Morgunblaðið - 09.08.2006, Blaðsíða 16
Reykjavík | Mikið verk er að
halda eigum borgarinnar hrein-
um og fínum. Umferðarskiltin
eru þar á meðal. Nauðsynlegt er
að halda þeim hreinum svo þau
gegni hlutverki sínu. Óhrein-
indin eru ekki öll óumflýjanleg
því það gerist alltaf annað slagið
að einhverjir noti skiltin til að fá
útrás fyrir annarlegar hvatir.
Það hefur gerst á þessum
gatnamótum, einhver lagði það
á sig að krassa á biðskyldu-
merkið. En Edda Arnaldsdóttir
mætti með klút og hreinsilög og
þegar hún hafði lokið verkinu
gátu ökumenn speglað sig í
skiltinu á meðan þeir biðu.
Morgunblaðið/Eggert
Stórhreingerning á gatnamótum
Stöðvunarskylda
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Gaf listaverk | Myndlistarkonan Mireya
Samper færði íbúum Kaldrananeshrepps
að gjöf listaverkið „Lagrima“ á dögunum, í
tilefni myndlistarsýningar sem hún hélt í
Grunnskólanum á Drangsnesi. Mireya
Samper var listamaður Bryggjuhátíðar
2006 og dvaldi viku á Drangsnesi og vann
þar hörðum höndum, segir á fréttavefnum
strandir.is.
Listaverkið er hoggið í grjótið í kringum
heitu pottana. Verkið myndar mjög
skemmtilega umgjörð um pottana og pass-
ar þar fullkomlega, segir á vefnum. Jenný
Jensdóttir, oddviti Kaldrananeshrepps, tók
á móti listaverkinu fyrir hönd sveitarfé-
lagsins.
Landsþing um andleg mál | Ráðstefnan Á
sveimi – landsþing um andleg mál verður
haldin á Seyðisfirði dagana 29. september
til 1. október. Bæjarráð Seyðisfjarðar fagn-
ar hinu merka framtaki Sálarrannsóknar-
félags Seyðisfjarðar og staðfesti á fundi
sínum nýlega ákvörðun fyrri bæjarstjórnar
um aðstoð og stuðning við þingið.
Byggðamerki | Efna á til samkeppni um
byggðamerki fyrir sveitarfélagið Langa-
nesbyggð, sem er sameinað sveitarfélag
Skeggjastaðahrepps og Þórshafnarhrepps.
Tillögum skal skila á skrifstofur Langa-
nesbyggðar á Þórshöfn, eða Bakkafirði, í
lokuðu umslagi merkt „Byggðamerki“. Til
að gæta hlutleysis hefur verið ákveðið að
tillögur njóti nafnleyndar þar til byggða-
merki hefur verið valið. Það skal gert
þannig að með tillögu að byggðamerki fylgi
í lokuðu umslagi nafn og heimili höfundar
ásamt smækkaðri mynd af tillögunni.
Skilafrestur er til og með fimmtudagsins
31. ágúst 2006.
Ekki fleiri Murneyramót | Hestamanna-
félagið Smári í Árnessýslu mun að öllum
líkindum segja upp leigusamningi fyrir
land á Murneyrum á næstunni og þar með
eru svokölluð Murneyramót hestamanna
úr sögunni. Þau hafa verið haldin síðast-
liðin 40 ár, lengstum af Smára og Sleipni á
Selfossi. Eftir uppbyggingu vallar á Sel-
fossi fyrir þremur árum hætti félagið þar
þátttöku, að því er fram kemur á frétta-
vefnum sudurland.is. Einnig kemur fram
að Smári hefur ekki lengur bolmagn til að
reka völlinn.
Murneyramótið sem haldið var 23. júlí sl.
var því síðasta mótið á þessum stað.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Stundum er talað um að éta eitthvaðupp til agna eða með húð og háriog það átti svo sannarlega vel við
þegar gulbröndótti kötturinn í mak-
indum gleypti í sig þrastarunga á
hlaðinu við gamla prestsbústaðinn á
Laufási. Hann var ekkert að fara í felur
með miðdegisverðinn, kom sér bærilega
vel fyrir og skeytti engu þótt fjölmargt
fólk fylgdist með aðförunum. Kisi gerði
mat sínum góð skil, það var hvorki tang-
ur né tetur eftir af hinum óheppna þrast-
arunga þegar hann hafði lokið sér af.
Áhorfendum þótti kötturinn ganga
skipulega til verks, en sumum í hópnum
þóttu örlög ungans fulldapurleg.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Sporðrenndi þrastarunga
Það er kallað sum-arauki þegar viðr-ar vel að hausti.
Jódís Jósefsdóttir orti til
Bomma [Hjálmars Júl-
íussonar] þegar þau voru
byrjuð að vera saman:
Eitt ég segja ætla þér
á ef viltu hlýða
sumarauki eru mér
ástúð þín og blíða.
Jódís orti til dótt-
ursonar vinkonu sinnar:
Að þú fetir æviveginn bjarta
óska ég í mínu gamla hjarta
að þú verður alltaf hress og glaður
en þó fyrst og síðast góður maður.
Pétur Stefánsson orti
eftir helgina á Akureyri:
Helgin féll körlum í kramið
þeir kætina vart gátu hamið.
Hér var drukkið og skriðið
og drukkið og riðið
og drukkið og sniffað og lamið.
Bjarni Ásgeirsson orti
á nefndarfundi árið 1935:
Fjórir mættir, fundur settur,
fyrir tekið er:
frumvarpsbunki býsna þéttur
borinn fram af mér.
Sumarauki
og ævivegur
pebl@mbl.is
♦♦♦
Miðfjörður | Grettishátíð verður haldin á
Laugarbakka og Bjargi í Miðfirði dagana
11. til 13. ágúst næstkomandi. Hátíðin er
haldin til heiðurs Gretti sterka Ásmund-
arsyni frá Bjargi. Er þetta tíunda skipið
sem Grettishátíð er haldin og af því tilefni
verður hún veglegri en áður.
Grettishátíð hefst á föstudagskvöldið
með opnun víkingabúða og handverkssýn-
inga í Grettisbóli á Laugarbakka. Þar
verður dagskrá á laugardag. Meðal atriða
má nefna að félagar úr víkingahópunum
Rimmugýg og Hringhorna sýna bardaga-
listir og fornmannaleiki. Benedikt Búálfur
og persónur úr ávaxtakörfunni skemmta
börnum ásamt því að þrautabraut og hest-
ar verða á svæðinu. Að lokum verður grill-
veisla að hætti víkinga.
Á laugardagskvöldið verður dagskrá í
félagsheimilinu Ásbyrgi þar sem fram
koma félagar úr kvæðamannafélaginu
Vatnsnesingi, Elfar Logi Hannesson sýnir
einleik um Gísla sögu Súrssonar og að lok-
um stígur á stokk þjóðlagatríóið Kliður
fornra strauma en tríóið skipa þau Stein-
dór Andersen, Sigurður Rúnar Jónsson og
Bára Grímsdóttir.
Á sunnudaginn 13. verður dagskrá á
Bjargi í Miðfirði. Þar verður boðið upp á
söguskoðun og leiðsögn ásamt því að háð
verður aflraunakeppni.
Grettishátíð er hátíð fjölskyldunnar þar
sem jafnt ungir og þeir sem eldri eru munu
án efa finna eitthvað við sitt hæfi, segir í
fréttatilkynningu frá mótshöldurum.
Tjaldstæði eru á Laugarbakka og fjöl-
margir aðrir gistimöguleikar á svæðinu.
Tíunda há-
tíðin til heið-
urs Gretti
Laugar | Við setningu níunda Unglinga-
landsmóts Ungmennafélags Íslands, sem
haldið var á Laugum í Reykjadal um
helgina, var tilkynnt að mótið yrði haldið í
Þorlákshöfn sumarið 2008.
Björn Bjarndal Jónsson, formaður
UMFÍ, tilkynnti í ræðu sinni við setn-
inguna að á stjórnarfundi UMFÍ í síðasta
mánuði hefði verið ákveðið að Þorlákshöfn
yrði fyrir valinu. Kemur þetta fram á vef
UMFÍ. Auk Þorlákshafnar sóttu forystu-
menn í Grundarfirði og Borgarnesi um að
fá að halda mótið. Fyrir ári var ákveðið að
mótið 2007 yrði haldið á Höfn í Hornafirði,
á 100 ára afmælisári UMFÍ.
Landsmót 2008
í Þorlákshöfn
Skagafjörður | Færra fólk sótti hina
árlegu guðsþjónustu í Ábæjarkirkju
sem var sl. sunnudag en oft áður.
Ávallt er messað um versl-
unarmannahelgina í Ábæjarkirkju
sem er í eyðibyggðinni Austurdal í
Skagafirði.
Talið er að liðlega 140 manns hafi
verið við athöfnina nú en algengt er
að vel á þriðja hundrað manns mæti.
Rigning og þokusúld hafa eflaust átt
sinn þátt í að færri lögðu leið sína í
dalinn en oft áður enda leiðin torsótt,
ekki síst í bleytu og þorri kirkjugesta
verður að hlýða á athöfnina utan-
dyra.
Hundrað þrjátíu og sex komu í
kirkjukaffi að Merkigili eftir athöfn-
ina. Þar hafa systkini Helga heitins
Jónssonar, síðasta sóknarbarns í
Ábæjarsókn, ávallt boðið gestum til
kaffidrykkju eftir messu líkt og
Helgi gerði meðan hann lifði. Það var
Ólafur Hallgrímsson, sóknarprestur
á Mælifelli, sem messaði. Íris Bald-
vinsdóttir söng einsöng, Sveinn Sig-
urbjarnarson lék á trompet og Anna
María Guðmundsdóttir á orgel.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Fátt Þótt færra hafi verið við messu í Ábæjarkirkju nú um verslunar-
mannahelgina þurftu margir kirkjugestir að standa utan dyra.
Færri mættu í messu í
Ábæjarkirkju en oft áður