjóðanna, vegna þátttöku
hans í aðgerðum kmeranna. Hann var,
auk Kaing Khek
Iev, yfirmanns
pyntingamiðstöðv-
ar kmeranna, að-
eins annar af eftir-
lifandi
herforingjum
kmera-hreyfingar-
innar sem enn
voru í varðhaldi.
Hefði dómur fallið í máli hans hefði
hann því orðið fyrstur til að hljóta dóm
fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mann-
kyni í réttarhöldunum.
Nú er hins vegar óvíst hvort rétt-
arhöldin geta haldið áfram.
Undir það síðasta þjáðist Ta Mok
vegna berkla og hás blóðþrýstings, en
hann var af mörgum talinn einn
grimmasti herforingi kmeranna, sem
börðust fyrir útbreiðslu kommúnisma í
þessu blásnauða Asíuríki.
Fyrir utan aðild að fjöldamorðum og
mannránum áður en kmerarnir kom-
ust til valda var hann talinn hafa
stjórnað frægri hernaðaraðgerð árið
1974, þegar hið forna aðsetur konungs-
fjölskyldunnar, borgin Oudong, var
jöfnuð við jörðu með gríðarlegu mann-
falli. Hann varð leiðtogi kmeranna árið
1997, árið áður en Pol Pot, fyrrverandi
leiðtogi þeirra, féll frá, en var handtek-
inn tveimur árum síðar og varði síð-
ustu æviárunum á bak við lás og slá.
Fjöldamorð kommúnista
Blóðbaðið í Kambódíu á árunum
1975 til 1979, þegar vinstri öfgamenn
úr röðum kommúnista gengu fram
með harðstjórn og kúgun, er gjarnan
flokkað meðal ægilegustu atburða í
stjórnmálum heimsins á seinni hluta
tuttugustu aldarinnar. Þeim var svo
steypt í innrás Víetnama árið 1979, en
á þessum árum er talið að tæplega
fimmtungur kambódísku þjóðarinnar
hafi látið lífið.
Mörg fórnarlömb kmeranna voru
því vonsvikin þegar fréttir bárust af
andláti „slátrarans“, sem margir vildu
sjá dæmdan fyrir glæpi gegn mann-
kyni.
„Slátrarinn“ í
Kambódíu allur
Ta Mok átti hlut
að fjöldamorðum
Rauðu kmeranna
Ta Mok
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Haag. AFP. | Charles Taylor, fyrr-
verandi forseti Líberíu, mætti fyrir
Alþjóðlega sakamáladómstólinn í
Haag í gær, þegar yfirheyrslur yfir
honum vegna ákæra um glæpi gegn
mannkyni hófust. Sérstakur stríðs-
glæpadómstóll í Síerra Leóne, sem
sér um saksóknina, hafði farið fram
á að réttarhöldin yrðu flutt til Haag
af öryggisástæðum, af ótta við að
þau gætu leitt til blóðugra átaka í
Freetown, höfuðborg landsins.
Taylor var þögull í réttarsalnum í
gær og áttu viðstaddir erfitt með að
greina orðaskil er hann hvíslaði
nokkrum orðum að lögmönnum sín-
um, sem kvörtuðu undan slæmum
aðbúnaði skjólstæðings síns og því
harðræði að honum skyldi eingöngu
vera boðið upp á evrópskan mat.
Þá fóru þeir fram á að réttarhöld-
unum, sem eiga að hefjast í febrúar
á næsta ári, yrði frestað þangað til í
júlí 2007, með þeim rökum að þeir
þyrftu meiri tíma til að undirbúa
málsvörnina.
Alls hafa verið lagðar fram 11
ákærur á hendur honum vegna
ásakana um glæpi gegn mannkyni,
stríðsglæpi og gróf brot á mannrétt-
indum. Þá er hann ákærður fyrir
stuðning við skæruliða sem drápu,
limlestu og nauðguðu tugum þús-
unda manna í borgarastríðinu í
Síerra Leóne, nágrannaríki Líber-
íu.
Réttarhöldin eru þau umfangs-
mestu sem njóta stuðnings Samein-
uðu þjóðanna um þessar mundir, en
Taylor er talinn bera mikla ábyrgð
á borgarastríðunum í Síerra Leóne
og Líberíu á tímabilinu 1989 til 2003
sem drógu yfir 400.000 manns til
dauða.
Sameinuðu þjóðirnar, stjórn
Síerra Leóne og ríki, sem hafa veitt
landinu aðstoð, stofnuðu stríðs-
glæpadómstólinn til að fjalla um
stríðsglæpi sem framdir voru í land-
inu. Enginn dómstólanna sem voru
fyrir í Haag hafði umboð til að fjalla
um þá glæpi sem Taylor er sakaður
um.
Taylor kom
fyrir rétt í Haag
AP
T́aylor fyrir réttinum í Haag í gær.
MAÐUR hjólar framhjá þúsundum
para af skóm og sandölum sem var
komið fyrir á sólbakaðri götunni til
að þurrka þá eftir mikil flóð í borg-
inni Shaoguan í Guangdong-héraði í
Suður-Kína í vikunni. Flóðin komu í
kjölfar hitabeltisstormsins Bilis sem
reið yfir suðurhluta Kína um síðustu
helgi. Í fyrstu var talið að á þriðja
hundrað manns hefðu farist í storm-
inum. Í gær tilkynntu hins vegar
kínversk stjórnvöld að 482 menn
hefðu týnt lífi af völdum Bilis. Óttast
er að dánartalan geti hækkað enn,
því að yfirvöld í Hunan-héraði segja
89 manna enn saknað eftir storminn.
Bilis olli einnig eyðileggingu og
mannskaða á Filippseyjum og í
Taívan, en mikið regn og flóð í kjöl-
far hans hafa eyðilagt hluta vega-
kerfisins í Suður-Kína.
Hátt í fimm hundruð látnir í Kína
Reuters