Morgunblaðið - 09.08.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Keflavík | „Ég ákvað það þegar ég tók við
starfi framkvæmdastjóra að stefna að því að
hætta á meðan ég hefði enn góða starfskrafta
og gæti gengið óstuddur út af skrifstofunni.
Mér sýnist menn hafa stundum brennt sig á
því að vera of lengi í svona erilsömu starfi,“
segir Guðjón Stefánsson, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Suðurnesja og framkvæmda-
stjóri Samkaupa hf. Hann mun láta af starfi
framkvæmdastjóra Samkaupa í næsta mán-
uði og Sturla Eðvarðsson, sem verið hefur
framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar á Kefla-
víkurflugvelli, taka við.
Guðjón er þó ekki alveg hættur hjá fyr-
irtækinu sem hann hefur unnið hjá nánast
óslitið frá fermingu því hann verður áfram
kaupfélagsstjóri. Kaupfélag Suðurnesja er
eignarhaldsfélag þar sem hlutafé í Sam-
kaupum er aðal eignin. „Það er fyrirhugað að
efla fasteignarekstur kaupfélagsins og gera
ákveðnar breytingar á honum. Ég einbeiti
mér nú að kaupfélaginu. Ég reikna með að
taka ár eða svo í það, til þess að trappa mig
aðeins niður,“ segir Guðjón.
Kaupfélag verður matvörukeðja
Guðjón hóf störf hjá Kaupfélagi Suð-
urnesja sem sendill á árinu 1957, nýfermdur
unglingur. Hann vann síðan ýmis störf hjá
fyrirtækinu, meðal annars í verslunum. Að
loknu námi við Samvinnuskólann á Bifröst
varð hann skrifstofustjóri kaupfélagsins og
síðar fjármálastjóri og aðstoðarkaupfélags-
stjóri. Á árinu 1988 tók hann við sem kaup-
félagsstjóri.
Þegar Guðjón tók við ábyrgð á rekstri
Kaupfélags Suðurnesja var það hefðbundið
kaupfélag, var í fjölbreyttum rekstri sem
bundinn var við Suðurnesin. Félagið var
meðal annars umsvifamikið í útgerð og fisk-
vinnslu, rak sláturhús, brauðgerð og flutn-
ingastarfsemi. Það breyttist smám saman og
fyrir fimmtán árum var ákveðið að kaup-
félagið einbeitti sér að rekstri hefðbundinna
matvöruverslana ásamt kjötvinnslu fyrir eig-
in verslanir. Rekstrinum var skipt upp 1998
með því að nýtt hlutafélag, Samkaup hf., tók
við verslunarrekstrinum. Þegar Guðjón tók
við rak félagið sjö verslanir á Suðurnesjum
en Samkaup hafa síðan fært út kvíarnar og
reka nú 35 matvöruverslanir úti um allt land.
Auk Suðurnesja er félagið öflugt í versl-
unarrekstri á Vesturlandi, Vestfjörðum og
Norðurlandi og á Austurlandi rekur Kaup-
félag Héraðsbúa verslanir undir nafni Sam-
kaupa. Félagið er einnig með verslanir á Suð-
urlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
Verslanirnar eru reknar undir nafni Sam-
kaupa ásamt Nettó og Kaskó.
Skekkir samkeppni
„Annars er aðalmálið að stækka á höf-
uðborgarsvæðinu. Þar er fólkið. Okkur hefur
ekki gengið of vel að finna staði fyrir versl-
anir þar. Það breytist vonandi á næstu árum
með því að sveitarfélögin sjái hvað það er
mikilvægt að viðhalda samkeppni á þessu
sviði,“ segir Guðjón.
Afar hörð samkeppni hefur ríkt í mat-
vöruversluninni á undanförnum árum. „Þetta
er erfiður markaður vegna þess hvað einn að-
ili er afgerandi stærstur, með hátt í 60% hlut-
deild. Það skekkir alla samkeppni,“ segir
Guðjón og vísar til fyrirtækja Baugs. Sam-
kaup er aftur á móti minnst af stóru mat-
vörukeðjunum sem svo hafa verið nefndar,
með vel innan við 20% hlutdeild. „Vegna
þessarar stöðu okkar verðum við að fara
gætilega og megum ekki misstíga okkur,“
segir Guðjón. Hann segir að reksturinn hafi
samt gengið vel. Samkaup hefur til að mynda
aldrei verið rekið með tapi. Hann segir að
síðasta ár hafi verið erfiðast vegna gegnd-
arlausra undirboða sem þá voru.
„Vöruverðið var langtímum saman langt
undir innkaupsverði. Þannig er ekki hægt að
vinna á samkeppnismarkaði. Þetta leiðir
venjulega til þess að markaðurinn ryðst
verulega, kaupmenn gefast upp, eins og gerst
hefur á síðustu fimmtán til tuttugu árum.“
Sameiginlegt fasteignafélag
Sturla Eðvarðsson, sem tekur við fram-
kvæmdastjórastöðunni hjá Samkaupum af
Guðjóni, vann í mörg ár hjá Samkaupum áð-
ur en hann fór til Fríhafnarinnar á Keflavík-
urflugvelli. Var verslunarstjóri, inn-
kaupastjóri og rekstrarstjóri. Guðjón segir
að hann þekki því vel til rekstursins. Hann
tekur við í byrjun september.
Guðjón mun einbeita sér að rekstri Kaup-
félags Suðurnesja sem hann hefur stjórnað
frá sama skrifborði frá stofnum Samkaupa.
Hann mun vinna að breytingum á kaup-
félaginu. Kaupfélagið er stærsti hluthafinn í
Samkaupum, með 57% hlut. Það á einnig hlut
í Lyfju og fasteignir, aðallega á Suð-
urnesjum, meðal annars verslunarhúsnæði
Samkaupa þar.
Ákveðið hefur verið að færa fasteignirnar
inn í sérstakt fasteignafélag ásamt fasteign-
arekstri Ágústs Gíslasonar og félaga á Ísa-
firði. Ágúst verður framkvæmdastjóri hins
nýja félags. Guðjón segir að ætlunin sé að
efla þennan rekstur og færa út kvíarnar. „Við
treystum því að það verði litið til okkar hjá
sveitarfélögunum, til þess að hægt verði að
efla samkeppni í verslunarrekstri. Síðan mun
fasteignafélagið nýta önnur þau tækifæri
sem gefast,“ segir Guðjón.
Meira í golf
Hann reiknar með að vera við kaupfélagið í
að minnsta kosti eitt ár, á meðan þessar
breytingar ganga yfir, en setjast síðan í helg-
an stein. Guðjón er að verða 63 ára og segist
vera farinn að finna fyrir því álagi sem fylgi
því að vera í svona erilsömu starfi í langan
tíma. Svo sé aldurinn kannski farinn að toga
aðeins í þótt hann sé enn ágætlega heilsu-
hraustur. „Ég finn að álagið hefur öðruvísi
áhrif á mig en áður.“
Ekki hefur Guðjón haft tíma fyrir fjöl-
breytt tómstundastörf. Hann hefur verið
virkur í félagsmálum í sínum heimabæ,
Keflavík, og aðeins lagt stund á golfíþróttina.
„Ég get vonandi komist eitthvað meira í golf.
Og svo ræktað fjölskyldu og frændgarð.
Maður hefði gjarnan mátt gera meira af því
þegar mest gekk á í starfinu,“ segir Guðjón
Stefánsson.
Guðjón Stefánsson hættir í erilsömu framkvæmdastjórastarfi hjá Samkaupum en stjórnar kaupfélaginu áfram
Vill geta gengið óstuddur út af skrifstofunni
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Stígur til hliðar Guðjón Stefánsson dregur sig út úr fremstu víglínu í harðri samkeppni á mat-
vörumarkaðnum en einbeitir sér að breytingum á rekstri Kaupfélags Suðurnesja.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Selfoss | Klúbburinn Strókur
á Suðurlandi fékk um mán-
aðamótin afhent nýtt hús frá
byggingafyrirtækinu Tinda-
borgum á Selfossi. Það var
Guðgeir Gunnarsson frá Tinda-
borgum sem afhenti Bryndísi
Tryggvadóttur, forstöðumanni
hjá Stróki, hið nýja 53 fer-
metra sumarhús sem sett var
niður framan við aðstöðuhús
klúbbsins á gæsluvellinum við
Stekkholt á Selfossi þar sem
klúbburinn hefur aðsetur.
Strókur tekur húsið á leigu
fram til ársloka 2007 en þá
hefur klúbburinn fengið fyr-
irheit um húsnæði við Skóla-
velli hjá Sveitarfélaginu Ár-
borg. Mikil þörf var, að sögn
Bryndísar, fyrir þetta nýja hús
því aðsókn að starfsemi
klúbbsins hefur verið mjög góð
og félögum fjölgað jafnt og
þétt. Heimsóknir klúbbfélaga í
aðstöðuna við Stekkholt voru
um 120 í júlí en aðstöðuleysi
var farið að hefta starfsemina
og framgang hennar.
Klúbburinn Strókur er fyrir
fólk sem á eða átt hefur við
geðræn veikindi að stríða.
Klúbburinn starfar eftir hug-
myndafræði Fountain House,
sem byggist á markvissri upp-
byggingu á hæfileikum og getu
einstaklingsins. Með tilkomu
nýja húsnæðisins opnast nýir
möguleikar í starfsemi klúbbs-
ins og unnt er að taka á móti
fleira fólki.
Klúbburinn hefur fengið
góðan stuðning víða að í sam-
félaginu, með góðum gjöfum
frá fyrirtækjum og peninga-
legum stuðningi frá Rauða
krossinum, fjárlaganefnd Al-
þingis og fleiri aðilum. Þá nýt-
ur klúbburinn stuðnings frá
Sveitarfélaginu Árborg með
fríum afnotum af aðstöðunni á
leikvellinum við Stekkholt.
Klúbburinn Strókur og starf-
semi hans skapað nýja mögu-
leika fyrir fólk sem hefur átt
við geðræn veikindi að stríða.
Hún sagði við afhendingu
hússins að klúbburinn væri
gott úrræði við að byggja upp
getu einstaklingsins til nýta
sínar sterkustu hliðar og þjálfa
sig til víðrar þátttöku í sam-
félaginu.
Á stjórnarfundi sama dag og
húsið var afhent var einnig
gengið frá ráðningu starfs-
manns, Hafdísar Marvins-
dóttur, í hlutastarf og mun
hún starfa með Bryndísi
Tryggvadóttur forstöðumanni
að málefnum klúbbsins og með
klúbbfélögum að markmiðum
þeirra.
Að sögn Bryndísar hefur
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Aðstaða Hafdís Marvinsdóttir starfsmaður og Bryndís Tryggvadóttir forstöðumaður framan við
aðstöðu Klúbbsins Stróks við Stekkholt á Selfossi.
Klúbburinn Strókur fær nýtt aðstöðuhús
Eftir Sigurð Jónsson
LANDIÐ
Fljótsdalur | Opnuð hefur verið í galleríi Klaustri
á Skriðuklaustri sýning á ljósmyndum Hrannar
Axelsdóttur. Sýningin er hluti ef verkefni sem
hún hefur unnið að í nokkur ár og kallar Huldu-
fólk og álagablettir.
Myndirnar eru teknar af stöðum og blettum
sem tengjast vitnisburðum um atvik eða bústaði
huldufólks. Þær eru frá því í maí 2005, þegar
Hrönn dvaldi í gestaíbúðinni á Skriðuklaustri.
Myndirnar vinnur hún með tækni sem kölluð
er camera obscura, þ.e. á einfalda myndavél án
linsu. Um ástæðuna fyrir valinu á myndavélinni
segir listamaðurinn: „Hún breytir umhverfinu,
við þekkjum það en það lítur öðruvísi út. Er sjón
sögu ríkari eða er það upplifunin? Eða þarf mað-
ur hvorttveggja til að geta séð hlutina í nýju
ljósi.“
Sýningin stendur fram í september og er opin
alla daga kl. 10 til 18, fram til 20. ágúst en eftir
það kl. 12 til 17.
Huldufólk og
álagablettir
Hvanneyri | Síðasti bændamarkaður Búnaðar-
samtaka Vesturlands í sumar verður haldinn á
Hvanneyri næstkomandi laugardag, milli
klukkan 13 og 17.
Búnaðarsamtök Vesturlands hafa staðið fyrir
bændamarkaði á Hvanneyri í sumar. Búið er að
halda tvo markaði og er óhætt að segja að við-
tökurnar hafi verið góðar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á bændamarkaði BV eru ýmis matvæli til
sölu og má þar nefna sauðaosta, geitaosta,
geitakjöt, hákarl, harðfisk, silung, grænmeti, ís-
lenskar jurtir, hvannamarmelaði, brjóstsykur,
bakkelsi og margt annað góðgæti.
Halda síðasta
bændamarkaðinn
♦♦♦