Morgunblaðið - 24.08.2006, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 24.08.2006, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 9 FRÉTTIR www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Str. 36-56 Vorum að taka upp nýja sendingu af kápum og jökkum NÝTT FRÁ NATURALIZER iðunn tískuverslun Kringlunni, s. 588 1680 • Laugavegi 40, s. 561 1690 STÆRÐIR 37 - 42 FÁST Í TVEIMUR BREIDDUM Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Útsölulok á laugardag 75% afsláttur ÚTSÖLULOK Útsölu lýkur föstudaginn 25. ágúst Miklar lækkanir í 4 daga! Minnst 50% afsláttur. Laugavegi 82, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Haust 2006 Kjólar við buxur Bæjarlind 6, sími 554 7030 Finnurðu ekki stærðina þína? Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970 Saumum buxur eftir pöntun Tilbúnar stærðir 38-50 eða sérpöntun Opið: mán.-fös. kl. 14-18. buxur.is Laugavegi 63 • s: 551 4422 Skoðið úrvalið á laxdal.is Haustlínan ÞEIM nemendum framhaldsskóla sem vinna meira en þrjátíu klukku- stundir á mánuði með námi gengur að jafnaði betur í skólanum en þeim nemendum sem vinna lítið eða ekk- ert. Þeir nemendur sem vinna meira en þrjátíu klukkustundir á mánuði nota hins vegar minni tíma til heima- vinnu en aðrir nemendur, þeir fara seinna að sofa og eru meira fjarver- andi í skólanum. Þetta kemur fram í könnun þriggja félagsfræðinga á vinnu framhaldsskólanema í þremur framhaldsskólum á höfuðborg- arsvæðinu sem unnin var vorið 2005. Skólarnir sem um ræðir eru Fjöl- brautaskólinn við Ármúla, Mennta- skólinn í Kópavogi og Kvennaskólinn í Reykjavík. Niðurstöður könnunarinnar sýna að 65% nemenda vinna með námi en könnunin sýnir jafnframt að þeir nemendur sem vinna með námi hafa minni tengsl við skólaumhverfi sitt en þeir nemendur sem ekki vinna með námi en almennt finnst nemendum sem vinna ekki með námi skemmti- legra í skólanum en þeim nemendum sem vinna með náminu. Þar skiptir litlu hvort nemendur vinni lítið eða mikið en að öðru leyti er hópurinn sem vinnur lítið með skóla líkur hópn- um sem vinnur ekki með skóla. Kyn og aldur ásamt menntun for- eldra hafa áhrif á vinnu með skóla og stúlkur vinna mun frekar með námi en piltar samkvæmt könnuninni. Þá vinna eldri nemendur fremur en yngri nemendur og vinna eykst í samræmi við hversu langt nemendur eru komnir í náminu. Alls svöruðu 825 nemendur könn- uninni sem var styrkt af Þróunarsjóði framhaldsskóla. Nemendum sem vinna með námi gengur að jafnaði betur í skólanum ÍSLENDINGAR töpuðu óvænt fyrir Eistlandi, 5:25, í 26. umferð Evr- ópumótsins í brids í gær og duttu við það úr 4. sætinu í það 6. Liðið vann San Marínó, 25:3, í 27. umferð í gærkvöldi og er nú í 5.–6. sæti ásamt Svíum með 471 stig. Ítalir eru langefstir með 550 stig eftir 27 umferðir, Norðmenn eru með 497 stig, Írar 487 og Hollendingar 474 stig. Í kvennaflokki tapaði Ísland fyrir Tyrkjum, 1:25, og Króötum, 8:22 í gær og er liðið í 22. sæti. Í opnum flokki spila Íslendingar við Rúmena, Serba og Letta í dag en í kvennaflokki við Englendinga, Finna og Svía. Óvænt tap fyrir Eistlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.