Morgunblaðið - 11.08.2006, Page 29

Morgunblaðið - 11.08.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 29 MINNINGAR ✝ Gunnar Krist-jánsson fæddist á Ísafirði 21. sept- ember 1930. Hann lést á heimili sínu á Álftanesi 4. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hans voru Kristján Bjarnason, f. 11. desember 1898 í Stapadal í Arnarfirði, d. 26. desemaber 1977, og Solveig Bjarnason, f. Anderson, í Risör í Noregi 13. mars 1902, d. 4. maí 1987. Gunnar á eina systur, Dagnýju, f. 28. janúar 1942, maki hennar er Jón Dahl- mann. Gunnar tók gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar 1947. Hann fór síðan í jarnsmíðanám hjá Vélsmiðju Helga Þorbergsson- og Guðlaug Dahlmann, f. 7. ágúst 1907, d. 24. júní 1993. Gunnar og Ebba eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Guðlaug, f. 14. september 1950, maki Halldór V. Kristjáns- son, f. 26. maí 1946. Þeirra börn eru: a) Solveig Sif, f. l8. júlí 1971, maki Arnar Pálsson, f. 21. nóv- ember 1970. Þau eiga einn son. b) Jón Vídalín, f. 19. febrúar 1975, maki Linda Björg Birgisdóttir, f. 2. mars 1975. Þau eiga tvo syni. c) Gunnar Áki, f. 6. ágúst 1978, maki Berglind Magnúsdóttir, f. 10. ágúst 1978. Þau eiga eina dóttur. 2) Hanna Lára, f. 21. mars 1955, fráskilin. Hennar börn eru Elísa- bet Rakel Sigurðardóttir, f. 13. nóvember 1978, og Gunnar Freyr Barkarson, f. 27. nóvember 1985. 3) Sigurður Axel, f. 30. desember 1958, fráskilinn. Hans dætur eru: a) Fanney Ebba, f. 28. nóvember 1989, og Rakel Björk, f. 5. sept- ember l992. Stjúpdóttir Sigurðar er Fjóla Katrín Elvarsdóttir, f. 10. nóvember 1987. Útför Gunnars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. ar á Ísafirði. Síðan lá leiðin í Vélskóla Ís- lands og þaðan lauk hann prófi frá raf- magnsdeild skólans vorið 1955. Gunnar varð l. vélstjóri á togaranum Ísborgu það vor og var það þar til rekstri hans var hætt 1961. Gunn- ar vann ýmis störf, m.a. við skipasmíða- stöð Marsellíusar Bernharðssonar, þar til í febrúar 1963 er hann réðst til Íshúsfélags Ísfirð- inga hf., þar sem hann vann til l. apríl 1998. Hinn 22. september 1951 kvænt- ist Gunnar Ebbu Dahlmann, f. 18. september 1932. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Dahlmann, f. 31. mars 1899, d. l9. nóvember 1955, Öll endum við okkar æviskeið. Nú hefur Gunnar tengdafaðir minn kvatt þennan heim með þeirri reisn sem einkenndi allt hans líf. Afkom- endur geta litið stoltir um öxl því engan skugga ber á ævi hans. Þegar minnst er á Gunnar er ekki hægt að undanskilja eiginkonu hans, Ebbu Dahlmann, en segja má að nær allt sem Gunnar tók sér fyrir hendur á lífsleiðinni hafi hann gert með Ebbu. Í Ebbu og Gunnari er að finna fólk sem með ráðdeild og ósérhlífni byggði grunn þjóðfélags okkar og aldrei er nógsamlega þakkað. Kynni okkar Gunnars hófust fyrir 36 árum, á Birkimel hjá Guðlaugu Dahlmann. Strax þá kynntist ég glaðværð hans og var unun að verða vitni að sam- bandi hans við tengdamóður sína sem var einstaklega vel gerð kona. Við Gunnar kynntumst betur þegar við Guðlaug bjuggum um árabil í Bolungarvík. Á þessum tíma var Gunnar að ná sér eftir hjartaáfall og reyndi mikið á Ebbu við að ljúka byggingu húss þeirra við Engjaveg. Samband okkar Gunnars var alltaf á þann veg að við fylgdumst hvor með öðrum og ætíð var hann reiðubúinn til hjálpar ef til hans var leitað. Þeg- ar ég hugsa til samskipta okkar minnist ég óteljandi spilakvölda, já- kvæðni, einstakrar snyrtimennsku, hógværðar og samviskusemi ásamt stríðni sem enginn var óhultur fyrir. Gunnar var svo stríðinn að það gat stundum komið honum í vandræði, en allir fyrirgáfu honum því góðvild hans var stríðninni sterkari. Ebba og Gunnar hafa fylgst með uppvexti barna okkar Guðlaugar og tekið þátt í gleði þeirra og sorgum. Á meðan við bjuggum vestanhafs heimsóttu þau okkur tvisvar og eru minningar frá þessum tíma yndisleg- ar. Eftir að Ebba og Gunnar fluttu frá Ísafirði á Álftanesið nutu lang- afabörnin athygli þeirra, enda afa- börnin tíðir gestir. Margs er að minnast og margt að þakka í sam- skiptum við Gunnar og er ég þakk- látur fyrir að hafa fengið að kynnast þessum sómamanni. Á þessari stundu sendi ég innilegar samúðar- kveðjur til tengdamóður minnar Ebbu Dahlmann og annarra að- standenda vegna fráfalls Gunnars Kristjánssonar. Blessuð sé minning hans. Halldór V. Kristjánsson. Í dag kveðjum við ástkæran afa og langafa, Gunnar Kristjánsson. Er við minnumst Gunnars afa breiðist breitt bros yfir andlit okkar. Afi okk- ar var ákaflega glaðlyndur og ljúfur maður. Handlagni og útsjónarsemi voru aðalsmerki hans eins og heimili afa og ömmu er glöggt dæmi um. Elstu minningar okkar eru af heimsóknum á Engjaveginn sem beðið var eftir með óþreyju. Dvölin á Ísafirði var ævintýri líkust. Dekrað var við mann daginn út og inn, í mat og drykk, bíltúrum um nærliggjandi firði með bestu fáanlegu leiðsögn, og ómældri góðlátlegri stríðni afa. Ferðin var ekki fullkomin nema maður færi með afa í íshúsið. Þessar heimsóknir voru skemmtilegar en jafnframt gott veganesti fyrir fram- tíðina. Fyrir átta árum fluttu afi og amma af Engjaveginum í Vesturtún- ið. Okkur þótti þetta vera mikið hug- rekki af þeirra hálfu. Okkur fannst við græða mest af þessum ráðahag sjálf að hafa þau svona nálægt. Ynd- islegt var að koma í heimsókn, fá kaffi og kræsingar, spjalla um dag- inn og veginn. Gaman var að fylgjast með afa lyfta langafabörnunum upp til að kíkja á Gaukinn eins og fyrri kynslóð hafði upplifað. Spenningur- inn yfir bílabrautunum og bónda- bænum, smíðuðum af afa, var ekki minni hjá nýjustu kynslóðinni heldur en fyrri kynslóðum. Ávallt kom hann fram við okkur af virðingu og sem jafningja. Hann sýndi okkur traust til að gera hluti sem svo margir fullorðnir hefðu ekki treyst manni fyrir. Þegar litið er til baka er það einmitt þetta traust sem hann sýndi okkur sem manni þykir svo vænt um og virðir hann fyrir. Við höfum öll misst mikið. Hans verður alltaf sárt saknað en við munum minnast hans með hlýhug og gleði. Solveig Sif, Jón Vídalín, Gunnar Áki og fjölskyldur. Horfinn er af sjónarsviðinu heim- ilisvinur okkar, mágur og svili, Gunnar Kristjánsson vélstjóri á Ísa- firði. Hann var giftur Ebbu Dal- hmann. Brúðkaup þeirra Gunnars og Ebbu var haldið hinn 22. sept- ember 1951 og var hann þá tuttugu og eins árs en hún átján ára. Við þessa athöfn var eiginkona mín og systir Ebbu, Jóhanna, eini votturinn ásamt prestinum. Kom þá í ljós að séra Sigurður Kristjánsson hafði gleymt bænabókinni og sendi Jó- hönnu til þess að sækja hana. Sagði Gunnar síðar að þá hefði verið síð- asta tækifærið til þess að stinga af en svo ástfanginn var hann að það hvarflaði ekki að honum að nota tækifærið. Brúðkaupið var ekki við- hafnarmikið og ef satt skal segja þá hermir Jóhanna að hún hafi sárvor- kennt þessum unglingum að stíga þessi skref út í óvissu framtíðarinn- ar. En þetta varð eitt fallegasta og farsælasta hjónaband sem við þekkj- um til. Þau voru ótrúlega samrýnd og áttu svo mörg sameiginleg áhuga- mál. Bæði gestrisin og greiðasöm. Blómarækt var þeim mikill gleðigjafi enda garðar þeirra bæði á Ísafirði og seinna að Vesturtúni 54 á Álftanesi til mikillar fyrirmyndar. Heimili þeirra bæði á Ísafirði og Álftanesi voru menningarheimili og voru bæk- ur þar í öndvegi. Við hjónin bjuggum lengst af í Neskaupstað þegar þau voru á Ísafirði svo þar var vík á milli vina. Við hittumst þó oftar en flesta mundi gruna og hallaðist ekki á um gagnkvæmar heimsóknir. Vinátta þeirra og greiðasemi gagnvart börnum okkar verður seint fullþökkuð enda minnast þau sam- verustundanna með söknuði og það er ekkert undarlegt þó að þau hafi oft litið á þau hjónin sem eina og sömu persónusköpunina því þannig var samband þeirra alla tíð, þau máttu aldrei hvort af öðru líta. Kæra Ebba, það verður erfitt fyrir þig og börnin að hafa ekki lengur þá stoð sem maki þinn var og því biðjum við allar góðar vættir að styðja þig og þína og veita þér huggun og frið. Þess óskar öll fjölskylda okkar. Jóhanna og Guðmundur. Vinur minn og svili Gunnar Krist- jánsson frá Ísafirði er látinn. Gunnar var kvæntur mágkonu minni Ebbu Dahlmann og bjuggu þau á Ísafirði fram til ársins 1998 að þau fluttu suður og byggðu sér hús á Álftanesi. Leiðir okkar Gunnars og Ebbu hafa legið saman allt frá árinu 1969 er ég kvæntist Svanborgu systur Ebbu. Á þessum tæplega 40 árum hafa samverustundirnar verið marg- ar og gefið mikið. Að heimsækja þau Ebbu og Gunn- ar á Ísafjörð var allt að því árlegur viðburður. Dvöl með þeim hvort heldur var á Engjaveginum eða inni í skógi í sumarbústaðnum sem áður var í eigu tengdaforeldra hans var ánægjuleg dvöl. Gunnar og Ebba höfðu eignast húsið eftir að Guðlaug tengdamóðir hans flutti til Reykja- víkur og Gunnar með sinni handlagni og smekkvísi hélt húsinu vel við. Umhirða Gunnars um hús sín og garða var aðdáunarverð. Þar var dyttað að öllum hlutum stórum sem smáum og allur gróður bar þess merki að vel var um hann hugsað. Bílar hans og bílskúrar báru þess og merki að hér var fagmaður að verki. Gunnar var bráðskemmtilegur maður og hafði gaman af að segja frá. Kímnin og glettnin í andlitinu var allsráðandi við hverja frásögn og oft var skotið lausum skotum en þess var alltaf gætt að engan sviði undan. Veiðiferðirnar í Vopnafjörðinn á árunum 1974–1980 voru einstakar. Þá komu saman systkinin fjögur ásamt mökum og börnum og Guð- laugu ömmu. Ebba og Gunnar komu frá Ísafirði, Hanna og Guðmundur frá Neskaupstað og við Svanborg ásamt Jóni og Guðlaugu úr Reykja- vík. Þar naut Gunnar sín enda góður veiðimaður og einstakur náttúru- unnandi. Hér að leiðarlokum vil ég þakka Gunnari fyrir allar okkar góðu sam- verustundir um leið og ég votta Ebbu, börnum þeirra, þeim Guð- laugu, Hönnu Láru og Sigurði Axel og öðrum aðstandendum samúð mína. Örn Arnþórsson. Gunnar og móðursystir okkar, Ebba, voru með eindæmum sam- rýnd hjón, svo samrýnd að flestir töl- uðu um Gunnar og Ebbu í sömu andrá. Þau kynntust ung að árum, unglingsást sem óx og dafnaði, þau þroskuðust saman og sérhver bugða og lækur á lífsins leið styrkti sam- band þeirra. Gunnar og Ebba voru einstaklega góð heim að sækja, gestrisni þeirra beggja fengum við systur að kynnast snemma í barnæsku þegar við heim- sóttum þau til Ísafjarðar ásamt for- eldrum okkar. Gunnar var mjög handlaginn og sá um að allt væri í réttu horfi innan stokks sem utan. Allt var í röð og reglu, svo vel farið með alla hluti. Þau hjónin voru bæði bókelsk og miklir tónlistarunnendur og stóru safni af bókum og hljóm- diskum komið haganlega fyrir í stofu. Ebba setti kynstrin öll af kaffi- brauði á borð; Gunnar var ævinlega brosmildur og glettinn, það er jafn- vel hægt að segja að hann hafi verið stríðinn og það féll okkur systrum vel í geð, enda hlógum við oft dátt að fjölmörgum hnyttnum athugasemd- um hans. Gunnar var skemmtilegur frændi, hæglátur og góðhjartaður, hann var góður faðir og ekki síðri afi og langafi. Þegar við systur sóttum þau hjónin heim á Ísafjörð, á unglings- árum og síðan með eiginmönnum okkar, komnar með eigin fjölskyld- ur, var gaman að sjá hversu stoltur Gunnar var þegar þau hjónin leiddu okkur um bæinn, sýndu okkur dýrð- ina fyrir vestan. Á Ísafirði var æsku- heimili Gunnars sem og Ebbu, þau voru stolt af heimahögunum, börn- um sínum, afkomendum, heimili, hvort af öðru. Heimsækja þau síðan í nýja húsið á Álftanesinu þar sem þau undu sér svo vel, á allt eins hlýlegu og fallegu heimili og á Ísafirði. Sjá þau síðan alltaf eins og nýástfangin í veglegri veislu sem þau héldu í tilefni af gullbrúðkaupi sínu fyrir fimm ár- um; fagna með fjölskyldu, vinum og vandamönnum, öllum þeim sem gátu sammælst um hið einstaka samband sem á milli þeirra var. Ein minning er hvað sterkust í huga okkar; Gunnar og Ebba leiðast í fágætri kyrrð og eftirminnilegu sól- setri í Hrútafirðinum á ættarmóti móðurættar okkar systra, Bakkaað- alsins, í júlí á síðasta ári. Nokkrum vikum áður en alvarleg veikindi Gunnars uppgötvuðust. Sólsetur við ferðalok. ...en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (Jónas Hallgrímsson.) Við vottum Ebbu og börnum dýpstu samúð okkar. Megi minning- in um góðan dreng verða þeim líkn. Hanna Guðlaug, Bertrand, Bryndís og Ívar. Góður vinur, Gunnar Kristjáns- son, er fallinn frá. Ég kynntist Gunn- ari fyrst í gegnum eiginmann minn, Leif Pálsson, en þeir unnu saman á togaranum Ísborgu. Við Ebba eig- inkona hans þekktumst frá barn- æsku. Styrktust þá vináttuböndin og hafa haldist til þessa dags. Gunnar var glæsilegur maður. Þótt ég kynntist honum seint man ég vel eftir þessum sæta strák á skóla- árunum. Flestar stelpurnar í Gaggó litu hann hýru auga. En Ebba vin- kona mín hreppti hnossið og má segja að þar hafi farið fallegt par. Þau hófu búskap barnung og voru einstaklega samrýnd. Bæði voru fag- urkerar og samstiga um að hlúa að sínu fallega og smekklega heimili. Það var mikill heiður fyrir okkur fjölskylduna að fá að taka þátt í fagn- aði með þeim á 50 ára brúðkaups- afmæli þeirra árið 2001 með fjöl- skyldu þeirra og góðum vinum. Gunnar var séntilmaður. Öll fram- koma hans bar vott um geðprýði og fágun. Hann var ekki maður sem tranaði sér fram. Hélt hann sig yfirleitt til hlés þegar snarpar umræður urðu um menn og málefni. En í góðra vina hópi var hann allra manna kátastur og lét spaugsyrðin fjúka. Stríðinn var hann og kom oft með smáskot þegar við vinkonurnar sátum og mösuðum. Ómetanleg var hjálpsemi þeirra hjóna þegar þau hjálpuðu dóttur minni og fjölskyldu með húsnæði er þau áttu í erfiðleikum með veikt barn. Þar voru sannir vinir í raun. Ég minnist skemmtilegu sam- verustundanna fyrir vestan þegar setið var og spjallað og galsast um málefni líðandi stundar. Ekki má gleyma bridskvöldunum sem fór að vísu ört fækkandi eftir að Leifur missti heilsu. Eftir að við fluttumst suður hittumst við ekki eins oft og við hefðum kosið en alltaf hlakkaði maður til endurfunda og naut sam- vistanna. Síðustu mánuðirnir hafa verið fjöl- skyldunni erfiðir. Gunnar sýndi ein- stakt æðruleysi í baráttunni við erf- iðan sjúkdóm, allt þar til yfir lauk. Guð styrki Ebbu vinkonu mína, Gullý, Hönnu Láru, Bóbó og fjöl- skyldur. Blessuð sé minning kærs vinar. Inga Jónsdóttir. GUNNAR KRISTJÁNSSON Innilegar þakkir færum við öllum þeim er heiðruðu minningu systur okkar, mágkonu og frænku, EYRÚNAR STEINDÓRSDÓTTUR, Víðihlíð, Grindavík. Fyrir hönd aðstandenda, Ágúst Steindórsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, HALLA ARNLJÓTSDÓTTIR, Hraunbæ 156, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 7. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 11. ágúst, kl. 15.00. Þröstur Freyr Gylfason, Una Björk Ómarsdóttir, Guðbjört Gylfadóttir, Árni Ólafur Jónsson, systkini og barnabarn. Elskuleg eiginkona mín, HJÖRDÍS JÓNSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hlíð aðfaranótt fimmtudagsins 10. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Halldór Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.