Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 40

Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 12. ágúst kl. 12.00: Eyþór Ingi Jónsson, orgel 13. ágúst kl. 20.00: Eyþór Ingi Jónsson, organisti frá Akureyri, leikur verk m.a. eftir Bach, Clérambault, Muffat, Vierne og Duruflé. Sixties í kvöld Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar. www.kringlukrain.is Sími 568 0878 Mr. Skallagrímsson - leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson Leikstjóri: Peter Engkvist KVÖLDVERÐARTILBOÐ Tvíréttaður matur og leikhúsmiði kr. 4.300 - 4.800 Lau. 19. ágúst kl. 20 uppselt Sun. 20. ágúst kl. 15 örfá sæti Sun. 20 ágúst kl. 20 örfá sæti Fös. 25. ágúst kl. 20 örfá sæti Lau. 26. ágúst kl. 15 uppselt Lau. 26. ágúst kl. 20 uppselt Lau. 2. sept. kl. 20 Sun. 3. sept. kl. 15 Sun. 3. sept. kl. 20 PANTIÐ MIÐA TÍMANLEGA Í SÍMA 437 1600 Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningard. LISTAMENNIRNIR Alan Jo- hnston frá Skotlandi, Ragna Ró- bertsdóttir og Séan Shanahan frá Írlandi standa að samsýningunni Crystal Grey sem verður opn- uð á öllum þrem- ur hæðum Safns á laugardaginn, en sýning með sama nafni var sett upp fyrr á þessu ári í sam- tímalistamiðstöðinni Peacock Vi- sual Arts í Aberdeen í Skotlandi. Að auki sýnir svissneski listamað- urinn Roman Signer innsetningu í rými á annarri hæð. Shanahan hlær góðlátlega þegar hann er inntur eftir því hvers gestir Safns megi vænta. Hann leggur til að fólk búi sig undir sem fæst, komi með opnu hugarfari og vinni sig svo áfram út frá þeirri forsendu. „Ég held það fari best á því að fólk komi ekki með fastmótaðar hugmyndir og væntingar,“ stingur hann upp á. Hann lýsir sýningunni sem lát- lausri og fullyrðir að hún tengist rýminu sem hún er sett upp í sterk- um böndum. Auk þess leggur hann ríka áherslu á að ekki sé um þrjár aðskildar sýningar að ræða. „Þó listamennirnir á bak við sýninguna séu þrír má líta á hana sem heild þar sem verkin flæða hvert í gegn- um annað. Það er ekki um þrjár sjálfstæðar og ótengdar innsetn- ingar að ræða; nær að tala um þrjá listamenn sem vefa verk sín saman þegar í galleríið er komið,“ en verk- unum hefur verið komið fyrir víðs- vegar um safnið „hvert í bland við annað“, að hans sögn. „Hugmyndin er að verkin vinni saman.“ Hann útskýrir að þó sýningin komi frá Skotlandi sé nálgunin í Safni ólík því sem þar var. „Ég held að það sé óhætt að segja að við séum öll mjög meðvituð um rýmið sem við erum að vinna með. Rýmið sem við höfum til umráða hér hefur stefnt okkur í nokkuð aðra átt en í Skotlandi. Ég hugsa að öll verkin séu að einhverju leyti öðruvísi og heildarútkoman er það klárlega. Við erum sömu listamennirnir en rýmið hefur haft afdrifarík áhrif.“ Eiga ýmislegt sameiginlegt Auk þess sem efniviðurinn skipar stóran sess í verkum listamann- anna allra eiga þeir það einmitt sameiginlegt að rýmið setur sterk- an svip á lokaútkomuna hverju sinni. Ragna Róbertsdóttir er einna þekktust fyrir verk sem verða hluti af arkitektúr rýmisins og vísa til hvoru tveggja: íslenskrar bygging- arhefðar og náttúrunnar. Á sýning- unni í Safni býður hún upp á naum- hyggjulega skúlptúra þar sem hún notar gler og hraun sem hún hefur safnað frá Heklurótum og sjálf unnið. Framlag Johnstons, sem fræg- astur er fyrir vinnu sína með naum- hyggjuleg form í gráskala-lituðum verkum, eru veggverk sem eru unnin beint á vegginn í Safni, auk kola- og glerverka. Johnston hefur sýnt víða og hélt m.a. einkasýningu árið 1993 í sýningarrýminu Önnur hæð sem var þar sem Safn er nú. Á svölum safnsins getur enn að líta veggverk hans frá þeirri heimsókn. Shanahan sýnir einlita málverk á mdf-plötum, auk verks sem hann vinnur sérstaklega inn í arkitektúr hússins. Verk hans hverfast öllu jafna um liti og hlutdræga skynjun okkar á þeim og um leið skynjun okkar á verkinu sjálfu. Innsetning á annarri hæð Roman Signer, sem sýnir sam- tímis á annarri hæð Safns, er hvað þekktastur fyrir ríka kímnigáfu í tilraunakenndum innsetningum, en innsetning Signers á safninu hvetur áhorfendur til kómískrar þátttöku. „Þetta eru þrír hlutir: lítið eld- húsborð, hattur þar ofaná og risa- stór laufblaðablásari. Gestum gefst tækifæri á að kveikja á blásaranum og blása hattinum burt. Signer hef- ur verið að vinna með aulahúmor af þessari tegund,“ segir Birta Guð- jónsdóttir í Safni og er augljóslega skemmt. Signer var fulltrúi Sviss á Mynd- listar-tvíæringnum í Feneyjum árið 1999 og hafa verk hans verið sýnd víða um Evrópu og í Bandaríkj- unum. Hann hefur áður sýnt á Ís- landi; í Listasafni Íslands árið 1993, í Gallerí Slunkaríki á Ísafirði 1996 og í Nýlistasafninu í Reykjavík 1998. Báðar sýningarnar standa yfir til 10. september en opið er í Safni frá miðvikudegi til föstudags klukkan 14–18 og laugardaga og sunnudaga klukkan 14–17. Morgunblaðið/Jim Smart Verk eftir Rögnu Róbertsdóttur frá sýningunni á Safni. Myndlist | Samsýning og innsetning á Safni við Laugaveg Fólk komi með opnu hugarfari Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is www.safn.is Séan Shanahan ÞRIGGJA daga kammertónleika- dagskrá á Kirkjubæjarklaustri hefst í kvöld klukkan 21. Hátíð þessi hefur öðlast fastan sess í tónlistarlífi Ís- lands en hún var haldin fyrst fyrir fimmtán árum að frumkvæði Eddu Erlendsdóttur píanóleikara. Edda hefur síðan þá séð um listræna stjórnun tónleikanna þangað til í ár en nú er hin unga mezzósópr- ansöngkona Guðrún Jóhanna Ólafs- dóttir tekin við. Auk Guðrúnar verða flytjendur að þessu sinni þau Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleik- ari, Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngv- ari, Stefán Jón Bernharðsson horn- leikari, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Francisco Javier Jáu- regui gítarleikari ásamt Guðrúnu. Á tónleikunum verður boðið upp á fjölbreytt úrval kammertónlistar þar sem tónlistarmennirnir koma fram bæði sem einleikarar og í sam- leik. Á efnisskrá föstudagstónleikanna eru söngdúettar með gítar eftir Blangini, „Two Night Movements“ fyrir fiðlu og gítar eftir Houghton og sönglög eftir Schubert og Niel- sen. Stærsta verk kvöldsins verður síðan ljóðaflokkurinn „Haugtussa“ eftir Grieg. Á laugardagstónleikunum verða flutt sönglög eftir Dowland, John- son, Tarragó og Þorkel Sigurbjörns- son og gítarverk eftir Tárrega. Þá verður „Horntríó eftir Ligeti“ frum- flutt á Íslandi, en ungverska tón- skáldið György Ligeti lést fyrir skömmu. Þykir tónverkið eitt af bestu kammertónverkum síðustu ára en það var samið 1982. „Þetta er mjög stórt og viðamikið verk en að sama skapi mjög skemmtilegt og fallegt,“ segir Guð- rún Jóhanna en flutningur þess verður í höndum Víkings, Sigrúnar og Stefán Jóns. Á sunnudaginn munu tónleika- gestir fá að heyra „Sögu tangósins“ eftir Piazzolla, „Söng fuglanna“ eft- ir Montsalvatge, „Fimm grísk þjóð- lög“ eftir Ravel, „Mazúrka“ og „Scherzo“ eftir Chopin og „Vorið“ eftir Grieg í íslenskri þýðingu Þor- steins Gylfasonar. Hátíðinni lýkur svo með „Horntríói Brahms“. Skemmtileg blanda „Við ákváðum að vinna efnis- skrárnar svolítið út frá flytjend- unum en þetta eru allt verk sem við vildum sérstaklega flytja,“ segir Guðrún „Á hverjum tónleikum er eitt stórt verk og svo eru minni verk með því. Þannig að útkoman verður skemmtileg blanda af mjög ólíkum verkum í ólíkum framsetningum og frá ólíkum tímabilum tónlistarsög- unnar.“ Miðaverð á staka tónleika er 2.000 krónur, en 4.500 krónur ef keypt er á alla tónleikana í einu. Ellilífeyr- isþegar njóta afsláttar og börn und- ir tólf ára aldri fá ókeypis aðgang. Tónlist | Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri hefjast í kvöld Morgunblaðið/ÞÖK Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari, Stefán Jón Bernharðsson hornleikari, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari ásamt Guðrúnu. Fjölbreytt úrval kammertónlistar ÞAÐ ER skammt stórra högga á milli hjá fiðluleikaranum unga, Elfu Rún Kristinsdóttur. Fyrir skemmstu vann hún til fyrstu verð- launa í Bach-keppninni í Þýska- landi fyrir fiðluleik og í gær var það tilkynnt í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar að Elfa yrði 15. lista- maðurinn til að hljóta styrk úr minningarsjóði Jean Pierre Jac- quillat. Örn Jóhannsson ávarpaði sam- komuna í gær fyrir hönd stjórnar minningarsjóðsins. Í máli hans kom fram að hlutverk sjóðsins væri að styrkja tónlistarfólk til að afla sér aukinnar menntunar og reynslu á sviði tónlistar. Örn sagði það jafn- framt hlutverk sjóðsins að minnast stjórnandans Jean Pierre Jacquil- lat og framlags hans til íslenskrar tónlistar, en Jacquillat var að- alstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá 1980 þar til hann lést árið 1986. Til sjóðsins barst 21 umsókn í ár: „margt hið efnilegasta fólk“, eins og Örn hafði á orði. En það var semsagt Elfa Rún sem varð hlut- skörpust í ár. Í þakklætisskyni lék hún verk eftir J.S. Bach við styrk- veitinguna. Það gerði hún vel og uppskar dynjandi lófatak frá við- stöddum. „Hann hjálpar manni að gera það sem mann langar að gera,“ sagði Elfa Rún um það hvaða þýðingu styrkurinn hefur fyrir hana. „Hann auðveldar mér að fara á námskeið og einkatíma eftir að ég lýk nám- inu í febrúar. Ég starfa með kvart- ett í Berlín og það er töluverður ferðakostnaður sem fylgir því að fara á milli Þýskalands og Íslands og styrkurinn hjálpar til með það. Svo er þetta líka mikill heiður.“ Tónlist | Elfa Rún Kristinsdóttir hlýtur styrk úr minningarsjóði Jacquillats Morgunblaðið/Árni Sæberg Elfa Rún Kristinsdóttir tekur við styrknum úr hendi Arnar Jóhannssonar. Auðveldar starfið framundan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.