Morgunblaðið - 24.08.2006, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Garðabær | Umferð verður um
miðjan næsta mánuð hleypt á nýja
brú yfir Reykjanesbraut þar sem
brautin liggur í grennd við nýja
verslun Ikea í Urriðaholti í Garða-
bæ. Til stendur að opna verslunina
fimmtánda september og sama
dag er áætlað að vígja brúna.
Skrauta ehf. hefur steypt brúna
og er það nýjasti áfanginn í bygg-
ingu hennar.
„Vinnu við að steypa brúna er
lokið, rétt rúmum tveimur mán-
uðum eftir að fyrir lá hvar undir-
staðan átti að vera. Þetta er al-
vöru umferðarmannvirki,
sambærilegt við brýr yfir Vest-
urlandsveg, Víkurveg og
Stekkjarbakkabrýrnar. Það hefur
gengið alveg skínandi og þessi
tími verður seint jafnaður,“ segir
Halldór Ingólfsson, sem er stað-
arstjóri verkefnisins. Glaumur
ehf. og Klæðning ehf. sjá um verk-
ið.
Brúin er ekki tilbúin og rétt
rúmar þrjár vikur þangað til að
hún verður opnuð.
„Það er eftir að strekkja hana
og svo förum við að færa umferð-
ina til og frá. Mikil föndurvinna er
fram undan á mjög skömmum
tíma,“ segir Halldór.
Morgunblaðið/Eggert
Steypuvinnu brúar
í Urriðaholti lokið
Reykjavík | Mikill meirihluti
foreldra barna hjá dagfor-
eldrum í Reykjavík er ánægður
með þjónustu dagforeldra.
Hlutfallið er yfir níutíu af
hundraði skv. niðurstöðum við-
horfskönnunar sem gerð var í
júní sl. af Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands og kynnt hefur
verið menntaráði. Náði könn-
unin til á sjötta hundrað for-
eldra barna hjá dagforeldrum.
Könnunin leiddi í ljós að rúm-
ur þriðjungur foreldra hafði
barn sitt hjá dagforeldri í öðru
hverfi en þeir bjuggu og störf-
uðu. Meirihluti svarenda var
þeirrar skoðunar að ekki hefði
verið úr nógu mörgum dagfor-
eldrum að velja þegar leitað var
eftir vistun fyrir börnin og
50,7% svarenda sögðust fremur
hefðu kosið vistun fyrir barnið í
leikskóla en hjá dagforeldri.
Töldu foreldrar að í leikskóla
væri starfið skipulagðara og
engin hætta væri á óvæntum
fríum eða veikindum.
Aðspurðir hvers vegna for-
eldrar veldu dagforeldra fram
yfir leikskóla sögðust rúm 80%
foreldra hefðu valið dagforeldra
vegna þess að þeim fannst
barnið of ungt til að fara á leik-
skóla, en 75% barnanna voru
yngri en ársgömul.
Meðalstarfsaldur 11 ár
Gagnadeild menntasviðs hef-
ur jafnframt unnið könnun með-
al 130 dagforeldra í Reykjavík.
Meðal niðurstaðna könnunar-
innar er að meðalstarfsaldur
starfandi dagforeldra í Reykja-
vík er ellefu ár.
Þriðjungur dagforeldra hefur
leitað til þjónustumiðstöðva í
sínu hverfi til að fá ráðgjöf eða
stuðning í starfi og eru 93%
dagforeldra þeirra sem ráðgjöf-
ina þáðu mjög eða frekar
ánægðir með þá ráðgjöf sem
þeir fengu.
Er meirihluti dagforeldra
jafnframt þeirrar skoðunar að
breyting sú sem fólst í því að
aðskilja ráðgjöf með daggæslu,
annars vegar, og eftirlit með
henni, hins vegar, hafi verið já-
kvæð.
Ánægja með
dagforeldra
SAMÚEL Jóhannsson sem stóð í
marki knattspyrnuliða ÍBA og Þórs
í gamla daga stendur nú á sextugu.
Og er enn í marki – flutti nefnilega
„yfrum“ fyrir tveimur árum ásamt
eiginkonunni Rögnu, þau byggðu
hús í Vaðlaheiðinni með glæsilegu
útsýni yfir Akureyri og fram í fjörð.
Og húsið heitir Mark.
Börn og unglingar norðan Glerár
á Akureyri þekkja Samma sem for-
stöðumann íþróttamiðstöðvar Gler-
árskóla en þeir sem eldri eru þekkja
líka myndlistarmanninn Samúel;
myndverkamanninn eins og hann
kýs reyndar að nefna það.
Sammi á sama afmælisdag og Ak-
ureyri og verður sextugur á þriðju-
daginn. „Bærinn er yfirleitt
skemmtilega skreyttur þennan dag
á 25 ára fresti, það hefur oft verið
gríðarlega skemmtilegt – en ég
reyndar aldrei tengdur því sér-
staklega!“ sagði Samúel er Morg-
unblaðið heimsótti hann í Markið í
góða veðrinu. Í sumar hefur hann
sýnt málverk í gamla barnaskól-
anum, Rósenborg, í tilefni afmæl-
isársins og þær verða til sýnis fram
eftir sumri. Sammi hefur lengi haft
þörf fyrir að mála og „unnið stöðugt
í málverki frá 1980 með hinni
vinnunni. Frelsi mitt liggur í því að
stunda vinnu og hafa þau laun að
geta staðið í skilum, borgað reikn-
inga og annað slíkt, og ég get því
gert það sem mér sýnist í málverk-
inu. Ég er engum háður og þarf ekki
að hafa áhyggjur af því hvort eitt-
hvað selst eða ekki.“
Samúel hefur á orði að íþróttalíf
og myndverkalíf séu ótrúlega ólíkir
heimar. „Í íþróttum skiptir gerand-
inn öllu máli; ef hann er ekki sjáan-
legur er ekkert gaman, en mér
finnst að gerandinn í myndverki
eiga að vera nær ósýnilegur. Ef fólki
finnst listaverk fallegt skiptir ekki
máli hver gerði það eða hvað hann
er lærður. Listin snýst stundum of
mikið um umbúðir og hávaða; feg-
urð felst oft í lítillæti og feimni. Það
gleymist stundum að listaverkið
sjálft er það eina sem skiptir máli.“
Byggð hefur aukist mjög í Vaðla-
heiðinni síðustu ár enda staðurinn
góður og útsýnið með eindæmum
fallegt. Þegar Sammi er spurður
hvers vegna þau Ragna ákváðu að
flytja frá Akureyri og þarna yfir
segir hann þau lengi hafa velt þessu
fyrir sér.
„Við vildum ekki fara í elliblokk,“
kallar Ragna allt í einu úr fjarska og
Sammi botnar með því að segja að
tímabært hafi verið að minnka við
sig íbúðarhúsnæði og þau því farið
úr 240 fermetrum í 300!“ Til þess að
þetta komi heim og saman verður að
nefna að á neðri hæð hússins er
Sammi með vinnustofu og sýning-
arsal í 100 fermetrum.
„Ég velti því lengi fyrir mér að
flytja í sveit ef ég fyndi fallegan
stað, keyrði mikið í nágrenni Ak-
ureyrar og hér fann ég þetta frá-
bæra útsýni, í landi Syðri-Varð-
gjár.“
Hann segir marga stórhneykslaða
á þeim hjónum að standa í svona
brasi, komin á þennan aldur. „En ég
er ekki orðinn gamall ennþá, er bara
sextugur og hér er óskaplega gott
að vera.“Alveg æðislegt! segir hann
svo brosandi og horfir yfir fjörðinn.
Segist í góðri aðstöðu til þess að
fylgjast með flugi og skemmti-
ferðaskipum.
Samúel nefnir að líklega sé ekki
heppilegt að búa á þessum stað með
börn á þeim aldri sem þarf að skutla
mikið á íþróttaæfingar eða í álíka
ferðalög, en að öðru leyti sé það al-
gjör draumur. „Það er mjög þrosk-
andi að fara reglulega yfrum og
vera fyrir handan,“ segir Samúel og
mælir eins og ekta Akureyringur,
sem hann vitaskuld er.
Þau voru lengi að finna nafn á
húsið og þótti skipta miklu máli að
vanda valið.„Mörg nöfn komu til
greina, mér fannst Mark dálítið per-
sónulegt og efaðist, en Ragna var
ákveðnari. Orðið hefur margvíslega
merkingu og sumir flissa auðvitað
og segja: Sammi, bara alltaf í
marki!“
En allir eru hrifnir af staðnum:
Kona kom í Mark um daginn og
sagði við heimilisfólkið: Það ætti að
banna fólki að vera hérna! Stað-
urinn er svo yndislegur að maður
getur ekki annað en verið hamingju-
samur allan sólarhringinn, en það er
samt ekki hægt að vera þannig!
„Ég skil vel bændurna sem hafa
verið í svona fallegri sveit lengi og
ekki viljað fara,“ segir Samúel.
Markvörðurinn
sem býr í Marki
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Frábært útsýni Samúel Jóhannsson á svölunum í Marki: Ég skil vel bænd-
urna sem hafa verið í svona fallegri sveit lengi og ekki viljað fara!