Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 40
40 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
22. júlí kl. 12.00:
Sophie-Véronique Cauchefer-
Choplin, orgel.
23. júlí kl. 12.00:
Sophie-Véronique Cauchefer-
Choplin, organisti frá París,
leikur verk m.a. eftir
Bédard, Bach, Pierne, Mulet og
Duruflé.
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi
PANTIÐ MIÐA TÍMANLEGA
Í SÍMA 437 1600
Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
LEIKHÚSTILBOÐ!
Tvíréttaður kvöldverður og
leikhúsmiði kr. 4.300 - 4.800
Lau. 22. júlí kl. 20 uppselt
Sun 23. júlí kl. 15 örfá sæti laus
Sun. 23. júl kl. 20 uppselt
Fös. 28. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Lau. 29. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Sun. 30 júlí kl. 15 aukasýning
Sun. 30. júlí kl. 20 nokkur sæti laus
Fös. 4. ágúst kl. 20
Lau. 5. ágúst kl. 20
Sun. 6. ágúst kl. 15
Sun. 6. ágúst kl. 20
Lau. 19. ágúst kl. 20
Sun. 20. ágúst kl. 15
Sun. 20 ágúst kl. 20
Fös. 25. ágúst kl. 20
Sun. 27. ágúst kl. 15
Sun. 27. ágúst kl. 20
Upplyfting
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill
öll kvöld vikunnar.
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
HULUNNI verður svipt af nýrri
innsetningu eftir Hrein Friðfinnsson
myndlistarmann í Galleríi Suðsuð-
vestur klukkan 16 í dag. Innsetning-
in ber titilinn Sögubrot og myndir og
verður til sýnis í galleríinu til 20.
ágústs næstkomandi.
„Það er svolítið snúið að fjalla um
verkið sem verður sýnt í dag,“ tekur
Hreinn fram þegar hann er inntur
eftir útskýringu. „Vegna eðlis hlut-
arins er ekki mjög þægilegt að segja
of mikið frá því, því þá er ekki of
mikið eftir fyrir þá sem vilja sjá
sýninguna. Maður má ekki gefa upp
plottið,“ segir Hreinn og hlær.
„Það sem ég get sagt er að verkið
sem verður sýnt í Galleríi Suðsuð-
vestur hefur verið sett upp áður á
sýningu í vor í París. En ekki alveg á
sama hátt, það eru nokkur frávik.“
Hreinn segir að það sem hægt sé að
sjá í Galleríi Suðsuðvestur sé á viss-
an hátt „orgínallinn“.
„Við köllum þetta „Sögubrot og
myndir“, en það er eiginlega svolítið
til að segja minna heldur en meira.“
Verkið byggist á sannsögulegum
atburðum og „efniviðurinn felur
menningarsögulegan þátt í sér“,
segir Hreinn. „Þetta fjallar um lítinn
myndlistarlegan útgáfukafla sem
átti sér stað fyrir 48 árum eða svo á
dögum Helgafells. Verkið er svo að
segja nýtt, þó að efnið sé komið til
ára sinna. Þetta eru sjálfstæð verk,
alls ekki mín verk, en í þessu formi
er þetta mitt framlag sem sýning.
Þetta er allt saman mjög loðið, en
það er ekki hægt að fara nákvæm-
lega í þetta.“
Hreinn á, eins og margir vita, að
baki langan feril í myndlist og var í
fararbroddi þeirra íslensku lista-
manna sem unnu með hugmyndalist
snemma á 8. áratug síðustu aldar.
Hversdagsleikinn er algengt við-
fangsefni í verkum Hreins. Eitthvað
ofurvenjulegt verður efniviður verks
sem býr yfir margræðum áhrifum.
Hann vinnur úr efnivið sem er víða
til staðar en bætir einhverju við til
að gæða hann nýju lífi.
Verðlaunaður listamaður
Algengt er að lýsingarorðin „ljóð-
ræn“ og „heimspekileg“ séu notuð til
að lýsa verkum Hreins og er hann
jafnvel sagður vera ljóðskáld sem
sýnir fram á mikilvægi ljóss við
skynjun. Hann hefur unnið m.a. með
ljósmyndir og skeytt saman við þær
texta en einnig farið aðrar tjáningar-
leiðir.
Hreinn fékk finnsk listverðlaun,
Ars Fennica, árið 2000 og önnur
verðlaun í Carnegie Art Award
sama ár.
Breyttu þau miklu?
„Þau gerðu það nú reyndar ekki,
nema þá bara á þeim tíma og það er
nú orðið dálítið síðan. Þetta breytti
hlutunum bara rétt fjárhagslega auk
þess sem það var dálítið mikið að
gera. Í Finnlandi voru tvær yfirlits-
sýningar og gefin út bók.
Þú hefur semsagt ekki orðið var
við aukinn áhuga í kjölfarið?
„Ekki fyrir utan norðrið. Það sem
ég geri nú í Evrópu er í gegnum
gömul sambönd sem hafa haldið sínu
striki, en verðlaunin hafa ekki haft
áhrif á þau mál.“
„Ekki mikill planleggjari“
Það hefur ekki mikið farið fyrir
myndlistarmanninum á síðum
Morgunblaðsins frá því hann fékk
verðlaunin og því stakk blaðamaður-
inn upp á því við hann að rekja hvað
á daga hans hefur drifið síðustu ár.
„Það er nefnilega það. Það er nú
ýmislegt sem hefur gerst upp á síð-
kastið,“ segir hann. „Síðasta sýning
sem ég hélt hér á landi var á
Listahátíð 2005 í Slunkaríki á Ísa-
firði, en hátíðinni var dreift um land-
ið. Fyrir þremur árum síðan eða svo
var kynning í Safni á Laugavegin-
um. Svo hef ég verið með sýningar í
París, Berlín og Brüssel undanfarið.
Þetta eru svona helstu sýningar-
staðir sem ég hef verið að sýna á.“
Hreinn segir að ekki séu fleiri
einkasýningar fyrirhugaðar – alla
vega ekki svo hann viti til. Hins veg-
ar sé á þróunarstigi að setja upp tvö
útiverk, annars vegar á Ísafirði og
hins vegar í Frakklandi. Í báðum til-
fellum er um að ræða verk sem
munu standa en ekki tímabundnar
sýningar. Verkið í Frakklandi verð-
ur væntanlega sett upp nú í haust.
Hreinn, þú hefur lengi verið bú-
settur í Amsterdam. Hefurðu engan
hug á að flytjast heim?
„Mér hefur oft dottið í hug og haft
áhuga á að vera í lengri tíma heima á
Íslandi þegar ég heimsæki. Það hef-
ur hins vegar stjórnast af því að ekki
hefur verið tími eða aðstæður til
þess. En að flytja heim alfarinn hef-
ur mér alltaf fundist óraunhæft.
Þetta hefur reyndar verið tiltölulega
ákvörðunarlaust, það er ekkert beint
plan á þessu stigi, Ég er ekki mikið
fyrir að planleggja, þetta eru meira
svona hugleiðingar.“
Myndlist | Hreinn Friðfinnsson opnar sýningu í Galleríi Suðsuðvestur
Varpar ljósi á menningarsöguna
Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson
hsb@mbl.is
Hreinn Friðfinnsson hefur verið í fremstu röð hugmyndalistamanna frá því
í byrjun áttunda áratugarins og unnið til verðlauna fyrir list sína.
Suðsuðvestur er opið fimmtudaga
og föstudaga frá kl.16–18 og um
helgar frá kl.14–17.
Sjá www.sudsudvestur.is.
SKÁLHOLTSHÁTÍÐ 2006 hófst í
gær þegar sungin var rómversk
biskupsmessa af kaþólska biskupn-
um í Reykjavík, herra Gijsen. Hátíð-
arhöldin halda svo áfram í dag og á
morgun með miklu trúar- og lista-
starfi.
Í dag verða samkomur í Skálholts-
kirkju klukkan 14 og 16.30. Björn
Bjarnason dóms- og kirkjumálaráð-
herra mun flytja ávarp á fyrri sam-
komunni en auk þess munu Jaap
Schröder og Sigurður Halldórsson
flytja tónlist eftir Mozart. Þá verður
formlega tekið við stóru safni nótna-
og tónlistarbókmennta sem er gjöf
frá Schröder.
Á síðari samkomu dagsins verður
m.a. opnaður vefur um íslenskan
trúar- og tónlistararf sem unninn
hefur verið undir merkjum Helgisið-
astofu í Skálholti. Matthías Johann-
essen skáld les upp sýnishorn úr
kveri sem nýlega kom út í samvinnu
Háskólaútgáfu og Helgisiðastofu og
Kammerkór Suðurlands mun flytja
tónlist ásamt Guðrúnu Eddu Gunn-
arsdóttur einsöngvara.
Meðal þess sem sunnudagurinn
ber í skauti sér fyrir Skálholtsgesti
er hópreið sem verður farin heim á
staðinn með fánaborg sem Halldór
Ásgrímsson myndlistarmaður á
heiðurinn af.
Að hópreiðinni lokinni verður
gengið til messu þar sem herra Sig-
urbjörn Einarsson predikar. Síðar
um daginn verður svo aftur sam-
koma í kirkjunni en þar munu for-
seti Íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, biskup Íslands, herra
Karl Sigurbjörnsson, og Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
flytja ávörp. Að auki verður hlutur
tónlistar veglegur.
Þorláksmessa á sumri
Skálholtshátíð er ávallt haldin í
kringum 20. júlí, en þá er Þorláks-
messa að sumri í minningu þess að
þann sama dag árið 1198 voru tekin
upp bein Þorláks biskups helga Þór-
hallsonar í Skálholti. Þorláksmessa
var ein mesta hátíð í landinu fram að
siðaskiptum. Um miðja síðustu öld,
þegar teikn voru á lofti um endur-
reisn Skálholts, fór áhugamanna-
hópur að halda Skálholtshátíð, fyrst
1948. Átta árum síðar, árið 1956, var
svo haldin stór hátíð á vegum Skál-
holtsfélagsins og Alþingis í tilefni af
900 ára afmæli biskupsdóms í land-
inu, en á þeim tímapunkti var búið
að ákveða að byggja nýja kirkju og
framkvæma fornleifauppgröftinn
sem var undanfari þess. Að sögn
Sigurðar Sigurðarsonar vígslubisk-
ups hefur hátíðin verið haldin óslitin
síðan ef frá eru talin tvö sumur þeg-
ar uppgröfturinn náði ákveðnu há-
marki.
Í ár fagna Skálholtsvinir 950 ára
afmæli Skálholtsstóls.
Morgunblaðið/Ásdís
Halldór við eitt verka sinna á sýn-
ingunni Fjölþjóðaljóð frá 2003.
Menning | Trúar-
og listastarf
Skálholts-
hátíð hafin
http://www.skalholt.is
Í VINNUSTOFUNNI og sýningar-
rýminu Skúla í túni verður opnuð
sýning í dag kl. 15. Sýningin ber
yfirskriftina Upptekin! – hef annað
og betra að gera. Það er listakonan
Þóra Gunnarsdóttir sem sýnir.
„Ég fæst í verkum mínum við mis-
munandi sjónarhorn á lífið og til-
veruna og ekki síst umhverfið. Ég
skoða hvernig fólk túlkar annað fólk
og sjálft sig í umhverfinu“, segir
Þóra.
Hún hefur undanfarið verið að
taka fyrir í verkum sínum þá sem
vinna einhæfa vinnu, og í þessari
sýningu beinir hún sjónum að krön-
um. „Það gleymist oft þegar maður
fylgist með krönum að það er mann-
eskja sem situr í krananum og fæst
við þetta ábyrgðarmikla en líka al-
gerlega einhæfa verk. Manneskja
sem vinnur í algerri einsemd allan
daginn“
Sýningin er sett saman úr tveimur
þáttum. Annars vegar er um að
ræða myndband sem tekið er út um
glugga í íbúð í Berlín. Í því gefur að
líta fimm krana sem „virðast tala
hver við annan eða eiga í einhverjum
samskiptum“, að sögn Þóru.
Hins vegar er hægt að hlusta á
fimm geisladiska með upplesnum
textum sem tengjast krönunum. Þar
veltir Þóra til dæmis fyrir sér hvað
manneskjan getur verið að hugsa í
krönunum og bregður ljósi á vinn-
una. Þóra stundar um þessar mundir
mastersnám í Gautaborg og hefur að
eigin sögn unnið mikið með texta í
náminu. Hún tekur fram að texta-
vinnan hafi leynt eða ljóst farið af
stað í tengslum við að hún stundar
nám á öðru tungumáli, þ.e. ensku.
Skúli í túni er sameiginleg aðstaða
myndlistar- og hugvísindamanna við
Skúlatún 4. Að sögn Þóru ákváðu að-
standendur rýmisins Skúla í túni að
stofna til þess til að koma sjálfum
sér og ungum myndlistarmönnum
erlendis á framfæri. Þau hafa staðið
reglulega fyrir sýningum og uppá-
komum í húsnæðinu undanfarið.
www.thoragunn.is
www.skulituni.com
„Kranarnir virðast eiga í samskiptum,“ segir Þóra Gunnarsdóttir en mynd-
bandið var tekið út um gluggann á gamalli íbúðabyggingu í Berlín.
Manneskjan á bak
við einhæfu verkin