Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Eins og fram hefur kom-ið er Magni Ásgeirs-son nú kominn í átta
manna úrslit í raunveru-
leikaþættinum Rock Star:
Supernova, en í síðasta þætti
söng hann lagið „When
Dolphins Cry“ með hljóm-
sveitinni Live. Magni söng
lagið einn og óstuddur, vopn-
aður forláta kassagítar, og
hlaut mikið lof fyrir flutning-
inn. Áhorfendur í sal studdu
Magna dyggilega, en á meðal
þeirra voru nánir ættingjar og
vinir hans. Unnusta hans, Ey-
rún Huld Haraldsdóttir, og
sonur þeirra, Marínó Bjarni
Magnason, flugu alla leið til
Los Angeles til að styðja við
bakið á sínum manni, en með
þeim í för voru Áskell Heiðar
Ásgeirsson, bróðir Magna, og
kona hans, Vala Bára Vals-
dóttir.
Að sögn Áskels, sem er
sviðsstjóri hjá sveitarfélaginu
Skagafirði, var um mikið æv-
intýri að ræða. „Það kom nú
ekki upp fyrr en á mánudags-
kvöldinu að við færum út á
miðvikudegi þannig að það
var ekki mikill tími til þess að
pæla í þessu. Eyrún bað okk-
ur nefnilega að koma með sér
til þess að aðstoða sig með
strákinn og við slógum til,“
segir Áskell og bætir því við
að um frábæra upplifun hafi
verið að ræða. „Þetta var eins
og að vera á fyrsta flokks
rokktónleikum. En ég og kon-
an mín fórum reyndar ekkert
inn í þetta setur og við upp-
lifðum því í rauninni ekki það
sem þeir kalla raunveru-
leikaþátt, sem ég held reynd-
ar að sé eins langt frá raun-
veruleikanum og hægt er að
vera. En sjónvarpsupptakan
rann vel og var vel skipulögð,
þarna er mikið af starfsfólki
og margt um að vera,“ segir
Áskell. Fátt kom honum hins
vegar á óvart við upptöku á
þættinum sjálfum. „Það eina
sem er frábrugðið því sem við
sjáum í sjónvarpi er að viðtöl
hljómsveitarmeðlima við
keppendur eru klippt til, þau
eru miklu lengri í raun og
veru.“
Gæti vel unnið
Áskell segir að hljómsveit-
armeðlimirnir sjálfir, þeir
Tommy Lee, Jason Newsted
og Gilby Clarke, hafi komið
sér frekar eðlilega fyrir sjón-
ir. „Þetta er nú allt saman ró-
legheitafólk held ég, það er
allavega það sem Magni hefur
sagt okkur. Það er kannski
Tommy Lee sem gerir mest af
því að láta á sér bera, hann er
kannski mesti rokkarinn af
þeim,“ segir hann. „Svo eru
þeir keppendur sem við hitt-
um allt saman yndislegt fólk
og þetta virðist vera mjög
samhentur hópur,“ segir Ás-
kell og bætir því við að ekki
virðist vera mikið um blóðuga
baráttu og rifrildi á milli
keppenda. „Magna virðist
allavega hafa tekist að stýra
hjá öllu slíku, þau láta öll vel
af honum og hann virðist
bakka þau svolítið upp líka.
Hann fer yfir texta með þeim
og kennir þeim jafnvel lögin,
og svo spilaði hann líka undir
með einni stelpunni þarna í
þættinum. Þannig að þetta
virðist vera góður hópur og
skemmtilegir krakkar.“
Aðspurður segir Áskell að
hann sé búinn að velja sér sína
uppáhalds keppendur, að
Magna undanskildum. „Já,
þær Dilana og Storm eru nú í
uppáhaldi hjá mér persónu-
lega. En í þessum þætti sem
við vorum viðstödd voru þau
reyndar öll að syngja sitt
besta. En það er annars mikið
talað um hana Zayru, hún er
líklega mest umtalaði kepp-
andinn. Mér finnst hún reynd-
ar mega fara að missa sín,
þótt hún sé mikill performer.“
Áskell hefur hins vegar
fulla trú á því að litli bróðir nái
langt. „Ég er viss um að hann
verði á meðal fimm efstu og
mér þykir mjög líklegt að
hann verði á meðal fjögurra
efstu. Mér finnst hann, Dil-
ana, Storm og Lukas líkleg-
ust. Það kæmi mér svo ekkert
á óvart þótt hann verði á með-
al þriggja efstu og komist
þannig í lokaþáttinn,“ segir
Áskell og bætir því við að
hann hafi trú á því að Magni
geti unnið og orðið söngvari
Supernovu. „Mér finnst hann
allavega alveg eiga erindi í
það. Hann hefur sýnt að hann
getur sungið allar þær teg-
undir tónlistar sem bornar
hafa verið á borð fyrir þau.
Svo hefur hann náttúrulega
heilmikla reynslu úr rokkinu,
þótt hann sé ekki gamall.“
Skrítin veröld
Eins og dæmin sanna er
það ekki alltaf tekið út með
sældinni að vera rokkstjarna
og þegar Áskell er spurður að
því hvort hann haldi að Magna
langi í raun og veru til þess að
sigra segist hann ekki alveg
viss.
„Þetta er nú spurning sem
ég hef spurt mig að líka. Hann
fór nú ekki með það að mark-
miði, hann ætlaði bara að gera
sitt besta. Við töluðum um að
það væri frábært ef hann
kæmist á meðal tíu efstu. Nú
er hann á meðal þeirra átta
bestu og öruggt að hann er
ekki á leiðinni heim alveg á
næstunni. Ég held hins vegar
að hann sé alveg nógu þrosk-
aður til að takast á við það. En
hann verður auðvitað ekkert
spurður ef hann vinnur, hann
er náttúrulega búinn að skrifa
undir samninga og verður
bara að gjöra svo vel að gera
það sem þar segir. Ég held að
hann og hans fjölskylda muni
þá bara laga sig að því,“ segir
Áskell, sem segist hins vegar
ekkert sérstaklega vilja
standa í sporum litla bróður
síns.
„Nei, veistu ég held ekki, ég
ætla að vera alveg hreinskil-
inn með það. Hann hefur
ýmsa eiginleika í þetta sem ég
hef ekki. Hann hefur nátt-
úrulega fyrst og fremst hæfi-
leikana sem ég hef ekki. En
ég öfunda hann alls ekki af
þessu, ég er mjög ánægður
fyrir hans hönd og er virki-
lega stoltur af því hvernig
hann er að klára þetta.“
En ætlar Áskell aftur út til
þess að styðja enn frekar við
bakið á Magna? „Hugsanlega,
ef hann fer í úrslitaþáttinn þá
er aldrei að vita. En þetta er
náttúrlega gríðarlega langt
ferðalag, það tekur svona 20
tíma að fara frá Sauðárkróki
til Los Angeles. En það er
mikið ævintýri að upplifa
þetta og gaman að fá að kíkja
aðeins inn í þessa veröld –
þótt hún sé svolítið skrítin.“
Fólk | Stóri bróðir Magna heimsótti hann til Los Angeles ásamt fríðu föruneyti
Öfundar ekki
litla bróður
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Fimmmenningarnir í Los Angeles: Magni, Marinó Bjarni Magnason, Eyrún Huld Haralds-
dóttir, Vala Bára Valsdóttir og Áskell Heiðar Ásgeirsson.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.eeeeP.B.B. DV
S.U.S XFM 91.9
Miami Vice kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 16 ára
Miami Vice LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
The Sentinel kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Ástríkur og Víkingarnir kl. 4 og 6
Silent Hill kl. 10 B.i. 16 ára
Over the Hedge m. ensku.tali kl. 4 og 8
Over the Hedge m.ísl.tali kl. 4 og 6
Stick It kl. 8 og 10.20
Miami Vice kl. 8 og 10.40 B.i. 16.ára.
The Sentinel kl. 8 og 10 B.i. 14.ára.
Ástríkur og Víkingarnir kl.6.
Stormbreaker kl.6.
Það hefur ekki verið svikari í
leyniþjónustunni í 141 ár...
þangað til núna!
Mögnuð
spennu
mynd
í anda „
24“
eeee
„Einfaldlega frábær spennu-
mynd með toppleikurum“
K.M. - Sena
COLIN FARRELL JAMIE FOXX
ACADEMY AWARD WINNER
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
SVALASTA SPENNUMYND
SUMARSINS
eeeee
H.J. Mbl
3,75 af 4
Ó.T. Rás 2