Morgunblaðið - 09.08.2006, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Á SUNNUDAGSKVÖLDI Innipúk-
ans stigu margar af skemmtilegustu
hljómsveitum landsins á svið og var
ég afar spennt að sjá þær og heyra.
Tónleikarnir hófust með hljóm-
sveitinni Koju frá Keflavík. Koja
spilar rokk og gerði það með ágæt-
um. Fáir voru mættir þegar hljóm-
sveitarmeðlimir byrjuðu klukkan
sex en þeir létu það ekki á sig fá og
komust vel frá sínu. Nortón tóku við
af Koju en þar sem þeir voru gít-
arleikaralausir það kvöldið, höfðu
þeir tekið upp það sem hann átti að
spila og birtu svo myndband af hon-
um í sjónvarpi sem þeir höfðu hjá
sér uppi á sviði. Nortón-menn voru
hressir að vanda en sviðsframkoma
þeirra var mjög lifandi og skemmti-
leg.
Skakkamanage er áhugaverð
hljómsveit sem spilar einhvers kon-
ar indípopp en mér virðist sem
hljómsveitarmeðlimum fjölgi í hvert
skipti sem ég sé þau spila. Þegar Mr.
Silla og Mongoose áttu svo leik um
áttaleytið var nokkuð tekið að fjölga
af fólki á NASA. Þau fluttu blúsaða
raftónlist feikivel og voru með betri
flytjendum kvöldsins. Að þeim lokn-
um steig Mammút á svið. Hún spilar
ágætis indípopp en tilþrifalaust var
það.
Ghostigital var í miklu fjöri þegar
hún hóf sinn leik. Þá var klukkan
farin að ganga tíu og farið að fjölga
verulega í húsinu. Þeir spiluðu tvö
ný lög og voru tónleikar þeirra
kraftmiklir og skemmtilegir.
Ghostigital er ekki hljómsveit sem
er allra og því alltaf svolítið
skemmtilegt að fylgjast með þeim á
tónleikum. Fólk hefur oft ekki hug-
mynd um hvernig það á að bregðast
við tónlist þeirra, en á Nasa var góð-
ur andi og ég sá ekki betur en að
fólki tækist að hreyfa sig svolítið
með þeim.
Danska sveitin Speaker Bite Me
þótti mér leiðinleg. Ég tók varla eft-
ir því hvenær eitt lag endaði og það
næsta byrjaði og eiginlega notaði ég
bara tækifærið og fór í löngu
klósettröðina sem myndast alltaf á
NASA á svona kvöldum.
Mugison kom næstur og var best-
ur. Hann kemur fram ásamt
trommu- og bassaleikara um þessar
mundir og fá lögin hans að njóta sín í
sveitatónlistarformi. Það sem er svo
skemmtilegt við að sjá Mugison er
að engir tvennir tónleikar eru eins.
Hann breytir útsetningum laga
sinna og snýr þeim oft á tíðum alveg
á hvolf. Þetta þykir mér góður siður.
Núverandi stíll lagsins „Murr Murr“
er mjög blúsaður en líka skemmti-
lega hallærislegur kántrífílingur
sem allir geta dillað sér við. Svo er
Mugison sjálfur svo hress á sviði að
það er óhjákvæmilegt að smitast af
gleði hans. Leikkonan Cate Blanch-
ett var komin til að sjá Mugison og
sagðist vera sérlega ánægð með að
hafa dembt sér á tónleika á Íslandi.
Því næst tók Ampop við, hún skil-
aði sínu ágætlega en það hlýtur að
hafa verið erfitt að koma fram á eftir
Mugison. Ég skil ekki af hverju hún
var ekki látin spila á undan honum.
Baggalútur lauk síðan kvöldinu með
sinni hressandi sveitatónlist. Fólk
dansaði og skemmti sér vel enda eru
böll Baggalúts þekkt fyrir mikla
gleði.
Það getur verið svolítið þreytandi
að vera á tónleikum í átta klukku-
tíma. Það er lítið um sæti á NASA og
bjórinn þar er rándýr. Sem betur fer
þarf ekki að fara langt ef maður vill
fá sér í svanginn. Í heildina var þetta
ágætis púki í ár, lítið var um seink-
anir og voru þær ekki miklar. Mér
fannst sunnudagskvöldið vera lang-
sterkast, svona hvað tónlistina varð-
ar, en hver hefur sinn smekk.
Ágætis
púki
TÓNLIST
NASA
Þriðja kvöld Innipúkans,
sunnudaginn 6. ágúst
Innipúkinn
Mugison var bestur á sunnudagskvöldinu að mati gagnrýnanda.
Morgunblaðið/Golli
Ampop er með vinsælli sveitum hér á landi og spilaði á eftir Mugison.
Helga Þórey Jónsdóttir
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
eeee
P.B.B. DV
S.U.S XFM 91.9
Miami Vice kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 16 ára
Miami Vice LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
The Sentinel kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Ástríkur og Víkingarnir kl. 4 og 6
Silent Hill kl. 10 B.i. 16 ára
Over the Hedge m. ensku.tali kl. 4 og 8
Over the Hedge m.ísl.tali kl. 4 og 6
Stick It kl. 8 og 10.20
Miami Vice kl. 8 og 10.40 B.i. 16.ára.
The Sentinel kl. 8 og 10 B.i. 14.ára.
Ástríkur og Víkingarnir kl.6.
Stormbreaker kl.6.
Það hefur ekki verið svikari í leyniþjónustunni í 141 ár...
þangað til núna!
Mögnuð
spennu
mynd
í anda „
24“
Með stórleikurunum
Michael Douglas og
Kiefer Sutherland
ásamt Evu Longoriu
og Kim Basinger
eeee
„Einfaldlega frábær spennu-
mynd með toppleikurum“
K.M. - Sena
COLIN FARRELL JAMIE FOXX
ACADEMY AWARD WINNER
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
SVALASTA SPENNUMYND
SUMARSINS
Framleiðslufyrirtæki George Lucas hefur gefið grænt ljós á
það að allur Stjörnustríðsbálkurinn
verði styttur úr 13 tímum í 20 mín-
útur. Annar stofnenda leikfélagsins
Reduced Shakespeare Company
eða „Shakespeare í smækkaðri
mynd“, sem er þekkt fyrir að stytta
leikrit leikskáldsins fræga niður í 97
mínútur, vinnur nú að leikgerðinni
„Stjörnustríð – í styttri útgáfu!“
Leikfélagið lofar því að allt það
helsta úr kvikmyndunum muni
halda sér í leikritinu, þ.e.a.s. hvernig
Anakin Skywalker snýst á sveif með
hinu illa, Leiu prinsessu er bjargað
og þá verður sagt frá smíði nýs
Dauðastirnis.
Annar stofnandi Reduced Shake-
speare Company, Adam Long, mun
leika aðalhlutverk ásamt tveimur
öðrum leikurum. Þá mun Long jafn-
framt leikstýra og skrifa handritið.
„Þetta var æskudraumur minn. Á
20 mínútum mun ég vera Jabba the
Hutt, Jar Jar Binks, Svarthöfði og
Anakin Skywalker,“ segir Long.
Stjörnustríðsleikritið verður sett
upp einu sinni fyrir framan 600
boðsgesti í Criterion-leikhúsinu.
Aðdáendur geta unnið miða á sýn-
inguna sem fram fer 17. ágúst. Hún
verður svo sýnd á Sky Movies-
sjónvarpsstöðinni, en vikan frá og
með 26. ágúst nk. verður tileinkuð
Stjörnustríðsmyndunum á Sky
Movies.
Fólk folk@mbl.is