Morgunblaðið - 22.07.2006, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | „Gamlir hlutir hafa eitt-
hvað notalegt við sig. Þeir eru með
sál og gera umhverfið þar sem þeir
eru persónulegt og notalegt,“ sagði
Helga Salbjörg Guðmundsdóttir
sem ásamt móður sinni Jósefínu
Friðriksdóttur opnar í dag, laug-
ardag, verslunina Maddömurnar –
munir með sál. „Já og svo geyma
hlutirnir sögu sem er notalegt að
vita af og hún tengir það gamla við
nútímann og sýnir að það þarf ekki
alltaf að henda öllu þó nýir hlutir fá-
ist í verslunum,“ sagði Jósefína.
Verslun þeirra mæðgna er við
Kirkjuveg númer 8, í litlu, gömlu
húsi sem hýst hefur ýmsa starfsemi í
gegnum tíðina, bakarí, sport-
vöruverslun, hannyrðaverslun,
saumastofu og efnalaug svo eitthvað
sé nefnt. Verslunin verður opin frá
fimmtudegi til sunnudags í viku
hverri.
Strax og komið er inn í verslunina
skapa munirnir sem þar eru nota-
lega tilfinningu og kalla á augað sem
fer af einum hlut á annan en af nógu
er að taka. „Sjáðu þennan sófa
hérna, hann er yfir hundrað ára
gamall og hugsaðu þér hvað hann
hefur hlustað á mörg samtöl í gegn-
um tíðina og klukkan hér fyrir ofan
hann hvað hún hefur horft á í þeim
húsakynnum þar sem hún hefur ver-
ið,“ sagði Helga þegar hún benti á
nokkra muni. „Og þetta skatthol
hérna sem fólk hefur notað til að
geyma fínu hlutina sína og setið við
að skrifa bréf. Þetta er notalegt og
verðmætt,“ sagði Jósefína.
Gamall búðarkassi
gerði útslagið
„Þetta er gamall draumur sem við
erum að láta rætast hérna,“ segir
Helga sem hefur búið í Danmörku í
8 ár og segist hafa heillast af af-
slöppuðu andrúmslofti og notaleg-
heitum sem einkenna Dani og það
hvernig fólk nýtir sér flóamarkað-
ina. „Margir Danir nýta sér þessa
markaði til að endurnýja hjá sér
húsmuni nú eða bæta við munum,“
sagði Helga og Jósefína bætti við að
þær hefðu verið að hugsa um þetta
lengi og bræða þetta með sér. „Svo
hringdi Helga einu sinni og sagðist
vera búin að kaupa gamlan búð-
arkassa og þá var ekki aftur snúið og
þessi kassi er hérna í búðinni en auð-
vitað þurfum við að nota nýjan og
tæknilegan kassa við afgreiðslu-
störfin,“ sagði Jósefína. „Svo höfum
við verið með nefið ofan í húsablöð-
um þar sem sýndar eru innréttingar
og það hefur heillað okkur þessi
„bland í poka-stíll“ sem er til í Dan-
mörku og víðar og það grípur okkur
að sjá þennan stíl í notkun,“ sagði
Helga. „Já, þetta er svona dálítil lífs-
stílshugjón að setja þessa verslun á
stofn. Það er engin slík hér á Suður-
landi og við höfum virkilega gaman
af svona hlutum og vonum auðvitað
að aðrir hafi það líka,“ sagði Jós-
efína.
„Bland í poka-stíllinn“ heillar
„Þessir mörgu og ólíku hlutir
hérna hjá okkur, bæði stórir og smá-
ir, hafa allir sál því þeir hafa verið
notaðir og þeim hefur verið sýnd al-
úð og það hefur verið farið vel með
þá. Munirnir eru frá ýmsum tíma og
sumir yfir hundrað ára gamlir. Við
fáum munina frá Danmörku, Svíþjóð
og Austurríki og vonumst til þess að
geta einnig fengið muni héðan frá
Íslandi til að selja. Við gerum okkur
vonir um að það sé markaður fyrir
þessar vörur hérna og vitum reynd-
ar að sumarhúsaeigendur eru mikið
fyrir að nýta sér gamla muni til að
hafa í kringum sig í bústöðunum.
Svo er sagt að það séu breytingar
framundan og fólk muni fara að leita
meira aftur til fortíðar varðandi stíl-
brigði í innréttingum og innan-
stokksmunum,“ sagði Helga sem er
nýflutt til Selfoss ásamt fjölskyld-
unni, Sigurði Torfa Guðmundssyni
óperusöngvara og þremur börnum,
13, 11 og 2 ára. Hún ætlar að starfa
sem kennari í Vallaskóla og hlakkar
til starfsins, kenndi einnig í Dan-
mörku á meðan hún bjó þar og lærði
reyndar líka margmiðlun og hefur
gert góða heimasíðu fyrir verslunina
www.maddomurnar.com. Jósefína
hefur kennt í mörg ár við Vallaskóla
en segist formlega hætt í því starfi
þó svo hún muni kenna nokkra tíma
á viku í vetur. „Það verður gaman að
fást við annað en kennsluna. Mér
þykir mjög vænt um kennarastarfið
og börnin sem ég hef kennt og er að
kenna,“ sagði Jósefína.
„Það er yndislegt að búa í Dan-
mörku, þar er mjög fjölskylduvænt
samfélag og þægilegt andrúmsloft
fyrir fjölskyldufólk. Maður finnur
strax að hér er meiri spenna og
hraði. Danir eru þekktir fyrir að
njóta lífsins, hafa kannski minna
umleikis en eyða meiri tíma með
fjölskyldunni. Við vonum að það
fylgi búðinni hjá okkur einhver nota-
legheit sem laðar að og fólk gefi sér
tíma til að líta inn hjá okkur og velta
vöngum yfir þeim munum sem við
erum með,“ sagði Helga Salbjörg
Guðmundsdóttir sem ásamt móður
sinni er verslunarkona í Maddömun-
um á Selfossi.
Mæðgurnar Jósefína og Helga Salbjörg opna fornmunaverslun á Selfossi í dag
Gamlir hlutir hafa sögu og gera
umhverfið persónulegt og notalegt
Eftir Sigurð Jónsson
Mæðgurnar Jósefína Friðriksdóttir og Helga Salbjörg Guðmundsdóttir við
afgreiðsluborðið í Maddömunum, með gamla búðarkassann á milli sín.
Flúðir | Ekki eru öll 13 ára börn
jafnheppin og hann Bjarki Guð-
mundsson á Flúðum en hann vinnur
við að pakka paprikum í nokkrar
klukkustundir á dag. Bjarki starfar
í garðyrkjustöðinni Jörfa en frá
henni eru send 1.800 til 2.500 kg af
papriku í hverri viku. Þannig tekst
honum að safna sér notadrjúgum
vasapeningum og jafnvel fyrir þeim
hlutum sem hann girnist hverju
sinni.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Pakkar papriku
fyrir vasapeninga
LANDIÐ
Blönduós | Illur fengur, kuldaboli og hverafnyk-
ur er eitthvað sem menn kannast við úr daglega
lífinu en Fjalla-Eyvindur í baði er eitthvað sem
fær menn til að staldra við.
Sauðaþjófurinn, nýi matsölustaðurinn á Hótel
Blönduósi, býður upp á allt þetta og meira til á
matseðli sínum þetta sumarið. Undirmálskvik-
indi og uppáhald sauðaþjófsins er þar einnig að
finna.
Holgeir Clausen, hótelstjóri á Hótel Blönduósi,
upplýsti í samtali við fréttaritara Morgunblaðs-
ins að nöfnin á réttunum væru gripin úr hún-
vetnskri sögu og gat þess til dæmis að soðið
lambakjöt hefði verið kallað „Fjalla-Eyvindur“
að minnsta kosti í Vestur-Húnavatnssýslu og því
væri það deginum ljósara að Fjalla-Eyvindur í
baði hlyti að vera kjötsúpa.
Spurður um „illan feng“, sem er grafinn lax á
matseðlinum, hvort hér væri um illa fenginn lax
úr Blöndu að ræða hló Holgeir við og sagði svo
ekki vera en sagði það ekki skemma að menn
leyfðu ímyndaraflinu að njóta sín.
Undirmálskvikindi sem munu vera soðin
hrossabjúgu vildi Holgeir lítið tjá sig um. En á
bak við þann rétt sagði hann að væri samt saga –
sem ekki ætti erindi í fjölmiðla.
Kannski er hægt að fá hana sagða með því að
heimsækja Hótel Blönduós á ferðalagi um þjóð-
vegina? Sauðaþjófurinn er genginn í endurnýjun
lífdaga á Blönduósi og býr á hótelinu en yfir-
bragðið er mildara.
Má bjóða þér Fjalla-Eyvind í baði?
Matseðill sauðaþjófsins Ekki er
alls víst um hvort Fjalla-Eyvindur
hafi átt úr svo mörgum girnilegum
réttum að velja á sínum tíma.
Grundarfjörður | Sólarglennan að
undanförnu hefur heldur betur
hleypt fjöri í mannlífið. En á meðan
flestir spóka sig í sólinni eða grípa til
málningarpensilsins þá fær ljós-
myndarinn Mats Wibe Lund fiðring
í fingurna og flýgur um loftin blá til
að fanga augnablikið.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Grundarfirði veitti því athygli á
fimmtudaginn að þyrla sveimaði yfir
bænum. Þyrlan lenti síðan vestan-
vert í útjaðri hans. Þar reyndust á
ferð Mats ljósmyndari ásamt Reyni
sem er þyrluflugmaður hjá Þyrlu-
þjónustunni.
Mats kvaðst hafa verið orðinn
kaffiþyrstur eftir ferð um loftin blá
og ákveðið að banka upp á í Hellna-
felli. Þar átti hann von á að Sandra
vinkona hans byggi enn. En þar
reyndist þá kominn nýr ábúandi frá
því um síðustu helgi, Kolbrún Grét-
arsdóttir. Hún Kolbrún reyndist
höfðingi heim að sækja og bauð
þessum vinnandi mönnum að sjálf-
sögðu upp á kaffisopa.
„Renndi“ í hlað á
þyrlunni til að fá kaffi
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Kaffi við Kirkjufell Reynir
og Mats við þyrluna á
hlaðinu í Hellnafelli, með
staðartáknið í baksýn.
Stokkseyri | „Ég er ekki að hætta í
glerinu en er að flytja mig um set
og verð í Súðavogi 26 í Reykjavík.
Þar ætla ég meðal annars að vinna
stærri glerlistaverk fyrir sýningu
mína á Korpúlfsstöðum en þar mun
ég leggja áherslu á mannveruna,
heilar manneskjur og andlit í þrí-
vídd,“ sagði Elínborg, eða Ella Rós-
inkrans, glerlistakona á Stokks-
eyri, en þar hefur hún verið með
verkstæði og Gallerí ER.
Hún ætlar að auðvelda sér flutn-
inginn með því að bjóða muni sem
eru í Galleríinu á 50% afslætti en
opið er til ágústloka. „Þetta eru alls
konar munir, myndir, skálar og
skúlptúrar,“ sagði Elínborg sem
áfram verður með tengingu við
Stokkseyri þó hún flytji sig um set.
Hún á áfram húsnæðið í Menning-
arverstöðinni Hólmaröst á Stokks-
eyri þar sem galleríið er til húsa.
„Þessi staður hér á Stokkseyri er
fínn og góð tenging við náttúruna í
fjörunni hér fram undan húsinu og
hrein upplifun að lifa og hrærast
hér. En ég ætla núna að fara úr
nytjalistinni í skúlptúra og vil byrja
á auðu plani. Þar er spennandi
svæði en stefnt er að því að gatan
verði listamannagata á næstu ár-
um,“ sagði glerlistakonan Elínborg.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hjarta á réttum stað Ella með
glermunina sína í Galleríi ER.
Úr nytjalist í skúlpt-
úra með áherslu á
manneskjuna