Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 12
Fréttaskýring | Stjórn bandaríska
seðlabankans ákvað á fundi sínum
síðastliðinn þriðjudag að halda stýri-
vöxtum óbreyttum í 5,25%. Þar með
lauk vaxtahækkunarferli bankans
sem hófst í júní 2004 en vaxtahækk-
anirnar hafa verið 17 frá þeim tíma.
Ákvörðun stjórnarinnar er í takt
við væntingar markaðsaðila sem
flestir, þó ekki allir, höfðu gert ráð
fyrir óbreyttum stýrivöxtum eftir að
tölur um hækkandi atvinnuleysi í
Bandaríkjunum voru birtar á föstu-
dag fyrir viku en atvinnuleysi mæld-
ist 4,8% í júlí, samanborið við 4,6% í
júní. Þá hægði á hagvexti á öðrum
ársfjórðungi er hann mældist 2,5%
en á fyrsta ársfjórðungi mældist
hagvöxtur 5,6%. Þrátt fyrir það
jókst tólf mánaða verðbólga úr 2,1%
í 2,9% á milli fjórðunganna. Það eru
hæstu verðbólgutölur frá því á
þriðja ársfjórðungi 1994, en þá
mældist verðbólgan 3,2%. Sam-
kvæmt lögum um bandaríska seðla-
bankann þarf hann ekki einungis að
taka tillit til verðbólgu heldur einnig
atvinnuleysis.
Skiptar skoðanir eru um hvort
ákvörðun Bens Bernankes seðla-
bankastjóra hafi verið rétt þar sem
hann hefur fyrst og fremst lagt
áherslu á að halda verðbólgu í skefj-
um og hafa fréttaskýrendur sagt að
Bernanke hafi lagt trúverðugleika
sinn að veði með þessari ákvörðun.
Tillagan um að halda stýrivöxtunum
óbreyttum var ekki samþykkt ein-
róma því einn stjórnarmeðlimur
vildi heldur hækka stýrivexti um
0,25 prósentustig.
Hækkunum ekki lokið?
Í tilkynningu frá seðlabanka
Bandaríkjanna segir að búist sé við
því að verðbólga muni hjaðna til
lengri tíma litið, að hluta til vegna
samdráttar á fasteignamarkaði og
svo vegna áhrifa fyrri stýrivaxta-
hækkana og hækkandi olíuverðs. Þó
kemur fram að mikil orkuþörf muni
ýta undir verðbólguþrýsting haldi
verð á orkugjöfum áfram að hækka
á heimsmarkaði. Því sé ákveðin
verðbólguhætta enn til staðar og
leggur stjórnin áherslu á að ákvörð-
unin nú sé frekar hlé á stýrivaxta-
hækkunarferlinu en tákn um að því
sé lokið, seðlabankinn sé tilbúinn til
að hækka stýrivexti sjáist ekki
merki þess að verðbólga sé á und-
anhaldi. Það er almennt álit aðila á
markaði að um hlé sé að ræða.
Vandasamt verk fyrir höndum
Fréttaskýrandi Wall Street Jor-
nal skrifar að margir hagfræðingar
telji að þessi ákvörðun stjórnarinnar
muni auka hættu á samdrætti í
bandaríska hagkerfinu.
„Vandi stjórnarinnar endurspegl-
ast í því að hagfræðingar, líkt og
meðlimir stjórnarinnar, eru ekki
sammála um hvað skuli gera þegar
hagkerfið sendir mismunandi skila-
boð. Sumir hagfræðingar vilja
meina að Seðlabankinn hafi hækkað
vexti of mikið nú þegar, meðan aðrir
segja að bankinn hafi ekki hækkað
þá nógu mikið,“ segir í Wall Street
Journal.
Að sögn blaðsins er hagkerfið nú
að ganga inn í tímabil sem yfirleitt
er álitið eitt það viðkvæmasta í hag-
sveiflu, þegar það hefur náð fullri af-
kastagetu og verðbólguþrýstingur
hefur myndast.
„Vísbendingar benda til þess að
stýrivextir hægi nú á hagkerfinu, en
það er ekki ljóst hvort þeir hafi
hægt nægjanlega á því, eða of mik-
ið.“
Seðlabankinn gerði hlé á stýri-
vaxtahækkunarferli sínum á svipuð-
um tímapunkti í febrúar árið 1995
og í maí 2005. Í fyrra skiptið var
lending hagkerfisins mjúk en í það
seinna varð samdráttur í hagkerf-
inu.
Þá hefur International Herald
Tribune það eftir John Lonski, yf-
irhagfræðingi hjá fjármálaþjónustu
Moody’s, að margir þættir bendi til
þess að hætta á samdrætti hafi auk-
ist.
„Óvissa á fasteignamarkaði,
óframkomin áhrif fyrri stýrivaxta-
hækkana og möguleikinn á enn
hærra orkuverði, allt þetta gæti leitt
til þess að hægði á bandaríska hag-
kerfinu, mun meira en nú er búist
við,“ segir Lonski.
Næsta stýrivaxtaákvörðun banda-
ríska seðlabankans verður tekin 20.
september nk.
Seðlabanki Bandaríkjanna
heldur stýrivöxtum óbreyttum
Reuters
Erfitt verk Ben Bernanke seðlabankastjóri mun eiga erfitt verk fyrir
höndum að mati hagfræðinga, en ástand efnahagsins er sagt viðkvæmt.
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
12 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
(
)*+
)&*.)
$&).)
2*+
2*%
&
&
,-).
/01
%&/)3
%&+3$
4*+
4$3
&
&
202
341
5&6..
633
4$*
4*6
&
&
341
567
3%%
$%&+3$
4*3
4*)
&
&
82.1
/#
9
%&3%*
$$&$)5
2*%
2*5
&
&
"$% &
#%'
' 0: ;
<!=
6
0 :
6
0
<!=
6
0;
<!=
6
>;7
<!=
6
/?@
6
,A
<!=
6
<
?
6
5!=B
?
6
A?
'
6
4
6
4 :
,6
6
+C,
0 :
+ !
) ! !D>!EF
,GF?
6
H!
6
( )#$*+
,
<!=
6
>
<
6
8: :
<!=
6
I6 G
6
-J E 7E
6
K ! 7E
6
,) +
+ -"."
)F !L
)!E!
;
-
/
+ 82.M
)NE
; E; E
+53*
5)$
%/*
3)3*
56**
%55
$%%*
$.5*
.*+**
)*/*
$.**
%%%**
$%6*
$$***
3..
> J
F
J
; E; E
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
"
&$
"
&$
"
D &$
"
&$
"
&$
"
&$
D
D
"
&$
D
D
D
"
&$
"
&$
D
D
D
D
D
D
D
D
D
; E =
- ?E
N
5!=
)
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
K E =
N
B@
0-
O
0 6!! ,G7
; E =
D
D
D
D
D
D
D
D
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í gær. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 0,48% og var
5349 stig við lok markaða. Bréf Ac-
tavis hækkuðu um 3,21%, bréf Al-
fesca hækkuðu um 0,96% og Dags-
brúnar um 0,74%. Bréf Flögu
lækkuðu um 2,33% og bréf Lands-
bankans um 0,48%. Viðskipti með
hlutabréf námu 1,1 milljarði króna,
þar af 276 milljónum með bréf
Landsbankans.
Úrvalsvísitala
hækkaði um 0,48%
● XAVIER Govare hefur verið ráðinn
forstjóri Alfesca, en hann hefur verið
forstjóri Labeyrie, dótturfélags Al-
fesca, frá árinu 2002. Segir í frétta-
tilkynningu að það hafi verið sameig-
inleg ákvörðun stjórnar og
framkvæmdastjórnar Alfesca að
færa stjórn félagsins nær mörkuðum
þess.
Jakob Óskar Sigurðsson hefur lát-
ið af störfum eftir tveggja ára starf
hjá félaginu.
„Stefna Labeyrie group hefur í
mörg ár verið að auka virði félagsins
með því að leggja áherslu á fram-
leiðslu eigin vörumerkja,“ segir Xav-
ier Govare. „Þannig hefur okkur tek-
ist að ná forystu á mörkuðum okkar
og arðsemi aukist samkvæmt því.
Eftir þessari stefnu hefur verið unnið
hjá Alfesca.“
Alfesca skiptir
um forstjóra
● HAGNAÐUR Sparisjóðs vélstjóra
fyrstu sex mánuði ársins nam rétt
rúmum 570 milljónum króna, sam-
anborið við tæplega 435 milljóna
króna hagnað á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður fyrir skatta nam um 630
milljónum samanborið við um 540
milljóna króna hagnað árið áður. Arð-
semi eigin fjár er 18,0% á árs-
grundvelli, en var 16,7% á sama
tímabili í fyrra.
Vaxtatekjur sparisjóðsins námu
2,2 milljörðum. og jukust um 75,2%
frá sama tímabili árið 2005, en
vaxtagjöld jukust um 131% á sama
tíma og voru nú tæpir 1,8 milljarðar.
Hreinar vaxtatekjur námu 455 millj-
ónum króna samanborið við 505 millj-
ónir fyrri hluta árs 2005 og hafa því
dregist saman um 9,9%.
Virðisrýrnun útlána nam 165 millj-
ónum króna samanborið við 124 millj-
ónir fyrstu 6 mánuði ársins 2005.
Eigið fé í lok júní 2006 nam 6,6
milljörðum króna og hefur vaxið um
tæpar 500 milljónir frá áramótum.
Hagnaður SPV
eykst um 31%
HAGNAÐUR af rekstri Íbúðalánasjóðs nam
2,5 milljörðum króna á fyrri hluta ársins
samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við
576 milljóna hagnað á sama tímabili í fyrra.
Í tilkynningu segir, að stærstur hluti auk-
ins hagnaðar helgist af verðbólguþróun að
undanförnu og jákvæðum mun verðtryggðra
eigna umfram skuldir, líkt og hjá öðrum inn-
lendum fjármálafyrirtækjum á sama tíma-
bili. Uppgreiðslur lána sjóðsins hafi lækkað
umtalsvert á tímabilinu og námu 25 millj-
örðum en þær námu 128 milljörðum allt árið
2005. Segir í tilkynningu að sjóðurinn hafi
nýtt hluta af þessum uppgreiðslum til nýrra
lánveitinga auk þess sem hann nýtti sér
heimildir til aukaútdráttar húsbréfa og upp-
greiðslu óhagstæðra lána.
Eigið fé sjóðsins í júnílok nam 16,4 millj-
örðum eða 3,17% af heildareignum sjóðsins.
Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 6,5% en lang-
tímamarkmið er að hlutfallið sé yfir 5%.
Fimmföldun
hagnaðar
Íbúðalánasjóðs
HAGNAÐUR Actavis eftir skatta
nam 61,9 milljónum evra, jafnvirði
rúmlega 5,6 milljarða króna, á
fyrri helmingi þessa árs, saman-
borið við 22,4 milljónir evra á
sama tímabili í fyrra, en um er að
ræða aukningu upp á 191,4%.
Heildartekjur samstæðunnar
voru 705,9 milljónir evra fyrstu
sex mánuði ársins og jukust um
215% frá sama tíma árið áður,
þegar þær námu 223,8 milljónum
evra. Hagnaður fyrir skatta og
fjármagnsliði (EBITDA)
nam151,9 milljónum evra, en var í
fyrra 48 milljónir.
Yfir hundrað ný lyf á markað
EBITDA framlegð fyrirtækis-
ins á tímabilinu nam 21,5%, sem
er sami árangur og á sama tíma-
bili í fyrra. Róbert Wessman, for-
stjóri Actavis, segir í tilkynningu
að stjórnendur félagsins séu
ánægðir með rekstur félagsins á
fyrri hluta ársins og séu við það að
ná góðum árangri á flestum lyk-
ilmörkuðum. Öflugur innri vöxtur
og góð framlegð styðji við þá
stefnu fyrirtækisins, að byggja
upp alþjóðlegt fyrirtæki með góða
tekjudreifingu á stærstu lyfja-
mörkuðum heims.
Heildartekjur á öðrum árs-
fjórðungi þrefölduðust og voru
364,1 milljón evra samanborið við
122 milljónir evra á sama tímabili
í fyrra. Innri vöxtur samstæðunn-
ar, á föstu gengi, var 8% fyrir
annan ársfjórðung og 12% á
fyrstu mánuðum ársins.
Félagið markaðssetti 107 ný
samheitalyf á helstu markaði fé-
lagsins á ársfjórðungnum, eða alls
197 á fyrri hluta ársins.
Actavis með 5,6 millj-
arða króna hagnað
Róbert Wessman
HAGSTOFA Íslands birtir í dag
vísitölu neysluverðs fyrir ágústmán-
uð og búast greiningardeildir bank-
anna við lítilli hækkun á milli mán-
aða, 0,3–0,5%. Vísitala neysluverðs í
júlímánuði var 263,1 stig og gangi
spár greiningardeildanna eftir verð-
ur vísitalan á bilinu 263,9–264,4 stig í
ágúst. Þegar almennt er talað um
verðbólgu er átt við breytingu til 12
mánaða og verði spárnar að veru-
leika er verðbólga í ágúst á bilinu
8,5–8,7%. Þetta er vel yfir efri þol-
mörkum verðbólgumarkmiðs Seðla-
banka Íslands sem eru 4% en fátt er
svo með öllu illt að ei boði gott og
góðu tíðindin eru þau að verðból-
guaukningarferlið virðist vera í rén-
un en frá því um áramót hefur verð-
bólga hækkað um 4 prósentustig. Í
júlí var verðbólga á ársgrundvelli
8,4% og er því um smávægilega
hækkun að ræða á milli mánaða.
Ef litið er til septembermánaðar
kemur í ljós að í september í fyrra
jókst verðbólga verulega á mánaðar-
grundvelli, 1,5%, og á ársgrundvelli
hækkaði verðbólga um 1,1 prósentu-
stig á milli mánaða. Þetta stóra
stökk skýrist fyrst og fremst af lok-
um sumarútsala annars vegar og
hækkun húsnæðisverðs hins vegar,
undirvísitala húsnæðis hækkaði um
1,3% á sama tíma. Erfitt er að segja
til um hver útsöluáhrif eru nú en hús-
næðisverð er jafnvel tekið að hjaðna
og má því gera ráð fyrir að verðbólga
geti eitthvað lækkað í september.
Þetta þýðir að eigi verðbólga í sept-
ember að vera 8,7% þarf vísitala
neysluverðs að vera 268,4 stig sem er
4 stiga hækkun á milli mánaða.
5>
?
A?
<
?
0/$!
!
' !1 '!+$% KN
N
F@
PD
; E?
; E
23&
234&
23&
> J
F
J
F!E
3&&
3&
35&
Spá 8,5–8,7%
verðbólgu í ágúst
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is