Morgunblaðið - 24.08.2006, Side 19

Morgunblaðið - 24.08.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 19 MINNSTAÐUR AUSTURLAND LANDIÐ Hallormsstaður | 20 sérfræðingar og vísindamenn frá 7 lönd- um hafa undanfarna daga þingað á Hallormsstað um orku- notkun og orkuframleiðslu með viðarafurðum, um gróður- húsaáhrifin og möguleika grænnar orku á næstu árum og áratugum. Margir kynnu að ætla að eldiviðarkynding ætti lít- ið erindi inn á íslenskan orkumarkað. Hins vegar hefur verið sýnt fram á að hún er raunhæfur kostur á köldum svæðum og með henni skapast markaður fyrir sívaxandi afurðir skóg- arbænda. Þetta segir Loftur Jónsson, skógfræðingur hjá Skógráðum ehf., en fyrirtækið stóð að hinni alþjóðlegu eldi- viðarráðstefnu ásamt Héraðsskógum og Skógrækt ríkisins á Hallormsstað. „Það hefur margt gott komið út úr þessari ráðstefnu,“ sagði Loftur í samtali við Morgunblaðið. „Menn fóru til dæmis í gagngera umræðu um kolefnisbindingu, m.a. út frá þeirri skógrækt sem er í gangi hérlendis. Búið er að setja upp í Vallanesi á Fljótsdalshéraði mjög þróuð tæki sem mæla flæði kolefnis í andrúmsloftinu. Ef það minnkar er kolefnið að bind- ast í gróðri eða jarðvegi og ef kolefnið eykst er það að losa. Tækin mæla kolefnisflæðið nettó yfir árið og hvað flatarein- ing af lerkiskógi bindur mikið.“ Loftur segir veðurfarslíkan fyrir Skandinavíu gefa til kynna að skógarnir þar muni binda um 20% meiri koltvísýring eftir 70 ár en nú. „Við ljóstillífun er sólarljósið að binda koltvísýring í andrúmslofti í sykrur í plöntum og við að hann eykst í andrúmslofti hækkar hitastig- ið og það eykur vöxtinn. Um leið er hærra hlutfall af koltví- sýringi til að binda. Þetta gerir að verkum að skógarnir í Skandinavíu eiga skv. veðurlíkaninu eftir að binda 20% meira eftir 70 ár en þeir gera í dag. Þetta er vopn í baráttu við gróð- urhúsaáhrifin og gerir auðveldara um vik að snúa þróuninni við ef það er á annað borð hægt. Og fyrir bændur og rækt- endur hefur þetta heilmikla praktíska þýðingu því reikna má með 20% meiri vexti og arðsemi á því sem þeir eru að fram- leiða.“ Umhverfisvæn viðarorka kyndi byggð á Hallormsstað „Okkar þátttaka í þessu verkefni tengist köldum svæðum, t.d. fyrir austan þar sem ekki er hitaveita, t.d. á Hallormsstað þar sem er hráefni fyrir hendi og ekki önnur einföld eða hag- kvæm orkulausn í sjónmáli. Menn eru byrjaðir í litlum mæli að nota við til heimilisnota og það sem við erum að hugsa um er fyrir skólann, íþróttahúsið og gistiálmuna, það væri fyrsti áfangi og vonandi síðan allur staðurinn. Við höfum þannig áhuga á að gera Hallormsstað að módeli fyrir viðarkyndingu og það er ekki betri staður til á Íslandi til þess. Í erindi frá Orkusetri kom m.a. fram að rafkynding er að stórum hluta niðurgreidd af ríkinu og er því í raun ekki eins hagstæð fjárhagslega og reikningar neytenda benda til, m.v. aðra kyndingarkosti. Ef við berum okkur saman við rauntölur lítur viðarkynding því ekki illa út.“ Eldiviðarverkefnið hefur verið í gangi í tvö ár og lýkur á því næsta. Loftur segist vilja að þá verði komin upp kyndistöð á Hallormsstað. „Ég held að það sé alveg sama hversu margar ráðstefnur eru haldnar og margir sérfræðingar kvaddir til. Það skilar miklu meiru að sjá eina kyndistöð sem virkar og nýtist samfélaginu. Þar er umhverfisvæn orka úr sjálfu sam- félaginu og fjárfesting í vinnuafli í byggðinni (t.d. af því að nágranni þinn vinnur við að grisja skóginn). Það á eftir að hafa úrslitaþýðingu fyrir skógræktarverkefnin að skapa markað fyrir skógarafurðir.“ Kolefnisflæði mælt með háþróuðum tækjum á Héraði til að meta bindingu lerkis á kolefni Viðarkynding og kolefnisbinding í brennidepli Morgunblaðið/Jim Smart Skógnytjar Skógræktarmenn líta á viðarkyndingu kaldra svæða sem raunhæfa, hagkvæma afurðanýtingu. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Húsavík | Það vakti athygli í Reykjavík- urmaraþoninu um síðustu helgi að 10 ára gutti frá Húsavík tók þátt í hálfmaraþoninu sem alla jafna er aðeins fyrir hlaupara 16 ára og eldri. Patrekur heitir hlauparinn og er Gunnlaugsson en með honum fór í hlaup- ið 15 ára bróðir hans, Ármann Gunn- laugsson. Hálft maraþon er 21 km og sagði Patrekur að það hefði verið svolítið erfitt en þó ekki meira en svo að hann stefnir á að fara aftur að ári. Patrekur, sem verður 11 ára síðar á árinu, sagðist ekki hafa æft hlaup fram að því að hann ákvað að taka þátt í Reykjavík- urmaraþoninu en æft vel fyrir það. Hann æfði sig á því að hlaupa hringinn í kringum Botnsvatn, sem er rétt ofan Húsavíkur, og þegar nær dró hljóp hann fjóra hringi í kringum það en það er svipuð vegalengd og hálfmaraþonið. Patrekur sagðist hafa hlaupið hringina fjóra á 2 klst. og 30 mín. en bætt um betur og farið hálfmaraþonið á 2 klst. og 17 mín. „Ég er að hugsa um að fara æfa hlaup en ég hef hingað til verið í hand- bolta og fótbolta,“ sagði þessi magnaði hlaupagikkur. Ljósmynd/Ómar Friðriksson Patrekur Gunnlaugsson, tíu ára gamall, var yngstur þeirra sem hlupu hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoni. Tíu ára gamall gutti hljóp hálft maraþon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.