Morgunblaðið - 24.08.2006, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
500 MILLJÓNA VIÐBÓT
Kostnaður við breytingar sem
ráðist var í á Kárahnjúkastíflu vegna
nýrra upplýsinga um misgengi á
svæðinu og vegna frétta af brestum í
steypukápu Campos Novos-
stíflunnar í Brasilíu nam um 500
milljónum króna.
Ógiltu íslenskt vegabréf
Íslendingurinn Abraham Shwaiki
kom til landsins eftir hremmingar í
Tel Aviv. Við komuna til Ísraels í
gærmorgun tók flugvallarlögreglan
á móti honum, færði hann til yf-
irheyrslu og ógilti síðan íslenskt
vegabréf hans áður en hún sendi
hann úr landi með því fororði að
hann mætti ekki snúa aftur til Ísr-
aels.
Vill afnám stimpilgjalda
Samkeppniseftirlitið leggur til af-
nám stimpilgjalda sem og upp-
greiðslugjalda af lánum. Að mati for-
stjóra eftirlitsins er samþjöppun
mikil á íslenskum bankamarkaði og
þarf að leita leiða til að draga úr að-
gangshindrunum á markaðinum.
Hafna tilboði
Íranar virðast hafna tilboði Vest-
urveldanna um margvíslega umbun
á sviði efnahagsmála og tæknilegrar
aðstoðar gegn því að þeir hætti að
auðga úran. Kínverjar og Rússar
leggja mikla áherslu á að ná fram
lausn með samningum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 26/28
Úr verinu 11 Bréf 28
Erlent 12/14 Minningar 30/32
Minn staður 16 Myndasögur 36
Akureyri 18 Dagbók 36/39
Höfuðborgin 18 Staður og stund 38
Austurland 19 Leikhús 40
Landið 19 Bíó 42/45
Daglegt líf 20/22 Ljósvakamiðlar 46
Menning 23 Veður 47
Forystugrein 24 Staksteinar 47
* * *
Kynningar - Morgunblaðinu í dag
fylgja Víkurfréttir.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Magnús H. Magnús-
son, fyrrum ráðherra
og bæjarstjóri, lést í
gær á Landakoti á 84.
aldursári. Hann var
fæddur í Vestmanna-
eyjum 30. sept. 1922,
sonur hjónanna
Magnúsar Helgason-
ar gjaldkera og
Magnínu Jónu Sveins-
dóttur húsmóður.
Magnús lauk gagn-
fræðaprófi frá MR ár-
ið 1938, prófi frá Loft-
skeytaskólanum 1946,
símvirkjaprófi með
radíótækni sem sérgrein 1948 og
fór síðan í framhaldsnám hjá Pósti
og síma.
Magnús var sjómaður á árunum
1937–42, m.a. á norsku fragtskipi á
fyrstu árum seinni heimsstyrjaldar.
Hann var bifreiðastjóri á árunum
1942–45, loftskeytamaður á togara
1946 og síðar í afleysingum. Hann
starfaði í radíótæknideild Pósts og
síma 1946–56 og var verkstjóri þar
1950–53, og yfirverkstjóri 1953–56.
Magnús gegndi stöðu stöðvarstjóra
Pósts og síma í Vestmannaeyjum á
árunum 1956–66, 1975–78 og 1983–
87. Hann var bæjarfulltrúi í Vest-
mannaeyjum 1962–82, þar af bæj-
arstjóri árin 1966–75. Hann sat á
Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn árin
1978–83. Hann var fé-
lags-, heilbrigðis- og
tryggingamálaráð-
herra 1978–80 og jafn-
framt samgönguráð-
herra frá 1979.
Magnús var varafor-
maður Byggingarsam-
vinnufélags síma-
manna 1951–54 og
formaður þess 1954–
56. Hann sat í yfir-
skattanefnd Vest-
mannaeyja 1957–62 og
í stjórn Sparisjóðs
Vestmannaeyja 1957–
78. Hann sat í fram-
kvæmdastjórn Brunabótafélags Ís-
lands frá 1966 og var stjórnarfor-
maður 1980. Magnús var
varaformaður Alþýðuflokksins
1980–84. Magnús var sæmdur stór-
riddarakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu vegna framgöngu sinnar í eld-
gosinu í Vestmannaeyjum og
uppbyggingarstarfinu sem á eftir
fylgdi.
Fyrsta eiginkona Magnúsar var
Guðbjörg Guðlaugsdóttir veitinga-
kona og eignuðust þau tvo syni.
Þau skildu. Önnur eiginkona hans
var Filippía Marta Guðrún Björns-
dóttir talsímakona og eignuðust
þau fjögur börn. Eftirlifandi eig-
inkona Magnúsar er Guðbjörg
Jónsdóttir.
Andlát
MAGNÚS H.
MAGNÚSSON
„ÞETTA var erfitt. Ég er þreyttur
og ég hlakka til að komast heim,“
segir Abraham Shwaiki, íslenskur
ríkisborgari, sem stöðvaður var við
komuna til Tel Aviv í Ísrael aðfara-
nótt miðvikudags og snúið aftur
heim til Íslands eftir tíu tíma yf-
irheyrslur. Morgunblaðið náði tali
af Abraham þegar hann var ný-
lentur með vél British Airways á
flugvellinum í Lundúnum og var á
leið um borð í vél Icelandair sem
væntanleg var til landsins seint á
tólfta tímanum í gærkvöldi.
Abraham, sem er Íslendingur af
palestínskum ættum, var á leið til
Palestínu í því skyni að heimsækja
fjölskyldu sína þegar hann var
stöðvaður af ísraelsku lögreglunni
á flugvellinum og tekinn til yf-
irheyrslu og fékk hvorki vott né
þurrt meðan á þeim stóð. Að sögn
Abrahams gerði lögreglan at-
hugasemd við
nafnið hans, en
því var breytt úr
Ibrahim í Abra-
ham til að laga
það að íslenskum
nafnareglum
þegar hann varð
íslenskur rík-
isborgari. Þá
gerðu þeir at-
hugasemd við fæðingarstað hans,
en í vegabréfinu stendur að hann
sé fæddur í Jerúsalem.
„Þeir tóku vegabréfið mitt af
mér og ógiltu það með stimpli,“
segir Abraham, sem sendur var úr
landi án farangurs síns og fékk að-
eins að halda fötunum sem hann
klæddist og farsíma sínum. Sökum
þess að vegabréfið hafði verið ógilt
og ekki var vitað hvort hann fengi
það afhent aftur hafði Díana All-
ansdóttir, eiginkona hans, sam-
band við utanríkisráðuneytið sem
gerði ráðstafanir og sendi fulltrúa
frá sendiráðinu í Lundúnum til
þess að taka á móti Abraham í því
skyni að aðstoða hann. Abraham
fékk íslenska vegabréfið afhent við
komuna til Lundúna og breskir
embættismenn flugvallarins tóku
það gott og gilt. „Ég lenti því ekki í
neinum vandræðum hér,“ segir
Abraham.
Spurður hvort það hafi ekki ver-
ið vonbrigði að geta ekki heimsótt
fjölskyldu sína úti svarar Abraham
því játandi og segir að sér hafi ver-
ið tjáð að hann mætti aldrei nokk-
urn tíma snúa aftur til Ísraels.
Hann segist hafa ferðast til Ísraels
með þetta sama vegabréf a.m.k.
þrisvar sinnum, seinast fyrir tveim-
ur árum og að engar athugasemdir
hafi verið gerðar hvorki við nafnið
hans né fæðingarstað fyrr en nú.
Spurður hvort hann kunni ein-
hverja skýringu á því hvers vegna
það hafi valdið vandræðum núna
svarar Abraham því neitandi og
segist ekki skilja þessa uppákomu.
Ísraelska flugvallarlögreglan í Tel Aviv ógilti íslenskt vegabréf
„Hlakka til að komast heim“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Abraham Shwaiki
MIKIL mildi þykir að ekki fór verr þegar lítil fólksbifreið og vörubifreið
skullu harkalega saman við Varmárbrú í Mosfellsbæ. Að sögn lögreglu var
áreksturinn geysiharður og fólksbifreiðin nánast óþekkjanleg í kjölfarið.
Tveir farþegar voru í fólksbifreiðinni sem kenndu báðir meiðsla eftir
áreksturinn. Voru þeir fluttir á slysadeild Landspítalans til frekari skoð-
unar.
Morgunblaðið/Eyþór
Skullu harkalega
saman við Varmárbrú
ÁL sem rann í gærkvöldi úr keri ál-
vers Norðuráls á Grundartanga í
rafmagnsleiðslustokka brenndi lág-
spennu- og stýrilínur með þeim af-
leiðingum að mikill reykur mynd-
aðist á svæðinu. Slökkvilið
Akraness var kallað út til að reyk-
ræsta svæðið sem og Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins. Gengu slökkvi-
störf vel. Ragnar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri fjármála- og
stjórnunarsviðs Norðuráls, segir að
viðgerðarhópur hafi verið sendur á
staðinn í gærkvöldi og vonir standi
til þess að viðgerðum ljúki í dag.
„Ef allt gengur að óskum og við-
gerðir takast í nótt, verður tjónið
einungis minni háttar.“ Ragnar
segir að það komi fyrir nokkrum
sinnum á ári að ker leki þegar fóðr-
ingin brestur. „Undir venjulegum
kringumstæðum hlýst ekki tjón af
því, en nú vildi svo óheppilega til að
álið barst í rafmagnsleiðslustokka
og bræddi lágspennustrengi,“ segir
Ragnar.
Ál brenndi
rafmagnslínur
FYRRI umferð í 8 manna úrslitum á
Íslandsmótinu í skák fór fram í
gær. Alþjóðameistarinn Arnar
Gunnarsson lagði stórmeistarann
Henrik Danielsen. Arnari nægir
jafntefli á morgun til að fella stór-
meistarann úr keppni. Þá sigraði
Héðinn Steingrímsson alþjóða-
meistarann Jón Viktor Gunnarsson
í glæsilegri skák sem aðeins tók 20
leiki. Stórmeistarinn Þröstur Þór-
hallsson gerði jafntefli með hvítu
gegn alþjóðameistaranum Braga
Þorfinnssyni, en Bragi lagði Hjörv-
ar Stein Grétarsson í 16 manna úr-
slitum. Tómas Björnsson laut í
lægra haldi fyrir Hannesi Hlífari
Stefánssyni, en sá fyrrnefndi hefur
vakið athygli fyrir vasklega fram-
göngu á mótinu.
Í dag etja þeir hinir sömu kappi
og í kjölfarið mun það ráðast hverj-
ir komast í undanúrslit. Skákirnar
hefjast kl. 17 í Skákhöllinni, Faxa-
feni 12.
Hitnar undir
stórmeisturum