Morgunblaðið - 11.08.2006, Page 14
BRESKA lögreglan kvaðst í gær
hafa komið í veg fyrir áform
hryðjuverkamanna um að sprengja
farþegaþotur í loft upp yfir Atl-
antshafi á leiðinni frá Bretlandi til
Bandaríkjanna. Að sögn breskra
fjölmiðla er talið að hryðjuverka-
mennirnir hafi ætlað að lauma
sprengjum í handfarangri inn í allt
að tíu farþegaþotur.
Aðstoðarlögreglustjóri í London
lýsti ráðabrugginu sem „tilraun til
að fremja fjöldamorð af ótrúlegri
stærðargráðu“. Hann sagði lög-
regluna vongóða um að tekist hefði
að afstýra hryðjuverkunum.
Breska lögreglan hafði í gær
handtekið 24 menn í London, High
Wycombe og Birmingham vegna
rannsóknar málsins. Að sögn
breskra fjölmiðla hefur rannsóknin
staðið í nokkra mánuði.
Að minnsta kosti tveir breskir
fjölmiðlar sögðu í gærkvöldi að
fimm menn, sem grunaðir væru
um aðild að ráðabrugginu, gengju
enn lausir. Lögreglan í London
vildi ekki staðfesta þetta en sagði
að hugsanlega yrðu fleiri hand-
teknir vegna málsins.
Öryggisráðstafanir voru hertar
á öllum flugvöllum Bretlands. Við-
búnaðurinn var færður í hæsta
stig, sem þýðir að „búist er við að
árás standi fyrir dyrum“ og að
Bretlandi stafi „mjög mikil hætta“
af hryðjuverkamönnum, sam-
kvæmt skilgreiningu bresku leyni-
þjónustunnar.
„Við erum vongóð um að okkur
hafi tekist að hindra áform hryðju-
verkamanna um að valda ólýsan-
legri tortímingu og fremja fjölda-
morð,“ sagði Paul Stephenson,
aðstoðarlögreglustjóri í London.
„Við teljum að markmið hryðju-
verkamannanna hafi verið að
lauma sprengiefnum inn í flugvél-
ar í handfarangri og sprengja þær
á flugi.“
John Reid, innanríkisráðherra
Bretlands, sagði að lögreglan teldi
að vitað væri um alla helstu þátt-
takendur í hryðjuverkasamsærinu.
Lögreglan vildi ekki veita upp-
lýsingar um þá sem handteknir
hafa verið vegna málsins. Steph-
enson gaf þó til kynna að íslamist-
ar stæðu á bak við ráðabruggið og
breska fréttastofan Press Associa-
tion sagði að fangarnir væru flest-
ir af pakistönskum ættum en
fæddir í Bretlandi.
Fréttavefur breska ríkisútvarps-
ins, BBC, sagði að talið væri að
hryðjuverkamennirnir hefðu
skipulagt nokkrar „bylgjur“ árása
og ætlað að sprengja þrjár flug-
vélar í hverri þeirra. Öryggisvið-
búnaðurinn hefði verið aukinn
þrátt fyrir handtökurnar vegna
þess að hryðjuverkamennirnir
kynnu að hafa haft einhvers konar
„varaáætlun“ um árásir sem lög-
reglan vissi ekki um.
Hugðust sprengja vélar
bandarískra flugfélaga
Hryðjuverkamennirnir hugðust
koma sprengjunum fyrir í flug-
vélum að minnsta kosti þriggja
bandarískra flugfélaga – United,
American Airlines og Continental
Airlines – að sögn heimildarmanns
fréttastofunnar AFP í bandarísku
leyniþjónustunni. Hann sagði að
minnst fimm bandarískar stór-
borgir – New York, Washington,
Los Angeles, Boston og Chicago –
væru á meðal ákvörðunarstaða
vélanna.
Peter Clarke, yfirmaður þeirrar
deildar Lundúnalögreglunnar sem
berst gegn hryðjuverkastarfsemi,
sagði að mennirnir hefðu verið
handteknir eftir viðamikið eftirlit
og náið samstarf við yfirvöld í
nokkrum löndum.
Hann sagði þetta umfangsmesta
eftirlit sem breska lögreglan hefði
ráðist í vegna hryðjuverkahættu.
Fylgst hefði verið með fundum,
ferðum og fjárútlátum fjölmenns
hóps.
Undirbúningurinn á lokastigi
Heimavarnaráðuneyti Banda-
ríkjanna gaf í gær út fyrirmæli um
hámarksöryggisgæslu í tengslum
við flug allra farþegavéla frá Bret-
landi til Bandaríkjanna.
Michael Chertoff, heimavarna-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði að
undirbúningur hryðjuverkanna
hefði verið á lokastigi þegar
breska lögreglan hóf aðgerðir sín-
ar í fyrrinótt til að hindra þau.
„Þeir ráðgerðu augljóslega margar
sprengingar í mörgum flugvélum,
en ég tel að það væru aðeins get-
gátur að nefna fjölda þeirra.“
„Þessi áform virðast hafa verið
þaulskipulögð með löngum fyrir-
vara,“ sagði Chertoff. Hann bætti
við að hryðjuverkamennirnir hefðu
meðal annars ætlað að nota
sprengiefni í vökvaformi, geyma
það í drykkjarílátum, og fela
sprengjur í rafeindatækjum og
öðrum algengum varningi.
„Áformin minna að nokkru leyti á
aðferðir hryðjuverkasamtakanna
al-Qaeda en þar sem rannsókninni
er ekki lokið liggur ekki nein end-
anleg niðurstaða fyrir.“
Strangar reglur um
handfarangur
Öryggisráðstafanirnar urðu til
þess að mörg flugfélög þurftu að
aflýsa eða fresta flugi til Bretlands
og tugir þúsunda farþega komust
því ekki leiðar sinnar. Miklar tafir
urðu á breskum flugvöllum og
flugfélögin vöruðu við því að rösk-
unin á flugi þeirra gæti staðið í
nokkra daga.
Farþegum var ekki leyft að fara
með handfarangur inn í flugvélar
nema nokkra nauðsynlega hluti
sem þeir urðu að geyma í gagn-
sæjum pokum. Rafeindatæki á
borð við fartölvur og síma voru
bönnuð.
Enn fremur var bannað að fara
með vökva, svo sem drykki eða
ilmvötn, og hvers konar krem inn í
flugvélarnar. Foreldrar ungbarna
fengu ekki að hafa með sér pela
nema smakka fyrst á mjólkinni
fyrir framan öryggisverði.
Á meðal þess sem farþegarnir
fengu að hafa með sér voru vega-
bréf, farmiðar, peningaveski, lyf
sem nauðsynleg eru fyrir ferðina
(þó ekki í vökvaformi nema í und-
antekningartilfellum) og gleraugu
án hulsturs.
Bandarísk flugfélög settu svip-
aðar reglur um handfarangur í
flugvélum sínum og mörg lönd
tóku einnig þessar reglur upp,
þeirra á meðal Ástralía, Kanada,
Ítalía og Sviss.
Þá var öryggisgæsla hert á flug-
völlum víða í Evrópu og Asíu.
Hugðust sprengja allt
að tíu farþegaþotur
AP
Vopnaður lögreglumaður á varð-
bergi við Flugstöð 4 á Heathrow-
flugvelli í gær.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
HJ ; E
B!
E
F
7!
B !
E
67!!
)
!
6!
E
E
7 QG!
> !
6QG!
E
E
7 QG!!
, E
B
E
6G
N
!
!;
6!
!
'
+ 7
+$ 1+ '!
+/!
8!
8 //1*
!+ $6!
6
"
,!L7
I !
6!!E!
! E
;
6
7J FE
!E
=E
F
? !
!;7!
!"#$"%&'()*)
K C
?!!
,B
F !
6
E
L
6!
N
QG!
= =!
!
L7
I !
!
K ?LC
E
AJ
;7!
!EJ
!
6 ? E F QE!
< !!
C
!!
0!D
!6J
> !
C
GC
6 Q ;7!
J
?7
-NE ==
6 Q D
;7!
J
!
R!! AJ
9:;<=>?*>@A@=>
'+",-&'+*()
$ &'$()&
7!
, 7;!
,N
K7;
"
./&00+-()&
*
B!-9C
9
A)!
D1/ *
6 *E
1
!
1F!
>1
G
7
'!
0 7
1
81 !
))&***!
9
!
!
:1
1
7 7
' !
A
B
!
F
7!
B !
F
E
>NG
; E
? 6 E
Yfir 20 meintir hryðjuverkamenn handteknir eftir mjög umfangsmikla rannsókn í Bretlandi
’Við erum vongóð umað okkur hafi tekist að
hindra áform hryðju-
verkamanna um að
valda ólýsanlegri tor-
tímingu og fremja
fjöldamorð.‘
14 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ísraelar og Hizbollah
hindra hjálparstarf
JAN Egeland, sem samhæfir hjálparstarf
Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi í gær Ísraela
og Hizbollah-hreyfinguna fyrir að hafa hindrað
flutning hjálpargagna til suðurhluta Líbanons.
Egeland sagði að Ísraelar og Hizbollah
gætu séð til þess á „augabragði“ að nauð-
staddir íbúar Suður-Líbanons fengju þá aðstoð
sem þeir þyrftu.
„Þetta er smánarlegt í rauninni,“ sagði
Egeland. „Við höfum ekki haft neinn aðgang
að fólki á átakasvæðinu í marga daga.“
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna
(WFP) skoraði einnig á Ísraela og Hizbollah að
gera hjálparstofnunum kleift að flytja hjálp-
argögnin til Suður-Líbanons. „Hjálparstarf
okkar er eins og súrefnislaus sjúklingur, sem
stendur frammi fyrir lömun og liggur fyrir
dauðanum,“ sagði Zlatan Milisic, yfirmaður
WFP í Líbanon.
Milisic bætti við að um 100.000 manns kæm-
ust ekki af átakasvæðinu sunnan við Litani-
ána.
Talsmaður WFP sagði að hjálpargögn hefðu
verið flutt til Sídonborgar í fyrradag en Ísr-
aelsher hefði ekki leyft bílalest að flytja þau
þaðan til Nabatiyeh, norðan við ána.
Læknar án landamæra (MSF) hafa einnig
varað við því að sjúkrahús í sunnanverðu Líb-
anon séu að verða uppiskroppa með matvæli,
eldsneyti og lyf.
Reuters
Starfsmenn líbanska Rauða krossins bera lyfjakassa yfir á í Suður-Líbanon.