Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 34

Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 34
34 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnagæsla „AU-PAIR“ LONDON Okkur vantar barngóða og reyklausa „au-pair“ frá september til að gæta 9 mán. stráks í 6-12 mánuði í London. Þarf að vera eldri en 18 ára. aupairhallo@googlemail.com og s. 820 6850. Ferðalög Syðsti bær landsins Sumarhúsið að Görðum í Reynis- hverfi býður upp á notalega gistingu í nánd við stórbrotna náttúrufegurð. Upplýsingar í síma 487 1260. Gisting Gisting. Sólgarðaskóli í Fljótum. Gisting í svefnpokaplássi og upp- búnum rúmum. Sundlaug á staðnum. Stutt til Siglufj., Ólafsfj. og Hofsóss. Uppl. í símum 467 1054 og 851 1885. Ferðalangar athugið. Höfum nýuppgerða 160 m2 íbúð í miðbæ Akureyrar til leigu. Gisti- rými fyrir allt að 7 manns, tilvalið fyrir 1-2 fjölskyldur. Upplýsingar gefnar í símum 570 7000 og 695 7045. Heilsa Þessir einu sönnu fyrir heil- brigðisstarfsfólk – og fætur sem mikið mæðir á. Heilsusandalar með mýkt frá GREEN COMFORT draga úr þreytu. Hvítir og svartir. Fótaaðgerðastofa Guðrúnar Alfreðsdóttur, Listhúsinu, Engjateigi 17-19, sími 553 3503. OPIÐ mán.-mið.-fös. kl. 13-17. www.friskarifaetur.is. Húsnæði í boði Til leigu snotur stúdíóíbúð í 101 (Frakkarstíg). Íbúðin er með hús- búnaði og er laus, einungis reyk- lausir og reglusamir leigjendur koma til greina. Upplýsingar í síma 895 2807. Íbúð í Barcelona til leigu til 28. ágúst Vel staðsett með sólríkri verönd og þremur herbergjum. Leigist allt tímabilið eða að hluta. Brynja, brynja76@hotmail.com Húsnæði óskast Mosfellsbær Hjón með 3 börn og einn mjög gæfan labrador hund óska eftir íbúð á leigu í Mosfellsbæ. Eru bæði reyklaus og mjög reglusöm. Fyrirfram- greiðsla ekki vandamál. Uppl. í s. 616 2757. Húsnæði óskast 24 ára háskóla- nemi óskar eftir húsnæði sem næst HÍ (sv. 101, 105, 107), her- bergi eða sem meðleigjandi að íbúð. Er reyklaus og reglusamur. Sími 864 5710 (Kári). Bílskúr Vantar bílskúr undir búslóð Mig vantar pláss undir búslóð í ca 12 mán. Rvík eða Árborgar- svæði. Borga 6 mán. fyrirfram. Uppl. í s. 897 8947 eða bjorneh@islandia.is Sumarhús Veðursæld og náttúrufegurð! Til sölu mjög fallegar sumarhúsa- lóðir á kjarri vöxnu hrauni við Ytri-Rangá, 102 km frá Reykjavík. Svæðið er rómað fyrir náttúrufeg- urð, fjallasýn og veðursæld. Hit- inn í fyrrasumar fór upp í 28 stig og oft í 20 - 24 stig og nú í maí varð heitast 23 stig. Svæðið, sem heitir Fjallaland, er mjög vel skip- ulagt og boðið er upp á heitt og kalt vatn, rafmagn, háhraða int- ernettengingu og önnur nú- tímaþægindi og margvíslega þjónustu. Nánari uppl. í síma 8935046 og á fjallaland.is. Sumarhús — orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbú- in hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Rotþrær Framleiðum rotþrær, 2.300-25.000 lítra. Öll fráveiturör og tengistykki í grunninn. Sérboruð siturrör og tengistykki í siturlögnina. Heildarlausn á hagstæðu verði. Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími 561 2211. Borgarplast, Borgarnesi, sími 437 1370. Heimasíða: www.borgarplast.is Námskeið Microsoft kerfisstjóranám á haustönn Frá 4.9 til 31.1.2007. Ítarlegt, vandað og hagnýtt nám á mjög hagstæðu verði. Bættu Microsoft í ferilskrána. Rafiðnað- arskólinn, www.raf.is, s. 86 321 86. Til sölu Sumarbústaðarland, eignaland til sölu Landið er að hluta til mosavaxið hraun, mjög fallegt í um 10 mín. akstri austur af Self- ossi. Kalt vatn og vegagerð að lóðamörkum. Uppl. Hlynur í síma 824 3030. Kristalsljósakrónur. Handslípað- ar. Mikið úrval. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogur, s. 544 4331. Fælir frá flugur (sedrusviður) Pallaefni og utanhúsklæðning. Spónasalan ehf. Smiðjuvegi 40, gul gata, s. 567 5550. Fyrirtæki Bjálkahús - markaðssetning. Kanadískur framleiðandi bjálka- húsa leitar að fyrirtæki til að selja og markaðssetja bjálkahús sín á Íslandi. Fjármögnun í allt að 7 mán. til fyrirtækis sem þegar er í rekstri. Vinsamlegast svarið á ensku á netfangið: dowandduggan@eastlink.ca eða fax 001 902 852 3100. www.dowandduggan.ca Viðskipti Óskum eftir fólki sem vill miklu meiri laun: www.KomduMed.com, www.KomduMed.com, www.KomduMed.com, www.KomduMed.com, www.KomduMed.com, www.KomduMed.com, www.KomduMed.com Byggingavörur Harðviðarklæðnig Til sölu er Tatajuba harðviðarklæðning, nót 16 mm, breidd með nót 136 mm, þykkt 20 mm. Lengdir 4-5 m. Verð aðeins kr. 450 pr/meter. Kvistás s/f Selfossi, s. 893 9503 www.kvistas.is Veiði Veiðileyfi 2 fyrir 1 Vegna forfalla eru til sölu 2 stangir á Tanna- staðatanga í Sogi (veiðihús) 15. ágúst ´06. Fullt verð 39.600.- selj- ast á 20.000. Uppl. í síma 864 6984. Einkamál Spenna, hraði, útrás, adrenalín, þvingun, hræðsla, endir. Allt þetta býð ég mínum skjólstæð- ingum. Mr. X x@gegndrepa.is Hreingerningar Heimilishjálp Traust og áreiðan- leg manneskja óskast til að sjá um þrif á 140 fm íbúð í 101 Rvk, einu sinni í viku. Í heimili eru þrír fullorðnir og umgengni góð. Uppl. í síma 551 5958 eftir kl. 19.00. Raðauglýsingar 569 1100 ÞÓRA Kristín Bjarnadóttir varði doktorsritgerð 12. apríl sl., í lyfja- fræði við læknadeild Háskólans í Uppsölum (Biomedicinska Centr- um). Ritgerðin nefnist á ensku „The Gene Repertoire of G protein- coupled Recept- ors. New Genes, Phylogeny, and Evolution“. Andmælandi við doktorsvörn- ina var dr. Kurt Kristianssen frá háskólanum í Tromsö, en í próf- nefnd voru þeir dr. Svane Winberg, dósent við In- stitutionen för fysiologi och utveck- lingsbiologi, dr. Erik Bongcam- Rudloff, dósent við Centrum för bio- informatik, og dr. Pierre Le Grevés, dósent við Institutionen för farma- ceutisk biovetenskap við Uppsalahá- skóla. Þóra Kristín vann að rann- sóknum sínum um þriggja ára skeið við Institutionen för neurovetenskap undir leiðsögn dr. Helga B. Schiöth dósents. Rannsóknirnar voru á sviði lífupplýsingafræði (bioinformatics) með framþróun í lyfjafræði í huga. Meðleiðbeinandi var dr. Robert Fredriksson. Megintilgangur rannsóknanna var að finna kjarnsýruraðir tiltekinna arfbera í erfðamengi mannsins með aðstoð tölvugreiningar og bera þær saman við samstofna arfbera í öðrum lífverum, einkum mús, rottu og fisk- um. Um er að ræða stóran hóp viðta- kapróteina sem finnast á ytra borði frumna og spanna frumuhimnur með einkennandi hætti; svokallaða G-próteinháða viðtaka. Þessir við- takar mynda eina stærstu fjölskyldu próteina í erfðamenginu og eru afar fjölbreyttir að gerð. Þóru Kristínu tókst í verkefni sínu að finna og flokka nokkur hundruð slíkra viðtaka í fimm meginflokka og allmarga und- irflokka. Í framhaldi voru þróunartengsl greind. Kom í ljós að mismunandi dýrategundir hafa þróað mismun- andi fjölda og afbrigði af viðtökum innan hvers flokks. Þar voru sér- staklega kannaðir viðtakar fyrir hormónið glútamat og sk. „ad- hesion“-viðtakar í mismunandi dýra- tegundum. Loks voru leiddar líkur að hlutverki þessara próteina í lík- amanum, en mörg þeirra voru áður óþekkt. Opinber deildarfyrirlestur Þóru Kristínar fjallaði í samandregnu máli um hlutverk G-próteintengdra við- taka í ýmsum boðskiptaferlum svo sem við lyktarskynjun, í fæðing- arhríðum, frumusamloðun o.fl. Þess er vænst að slíkir viðtakar geti orðið frekara rannsóknarefni og opnað leiðir til lyfjaþróunar í framtíðinni. Þóra Kristín er fædd í Bristol á Englandi 1. ágúst 1978. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1998 og hóf nám í lyfja- fræði haustið 1998. Kandídatsprófi í lyfjafræði lauk hún frá HÍ vorið 2003. Sambýlismaður Þóru Kristínar er Hákon Ágústsson tölvunarfræðingur og eiga þau dóttur. Foreldrar Þóru Kristínar eru þau Vigdís Valsdóttir tannsmiður og Bjarni Ásgeirsson, prófessor í lífefnafræði. Doktor í lyfjafræði Furða sig á einkavæðingu öryggiseftirlits ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir furðu á þeirri ákvörðun flugmálayfirvalda að einkavæða öryggiseftirlit á Keflavíkurflugvelli og tek- ur undir varnaðarorð talsmanna Lands- sambands lögreglumanna og Tollvarða- félags Íslands um hve misráðin þessi ráðstöfun sé. „Fráleitt er að fela einkaað- ilum lögregluvald, sem með þessu fyrir- komulagi er í reynd verið að gera. Auk þess eru öryggisfyrirtæki á markaði rekin með það að leiðarljósi að skila eigendum sínum hagnaði og stangast það á við al- mannahagsmuni þegar um er að ræða al- menna öryggisgæslu. Fyrirsláttur yfirvalda um nauðsyn þessa vegna gagnrýni af hálfu aðila á veg- um eftirlitsstofnunar Evrópska efnahags- svæðisins er gersamlega út í hött. Því sem kann að vera áfátt á sviði öryggisgæslunn- ar á Keflavíkurflugvelli, er hægur vandinn að bæta úr án þess að taka verkefnið úr höndum ábyrgra opinberra aðila. Þvert á móti ber að efla þá í starfi.“ NÝVERIÐ var styrkveiting úr Minningar- og vís- indasjóði Arnórs Björnssonar. Sjóðurinn var stofnaður til minningar um Arnór Björnsson sem lést 1996 er hann var við doktorsnám í sálfræði. Tilgangur sjóðsins er að styrkja íslenskar rann- sóknir í sálfræði. Þrjár konur hlutu rannsóknarstyrk í þetta sinn og var hver styrkur 250 þúsund krónur. Ragnhildur Guðmundsdóttir hlaut styrk fyrir rannsóknina Árangur hugrænnar atferlismeð- ferðar við langvinnri geðlægð. Þórdís Rúnarsdóttir fékk styrk til rannsókn- arinnar Sálræn líðan íslenskra kvenna á aldrinum 13–24 ára, sérstök áhersla á átröskunareinkenni. Þrúður Gunnarsdóttir fékk styrk til rannsóknar sem heitir Fjölskyldumiðuð atferlismeðferð fyrir of þung börn. Styrkveiting til sálfræðirannsókna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.