Morgunblaðið - 11.08.2006, Page 8

Morgunblaðið - 11.08.2006, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ekki fer á milli mála aðfarið er að draga úrumsvifum á fast- eignamarkaði. Þetta gefa mælingar skýrt til kynna. Það á jafnt við upplýsingar frá Fasteignamati ríkisins um veltuna og fjölda kaup- samninga á þessum mark- aði, sem birtar hafa verið að undanförnu, og tölur um út- lán lánastofnana, sem greint var frá í fyrradag. Þannig dróst veltan á fasteigna- markaðinum til að mynda saman um 20% á milli júní og júlí. Eðlilega kom það fram í útlánum bankanna, en þau drógust enn meira saman, eða um 29% á sama tíma, en mismunurinn skýrist hugsanlega af samdrætti í endurfjármögnun eldri lána, sem íbúðalán bankanna ná einnig til. Reyndar hefur dregið jafnt og þétt úr útlánum bankanna til íbúðakaupa allt frá því að þau voru með allra mesta móti á haustmánuðum ársins 2004. Þannig voru útlánin í júlímánuði síðastliðnum einungis um 10% af útlánunum í október 2004, eða 3,6 milljarðar í samanburði við 34 milljarða. Næsta víst er að minni umsvif á fasteignamarkaði, þ.e. minni eft- irspurn eftir íbúðahúsnæði, hefur áhrif á þróun fasteignaverðs. Eðli- lega er meiri þrýstingur til hækk- unar þess eftir því sem eftirspurn- in er meiri, eins og svo skýrt hefur komið fram á umliðnum misser- um. Að sama skapi kemst meira jafnvægi á verðið þegar eftir- spurnin minnkar. Hækkun stýrivaxta Þessi þróun á fasteignamarkað- inum er það sem Seðlabankinn hefur með aðgerðum sínum verið að kalla eftir. Bankinn fylgir ákveðinni peningastefnu með það fyrir augum að verðbólgumark- mið hans náist innan viðunandi tímamarka, en verðbólgan hefur hins vegar verið langt yfir verð- bólgumarkmiðinu, sem miðast við 2,5% verðbólgu á ársgrundvelli. Það liggur fyrir að þróunin á fast- eignamarkaðinum og stóriðju- framkvæmdir eru þeir tveir þætt- ir sem stærstan þátt eiga í því hve verðbólgan hefur verið mikil hér á landi að undanförnu. Tækið sem Seðlabankinn hefur til að stuðla að minni þenslu í þjóð- félaginu, og þar með minni um- svifum á fasteignamarkaði, eru stýrivextir bankans. Frá því í maí árið 2004 hefur Seðlabankinn hækkað stýrivexti sína alls fimmtán sinnum. Þá voru vextirnir 5,30% en þeir eru nú 13,0%. Sérfræðingar á fjármála- markaði gera almennt ráð fyrir að vextirnir verði hækkaðir enn frek- ar á næsta vaxtaákvörðunardegi bankans, hinn 16. þessa mánaðar. Lakari lánskjör Eftir að bankarnir hófu að veita íbúðalán í ágúst 2004 fóru vextir af þeim lægst niður í 4,15% í nóv- ember 2004 og voru þeir vextir í boði fram í mars 2006. Þá fóru vextir að hækka aftur og eru vext- ir af íbúðalánum nú á bilinu 4,85% til 4,90%. Þó eru í boði 4,70% vext- ir hjá Íbúðalánasjóði af lánum með uppgreiðsluþóknun. Vextir af lánum sjóðsins sem eru án upp- greiðsluþóknunar eru 4,95%. Auk þess sem vextir af íbúða- lánum hafa verið hækkaðir hefur lánshlutfall verið lækkað og er það nú almennt um 80% af mark- aðsvirði íbúðar. Lánshlutfallið var hins vegar komið í allt að 100% þegar hæst var. Þar fyrir utan hefur greiðslumat verið þrengt. Til viðbótar við lakari lánskjör nú en þegar þau voru hvað hagstæð- ust, þá hefur íbúðaverð hækkað verulega. Þannig hefur það til að mynda að meðaltali nærri tvöfald- ast á undanförnum fjórum árum. Því fer ekki á milli mála að íbúðakaup þeirra sem eru að festa kaup á sinni fyrstu íbúð, eða ætla að stækka við sig, eru almennt erfiðari nú en þau voru þegar best lét, og jafnvel einnig þótt lengra sé farið aftur í tíma. Hætta á eignaupptöku Þessi þróun á íbúðalánamark- aði er að sjálfsögðu slæm fyrir þá sem eru að festa kaup á sinni fyrstu íbúð, eða þurfa að stækka við sig. Þetta gefur augaleið. En á þessu máli eru fleiri hliðar. Gagn- vart þeim sem eiga íbúðarhúsnæði og eru ekki í íbúðarhugleiðingum, þá skiptir mestu máli að það takist að ná tökum á verðbólgunni. Það á ekki hvað síst við um þá sem hafa verið að festa kaup á íbúðahús- næði á allra síðustu misserum, kannski með allt að 100% lánum. Haldist verðbólgan í þeim hæðum sem hún hefur verið í að undan- förnu er hætt við að eignamyndun í íbúðarhúsnæði þessa fólks, og ýmissa fleiri reyndar einnig, verði að engu eða jafnvel neikvæð. Reyndar eru fasteignaviðskipti al- mennt ekki heppileg í þeirri verð- bólgu sem verið hefur. Því hlýtur það að skipta mestu máli fyrir alla að það takist að koma böndum á hana sem allra fyrst. Lakari lánskjör stuðla allajafna að lækkun fasteignaverðs. Og nýj- ustu tölur Fasteignamatsins sýna að dregið hefur úr hækkunum. Þetta eru eðlileg viðbrögð á þess- um markaði þar til jafnvægi hefur náðst. Fréttaskýring | Fasteignamarkaður Breytingar á markaði Kaupsamningum fækkar og útlán bankanna til íbúðakaupa dragast saman Verðbólgan gæti étið upp eignamyndunina. Erfiðara að fjármagna íbúðakaup en áður  Fyrst eftir að bankarnir hófu að veita íbúðalán í samkeppni við Íbúðalánasjóð í ágúst árið 2004 var fjármögnun íbúðakaupa auð- veldari en hún hafði verið áður. Hærri hluti af kaupverðinu fékkst að láni á hagstæðari kjör- um en áður hafði tíðkast. Í kjöl- farið hækkaði íbúðaverð mikið og verðbólga einnig. Á þessu ári hefur aftur verið dregið úr lána- möguleikum kaupenda. Nú er svo komið að íbúðakaup eru með erfiðasta móti. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is OPNUNARHÁTÍÐ Hinsegin daga fer fram í Loftkastalanum í kvöld og mun borgarstjórinn í Reykjavík ávarpa hátíðina. Dagskrá í tengslum við hátíðina hófst þó í fyrradag með dragkeppni í Þjóð- leikhúskjallaranum og í gær var m.a. haldinn Evróvisjón-dansleikur á Nasa. Dagskráin nær svo hámarki á laugardaginn þegar Guðrún Ög- mundsdóttir þingkona mun flytja ræðu í Lækjargötunni að lokinni gleðigöngunni sem leggur af stað frá Hlemmi kl. 14. „Við byrjuðum með 1.500 manns en nú eru þetta orðin 50.000 sem taka þátt í hátíðinni,“ segir Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Hinsegin daga, og bætir við að sam- starf við yfirvöld sé afar gott. „Svona stórri hátíð fylgir mikil ábyrgð en þetta hefur alltaf gengið mjög vel því að hátíðin fer fram án áfengis og vímuefna og því er aldr- ei neitt vandamál með fyllirí eða slíkt,“ segir hann. Þegar Heimir Már er spurður um sögu Hinsegin daga víkur hann tali sínu að atburði sem átti sér stað í Greenwich Village-hverfinu í New York 27. júní árið 1969. „Þetta var útfarardagur Judy Garland og hommar og lesbíur höfðu komið saman á Stonewall-barnum til að syrgja hana. Þá gerðist það einu sinni sem oftar að lögreglan kom á staðinn til að handtaka einhvern. Fimm eða sex voru handteknir og þegar þeir voru leiddir út í bíl stökk einhver fram og spurði hvort fólkið ætlaði að láta fara svona með sig,“ segir Heimir Már og útskýrir að eftir þessa ögrun hafi lesbía spark- að í punginn á einum lögregluþjón- inum og eftir það upphófust óeirðir sem stóðu í tvo til þrjá daga. Mótmæli breyttist í fögnuð „Það er að sjálfsögðu ekki merki- legt að kona hafi sparkað í lög- regluþjón en það sem er merkilegt við þennan atburð er að þetta var í fyrsta skipti sem hommar og lesbíur stóðu upp og sögðu að þau hefðu fengið nóg. Ári síðar kom svo fólk saman í New York og San Francisco og hélt upp á þennan at- burð og það var í raun fyrsta Pride- hátíðin,“ segir Heimir. „Síðan þá hefur þessum hátíðum fjölgað og þær eru nú um 400 um allan heim. Gay Pride er hátíð þar sem fólk minnist sigranna. Þátttak- endum fjölgar stöðugt og hér á Ís- landi er þátttakan mjög almenn. Þetta er orðin nokkurs konar þjóðhátíð, segir Heimir og bætir við að hann gæti vel hugsað sér að þessi hátíð yrði haldin víðar um landið. En þó að Hinsegin dagar séu ekki eiginleg mótmæli segir Heimir Már að besta pólitíkin í réttindabaráttu samkynhneigðra sé sýnileikinn. „Fólk nýtir oft þetta tækifæri til að segja sínum nánustu frá því að þeir séu lesbíur eða hommar. Það er gleðilegt því um það snýst hátíðin: að þora að vera til.“ Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju Að lokum minnir Heimir Már á guðsþjónustu sem haldin verður í Hallgrímskirkju á sunnudag en þar mun presturinn Pat Bum- gardner frá Bandaríkjunum messa en auk þess munu sex íslenskir prestar þjóna fyrir altari. „Þetta er í fyrsta skipti sem guðsþjónusta er hluti af hátíðinni. Þótt lagaleg rétt- indi samkynhneigðra séu orðin mikil, eigum við enn í samræðum við kirkjuna. Þess vegna er það mikilvægt að fólk komi saman í Hallgrímskirkju á sunnudaginn til að sýna að samkynhneigðir vilja iðka sína trú eins og aðrir. Það er enginn munur á samkynhneigðum kristnum manni og öðrum kristnum manni. Það er ekki í samræmi við kristna trú að dæma. Við verðum öll dæmd þegar þar að kemur.“ Hinsegin dagar haldnir í Reykjavík í áttunda sinn Morgunblaðið/Eyþór Sjálfboðaliðar unnu hörðum höndum við að gera klárt fyrir hátíðina er ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um verkstæði Gay Pride-samtakanna í gamla 66° norður-húsinu við Skúlagötu. Sýnileikinn er besta pólitíkin Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is „ÞAÐ er rétt að ég var þarna á veið- um án þess að hafa veiðikort og það gerði ég því ég vissi ekki betur en svo að þessar lundaveiðar krefðust þess ekki að vera með veiðikort,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra. Samkvæmt upplýsingum Sigurðar Arnar Guðleifssonar lögfræðings hjá Umhverfisstofnun hefur ráðherran- um verið sent bréf þar sem hann er krafinn útskýringa á lundaveiðum sínum í Grímsey í Steingrímsfirði í júlí sl. „Ég stóð að þessum veiðum í góðri trú vegna fávísi minnar um þessi mál. Ég hef aldrei stundað þessar veiðar öðruvísi en svo að mönnum hafi verið ljóst að ég gerði það. Ég greindi meðal annars frá þessu í blaðaviðtali því ég vissi ekki annað en ég hefði stundað löglegt at- hæfi,“ segir Einar. Þriðjudaginn síðasta birti Frétta- blaðið umfjöllun um lundaveiðar Einars og fleiri aðila og lýsir hann þar árlegum lundaveiðiferðum sín- um sem staðið hafa í 15 ár. Í kjölfarið bárust svo veiðistjórnunarsviði Um- hverfisstofnunar kvartanir þar sem stofnunin var beðin að kanna hvort Einar hefði leyfi til veiðanna. Í 11. gr. laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum er gerð krafa um að þeir sem veiði villt dýr afli sér veiðikorts sem Umhverfisstofnun gefur út á nafn viðkomandi gegn gjaldi, sem samkvæmt lögunum er ákvarðað 2.200 krónur á ári. Sama regla er svo áréttuð í 2. gr. reglugerðar um veiði- kort og hæfnispróf veiðimanna. Í lögunum og reglugerðinni er að finna refsiheimildir og gæti brot Einars varðað sektum og upptöku veiðifangs og veiðitækja. Spurður að því hvort hann hyggist í kjölfar þessa máls fá útgefið veiði- kort segir Einar að hann voni að hann geti það, enda hafi hann áhuga á þessari iðju í þau fáu skipti sem hann stundi hana. Í góðri trú við lundaveiðar í Grímsey á Ströndum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.