Morgunblaðið - 22.07.2006, Side 19

Morgunblaðið - 22.07.2006, Side 19
Umbúðir verða að vera í takt við eðlivörunnar, ímynd fyrirtækisins ogmarkhópinn en þær verða jafn-framt að vera þægilegar í notkun eins og í flutningum, uppröðun í hillum versl- ana og uppstillingum. Það er oft að mörgu að hyggja því að umbúðirnar skipa stóran sess í ímyndarsköpun vörunnar. Síðan þarf oft að huga að öðrum þáttum eins og umhverfis- vernd, þ.e. hvað verður um umbúðirnar þegar neytandinn hefur tekið vöruna úr umbúð- unum eða neytt hennar. Umbúðahönnun reynir því á marga þætti í senn og er geysi- lega skapandi,“ segir Tinna Pétursdóttir, en hún lauk bæði grunn- og mastersnámi í graf- ískri hönnun og umbúðahönnun við Istituto eurpeo di design IED-skólann í ítölsku borg- inni Mílanó. „Borgin er auðvitað mekka tísku og hönn- unar í Evrópu og ekki annað hægt en að verða fyrir áhrifum,“ segir hún brosandi. „Skólinn hefur mikil og góð tengsl við atvinnulífið og kennararnir eru allir virkir hönnuðir eða markaðsfræðingar og margir virtir í sínum geira. Verkefnin sem við gerðum í masters- náminu voru mjög fjölbreytt og öll hagnýt því þau voru unnin í nánu samstarfi við fyrirtæki í ýmsum geirum atvinnulífsins. Þannig fengu nemendur einnig tækifæri til þess að kynnast áhrifafólki þar.“ Samkeppnin eins og í raunveruleikasjónvarpi Hönnun Tinnu þótti oftar en ekki fram- úrskarandi. „Ég lenti tvisvar í 2. sæti í hönn- unarkeppnum nemenda en samkeppnin var vægast sagt mjög mikil,“ segir hún hlæjandi og bætir því við að stemningin hafi stundum ekki verið ólík því sem raunveruleikaþættirnir í sjónvarpi sýna. „Það ríkir gífurleg samkeppni í þessum heimi og til þess að komast áfram verður hver að ota sínum tota. Það ríkir auk þess mikil karlremba í ítölsku samfélagi. Ég skar mig úr, ef til vill fyrir það að vera Íslendingur, enda eru hér ekkert nema kvenskörungar. En ég var líka eldri en flestir nemendurnir og hafði því meiri lífsreynslu, bæði af vinnumarkaði og eins hafði ég ferðast víðar og talaði fleiri tungumál. Það reynir ef til vill meira á hvern og einn einstakling í jafnlitlu samfélagi og Ís- landi en í þeim sem skipta milljónum og ef til vill fáum við líka fleiri tækifæri til þess að tak- ast á við ólíka hluti. “ Ilmvatnsglas úr svörtu gleri sem Tinna hannaði og lenti í 2. sæti í einni keppninni fékk góða umfjöllun í ítalska fagtímaritinu Imagine. „Verkefnið var að hanna glas fyrir ilm sem ætlaður var báðum kynjum en mark- hópurinn var hinir ofurríku. Þeir kaupa nefni- lega ekki ilm í snyrtivöruverslunum, eins og Armani eða Dolce & Gabbana, þótt okkur flestum þyki þeir mjög fínir. Ilmfyrirtækið, sem í þessu tilfelli var franskt, hannar sér- staklega ilm fyrir þennan markhóp, sem er þá framleiddur í mjög litlu magni en glasið getur kostað tugi þúsunda. Ég verð að viðurkenna að það var svolítið erfitt fyrir mig, fátækan, ís- lenskan námsmann, að setja mig inn í hugar- ástand þessa markhóps en það tókst greini- lega bærilega,“ segir Tinna og hlær. Óvænt afhjúpun flöskunnar Tinnu En það var fleira sem átti eftir að koma hugarástandi hönnuðarins unga í skemmtilegt uppnám. „Í sumarbyrjun fékk ég tölvupóst og boðskort frá ítalska fyrirtækinu Norda sem framleiðir gæðavatn og selur á flöskum, líkt og Sanpellegrino, þar sem mér var boðið að vera viðstödd afhjúpun flösku í Mílanó, sem ég hafði hannað í einni keppninni og valin hefði verið undir framleiðslu fyrirtækisins, en hún hafnaði í 2. sæti í keppninni. Ég kom al- veg af fjöllum enda hafði enginn haft samband við mig eða látið vita að þetta væri á döfinni en svo sannarlega var þetta óvænt ánægja. Ég komst því miður ekki í hófið og hef enn ekki fengið flösku í hendurnar en veit að flöskuframleiðandinn nefndi þessa gerð Tinna í höfuðið á hönnuðinum og það getur vel verið að hún verði einhvern tímann notuð undir aðr- ar vörur eins og t.d. tómatsósur.“ Í framleiðslu eru líka endurvinnanleg hulst- ur úr pappír utan um DVD-mynddiska en það var eitt verkefna Tinnu í náminu sem vakti at- hygli bandarísks fyrirtækis sem dreifir slíkum diskum um allan heim. „Hulstrið er eingöngu úr endurvinnanlegum pappa og í raun eins og samanbrotið blað, en við hvert brot verður til meiri stuðningur og vernd fyrir sjálfan disk- inn. Á blaðinu sjálfu er síðan hægt að setja plakat myndarinnar eða þrautir og leiki fyrir þær myndir sem ætlaðar eru börnum.“ Tinna segir að vitaskuld sé þetta óskabyrj- un á ferlinum. „Ég hlakka til þess að fylgja þessu eftir. Jafnvel þótt það gefi fyrst um sinn ekki mikið í aðra hönd að koma hlutum sem þessum í framleiðslu þá er þetta mjög mikill heiður. Á Ítalíu snýst allt um að afla sér reynslu eftir útskrift og koma sér upp góðri möppu. Ég á vini sem vinna hjá Gucci og Versace og þéna aðeins brot af því sem tíðkast á auglýsingastofu hérlendis til þess eins að afla sér meiri þekkingar, sambanda og reynslu og eiga því varla fyrir salti í grautinn. Það getur því liðið langur tími þar til hönn- uðurinn fær vinnuframlag sitt metið,“ segir Tinna sem innan tíðar hefur störf á ný hjá auglýsingastofunni Jónsson og Le’macks. „Ég vona að ég geti lagt mitt að mörkum til íslenskrar umbúðahönnunar og þá lagt áherslu á umbúðirnar sjálfar en ekki aðeins grafísku hliðina.“  HÖNNUN | Vann til verðlauna í samkeppnum ítalsks hönnunarháskóla Umbúðir eru meira en útlit Það er draumur hvers nýútskrifaðs hönnuðar að koma hönn- un sinni í framleiðslu en það hvarflaði ekki að Tinnu Péturs- dóttur, grafískum umbúðahönnuði, að það myndi gerast jafn- fljótt og raun bar vitni. Unnur H. Jóhannsdóttir forvitnaðist um hver væri galdurinn á bak við góða umbúðahönnun. Morgunblaðið/Jim Smart Tinna Pétursdóttir segir að mörgum ólíkum þáttum að huga við hönnun umbúða. Háar fjallasprænur reyndust vera Tinnu inn- blástur við hönnun vatnsflasknanna hér að ofan sem geyma nú vatn fyrirtækisins Norda. Svörtu glerhyrningarnir sem Tinna hannaði fyrir ilm hinna ofurríku hlaut góða umfjöllun í ítalska fagblaðinu Imagine. Verkefn i Tinnu um endu rvinnan leg DVD - hulstur vakti ath ygli ban darísks dreifing ar- fyrirtæk is og er nú komi ð í fram leiðslu. júlí Daglegtlíf FORELDRAR elska börnin sín eins og þau eru enda finnst flestum for- eldrum þau vera bæði einstök og frábær. Foreldrar geta hvatt börnin sín til að gera alltaf sitt besta og kennt þeim að vera samviskusöm, dugleg og vandvirk. Börnin þurfa að fá tækifæri til að blómstra á eigin forsendum. Þau þarf að styðja eins og blómin með réttri umönnun og réttri næringu. Eftirfarandi setn- ingar gætu hjálpað foreldrum til að gefa börnunum góð ráð.  Vertu hugrakkur/hugrökk. Gefðu sjálfum/sjálfri þér tækifæri til að gera mistök. Allir gera mistök. Vertu tilbúin/n að prófa eitthvað nýtt.  Haltu huganum opnum. Taktu vel eftir gerðum þínum og við- brögðum. Hlustaðu á þinn innri mann. Taktu eftir því hvað gengur vel og hvað ekki. Nýttu það sem far- ið hefur miður til að læra af því. Vertu opin/n fyrir breytingum.  Vertu virkur námsmaður/ nemandi. Góðir nemendur eru virkir nemendur. Spurðu spurninga. Not- aðu fjölbreyttar aðferðir við námið. Foreldraráðin „VIÐ teljum að ekki skipti öllu máli hvort barnið okkar hefur fengið formlega greiningu heldur að við getum aðstoðað og hjálpað barninu okkar á þess forsendum með hags- muni þess að leiðarljósi. Við trúum því að öll börn geti lært, en þau læra með ólíkum hætti og ekki öll það sama. Stundum þurfum við að leita upplýsinga hjá fagfólki og stundum erum við fagfólkið vegna þess að enginn þekkir barnið okkar betur en við gerum. En það sem skiptir öllu máli er að við foreldrar gerum okkur grein fyrir að við skiptum sköpum í skólagöngu þeirra,“ segir m.a. í ný- legum upplýsingabæklingi, sem samin hefur verið af Hrönn Rík- harðsdóttur og Sigurði Arnari Sig- urðssyni, sem bæði eru foreldrar og kennarar við Grundaskóla á Akra- nesi. Engill úr paradís Bæklingurinn ber yfirskriftina „Engill úr paradís“ og er ætlaður foreldrum barna á grunnskólaaldri. Við verkið nutu þau Hrönn og Sig- urður styrks frá Verkefna- og náms- styrkjasjóði Kennarasambands Ís- lands. Heiti bæklingsins er sótt í ljóð Matthíasar Jochumssonar, sem hann orti til móður sinnar, en hug- myndin að baki verkefninu var að enginn væri betur til þess fallinn en foreldrar að sinna börnum, bæði í námi almennt og ekki síst heima- námi. „Foreldrarnir eru börnum sem englar úr paradís því enginn þekkir þau betur en foreldrarnir þó stundum sé ýjað að því að foreldrar hafi ekkert vit á námi barna sinna. Við erum því algjörlega ósammála. Sem kennarar höfum við oft fengið spurningar frá foreldrum um eitt og annað er viðkemur t.d. lesblindu, of- virkni og prófkvíða. Við höfum lesið okkur til og reynt eftir bestu getu að afla okkur upplýsinga, sem gætu komið foreldrum að gagni, og lagt okkur fram um að svara á einföldu máli. Við erum einfaldlega foreldrar, sem erum að reyna að leiðbeina öðr- um foreldrum,“ sagði Hrönn í sam- tali við Daglegt líf. Læra með ólíkum hætti Í bæklingnum er m.a. fjallað um samstarf heimilis og skóla, lestur al- mennt og lesblindu sérstaklega, námstækni, hvernig bæta má minn- ið, prófkvíða og prófundirbúning. Minnst er á ofvirkni, þunglyndi og átröskun. Nefnd eru atriði sem bent gætu til þroskaraskana og bent á hvert má leita með ýmis vandamál. „Viðhorf foreldra, væntumþykja og jákvæðni skipta sköpum í öllu uppeldi og við trúum því að öll börn geti lært þó þau læri með ólíkum hætti og ekki öll það sama. Við erum líka þeirrar skoðunar að greiningar séu lykill að lausn, en ekki vanda- mál. Bæði kennarar og foreldrar hafa tilhneigingu til að líta á grein- ingu sem skýringu eða afsökun á því að hlutirnir gangi ekki smurt fyrir sig. En við lítum svo á að með grein- ingunni hafi foreldrar og kennarar fengið tæki til lausnar. Rétt er að hafa í huga að lesblinda eða ofvirkni hefur nefnilega ekkert með greind að gera,“ segir Hrönn og bætir við að bæklingnum sé fyrst og fremst ætlað að veita foreldrum upplýs- ingar, sem þeir geti nýtt sér til að- stoðar börnum sínum þar sem for- eldrarnir séu alltaf best til þess fallnir.  UPPELDI | Foreldrar eru alltaf best fallnir til að sinna þörfum barna sinna Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Börn læra með ólíkum hætti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.