Morgunblaðið - 11.08.2006, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Mallorca
24. ágúst
frá kr. 24.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.24.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum,
m.v. 2 fyrir 1 tilboð. Netverð á mann.
Gisting frá kr. 1.950
Netverð á mann á nótt, m.v. 2 í íbúð
á Paraiso Alcudia.
Síðustu sætin
Nú bjóðum við frábært tilboð á síðustu sætunum til Mallorca í ágúst.
Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Gríptu tækifærið og
tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjörum á einum vinsælasta
sumarleyfisstað Íslendinga. Úrval af gistingu í boði í Alcudia og á
Playa de Palma.
ÞAÐ er ónotaleg tilfinning að vakna
á hótelherbergi í London við fréttir
af því að allt flug frá Heathrow hafi
verið stöðvað vegna áætlana hryðju-
verkamanna um að sprengja flug-
vélar á leið vestur um haf. Einkum
þegar maður á bókað flug um kvöld-
ið. En fólk er fljótt að taka við sér.
Fljótlega er hringt frá móttöku hót-
elsins og varað við ástandinu á Heat-
hrow. Og við útskráninguna er af-
hentur útprentaður listi yfir þá hluti
sem taka má með í handfarangri.
Listinn er ekki langur og óþægilegt
fyrir blaðamann að horfa fram á að
skilja við upptökutæki með óskrif-
uðu viðtali. Að ekki sé talað um far-
tölvuna.
Á sama tíma skráir Bandaríkja-
maður úr fjallahjólasamtökum sig af
hótelinu og kemur af fjöllum þegar
hann heyrir af ástandinu. „Ég er
hissa á því að konan mín hafi ekki
hringt í morgun, segir hann. Svo lít-
ur hann á klukkuna, áttar sig og
bætir við brosandi: „Klukkan er
bara fimm í Bandaríkjunum. Hún
hringir eftir klukkustund.
Morgunblöðin flytja fremur
óspennandi fréttir þennan daginn,
enda ekki hægt að sjá atburðarásina
fyrir. Og þó. John Reid innanrík-
isráðherra hefur verið reglulega á
skjánum allan morguninn og svarar
fyrir handtöku hryðjuverkamann-
anna. Hann er einnig á síðum bresku
morgunblaðanna að gagnrýna
stjórnmálamenn, dómara og stjórn-
málaskýrendur fyrir að tálma bar-
áttunni „upp á líf og dauða“ gegn
al-Quaida þegar hann vildi fá sam-
þykkt ný hryðjuverkalög.
Tímasetningin auðvitað algjör til-
viljun. Og þó?
Stríð heima í stofu
„Við verðum bara að lifa lífinu
áfram, er það ekki?“ segir æðrulaus
breskur miðaldra maður og almennt
gengur lífið sinn vanagang í London.
„Við erum vön þessu,“ segir breskur
leigubílstjóri. „Það tók okkur aðeins
þrjár til fjórar vikur að jafna okkur
eftir sprengjuárásina í neðanjarð-
arlestarkerfinu [í London 7. júlí í
fyrra]. Enda höfum við þurft að
glíma við IRA. Bandaríkjamenn eru
miklu viðkvæmari. Þeir hafa aldrei
átt í stríði heima í stofu.“
En fólk er þó líka órólegt. „Fólki
er brugðið. Það er hvergi óhult að
ferðast, hvorki með lest né flugi,“
segir stúlka sem bíður vinkonu sinn-
ar, en hún situr föst í flugvél á
Heathrow í tvo og hálfan tíma áður
en henni er hleypt út. Ekki er laust
við að sumum sárni. „Ég skil þetta
ekki,“ segir annar leigubílstjóri.
„Bandaríkjamenn þurfa ekki að
glíma við að fólk af öðru þjóðerni að-
lagist ekki. En ef Pakistan leikur við
England, þá fær Pakistan stuðning
frá fólki sem er fætt hér á Englandi.
Hvernig er þetta á Íslandi; vill fólk
ekki aðlagast ykkar samfélagi?“
Ungur maður sem fylgist með
sjónvarpsskjánum í bankaútibúi
hneykslast á því að hryðjuverka-
mennirnir séu breskir ríkisborgarar.
„Við leyfum fólki að stunda hvaða
trúarbrögð sem það vill, en það er
ekki nóg – það fær aldrei nóg! Samt
greiðum við götu þess, menntum
það, önnumst það og ef það veikist
þá leggst það inn á spítala og við
læknum það.“ Hann hristir höfuðið:
„Ég skil ekki af hverju fólk vill skaða
annað fólk.“
Eftir stendur baráttuhugurinn að
koma ástandinu í lag. „Við erum að
leyfa þeim að hafa betur með því að
aflýsa fluginu. Þess vegna verðum
við fljót að kippa ástandinu í lag,“
segir eldri maður sem rómar Dun-
querque hugsunarhátt bresku þjóð-
arinnar. „Amma mín bjó í London á
stríðsárunum, vann í vopnaverk-
smiðju eins og aðrar konur og hert-
ist aðeins í sprengjuárásum Þjóð-
verja. Gömlu konurnar í London eru
harðar af sér. Og við ólumst upp við
sögur þeirra.“
Skilningsríkir farþegar
„Þetta hefur verið mjög annasam-
ur dagur,“ segir Angie Condos,
stöðvarstjóri Flugleiða á Heathrow,
í gærkvöldi þegar farið var að inn-
rita farþega til Íslands. „En það var
gott að okkur var greint snemma frá
stöðunni, eða fimm í morgun, því að
þá komumst við hjá því að senda vél
frá Íslandi til Heathrow. Svo gátum
við haldið farþegum upplýstum frá
byrjun og þeir voru afar skilnings-
ríkir. Við bókuðum engan inn, ekki
heldur í morgun, og flestir eru fyrst
að mæta út á flugvöll núna í kvöld.
Þó hafa 50 farþegar til Bandaríkj-
anna beðið síðan tíu í morgun. Við
höfum reynt að hugsa vel um þá og
þeir munu gista í nótt á Íslandi. Í
heild hefur þetta því gengið mjög vel
og enginn hefur misst hemil á sér,“
segir hún og hlær.
Að sögn Condos hefur ekki verið
mikill órói á Heathrow þrátt fyrir
allt. „Fólk hefur haldið ró sinni
vegna þess að það vissi frá byrjun að
hverju það gekk. Það var stöðugt
verið að miðla upplýsingum á helstu
fréttamiðlunum. Það lá alltaf ljóst
fyrir að það yrði ekki auðvelt að ráða
við ástandið á Heathrow vegna gíf-
urlegs fjölda farþega sem á þar leið
um. Ég held það hafi bjargað miklu
að fólki var strax ráðlagt að fara ekki
út á Heathrow nema brýna nauðsyn
bæri til. Fólk hefur almennt verið
skilningsríkt enda verið að gæta ör-
yggis þess og fjöldi mannslífa í húfi.“
Á leið í brúðkaup
Það er ekki löng röð við innrit-
unarbás Flugleiða, enda flestir far-
þegar fyrst að mæta í gærkvöldi og
höfðu varið deginum í London. „Ég
var að koma núna,“ segir Banda-
ríkjamaður og bætir við brosandi:
„Þú færð því ekkert neikvætt upp úr
mér um Flugleiðir.“
„Ég er að fara í brúðkaup vina
minna í Árbæjarkirkju á laugardag,“
segir David Petchell, sæll og glaður.
„Mér leist þó ekkert á blikuna þegar
ég vaknaði í morgun. Ég kveikti á
sjónvarpsfréttum og hugsaði: Guð
minn góður! En sem betur fer kemst
ég til Íslands.“
Tveir Íslendingar varast viðtöl á
þessum varasama degi, en upp-
ljóstra þó að þeir hafi hringt um
morguninn, heyrt um seinkunina og
unnið í London yfir daginn.
Var brugðið
„Við áttum bara flug í kvöld, þann-
ig að við vorum heppin,“ segir Valdís
Ívarsdóttir með Albert Elí tveggja
ára son sinn sofandi í fanginu og bíð-
ur innritunar með fjölskyldunni á
Heathrow-flugvelli. „Þetta breytir
ekki miklu fyrir okkur, en okkur brá
í morgun. Þegar tengdapabbi vakti
mig með þessum tíðindum í morgun
hélt ég að hann væri að plata.“
„En við kipptum okkur samt ekki
mikið upp við þetta,“ segir Vigfús
Bjarni Albertsson, eiginmaður Val-
dísar. „Það má segja að við séum far-
in að venjast þessu, því þegar við
fluttum til Bandaríkjanna á sínum
tíma, þá var það 10. september árið
2001.“
„Mér fannst það skrýtið að lögg-
urnar skyldu vera með byssur. Þær
voru aldrei svona stórar áður,“
skýtur dóttirin Rannveig Íva, níu
ára, inn í.
Fjölskyldan hafði búið sig undir
að gista yfir nóttina í London. „Það
hefði verið lítið mál, því við erum svo
heppin að systir mín býr hér,“ segir
Valdís. „Ef illa hefði farið hefðum við
vel getað dvalið hér lengur.“
Handfarangurinn flokkaður
„Ætli maður megi ekki taka bók
með sér?“ segir Þórir Björnsson á
meðan hann er að hagræða farangr-
inum og setja það í ferðatöskuna
sem ekki á lengur heima í handfar-
angri. „Ég er nýkominn út á flugvöll
vegna þess að ég hringdi í morgun
og heyrði af seinkuninni. Flugfélagið
hringdi svo áðan, lét mig vita af því
að flogið yrði í kvöld og ég er mætt-
ur.“
Hann hallar sér fram á innrit-
unarborðið og fer í gegnum helstu
fylgihluti. „Má þetta vera með … en
þetta?“ Og kemur á daginn að Isle of
Dogs eftir Patriciu Cornwell má ekki
vera með í plastpokanum sem
honum leyfist að taka með í
handfarangri. Hann setur hana
hlæjandi í ferðatöskuna og raðar svo
í pokann á meðan hann þylur upp:
„Lyklar, passi, peningar, farseðill,
pappírar.“
„Af hverju vill fólk skaða annað fólk?“
Hryðjuverkaógnin í London setti lífið úr skorðum
hjá þeim sem ætluðu að ferðast um Heathrow-
flugvöll í gær. Pétur Blöndal var á meðal þeirra
sem vöknuðu upp við vondan draum og sá fram á
að komast hvergi. Hann talaði um atburðarásina
við Lundúnabúa, flugfarþega á Heathrow og
stöðvarstjóra Flugleiða.
Fjölskylda í biðstöðu á Heathrow í gærkvöldi: Valdís Ívarsdóttir með son sinn Albert Elí, tveggja ára, Vigfús
Bjarni Albertsson, Rannveig Íva Aspardóttir, Elín Vigfúsdóttir og Albert Ríkharðsson.
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
Angie Condos stöðvarstjóri og Yusuf Hussein, starfsmaður Flugleiða, sögðu
daginn hafa verið annasaman á Heathrow en að fólk hefði haldið ró sinni.
Þórir Björnsson með þá hluti í poka sem leyfðir eru í handfarangri.
pebl@mbl.is