Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 20
20 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ
Spennandi vikuferð til borgarinnar sem var höfuðborg Rússlands og
telst án efa miðstöð menningar og lista. Margir telja borgina eina þá
fallegustu í heimi. Flogið í beinu flugi með Icelandair. Fararstjóri
ferðarinnar er maður með reynslu, en Pétur Óli hefur búið árum
saman í borginni og þekkir því hvern krók og kima. Farið verður í
áhugaverðar skoðunarferðir um borgina og nágrennið. Reynt er að
kynnast sögu og menningu á sem fjölbreyttastan hátt, bæði með því
að skoða merka staði og borða góðan mat. Hér gefst að sjálfsögðu
einnig tími til að slappa aðeins af og versla.
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson
Haust 1
St. Pétursborg
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
27. september – 4. október
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
Verð: 124.900 kr. Mikið innifalið!
Orðsporið stenst væntingar,Melbourne er yndisleg.Borgin tekur faðmandi ámóti þér, líkt og náinn
fjölskyldumeðlimur sem þú hefur
ekki séð í háa herrans tíð. Í svo mik-
illi fjarlægð frá klakanum líður
ferðamanni frá Íslandi eins og
heima hjá sér.
Melbourne er fjölmenningarborg
sem hefur óendanlega marga staði
til að sjá og skoða auk þess sem íbú-
arnir eru afslappaðir og vinalegir. Í
um 15 mínútna göngufjarlægð frá
aðalverslunargötunni er Queen Vic-
toria-markaðurinn. Á þessum gríð-
arstóra markaði má fá flest sem
hugurinn girnist, s.s. föt og auka-
hluti af öllum stærðum og gerðum,
húsgögn og aðra innanstokksmuni,
lífrænan mat og heimatilbúið sæl-
gæti – allt á viðráðanlegu verði. Litl-
ir hvolpar og kettlingar í búri sem
horfa biðjandi á vegfarendur geta þá
freistað gesta og gangandi og götu-
listamenn krydda líflega stemn-
inguna enn meira með listum sínum
og atriðum. Segja má að það sé
skylda að heimsækja Queen Vic-
toria-markaðinn þegar til Melbo-
urne er komið.
Ekki dans á rósum
Saga áströlsku þjóðarinnar hefur
ekki alltaf verið dans á rósum. Saga
Ástralíu er full af árekstrum og
átökum og deilur milli frumbyggja
og hinna aðfluttu landnámsmanna
hafa á köflum verið snarpar. Þannig
hafði landsvæðið sem Melbourne
stendur á til að mynda trúarlegan
tilgang í huga frumbyggja áður fyrr,
og gerir raunar enn. Er landnáms-
mennirnir settust þar hins vegar að
tóku þeir yfir ýmsa staði er voru
frumbyggjunum mikilvægir og
byggðu upp við litla hrifningu þeirra
síðarnefndu. Sögum af Melbourne
og raunar Ástralíu allri er hægt að
njóta í Melbourne-safninu sem er
einn fjölsóttasti staður borgarinnar.
Safnið er líka fjölþætt – allt frá því
að sýna minjar um stofnun
Melbourne til þess að veita innsýn í
heim sjónvarpsþáttanna víðfrægu
um Nágranna.
Að týna sér í Melbourne
Melbourne býr yfir ótrúlegri fjöl-
breytni og eru skúmaskotin oft
bráðskemmtileg að sjá. Góð aðferð
til að fá heildarmynd af borginni er
að leyfa sér að týnast – fara upp í
næstu lest og lenda í nýjum ævin-
týrum. Kynnast þannig líkt og fyrir
tilviljun draumastöðum á borð við
rólega sólarstrandarhverfinu St.
Kilda eða líflega listahverfinu
Fitzroy.
Rúsínan í pylsuendanum
Eftir langan og yfirgripsmikinn
dag í Melbourne, þar sem búið er að
kynnast nokkrum hluta þeirrar fjöl-
breytni sem borgin býður upp á, er
síðan kominn tími til að róa sig niður
og upplifa þann sjarma Melbourne
að fá einfaldlega að falla inn í hóp
íbúanna í stað þess að skynja sig
sem ókunnan gest á framandi stað.
Handan sviplítils götuhorns á
Elizabeth Street er til að mynda lát-
laust kaffihús, Rue Bebelons. Þar
býður litrík heimshornatónlist gesti
velkoma inn á frekar óaðlaðandi og
borulegt kaffihús. En um leið og
sest er niður með kaldan drykk í
hönd breytist ásýnd staðarins.
Þjónn staðarins og aðrir gestir eru
nefnilega allt eins líklegir til að gefa
sig á tal við ferðamanninn og spjalla
við hann um daginn og veginn eins
og gamlan kunningja. Þetta er
heillandi upplifun í framandi stór-
borg. Ef vilji er til að kynnast
Melbourne-búum og „melta“ aðeins
upplifanir dagsins er lítil vinaleg
kaffihús, líkt og Rue Bebelons, að
finna á mörgum götuhornunum.
Þótt þau séu hvorki áberandi ásýnd-
ar né í alfaraleið eru þau engu að
síður mjög lýsandi fyrir borgina í
heild sinni og á góðan hátt, því
Melbourne er litrík, fjölbreytt og
vinaleg borg sem allir ættu að reyna
að heimsækja.
Dagur í
Melbourne
ÁSTRALÍA
Ástralía er e.t.v. ekki á ferðaplani allra Íslend-
inga en þeir sem þangað rata bera landi og
þjóð vel söguna. Guðrún Hulda Pálsdóttir lét
heillast af borginni Melbourne.
Ávextirnir á Queen Viktoria-markaðinum eru með þeim bestu.
Morgunblaðið/Guðrún Hulda Pálsdóttir
Kaffihús af öllum stærðum og gerðum eru út um alla borg.
Melbourne er miðstöð viðskipta og lista og hefur upp á margt að bjóða.