Morgunblaðið - 22.07.2006, Síða 43

Morgunblaðið - 22.07.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 43 Sími - 551 9000 -bara lúxus ÓVÆNTASTA, KYNÞOKKA- FYLLSTA OG SKEMMTI- LEGASTA GRÍNMYND ÁRSINS FRÁ HÖFUNDI BRING IT ON Sýnd kl. 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára Sýnd kl. 10 B.i. 12 ára Sýnd kl. 2, 4 og 6 -bara lúxus Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins! Ultraviolet kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 12 ára The Benchwarmers kl. 3, 6, 8 og 10 B.i. 10 ára Click kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Ísöld 2 m.ísl tali kl. 3 Rauðhetta m.ísl tali kl. 3 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 ENSKT TAL Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8 ÍSLENSKT TAL SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Þau ætla að ná aftur hverfinu... ...einn bita í einu! 400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU eee L.I.B.Topp5.is UMBOÐSSKRIFSTOFAN Concert auglýsir þessa dagana eftir upprenn- andi unglingahljómsveitum til að skemmta á fjölskylduhátíðinni í Galta- læk um verslunarmannahelgina. Þar munu þær hljómsveitir sem veljast til þátttöku fá sjaldgefið tækifæri til að koma fram og spila í alvöru hljóðkerfi fyrir framan áhorfendur. Í Galtalæk er hefð fyrir því að spilað sé á tveimur sviðum, annars vegar „stóra sviðinu“, þar sem fullorðna fólk- ið og hinir yngri í krakkahópnum koma saman, og hins vegar því sem kallað er Kúlan. Þar fá hinar útvöldu sveitir að spreyta sig. „Í Kúlunni er alltaf unglingaskemmtun,“ segir Helga Lilja Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjá Concert. „Hún hef- ur áður verið notuð sem vettvangur fyrir ungar og upprennandi hljóm- sveitir að koma fram og skemmta, sem er tækifæri sem þær fá ekki oft. Þá voru fengnar til leiks nokkrar hljóm- sveitir úr Músíktilraunum en nú viljum við gera fleirum kleift að taka þátt.“ Hljómsveitirnar höfði til unglinga Að sögn Helgu er stefnan að nokkr- ar hljómsveitir komi fram á hverju kvöldi meðan á fjölskylduskemmt- uninni standi. Á endanum fari dag- skráin þó eftir því hversu margar frambærilegar hljómsveitir sýni mál- inu áhuga. Hún upplýsir jafnframt að í raun sé ekki lagt af stað með neina skilgreiningu á unglingahljómsveit. „En viðmiðið er hljómsveitir sem hafa tekið þátt í Músíktilraunum og frekar miðað við að hljómsveitirnar höfði til unglinga en aldur sjálfra hljómsveita- meðlima.“ Ungmenni eru hvött til að senda upplýsingar um hljómsveitir sínar og tónlist. Valið verður úr þeim hópi sem sendir eftir því sem Concert-fólki þyk- ir passa við hlustendahópinn og hafa þegar nokkrar sveitir lýst yfir áhuga sínum. „Valið er óháð tónlistarstefnu. Allt kemur til greina. Rokk, popp, rapp. Það er alveg frjálst. Því meiri blöndu sem hægt er að ná fram því skemmtilegra.“ Tónlist | Leitað að unglingahljómsveitum til að spila í Galtalæk Því meiri blanda því betra Morgunblaðið/Kristinn Verslunarmannahelgin er ekki hvað síst hátíð unglinganna. Nú fá ung- lingahljómsveitirnar að láta ljós sitt skína í Galtalæk. KLUKKAN 17 í dag verður opn- uð í versluninni kronkron sýn- ing þar sem listamennirnir Hug- leikur Dagsson og Bjarni massi verða hvor með sína ljós- myndaröðina. „Ég hef sýnt mitt efni einu sinni áður, í Galleríi Nema hvað, þegar ég var í Listaháskól- anum,“ segir Hugleikur um sinn þátt í sýningunni. „Sú sýning var bara svo stutt og mér fannst þetta svo fínt verk að ég set það aftur upp. Þetta eru ljósmyndir af bróð- ur mínu, Þormóði Dagssyni. Ég tók reyndar ekki eina einustu ljósmynd. Þær voru allar teknar í Bandaríkjunum af móður minni og stjúpföður og eru svona ferðamyndir. Ég var á Ís- landi á meðan. Þegar ég hins vegar leit yfir myndirnar af Þorra þá fannst mér þær svo til- valdar í seríu. Þannig að þetta er svona meira tökuverk ef eitt- hvað er.“ Hugleikur segir framlag Bjarna massa til sýningarinnar vera „meiri dokkúmentasjón“. Um er að ræða heimild- armyndaröð sem sýnir konu þrífa slasaðan, tannbrotinn mann sem er brotinn á báðum höndum. Að sögn Stefáns Svans Að- alheiðarsonar, verslunarstjóra kronkron, er enn óráðið hve lengi verslunin hýsir sýningu Hugleiks og Bjarna en hann full- yrðir að hún fái að lifa áfram í góðan tíma, enda sé um „sérlega skemmtilega sýningu“ að ræða. Ljósmyndir | Hugleikur og Bjarni massi með ljósmyndasýningu Tökuverk í tískuverslun Morgunblaðið/Jim Smart „Mér fannst þetta svo fínt verk að ég set það aftur upp,“ segir Hugleikur um sitt framlag til sýningarinnar í kronkron. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.