Morgunblaðið - 09.08.2006, Blaðsíða 32
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
GUNNAR, ÉG ELSKA ÞIG EN ÉG
VIÐ GETUM BARA EKKI VERIÐ
SAMAN
ALLT Í
LAGI
VIÐ
SJÁUMST
ÞÁ BARA
GUNNAR Á EFTIR
AÐ FÁ FYRIR
FERÐINA
ÞÚ ERT
AUMUR
KALLI
SVO ERTU LÍKA BLAUÐUR
OG ALGJÖR ÓNYTJUNGUR
HVAÐ ER Í
GANGI?
EKKERT ÉG ER BARA AÐ REYNA
AÐ RÝFA KALLA NIÐUR
NEI, ÉG HEF ALDREI
VERIÐ GIFTUR Ó!
HVAÐ
KEMUR
ÞAÐ
MÁLINU
VIÐ
HANN HOR-
FIR MIKIÐ Á
SJÓNVARP ER
ÞAÐ EKKI?
ÁTTU EINHVER BÖRN
MARKÚS, FRÆNDI?
ÉG VAR
SETTUR Í
STOFUFANGELSI
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ TELJA ATKVÆÐIN OG
ÉG VAR AFTUR KJÖRINN FORINGI HVERJIRSÁU UM
TALNINGU-
NA?
ÉG OG
KONAN MÍN
ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA
TIL BETRI LEIÐ TIL AÐ
HALDA KOSNINGAR
ER ÞAÐ SATT AÐ ÞÚ VILJIR
EKKI VERA Í LIÐINU?
ÉG ER ÞEGAR AÐ GERA
ALLT OF MIKIÐ. MIG LANGAR
AÐ HAFA MEIRI TÍMA TIL AÐ
SLAPPA AF
ÞÚ MEINAR MEIRI TÍMA TIL AÐ
SPILA TÖLVULEIKI
NÁKVÆM-
LEGA
ÉG RÉÐ ÞENNAN LEIKARA TIL
AÐ AUGLÝSA MYNDINA
HVERNIG FÓR
HANN ÞÁ AÐ ÞVÍ AÐ
BRJÓTA VEGGINN?
VEGGURINN ER BARA
ÚR PAPPA SJÁÐU!
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 9. ágúst, 221. dagur ársins 2006
Víkverji hefur oftóskapast yfir
grænmeti og ávöxtum
í matvöruverslunum
hér á landi. Fyrir
helgi lagði Víkverji
svo leið sína í Nóatún
við Hringbraut til að
kaupa á kjöt á grillið.
Það bregst ekki kjötið
sem keypt er þar og
yfirleitt er þjónustan
þar alveg til fyr-
irmyndar. Það sem
kom honum hins veg-
ar gjörsamlega á
óvart þegar hann
gekk inn í búðina var
grænmetið og ávextirnir. Brakandi
ferskt íslenskt grænmeti og ávextir
sem litu bara þokkalega út og sumir
hverjir mjög vel. Þarna voru falleg
vínber, frábærar plómur og nekt-
arínur og fínar melónur. Íslenskt
spergilkál og glænýjar rófur. Þetta
var nú til að kætast yfir og mikið
mega yfirmenn í Nóatúni vera
ánægðir með ástand verslunarinnar
um síðustu helgi.
En það er ein ábending til þeirra.
Bjóðið nú upp á fyrsta flokks líf-
rænt ræktuð epli, sítrónur og perur
og kaupið inn almennileg brauð frá
bakaríinu í Grímsbæ. Þá er þetta
orðið ljómandi. Í versluninni Ygg-
drasli við Skólavörðustíg hefur und-
anfarið verið hægt að
kaupa lífrænt ræktuð
epli frá nokkrum stöð-
um og eplin frá Arg-
entínu bera alveg af
að mati Víkverja. Það
eru virkilega góð epli
sem hægt er að bíta í
og borða með bestu
lyst og meira að segja
með hýðinu á enda
ekkert skordýraeitur
eða annar viðbjóður
sem loðir við hýði
þeirra.
Í lokin er ekki úr
vegi að benda les-
endum á að leggja leið
sína á bændamarkaðinn í Mosfells-
dal en þangað gerði Víkverji sér
ferð um síðustu helgi. Þar var
margt um manninn eins og venju-
lega og stemning að setjast þar með
kaffibolla og fylgjast með mannlíf-
inu. Þar er í orðsins fyllstu merk-
ingu hægt að kaupa íslenskt og
ferskt grænmeti sem er tekið upp
samdægurs, skella í körfuna sína
rósabúnti og kaupa spriklandi
ferskan silung úr Þingvallavatni.
Það gerist ekki betra. Það er und-
arlegt að fleiri skuli ekki bjóða upp
á eitthvað svipað á þessum árstíma.
Hvað með að bændur taki sig nú
saman og bjóði upp á bændamarkað
í bænum?
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Suður-Kórea | Hér er par á einum af þeim vinsælu ísbörum sem til eru í Suð-
ur-Kóreu. Fólk kemur á þá til að klæða sig í snjógalla og drekka úr ís-glösum
á stað þar sem hitanum er haldið í mínus 4–6 gráðum og borgar sirka 15 doll-
ara eða rúmlega 1.000 krónur fyrir drykki.
Reuters
Ísbar
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, kný-
ið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.)