Morgunblaðið - 11.08.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.08.2006, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lloret de Mar 31. ágúst frá kr. 44.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Heimsferðir bjóða einstakt tilboð á einn vinsælasta áfangastað Costa Brava strandarinnar við Barcelona, Lloret de Mar. Gott hótel með góðri aðstöðu, fallegum garði, sundlaug og veitingastöðum. Stutt í golf og á ströndina. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is 5 nætur - fullt fæði Verð kr.44.990 með fullu fæði Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli með fullu fæði á Hotel Sunrise í 5 nætur, 31. ágúst. aður hafi verið til viðeigandi aðili vegna boðflennunnar. Við laxveiðiárnar á Mýrum hafa selir löngum gert sig heimakæra en nú segja menn að ástandið sé með ólíkindum. Við Hítará hafa menn oftar en einu sinni séð sel elta göngur laxa upp að veiðihúsinu Lundi en að sögn Haraldar er ekki stugg- að við selnum við ósa árinnar. Hann dvelji því þar í miklu magni og það þyki veiði- mönnum miður. „Hann hefur ekki verið skotinn að neinu marki og svo virðist sem landeigendur séu ekki hrifnir af því. Á sama tíma þiggja þeir þó arð frá laxveiðimönnum þannig að segja má að þetta sé skrýtið ástand.“ Haraldur segir að þessi tilhögun mála komi óneitanlega niður á því rækt- unarstarfi sem við ána er stundað og bend- ir á að eitt seiði frá eldisstöð kosti um hundrað krónur með virðisaukaskatti. Það sé því leiðinlegt að horfa upp á seiðin sem snúa aftur úr sjó enda í maga sels. „Ef verðmæti hvers lax er 15 til 20 þús- und krónur gefur það augaleið að þetta er dýr biti,“ segir Haraldur. Ólafur Sigvaldason, formaður Veiði- félags Hítarár, segir að landeigendur hafi ekki verið hrifnir af því að stuggað sé við sel við ósa árinnar. Veiðimenn séu ekki hrifnir af þessu ástandi og það verði tekið LANDSELIR við ósa laxveiðiáa hafa löngum verið þyrnir í augum veiðimanna sem telja selina trufla laxagöngur og leggja hinn silfraða sér til munns. Þá hafa einstaka selir átt það til að synda upp árn- ar í óþökk veiðimanna hverra flugur hafa mátt lúta í gras fyrir kjafti selsins. Undanfarna daga hefur selur einn gert sér það að leik að stríða veiðimönnum í ár- mótum Sogs og Hvítár eystri og töldu menn hann jafnvel hafa teflt djarft og gert sér ferð í ferskt vatn Sogsins. Haraldur Ei- ríksson, markaðsfulltrúi Stangveiðifélags Reykjavíkur (SVFR), segir það ekki vitað hversu lengi umræddur selur hafi dvalið í ánni en ástandið á neðsta svæði Sogsins gefi til kynna að eitthvað sé að. Þannig hafi verið góð veiði á efri svæðunum en ekki á þeim neðri. Líklegasta skýringin sé sú að selurinn hafi atast í göngum laxa. Dýrt æti hjá selnum „Þetta er ekkert einsdæmi á þessum slóðum en það hefur oft komið fyrir að sel- ur andskotast þarna niðri í Ölfusá. Þá hafa þeir ýtt laxagöngum upp í Sogið – jafnvel fisk sem ekki á þar heima,“ segir Haraldur en á vefsíðu SVFR kemur fram að kall- fyrir innan veiðifélagsins. „Ef þetta er far- ið að verða eitthvert vandamál fara menn eflaust að gera eitthvað í þessu,“ segir Ólafur og bendir á að menn hafi ekki talið veru selsins hafa afgerandi áhrif á veiðina hingað til. Laxinn hræðist lyktina Erlingur Hauksson sjávarlíffræðingur segir að magn landsels hafi aukist á Mýr- unum frá árinu 2003 en hann flaug yfir svæðið í gær. „Selurinn er þarna aðallega til að hvíla sig en þessi árstími er talsverður föstutími hjá honum,“ segir Erlingur og bendir á að selurinn sé þó í fullu æti allan veturinn og allt vorið. Þannig séu líkur til þess að hann éti meira magn af niðurgöngufiski og þeim ungu löxum sem haldi til sjávar. Fullorðinn selur étur að meðaltali um þrjú til fimm kíló af fiskmeti á degi hverj- um en Erling telur að hann éti ekki lax í miklu magni. Laxinn finni þó lyktina af selnum og það skjóti honum skelk í bringu. „Þegar selur er í ósnum getur verið að laxinn sé tregari til þess að ganga í árnar vegna hræðslu. Þá þarf hann ekki að éta svo marga laxa til þess að hafa áhrif á laxagengdina enda er um fáa fiska að ræða.“ Selir eiga það til að synda upp laxveiðiár í óþökk veiðimanna Leiðist að horfa á laxinn enda í maga sels Morgunblaðið/Guðrún Vala Laxveiðimenn eru ekki sáttir við landseli sem gera sig heimakomna í ósum áa. Þessi selur fór þó ekki lengra en að Borgarfjarðarbrúnni. Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is ANNA Richardsdóttir og Svanhvít Magnúsdóttir hafa sett á laggirnar skóla á Akureyri þar sem tekið verður á móti sex og sjö ára börnum að hefðbundinni skólasetu lokinni. Skólinn hefur hlotið nafnið 7stafir og byggist hugmyndafræði skólans á því að vinna með lestur, ritun og listsköpun sem eina heild. Nýstár- legar aðferðir eru notaðar til að miðla kennsluefninu til barnanna og liggur hvatinn til þess að læra í spennandi sögum, ævintýrum, vís- um og listsköpun. Mikil áhersla er lögð á hreyfingu og tjáningu hvers konar og eru börnin hvött til þess að nota líkama, rými og rytma til þess að búa til dansverk, leikrit og hreyfisögur. Einnig verður stuðst við önnur listform í kennslunni, svo sem tónlist, sjónlist og myndlist. Markmiðið að skila sterkum einstaklingum út í samfélagið Að sögn Önnu Richardsdóttur, annars stofnanda skólans, kviknaði hugmyndin að skólanum þegar barn hennar naut kennslu Svanhvítar Magnúsdóttur, sem er hinn stofn- andinn. Anna er íþróttafræðingur að mennt og Svanhvít hefur sinnt kennslustörfum um áratuga skeið og oft á tíðum farið ótroðnar slóðir með nemendur sína. Hugmyndin að hinu óhefðbundna skólastarfi er því í raun ávöxtur samskipta Önnu sem foreldris og íþróttafræðings og Svanhvítar sem kennara. „Þaðan lá leið okkar saman á Brautargeng- isnámskeið, sem er námskeið fyrir konur sem stofna vilja fyrirtæki. Þar gerðum við viðskiptaáætlun og unnum áfram með hugmyndina og fengum viðurkenningu fyrir vel gerða viðskiptaáætlun,“ segir Anna. Hún segir hið eiginlega markmið skólastarfsins skila góðum einstak- lingum út í þjóðfélagið, sterkum krökkum sem þora að tjá sig um það sem þau vilja. 7stafa-skólinn hefur störf 21. ágúst og til að byrja með verður boðið upp á pláss fyrir 24 nemendur í skólann. Skóli sex og sjö ára barna að hefðbundnum skóladegi loknum Unnið með lestur, ritun og listsköpun sem eina heild Svanhvít Magnúsdóttir og Anna Richardsdóttir hafa sett á laggirnar einkaskóla á Akureyri. Mikil áhersla er lögð á hreyfingu og tjáningu. Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is ÍSLENSKIR atvinnurekendur geta farið fram á það þegar auglýst er eftir starfskrafti að viðkomandi reyki ekki tóbak, hvort sem er á vinnutíma eða eigin tíma. Atvinnurekendum er því frjálst að neita reyk- ingamönnum um vinnu þrátt fyrir að uppfylla aðrar hæfniskröfur. Verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð segir það þó ekki stefnu stofnunarinnar að hvetja fyrirtæki til að ráða ekki reykingafólk. Írska fyrirtækið Dotcom Directories auglýsti í maí eftir fólki til starfa, en í auglýsingu fyrirtækisins kom m.a. fram að reykingafólk þyrfti ekki að sækja um. Olli þetta nokkru fjaðrafoki þarlendis og talað var um mismunun og fordóma. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins svaraði því til í samtali við írska út- varpstöð að reykingafólk væri andfélagslegt og tæki of mikið veikindafrí. „Ef fólk reykir í kaffipásum eða á þeirra eigin tíma, kemur það til baka á skrifstofuna angandi. Við erum með mjög litla skrifstofu og það myndi gera hlutina óbærilega fyrir annað starfs- fólk,“ sagði framkvæmdastjórinn en einnig að fólk sem hunsar allar viðvaranir og gögn um skaðsemi reykinga hafi ekki það gáfnafar sem fyrirtækið leit- ar að í starfsfólki. Send var fyrirspurn til Evrópuþingsins, fyrir hönd þrýstihóps sem berst fyrir réttindum reyk- ingamanna, um hvort að ekki væri verið að mismuna reykingafólki. Svörin voru á þá leið að hvergi í reglu- gerðum væri að sjá að með auglýsingunni væri verið að mismuna hópi af fólki. Geta farið fram á reykleysi Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð, tekur undir svör þingsins og segir ekkert mæla gegn því að atvinnurekendur fari fram á reykleysi starfsfólks, og í raun engar reglur til um það. Hann segir samt lítið sem ekkert hafa borið á því að íslensk fyrirtæki auglýsi með sömu aðferðum. „Frekar kemur fram í atvinnuauglýsingum að starfsstöðvar fyrirtækjanna séu reyklausar eða ósk- að sé eftir reglusömum starfskrafti og það þarf þá ekki endilega að beinast gegn reykingafólki, það er frá mínum bæjardyrum séð,“ segir Viðar og bætir við að vinnuveitendur geti auk þess sett mun strang- ari skilyrði en reglugerðir segja til um þar sem þeir hafi vald yfir starfsemi sinni og húsnæði. Viðar efast þó um að íslensk fyrirtæki taki upp svipaða siði, sér- staklega hvað varðar orðalagið í auglýsingunni. „Við alla vega ýtum ekki undir að reykingafólk sé ekki ráðið í vinnu, það er ekki okkar stefna.“ Heimilt að neita reyk- ingamönnum um starf Eftir Andra Karl andri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.