Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞINGFLOKKUR Framsóknar- flokksins ákvað á fundi sínum í fyrradag að leggja til nýja skipun í þingnefndir. Birkir J. Jónsson verður formaður fjárlaganefndar, Dagný Jónsdóttir verður áfram formaður félagsmálanefndar, Guðjón Ólafur Jónsson tekur við formennsku í heilbrigðis- og trygginganefnd og Hjálmar Árna- son verður nýr formaður iðnaðar- nefndar. Enn er um einn og hálfur mán- uður þar til Alþingi kemur saman. Hjálmar Árnason, formaður þing- flokksins, sagði að mönnum hefði þótt rétt að ákveða þessar breyt- ingar nú vegna breytinga í ráð- herra- og þingliði flokksins, m.a. til að eyða óvissu. Einnig sé mik- ilvægt fyrir Birki að geta einbeitt sér að formennsku í fjárlaganefnd enda nefndin á fullri ferð við að af- greiða fjárlögin. Kristinn var erlendis Kristinn H. Gunnarsson tekur sæti í einni nefnd til viðbótar og verður hann varaformaður land- búnaðarnefndar. Hann situr áfram í sjávarútvegsnefnd og um- hverfisnefnd en hann gegnir vara- formennsku í þeim báðum. Að- spurður sagði Hjálmar að einhugur hefði ríkt um nefnda- skipan. „Kristinn var reyndar ekki á fundinum, hann var erlendis en það var ekki vitað þegar boðað var til fundarins. Þetta var afgreitt samhljóma en ég geri ráð fyrir að Kristinn hafi viljað sinn veg meiri, en það geta ekki allir verið for- menn í nefndum, það segir sig sjálft þar sem við eigum bara for- mennsku í fjórum nefndum,“ sagði Hjálmar. Haustið 2004 var Krist- inn ekki valinn í neina þingnefnd en hann hafði fram að því m.a. gegnt formennsku í iðnaðarnefnd í eitt ár auk þess sem hann átti sæti í efnahags- og viðskiptanefnd og samgöngunefnd. Í flestum tilvikum verða breyt- ingarnar ekki að veruleika fyrr en Alþingi kemur saman í haust. Í þeim tilvikum sem þingmenn eiga þegar sæti í nefndum munu breyt- ingarnar hins vegar væntanlega eiga sér stað strax á næstu fund- um nefndanna. Þetta á m.a. við um Birki J. Jónsson í fjárlaganefnd og Guðjón Ólaf Jónsson en þeir eiga nú þegar sæti í þeim nefndum sem þeir taka við formennsku í. Engir ráðherrar sitja í fasta- nefndum Alþingis og því skipta sjö þingmenn Framsóknarflokksins með sér nefndarstörfum en alls eru fastanefndirnar 12 talsins. Guðjón Ólafur Jónsson tekur við formennsku í heilbrigðis- og trygginganefnd af Jónínu Bjart- marz, Birkir Jón Jónsson tekur við af Magnúsi Stefánssyni sem formaður fjárlaganefndar og Hjálmar Árnason tekur við for- mennsku í iðnaðarnefnd af Birki Jóni. Guðjón Ólafur tók sæti á Al- þingi þegar Árni Magnússon lét af starfi félagsmálaráðherra og sagði af sér þingmennsku og Sæunn Stefánsdóttir tekur sæti á Alþingi í haust í stað Halldórs Ásgríms- sonar. Þingmenn Framsóknarflokksins sitja yfirleitt í 3–4 nefndum Þrír nýir formenn fastanefnda                                      !                         "   #  $             %  &       "     '          "                ##               (  )             *    +   ( %           ##     "#      +                 *    ,-  ,         "   #  $       "     '               Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is BIRKIR J. Jónsson er yngsti formaður fjár- laganefndar Alþingis frá upphafi eða frá því slíkar nefndir voru sett- ar á laggirnar árið 1916. Áður hétu þær reynd- ar fjárveitinganefndir og störfuðu í báðum deildum þingsins frá 1916–1934 en eftir það starfaði ein fjár- veitinganefnd í sameinuðu þingi. Samkvæmt upplýsingum sem skrifstofa Alþingis tók saman um formenn fjárveit- inganefndar frá 1934 er algengast að þeir séu um eða yfir fimmtugu þegar þeir taka við formennsku í nefndinni. Yngsti for- maður nefndarinnar fram til nú er Karl Guðjónsson sem var 39 ára þegar hann tók við formennsku árið 1956. Birkir J. Jónsson slær því metið svo um munar en hann er 27 ára, fæddur 24. júlí 1979. Hann hefur setið í fjárlaganefnd frá árinu 2003 og tók við formennsku í iðn- aðarnefnd árið 2004. Þá hefur hann setið í félagsmálanefnd, samgöngunefnd og sjáv- arútvegsnefnd. Það er þó ekki algjör nýlunda að ungum þingmönnum Framsóknarflokksins séu fal- in ábyrgðarstörf og má t.d. benda á að Ey- steinn Jónsson var 27 ára þegar hann var skipaður fjármálaráðherra árið 1934 og er hann yngsti maður til að verða ráðherra, fyrr og síðar. Yngsti formaður fjárlaganefndar frá upphafi Birkir J. Jónsson LÖGREGLUEMBÆTTI lands- ins ætla að hafa öflugt eftirlit við grunnskóla í upphafi skólaárs, þar sem ungir vegfarendur eru á ferð. Lögreglubílum verður kom- ið fyrir við skólana og hraðamæl- ingar gerðar í nágrenni þeirra. Foreldrar hvattir til að fylgjast með Þá hefur verið ákveðið að lög- reglan muni fylgjast náið með útivistartíma barna og ungmenna en um næstu mánaðamót breyt- ast reglurnar úr sumartíma yfir í vetrartíma og þá mega börn yngri en 12 ára ekki vera á al- mannafæri eftir kl. 20 og börn 13 til 16 ára ekki vera á almanna- færi eftir kl. 22 nema um sé að ræða beina heimferð frá viður- kenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Foreldrar eru hvattir til að sjá til þess að börn þeirra virði úti- vistarreglurnar. Eftirlit lögreglu við skóla og með útivistartíma MATFUGL ehf. áformar að stækka kjúklingabú sitt að Melavöllum á Kjalarnesi úr 28 þúsund stæðum í allt að 84 þúsund stæði. Hvert stæði merkir einn fugl. Skipu- lagsstofnun hefur metið stækkunina svo að hún sé ekki matsskyld vegna umhverfisáhrifa. Ráðgert er að byrja á stækkuninni í haust. Einnig hafa verið áform um að stækka kjúklingabú fyrirtækisins á Móum á Kjalarnesi, en það mál er í biðstöðu, að sögn Friðriks Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Matfugls. Hann sagði að stækkunaráformin byggðust á mjög aukinni spurn eftir kjúklingakjöti. „Það er veruleg aukning á kjúklinganeyslu og við þurfum að anna aukinni eftirspurn. Við þurfum að hugsa fram í tímann því það tekur svolítinn tíma að bregðast við aukinni neyslu,“ sagði Friðrik. „Kjúklingakjöt er langódýrasta kjöt sem framleitt er á Íslandi. Við erum að hugsa um að tryggja neytendum áfram eðlilegt framboð á kjúklingum og áframhaldandi lágt verð.“ Sala á alifuglakjöti hafði aukist hér innanlands um 11,7% á einu ári til maí síðastliðins og nam hlutdeild þess 27,1% í kjötsölu innanlands á sama tíma. Matfugl ehf. er stærsti framleiðandi kjúklingakjöts hér á landi. Auk búanna á Móum og Melavöllum á Kjal- arnesi er Matfugl með kjúklingabú á Dalvík, að Hurð- arbaki í Svínadal, á Miðfelli nálægt Flúðum, í Eskiholti og Svartagili í Borgarfirði. Stækka kjúklingabú vegna aukinnar neyslu Morgunblaðið/Þorkell FULLTRÚUM Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna og Félags íslenskra bifreiðaeigenda tókst í gær að ljúka hringferð sinni um landið á einum eldsneytistanki. Með því tryggði SKB sér afnot af nýrri Skodabifreið frá Heklu í eitt ár. Ferðin var farin á nýjum Skoda Oc- tavia með TDI® dísilhreyfli og voru 55 lítrar af eldsneyti á tönkum bíls- ins þegar lagt var af stað. Ökumaður í ferðinni var Stefán Ásgrímsson, ritstjóri hjá Félagi ís- lenskra bifreiðaeigenda, en honum til aðstoðar þau Óskar Örn Guð- brandsson, framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, og Þuríður Arna, fjögurra ára dóttir Óskars, en hún greindist með góðkynja æxli í höfði fyrir tveimur árum. Tekið var á móti ferðalöngunum af starfsmönnum Heklu við höf- uðstöðvar félagsins og þeim afhent blóm og lyklar að bifreiðinni. Við opnun nýs sýningarsalar Skoda á Laugavegi 172 sl. laugardag fengu samtökin einnig 500 þúsund kr. fjár- styrk frá Heklu. Lagt var af stað í ferðina frá Reykjavík á mánudag og þegar hringnum lauk rúmum tveimur sól- arhringum síðar var ennþá nægilegt eldsneyti á tanki bílsins. Var því ákveðið að halda áfram og sjá hvert bifreiðin kæmist. Bifreiðin varð olíu- laus í Víðidal í Húnavatnssýslu á sjö- unda tímanum í gærkvöldi og komst hún því 208 km til viðbótar hring- ferðinni. Þegar haft var samband við víðförulan bílstjórann, sagði Stefán að ferðin hefði gengið mjög vel og ekkert komið á óvart, nema þá helst hversu Þuríður Arna stóð sig vel. Hópurinn var staddur í Stað- arskála í kvöldmat og hafði í hyggju að snúa heim á leið um áttaleytið í gær. Meðaleyðsla í ferðinni var 3,63 lítrar á hundraðið en á síðasta leggnum var eyðslan þó ennþá minni eða 3,4 lítrar. Nóg eldsneyti eftir þegar hringnum lauk Óskar Örn, Þuríður Arna og Stefán við bílinn góða þegar þau höfðu lokið við að aka hringveginn á einum dísiltanki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.