Morgunblaðið - 11.08.2006, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 19
MENNING
Hið sögufræga leikhúsAdmiralspalast stendurí hjarta Berlínarborgar,nánar tiltekið við Fried-
richstrasse, aðeins steinsnar frá
samnefndri brautarstöð sem þús-
undir Berlínarbúa fara um á degi
hverjum. Í raun væri nær að tala
um menningarmiðstöð en leikhús
því húsnæðið er gríðarstórt, einir
23.000 fermetrar og samanstendur
af skemmtistað, kaffihúsi, veit-
ingastað, heilsulind auk þriggja
misstórra sýningarrýma sem henta
bæði leik- og tónlistarskemmt-
unum. Þetta væri svo sem ekki í
frásögur færandi ef tveir Íslend-
ingar – þeir Helgi Björnsson leik-
ari og tónlistarmaður og Jón
Tryggvason kvikmyndaleikstjóri –
væru ekki hlutaðeigendur í end-
urreisn Admiralspalast og þeirrar
menningarstarfsemi sem leikhúsið
var þekkt fyrir, allt til falls Berl-
ínarmúrsins þegar halla fór undan
fæti.
Kostnaður upp
á 1,5 milljarð
„Við Jón höfðum staðið fyrir
leiksýningum bæði hér í Þýska-
landi og annars staðar í Evrópu í
nokkurn tíma þegar okkur bauðst
árið 2003 að leggja til fjórðungshlut
í kauptilboð sem þrír Þjóðverjar
hugðust gera í Admiralspalast,“
segir Helgi Björnsson sem var í
óðaönn, þegar Morgunblaðið náði í
hann, við að undirbúa frumsýningu
á Túskildingsóperunni eftir Bertolt
Brecht, sem fram fer á aðalsviði
leikhússins í kvöld. Kaupverð húss-
ins var um 1,5 milljónir evra, tæpar
140 milljónir íslenskra króna en
auk þess var skilyrði í kaupsamn-
ingi um að húsið yrði endurgert af
kaupendum. Sú endurreisn hófst
þó ekki fyrr en á síðasta ári en
töluverður tími fór í að fjármagna
endurbygginguna, að sögn Helga.
„Endurbyggingin mun þegar yfir
lýkur kosta um 15 milljónir evra og
er fjármögnuð með hjálp banka og
tryggingarfélaga hér í Þýskalandi.
Skrautleg saga
Eins og sést á myndunum sem
fylgja er Admiralspalast ekki bara
tíguleg bygging heldur einnig sögu-
fræg. Byggingin var reist árið 1911
og þá leysti hún Admiralsgaten-
bad-heilsulindina af hólmi, en hún
stóð á ölkeldu sem þar er að finna.
Í upphafi státaði miðstöðin af kaffi-
húsum, kvikmyndahúsum, keilusal,
lúxus-heilsulind og skautasvelli
sem einnig mátti hylja með við-
arplötum þegar dansleikjum var
slegið upp. Árið 1923 var skauta-
svellinu svo breytt í leikhús, Weltv-
arieté, sem tók um 1.065 áhorf-
endur í sæti og átta árum síðar var
það stækkað enn frekar og rúmaði
þá yfir 2.000 manns. Leikhúsið var
mikilvægur stólpi í revíu-leiklist-
arlífi Berlínar á þriðja og fjórða
áratugnum en árið 1939 fékk húsið
klassískara og íhaldssamara yf-
irbragð þegar áróðurmeistari nas-
ista, Jósef Göbbels fékk húsið und-
ir sitt forræði. Þá var til að mynda
sérstök stúka með baðherbergi,
eldhúsi og öðrum nauðsynjum,
reist á fyrstu svölunum svo að
Adolf Hitler hefði allt til alls þegar
hann kaus að sækja leiksýningar.
Þegar Rússar tóku við austurhluta
Berlínar var húsið – með fram
óperettuleikhúsi – notað undir sam-
komur háttsettra meðlima austur-
þýska kommúnistaflokksins en við
fall Berlínarmúrsins, minnkaði op-
inber stuðningur við starfsemi þess
og svo fór að rekstur lagðist niður
árið 1997.
Gamli og nýi tíminn
„Þegar við tökum við húsinu er
ekki mikið eftir af upprunalegu út-
liti þess að innan, fyrir utan stóra
sviðið. Við tókum því þá ákvörðun
nauðugir, viljugir að blanda saman
þessum gamla stíl – þar sem hann
var að finna – við nútímalegri arki-
tektúr og reyndum ekki að fela þá
árekstra sem þar urðu. Við byggð-
um til dæmis frá grunni nýjan stór-
an stiga og ýmislegt annað í fordyri
aðalsviðsins en þegar gengið er inn
í salinn sjálfan verður ljóst hvar
gamli tíminn tekur við af þeim
nýja. Veitingastaðurinn sem verður
opnar í byrjun október verður að
sama skapi í nútímalegri stíl en áð-
ur var, þó þar megi einnig greina
ákveðinn samruna og önnur starf-
semi hússins, sem enn hefur ekki
verið fullbyggð, verður á svipuðum
arkitektanótum. Við neyddumst í
raun til að taka allt í gegn, allt raf-
magn, allar pípulagnir – allt innra
byrði hússins og þá þurfti að
styrkja húsið sjálft auk þess sem
nýr grunnur var steyptur fyrir svo-
kallaðan hallargarð sem hér er að
finna.“ Utan stóra sviðsins, sem
opnað verður í dag, verður annar
200 sæta salur opnaður í sept-
ember. Fimm hundruð manna sal-
ur, sem er fyrir ofan stóra salinn,
verður svo opnaður í október en
baðið og klúbburinn opna aðeins
seinna. „Við stefnum að því að um
áramót verði allt í húsinu farið að
funkera.“
Gleðihús
Helgi segir að framtíðarhlutverk
Admiralspalast eigi að vera svipað
því og það var þegar starfsemin
var hvað glæsilegust: „Fólk á að
geta snætt á veitingastaðnum og
farið aftur til síns heima. Það á líka
að geta sótt baðhúsið eingöngu og
farið svo aftur út en það getur líka,
ef það kýs svo, farið í baðið, svo á
veitingastaðinn og síðan í leikhúsið.
Eftir leikhúsið getur það svo
ákveðið að fara á klúbbinn sem
verður í kjallara hússins og mun
rúma um 800 manns.“ Að sögn
Helga var húsið eitt allsherjar
skemmtihús á stríðsárunum, opið
allan sólarhringinn. Hermennirnir
sneru kannski aftur beint frá aust-
urvígstöðvunum í tveggja daga frí
og dvöldu þá allan tímann í Admi-
ralspalast þar sem þeir voru þjón-
ustaðir á hvern þann hátt sem þeir
kusu. „Mig grunar að einhvers
staðar hér uppi á háalofti hafi verið
herbergi þar sem konur seldu blíðu
sína, enda var það ekki óvanalegt
hér áður fyrr á stöðum sem þess-
um. Það eru í kringum 970 her-
bergi í húsinu þannig að það hefur
eitt og annað gengið á.“
Maður gæti jafnvel hugsað sér
að það væri reimt í Admiralspa-
last?
„Ja, ég get ekki ímyndað mér
annað.“
Stjörnum prýdd sýning
Þegar rætt var við Helga að
kvöldi miðvikudags, stóð yfir
rennsli fyrir fjölmiðla á Túskild-
ingsóperunni. Voru að sögn Helga
mættar um átta til níu sjónvarps-
stöðvar og um sextíu aðrir fjöl-
miðlar sem sýnir hvers lags athygli
framtakið vekur í Berlín og Þýska-
landi öllu.
„Óperan er í leikstjórn Klaus
Maria Brandauers sem er mjög
virtur leikari og leikstjóri hér í
landi en í helstu hlutverkum eru
margar af stærstu stjörnum Þjóð-
verja. Í hlutverki Makka hnífs er
til dæmis Campino nokkur sem far-
ið hefur fyrir hinni frægu þýsku
hljómsveit Die Toten Hosen en svo
má nefna Katrin Sass sem lék
mömmuna í Goodbye Lenin og
Gottfried John sem er með bestu
og þekktustu leikurum Þjóðverja.
Þessi hópur vekur ekki síður at-
hygli en leikhúsið sjálft en það er
ekki víst að þessir leikarar hefðu
tekið þetta að sér ef ekki hefði ver-
ið fyrir Admiralspalast sem er á
besta stað í Berlín og sögufrægt
með eindæmum. Hvort tveggja
vekur athygli Þjóðverja enda húsið
ekki sambærilegt við önnur leikhús
í Evrópu þegar kemur að stærð en
þá sérstaklega, fjölbreyttum
rekstri.“
Margt í bígerð
Helgi vill helst ekki samþykkja
það að vera kallaður leikhússtjóri
þegar gengið er á hann. „Það eru
tvö aðskilin fyrirtæki sem að hús-
inu koma; annars vegar húseign-
arfyrirtæki og svo rekstrarfyr-
irtæki. Við erum fimm sem
skiptum með okkur verkum í síðara
fyrirtækinu og ef einhver á að kall-
ast leikhússtjóri þá væri það Mar-
cus Flugge sem fengi að setja þann
hatt á sig. En það titlar sig enginn
neitt ennþá. Okkar hlutverk allra
er bara að finna áhugaverða hluti
og fylla svo húsið af fólki. Við höf-
um möguleika á að gera ansi
margt. Við erum með 200, 500 og
1.800 sæta sali svo að við sjáum
fyrir okkur að geta þróað sýningar
frá því að vera smáar uppfærslur
og upp í stærri. Framleiðslufyr-
irtæki okkar Jóns hefur þegar sett
upp sýningar á borð við Cavewom-
an, (Helliskonan) sem er svona hin
hliðin á Hellisbúanum og annað
verk sem kallast Triple Espresso
og var frumsýnt í München í júní.
Cavewoman hefur farið um allt
Þýskaland og við stefnum á að sýna
það hér líka en þar fyrir utan erum
við með nokkrar sýningar sem við
hyggjumst sýna. [Áhugasömum er
bent á heimasíðu Admiralspalast
sem finna má hér að neðan]. Við er-
um ekki styrktir af ríki eða borg og
því verðum við að vera með stykki
sem bera sig … til að byrja með
allavega. Jafnhliða því munum við
svo leigja húsið út til leikhópa og
annarra listamanna sem við höfum
trú á að laði að áhorfendur.“
Jákvætt viðhorf til Íslendinga
Sérðu fyrir þér að íslenskir lista-
menn komi til með að leika og
syngja á fjölum Admiralspalast?
„Já, það er allt til í dæminu. Við
höfum aðeins rætt það en það er
ekkert ennþá ákveðið í þeim efn-
um.“
Þú færð þá holskeflu tölvupósta
eftir að viðtalið birtist.
„Já, það er vonandi,“ segi Helgi
og hlær. „Eins og er höfum við
ekki burði til að bjóða íslenskum
sýningum í heimsóknir en ef maður
tekur til dæmis Rómeó og Júlíu
Vesturports að þá getum við vel
ímyndað okkur að sú sýning myndi
ganga upp með þýskum leikurum.
Það er ennþá of erfitt að borga
undir erlendan leikhóp í margar
vikur en ef fjársterkir aðilar heima
eru tilbúnir til að borga undir ís-
lenskar sýningar í Admiralspalast
erum við reiðubúnir til að skoða
það gaumgæfilega. Hins vegar
finnst mér það liggja beint við að í
framtíðinni munum við leita til ís-
lenskra listamanna. Benni Hemm
Hemm verður til að mynda í opn-
unarpartíinu okkar á föstudaginn
og svo ætlar Egill Sæbjörns að
vera með performans svo að þú
sérð að þetta er þegar byrjað. Ís-
lendingar vekja athygli hér í Berlín
og það er greinilega jákvætt við-
horf til okkar, hvernig sem það er
tilkomið.“
Söng á blaðamannafundi
Morgunblaðinu barst til eyrna að
á blaðamannafundi sem haldinn var
á mánudaginn í Admiralspalast,
hefði Helgi brostið í söng og hann
er inntur eftir því í lok samtalsins.
„Já, já. Ég var svona að reyna að
létta andrúmsloftið á fundinum.“
Gekk það?
„Nei, nei, það gekk ekkert svaka-
lega vel. Þeir höfðu ekki mikinn
húmor fyrir því en ég hafði hins
vegar gaman af því sjálfur.“
Hvaða lag söngstu?
„Ég söng bara nokkrar línur úr
„I’ve got you under my skin“, ég
var eitthvað að lýsa þeim áhrifum
sem Berlín hefði á mig, að hún
væri að læðast undir skinnið á
manni. Þannig að ég ítrekaði það
bara með nokkrum línum frá Cole
Porter.“
Leiklist | Íslenskir athafnamenn standa að baki enduropnun Admiralspalast-leikhússins í Berlín
Menningarhöll í hjarta Berlínar
Frá blaðamannafundinum sem haldinn var í Admiralspalast á mánudaginn.
Helgi Björnsson og Jón Tryggvason sitja fyrir miðju en sá fyrrnefndi tók
upp á því að syngja fyrir blaðamenn til að létta andrúmsloftið.
Admiralspalast-leikhúsið í Berlín. Eins og sést á þessari mynd er endur-
reisn hússins enn í fullum gangi en kostnaðurinn við endurbygginguna
mun slaga upp í einn og hálfan milljarð íslenskra króna.
Eftir Höskuld Ólafsson og
Flóka Guðmundsson
www.admiralspalast.de
Horft út í sal af aðalsviði leikhússins sem rúmar 1.800 gesti í sæti. Í kvöld
verður Túskildingsóperan frumsýnd í Admiralspalast.