Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sumir tala um þá RogerHodgson og Rick Davies,öxulveldið í Supertramp,sem McCartney og Lennon
áttunda áratugarins. Þetta er ekki
svo vitlaus söguskýring, því að bæði
höfðu lög Supertramp yfir sér ósvik-
inn Bítlaanda jafnframt sem vin-
sældir Supertramp við enda þess
áratugar voru gríðarlegar. Spilar
þar mesta rullu platan Breakfast in
America sem út kom 1979. Sló hún
bylmingsfast í gegn, hefur selst í um
átján milljónum eintaka í dag og
inniheldur sígilda smelli á borð við
titillagið, „Take the long way home“,
„Goodbye Stranger“ og ekki síst
„The Logical Song“ sem glumdi
linnulítið í viðtækjum hins vestræna
heims allt það ár.
Roger Hodgson hætti í sveitinni
árið 1983, en platan … Famous Last
Word … hafði komið út nokkrum
mánuðum áður, í október 1982.
Hodgson hefur gefið út fjórar sóló-
plötur eftir það en hefur haldið sig
að mestu utan sviðsljóssins – þar til
nú þ.e.a.s. Árið 1987 lenti Hodgson í
því óhappi að úlnliðsbrotna á báðum
höndum og datt því ósjálfrátt úr um-
ferð í þónokkurn tíma. Hodgson
nýtti tímann vel og hóf að endur-
hugsa líf sitt og gjörðir. Hodgson
sneri svo aftur til tónleikahalds árið
1997 og gaf út nýja hljóðversplötu
þremur árum síðar, Open the Door.
Í nóvember í fyrra hélt hann svo tón-
leika í London, en hann hafði ekki
spilað í heimalandi sínu í tuttugu og
tvö ár. Tónleikarnir virðast hafa
blásið nýju lífi í Hodgson sem túrar
nú fremur reglubundið og er mynd-
diskur væntanlegur í enda mánaðar-
ins, með upptökum frá liðnum júní,
en þá hélt Hodgson tónleika í Mont-
real. Á tónleikum leikur hann eigin
lög, bæði af sólóplötum sínum en
einnig lögin sem hann gerði ódauð-
leg með Supertramp.
Í jafnvægi
Hvað kemur til að þú ert á leiðinni
hingað?
„Ég hef unun af því að koma til
staða sem ég hef aldrei heimsótt áð-
ur. Ég hef alltaf verið nokkuð forvit-
inn um Ísland þannig að mig langaði
til að koma hingað, dvelja í nokkra
stund á landinu, hitta fólk og fá að
kynnast menningunni örlítið.“
Hversu mikilvægt er það fyrir þig að
koma fram á tónleikum, samanborið
við hljóðversvinnu?
„Nú um stundir fæ ég mikið út úr
því að spila á tónleikum fyrir aðdá-
endur mína. Það má segja að ég sé
orðinn ástfanginn af lögunum mín-
um á nýjan leik.“
Nú hættir þú í Supertramp árið
1983. Einhver sérstök ástæða?
„Þá átti ég tvö lítil börn og mig
langaði til að vera eins góður pabbi
og hægt væri. Þannig að ég tók mér
átján ára hlé frá hljómleika-
ferðalögum til að geta einbeitt mér
að uppeldinu og þeim andlegu gild-
um sem standa mér næst.“
Er nokkuð von á nýrri plötu frá
þér?
„Ég hef aldrei hætt að semja og
ætli ég eigi ekki um sextíu lög á lag-
er núna. Það getur vel verið að ég
hljóðriti þau einhvern daginn.
Það er eitt nýtt lag á nýja mynd
disknum, sem kallast „Oh brother“.
Gætir þú útskýrt fyrir mér þessa
andlegu endurfæðingu sem þú átt að
hafa gengið í gegnum?
„Ég held mér í jafnvægi með bæn-
um og hugleiðslu. Og ég er þakk-
látur fyrir það að röddin mín er betri
en nokkru sinni fyrr – allir segja mér
að röddin sé betri nú en fyrir tuttugu
og fimm árum og það er vegna þess
að ég hef virkilega passað upp á mig.
Auk þess er ég að syngja af meiri
sannfæringu en nokkru sinni áður.
Textarnir hafa meiri og dýpri merk-
ingu fyrir mér. Ég er nú, á sextugs-
aldri, farinn að fá svör við þessum
spurningum sem ég var að spyrja
mig að þegar ég var nýskriðinn yfir
tvítugt. Mér finnst eins og líf mitt sé
í meira jafnvægi nú. Það er jafnvægi
á milli vinnunnar, frístunda og vinnu
minnar að mannúðarmálum. Ég er
að sönnu þakklátur fyrir allt sem líf-
ið hefur gefið mér.“
Frelsið
Nú býrðu í Kaliforníu. Hvernig er
að vera Englendingur í Ameríku?
„Er ég var yngri dreymdi mig um
að fara til Ameríku til að sjá allar
stelpurnar í Kaliforníu. Eigi vissi ég
þá að ég ætti eftir að eyða hálfri æv-
inni þar. Frelsið í Kaliforníu höfðar
sterkt til mín og ég lít á fylkið sem
heimahagana.“
Tónleikar þínir eru fremur lág-
stemmdir en á öðrum tónleikum tefl-
ir þú fram sinfóníuhljómsveit. Af
hverju ertu að beita þessum tveimur
aðferðum ef hægt er að orða það
svo?
„Nándin á þessum „minni“ tón-
leikum heillar. Ég get tekið við óska-
lögum og leyft mér að rekast með
þeim anda sem einkennir hverja tón-
leika. Með sinfóníuhljómsveit verða
lögin eðlilega fyllri og lag eins og
„Fool’s Overture“ [af Even in the
Quietest Moments …] fær þá af-
greiðslu sem það á skilið.“
Einhver skilaboð að lokum til
aðdáenda þinna á Íslandi?
„Mig hefur lengi langað að heim-
sækja þetta einstaka, töfrum slegna
land ykkar. Vonandi mun tónlistin
mín falla ykkur í geð og ég býð ykk-
ur öllum að slást í hópinn og syngja
með!“.
Tónleikar | Roger Hodgson á Broadway
Roger Hodgson virðist hafa fundið hinn eina sanna tilgang lífsins. Hann
ljóstrar e.t.v. upp leyndarmálinu í kvöld á Broadway.
Ein af megindriffjöðrum Supertramp, Roger
Hodgson, heldur tónleika á Broadway í kvöld.
Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við tónlistar-
manninn í tilefni af því.
Það er KK sem hitar upp og hefur
hann leik klukkan 21. Miðasala er á
midi.is, í Skífuverslunum í Reykja-
vik og í BT verslunum úti á landi.
Kostar miðinn kr. 5.400. Eins
verður hægt að fá kvöldverð á
Broadway fyrir tónleika sem hefst
kl. 19. Kvöldverðinn þarf að bóka
sérstaklega á Broadway en þar er
opið á milli kl 13 og 17 alla virka
daga. Síminn er 533 1100.
Leiðin er lengri …
arnart@mbl.is
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
JOHNNY DEPP ORLANDO BLOOM KIERA KNIGHTLEY
H.J. MBL.
eee
S.U.S. XFM 91,9
PIRATES OF CARIBBEAN: DEAD MAN'S CHEST
kl. 5:30 - 6 - 8:30 - 9 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
HALF LIGHT kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.I. 16.ÁRA.
SUPERMAN kl. 5:30 - 8:30 B.I. 10.ÁRA.
THE BREAK UP kl. 5:30 - 8 Leyfð
47.000 MANNS
Á 14 DÖGUM
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
eeee
“ARR...SANNKÖLLUÐ BÍÓVEISLA
FYRIR ALLA, DEPP SJALDAN
BETRI, ÞESSI TRÍLOGÍA ENDAR Í
SÖMU HILLU OG HINAR ÓDAUÐLE-
GU INDIANA JONES MYNDIR.”
S.U.S. XFM 91,9.
“MAÐUR HREINLEGA GARGAR AF GLEÐI
VIÐ ALLT ÞETTA SJÓNARSPIL! POTTÞÉTT
SUMARMYNDIN Í ÁR SEM ALLIR HAFA
BEÐIÐ EFTIR.”
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
B.J. BLAÐIÐ
TVEIR BRÆÐUR. EIN HELGI. ENGIN SKÖMM.
HANN HEFUR EINA LANGA HELGI TIL AÐ KENNA LÍTLA BRÓÐUR SÍNUM
HVERNIG EIGI AÐ HÚKKA Í DÖMURNAR.
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
P.B.B. DV.
eeee
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
ÞAU ÆTLA AÐ NÁ AFTUR HVERFINU...
....EINN BITA Í EINU !
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9 B.I.12 ÁRA
THE LONG WEEKEND kl. 8 - 10 B.I.14 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL TALI kl. 6 Leyfð
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
MEÐ CHRIS KLEIN
ÚR “AMERICAN PIE”
MYNDUNUM.
Miami Vice kl. 5 - 8 - 11 B.i. 1
Ástríkur og Víkingarnir kl. 6 Leyfð
Pirates of the Caribbean: 2
kl. 8 - 11 B.i. 1
TRÚÐU Á HIÐ ÓKUNNA