Morgunblaðið - 11.08.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 23
UMRÆÐAN
Hvorugkynsorðið prósent merkir hundraðasti hluti; áhersla er að
sjálfsögðu á fyrsta atkvæði: þrjú prósent.
Hvorugkynsorðið prósenta merkir fjöldi hundraðshluta.
(Dæmi: Þrjú prósent eru ekki há prósenta þegar um fólksfjölgun er að
ræða.)
Gætum tungunnar
Gunnar Jóhannesson skrifar
um trú, vísindi og kenningar
Richards Dawkins prófessors.
Guðjón Sveinsson: Rík þjóð
en fátæk í anda.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÉG ER ekki einn um það að vera að
missa vonina um að hér á landi voru
eigi eftir að myndast jafnrétti og
bræðralag í fullri
almennri merk-
ingu. Þess vegna
settist ég niður á
dögunum og sendi
Mogganum okkar
góða smágrein
um lýðræði. Þar
var spurt um
hvort lýðræði
væri á Íslandi og
mitt svar við
þeirri spurningu
var „nei“. Er pukur inni á löggjaf-
arsamkundunni ásættanlegt í lýð-
ræðisríki? Meðan bókhald stjórn-
málaflokka er lokað er það fyrir
hendi.
Heilbrigð hugsun
Varla er til sá Íslendingur sem ekki
gerir sér ljósan þann skaða sem
kvótakerfið í sjávarútvegi er búið að
valda þjóðarheildinni og sundra
henni. Á ströndinni umhverfis landið
standa verðlausar lúxusbyggingar og
einbýlishús. Allt verðlaust. Vissum
útvöldum var gefið leyfi í nafni laga til
að veðsetja, leigja eða selja sameign
þjóðarinnar á landgrunni Íslands.
Elstu menn muna kannski þá tíð að
Framsóknaraðallinn sendi leiguliða
sína í verið til að þræla og hirti svo
hýruna þeirra. Er þetta ekki það
sama í dag? En nú er það fiskurinn í
sjónum sem er stjórnarskrárbundin
þjóðareign. Framsókn er allt leyfi-
legt. Er Íslendingum viðbjargandi yf-
irleitt? Að Framsókn skuli enn tóra
eftir allt sem hefur gerst af hennar
völdum.
Svo vil ég minna á Samfylkinguna.
Nú flýgur hún fjaðralaus. Fylgið
hrundi eftir fund Ingibjargar með
LÍÚ-liðinu þar sem hún sagði blákalt
orðrétt: Við verðum að læra að lifa
með kvótakerfinu. Því til staðfest-
ingar var ráðinn varðmaður til varnar
einum mesta kvótakóngi á landinu.
Ég vorkenni Össuri vini mínum að
upplifa niðurrif verka sinna.
Allir vita að Vinstri grænir missa
allt niður um sig ef hreyfður er steinn
á hálendinu. Á sama tíma dást þeir að
fegurð kyrrláts hafflatarins og ekki
þýðir að segja að þeir viti ekki neitt.
Ég hefi persónulega, ekki einu sinni
heldur margoft, lýst fyrir þeim sem
öðrum ráðamönnum þessa lands
þeirri einföldu staðreynd að hér er
búið að herfa landgrunnið allan sólar-
hringinn allt árið um kring. Það er
eiginlega furðulegt að eitthvað skuli
ennþá finnast lifandi á landgrunni Ís-
lands. Sjófugl flykkist á land og yf-
irtekur andatjarnir og fiskifræðingar
koma af fjöllum á meðan landgrunnið
er herfað með dragnót. Öll hrygning,
bæði síldar og sandsílis, er í uppnámi
og fjöldi lífvera í útrýmingarhættu
hvort sem mönnum líkar betur eða
verr.
Landgrunnið er að verða ein líf-
vana eyðimörk vegna græðgi LÍÚ-
klíkunnar sem heldur því fram að
hvalurinn og smábátarnir með öngl-
ana sína séu skaðvaldurinn mikli.
Þetta nefnist víst pólitík og spurn-
ing hvort setja þarf lög gegn henni.
Boðorð Biblíunnar ættu að vera
nægjanleg.
GARÐAR H. BJÖRGVINSSON
framkvæmdastjóri
Framtíðar Íslands.
Ekki sá eini
Frá Garðari Björgvinssyni:
Garðar
Björgvinsson
STUNDUM birtist efni í fjölmiðlum
og það er eins og eitthvert ryk-
sláttugengi sé með fingurna í um-
fjölluninni.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins
26.7. sl. og e.t.v. víðar er haft eftir
hagfræðingi nokkrum að tveir kostir
séu um íslenskan gjaldmiðil. Ann-
aðhvort að hafa krónuna eins og hún
er eða taka upp evru, en til þess
þurfi að ganga í Evrópusambandið.
Samt velja Danir þriðja kostinn, að
halda krónunni en tengja hana beint
við evru. Þetta mega Íslendingar
líka og því ber alltaf að halda til
haga.
Um daginn var leynd létt af gögn-
um sem sýndu að á svonefndum
kaldastríðsárum hafi sími ýmissa
manna verið hleraður. Það var allt
gert á löglegan hátt. Eðlilega þykir
þeim sem fyrir urðu þetta heldur
súrt og margir hafa fimbulfambað
um það. En enginn hefur vikið orði
að því hvernig hlerunum og öðrum
ríkisreknum persónunjósnum væri
háttað núna ef þessum sömu mönn-
um hefði tekist, viljandi eða óvilj-
andi, að koma á íslensku ráðstjórn-
arríki.
Alþingi hefur samþykkt að Íslend-
ingar bjóði sig fram til setu í Örygg-
isráði SÞ. Ég hef hvergi séð eða
heyrt sagt fullum fetum að þetta er
skylda þjóðarinnar og bein afleiðing
af aðildinni. Þetta mætti halda að all-
ir skildu þegjandi og hljóðalaust, en
virðist samt vefjast fyrir ein-
hverjum.
AÐALSTEINN GEIRSSON
örverufræðingur.
Um gloppóttar
fréttaskýringar
Frá Aðalsteini Geirssyni:
UNDANFARIN misseri hefur
lögreglan verið með mjög mikla
löggæslu á hálendinu, nánar til-
tekið norðan Vatnajökuls á svo-
nefndu Kárahnjúkasvæði. Þar er
mesta hitamálið Háls-
lón sem er 57 ferkíló-
metrar að stærð og
mun rafmagns-
framleiðslan af þess-
um virkjanafram-
kvæmdum renna
óskipt í að knýja ál-
ver Alcoa í Reyð-
arfirði.
Þetta sumar hefur
verið mikill ferða-
mannastraumur á
svæðið norðan Vatna-
jökuls þar sem fólk
vill sjá og njóta stór-
brotinnar náttúru
sem senn fer undir
vatn. Einnig hefur
safnast saman stór
hópur af fólki, bæði
íslensku og erlendu,
til að mótmæla þess-
um framkvæmdum
ríkisstjórnarinnar. Í
júlí stóðu Íslandsvinir
fyrir fjölskyldubúðum
við Snæfell þar sem
yfir 200 manns tjöld-
uðu og sýndu hug
sinn í verki. Búð-
unum lauk 31. júlí en
staðfastur hópur hélt áfram að
mótmæla. Allan tímann hefur lög-
reglan haft mikinn viðbúnað sök-
um mögulegra mótmæla.
Undanfarið hefur lögreglan far-
ið hamförum á svæðinu og áreitt
ferðamenn sem og þá sem komnir
eru til að mótmæla. Þeir hafa
stoppað bíla, leitað í þeim, tekið
mat, hótað handtöku og beitt
óþarfa hörku við handtökur. Núna
nýverið voru 17 handteknir við
Desjarárstíflu þar sem lögreglan
fór harkalega fram og slasaði eina
stelpu.
Kathleen Henwood lýsir því svo
í samtali við Morgunblaðið að lög-
reglumennirnir hafi þrýst andliti
hennar í jörðina, rifið hana upp á
klút sem hún bar um hálsinn,
dregið hana eftir jörðinni og að
lokum handjárnað hana. Þá hafi
þeir verið með kylfur á lofti. Hún
segir mótmælendurna ekki hafa
gert sér grein fyrir því í upphafi
að verið væri að handtaka þá, en
þeir hafi síðar komist að því að
þeir hafi verið handteknir fyrir að
óhlýðnast fyrirmælum lögregl-
unnar. Hún segist hafa verið í
varðhaldi í tólf klukkustundir (4.
ágúst mbl.is). Einnig hefur lög-
reglan hindrað að mótmælendur
fái vistir sendar á Lindir þar sem
þeir hafa aðsetur og virðist vera
að reyna svelta þá í burtu, aðferð
sem líkist þeim er notast er við í
stríði.
Mikið og dýrt lögreglulið ásamt
sérsveit er á Kárahnjúkasvæðinu
sem virðist stunda það að áreita
ferðamenn, mótmælendur og að
vernda vinnusvæði virkjunarfram-
kvæmdanna allra. Eins og Óskar
Bjarmarz, yfirlögregluþjónn á Eg-
ilsstöðum, segir þá „erum við ég
og þú að borga fyrir lögreglu-
aðgerðirnar á hálendinu“.
Þannig erum ég og þú að halda
uppi lögregluliði í stríði við mót-
mælendur sem hafa aldrei skaðað
nokkurn mann. Nokkrir hafa í
mesta lagi stefnt sjálfum sér í voða
með því að hlekkja sig við vinnu-
vélar. Óskar leiðir líkum að því að
mótmælendur hafi eyðilagt dínamít
en enginn hefur verið kærður eða
handtekinn og engar sannanir hafa
komið í ljós enn sem komið er og
því virðist það aðeins
vera rógburður af
hans hálfu.
En hvert er hlut-
verk lögreglunnar hér
á landi? Er hlutverk
hennar að halda niðri
öllum skoðunum sem
eru á öndverðum meiði
við ríkisstjórnina?
Hlutverk lögreglunnar
er að vernda okkur,
þess vegna höldum við
henni uppi með skatt-
peningunum okkar en
í þessu tilviki virðist
hún vera að ganga
nokkrum skrefum of
langt. Samkvæmt 14.
gr. lögreglulaga um
valdbeitingu er hand-
höfum lögregluvalds
heimilt að beita valdi
við framkvæmd
skyldustarfa sinna.
Aldrei mega þeir þó
ganga lengra í beit-
ingu valds en þörf er á
hverju sinni. Er sam-
kvæmt þessari heimild
þá réttlætanlegt að
berja fólk með kylfu,
hóta ferðafólki handtöku, leita í
bílum, svelta fólk burt, draga fólk
eftir jörðinni og fleira í þeim dúr
vegna þess að sama fólkið neitaði
að yfirgefa óafgirt vinnusvæði?
Ragnar Aðalsteinsson hæstarétt-
arlögmaður telur að aðgerðir lög-
reglunar séu brot á stjórnarskrár-
réttindum fólks en Óskar
Bjarmarz vísar ásökunum Ragnars
og mótmælenda alfarið á bug.
Hann segir lögin sín megin og
bendir til dæmis á 15. gr lög-
reglulaga en þar segir:
Lögreglu er heimilt að hafa af-
skipti af borgurunum til að halda
uppi almannafriði og allsherj-
arreglu eða koma í veg fyrir yf-
irvofandi röskun til að gæta örygg-
is einstaklinga eða almennings eða
til að afstýra afbrotum eða stöðva
þau.
Samkvæmt íslenskum lögum er
ólöglegt að pissa á almannafæri.
Ef við notum þessa lagaheimild
lögreglunnar á þá að taka slíkan
aðila, snúa hann niður í sandinn,
standa á bakinu á honum og slá
hann með kylfu eins og gert var
við mótmælanda?
Hægt væri að réttlæta ýmsan
hræðilegan verknað lögreglunnar
með þessari heimild og því hvernig
Óskar kýs að nota hana.
Viljum við búa í samfélagi sem
notar lögregluna til að bæla niður
skoðanir fólks og stjórnarskrár-
varin réttindi til þess að mótmæla?
Framkoma yfirvalda við mót-
mælendur og almenna ferðamenn
á Kárahnjúkasvæðinu er til
skammar og er farin að taka á sig
verri mynd en mannréttindabrot
stjórnvalda gagnvart friðsömum
mótmælum Falun Gong þegar for-
seti Kína heimsótti Ísland.
Hvetjum stjórnvöld til að endur-
skoða stefnu sína gagnvart mót-
mælum áður en það er of seint.
Harkalegar að-
gerðir yfirvalda á
Íslandi
Einar Rafn Þórhallsson skrifar
um löggæslu á hálendinu
Einar Rafn Þórhallsson
’Viljum við búa ísamfélagi sem
notar lögregluna
til að bæla niður
skoðanir fólks og
stjórnarskrár-
varin réttindi til
þess að mót-
mæla?‘
Höfundur er nemi og Íslandsvinur.
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Magi og melting
Acidophilus
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR