Morgunblaðið - 24.08.2006, Page 24

Morgunblaðið - 24.08.2006, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. LEITAÐ AÐ DRAUMAVIRKJUNINNI Í umræðum undanfarinna ára umorkumál og virkjunarkosti hafaýmsir, þar á meðal Morgunblað- ið, bent á þann möguleika að sátt gæti náðst milli umhverfisverndarsinna og virkjunarsinna um jarðvarmavirkjan- ir, fremur en vatnsaflsvirkjanir. Það hefur byggzt á þeirri forsendu, að jarðvarmavirkjanir valdi minni rösk- un á náttúru og landslagi en vatnsafls- virkjanirnar með sínum stóru stíflum, skurðum, uppistöðulónum og breytt- um farvegi stórfljóta. Hins vegar virðist sem ekki ríki full sátt um jarðvarmavirkjanir, sem risið hafa á allra seinustu árum. Vaxandi gagnrýni er þannig á virkjanafram- kvæmdir Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði, sem voru ekki mjög um- deildar þegar þær voru kynntar al- menningi. Nú blasa mannvirkin hins vegar við og sitt sýnist hverjum. Stefán Erlendsson, leiðsögumaður hjá Eldhestum, sem gjörþekkir Hellisheiðina og Hengilssvæðið, skrif- aði þannig grein í Morgunblaðið í fyrradag og andmælti áformum OR um fleiri virkjanir á Hellisheiðinni. „Með því að sjá í gegnum fingur sér er vel hægt að lifa með Hellisheiðarvirkj- un og þeim breytingum sem verða á umhverfi og náttúru Hengilssvæðisins með tilkomu hennar. Frekari fram- kvæmdir á svæðinu munu hins vegar valda meiri umhverfisspjöllum en ásættanlegt er,“ skrifar Stefán. Hann bætir við: „Jarðgufuvirkjanir sem reistar verða til að mæta eftir- spurn eftir raforku til stóriðju munu gerbreyta ásýnd landsins með meiri sjónmengun en flesta órar fyrir.“ Í fréttaskýringu Rúnars Pálmason- ar í Morgunblaðinu í gær var fjallað um frekari virkjunaráform á Hellis- heiði. Þar er haft eftir Eiríki Braga- syni, staðarverkfræðingi Hellisheið- arvirkjunar, að lagnir vegna hinna nýju virkjana, sem áformaðar eru, verði mun torsýnilegri en lagnir vegna núverandi Hellisheiðarvirkjunar; ým- ist niðurgrafnar eða faldar á bak við manir þannig að þær sjáist ekki frá þjóðveginum eða þeim svæðum, sem fólk fer mest um. Jafnframt kemur fram í máli Eiríks að hönnunarvinna vegna nýrra virkjana á Ölkelduhálsi og í Hverahlíð miðist við að virkjan- irnar verði sem torsýnilegastar og að hluta til neðanjarðar. „Þar með væri draumavirkjunin líklega komin, virkj- un sem hefði óveruleg umhverfisáhrif og væri ekki sýnileg,“ segir í endur- sögn á orðum Eiríks. Þessi viðleitni OR er að sjálfsögðu afar jákvæð, en vekur engu að síður þá spurningu, hvort Hellisheiðarvirkjun, sem nú er risin, hefði getað fallið bet- ur inn í landslagið og valdið minni sjónmengun en raun ber vitni og nú er gagnrýnt. Eiríkur svarar því játandi, þegar blaðamaður Morgunblaðsins spyr hann hvort hægt hefði verið að grafa lögnina, sem liggur undir Suður- landsveg, rétt fyrir neðan Hveradala- brekku, í jörð. Rekstrarsjónarmið, þ.e. viðhald og kostnaður, hafi hins vegar vegið þyngra. Af þessu má draga þá ályktun, að það er ekki sama jarðvarmavirkjun og jarðvarmavirkjun. Með því að beita öðrum aðferðum og læra af reynslunni af þeim virkjunum, sem þegar hafa verið reistar, má líkast til draga veru- lega úr umhverfisáhrifum slíkra virkj- ana. Umræður um mismunandi að- ferðir og kosti í þessum efnum eru nauðsynlegar þegar leitazt er við að skapa sátt um „draumavirkjunina“. NÝTT STÓRÁTAK Í VEGAMÁLUM Að undanförnu hafa farið frammiklar umræður um umferðar- slys. Ástæðan er sú, að hér verða of mörg dauðaslys í umferðinni og of mörg alvarleg slys á fólki. Í þessum umræðum hefur verið bent á þær hættur, sem stafa af mikilli og óvar- legri umferð flutningabíla um vega- kerfi, umferð fólksbíla með önnur tæki aftan í sér svo sem hjólhýsi eða fellihýsi. Athyglin hefur líka beinzt að miklum hraðakstri. Það blasir við að vegakerfi okkar ræður ekki við þessa umferð. Þótt stórstígar framfarir hafi orðið í vega- gerð á síðustu áratugum eru þjóðvegir tiltölulega mjóir og bera ekki auðveld- lega þá umferð, sem um þá fer. Þess vegna er nú tímabært að efna til nýs stórátaks í vegamálum. Átak, sem er í sjálfu sér jafnstórt og hin upphaflega lagning malarvega um land allt, sem var að sjálfsögðu meiri háttar afrek hjá fátækri þjóð. Átak, sem er jafnviðamikið og það átak, sem lagt var í að leggja vegi með varanlegu slitlagi um allt land, sem raunar er ekki alveg lokið. Nú er tímabært að hefja stórátak við að byggja aðra akrein við þjóð- vegakerfið. Til lengdar getum við ekki búið við það ástand að byggja á tiltölulega mjóum vegum, þar sem bílar geta tæp- lega mætzt. Við verðum að byggja aðra akrein við þjóðvegakerfið allt til þess að ástandið verði viðunandi. Það er eina leiðin til þess að koma í veg fyr- ir að vegfarendur um þessa vegi verði nánast í stöðugri lífshættu úti á veg- um. Ástandið á vegunum kallar á svona stóra framkvæmd. Og við höfum efni á því að byggja upp aðra akrein á hring- veginum á nokkrum árum. Við þurfum að sjálfsögðu að átta okkur á því hvernig á að fjármagna slíka framkvæmd. Undanfarið hafa komið upp hugmyndir um samgöngu- mannvirki í einkaframkvæmd, sem eru allrar athygli verðar. Jafnframt má spyrja hvort það sé óeðlilegt að eigendur stórra flutningabíla, felli- hýsa og hjólhýsa, sem hafa á skömm- um tíma aukið mjög þörfina fyrir betri vegi, borgi meira en aðrir notendur vegakerfisins fyrir nauðsynlegar um- bætur á því. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra þarf að láta reikna út hvað slík framkvæmd mundi kosta mikið og á hve mörg árum raunhæft væri að ljúka slíku verki. Út af fyrir sig má segja, að það sé byrjað með tvöföldun Reykja- nesbrautar en við þurfum að setja okkur framtíðarmarkmið í þessum efnum og gera okkur grein fyrir um hve mikla fjárfestingu yrði að ræða. Ástandið á vegunum verður ekki viðunandi með öðrum hætti. Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is N auðsynlegt er að koma á miðlægri fræðslu til handa grunnskólum um hvernig þjónusta eigi börn sem þurfa sértæk úrræði í námi. Fjárveitingar borgar- innar til málaflokksins hafa staðið í stað eða lækkað þrátt fyrir að kjara- samningar hafi aukið kostnað skól- anna. Þetta segir Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri Háteigsskóla, um málefni sérgreindra barna, en það eru börn sem vegna líkamlegrar eða andlegrar fötlunar þurfa stuðning við nám sitt. „Í almenna hluta aðalnámskrár grunnskólanna segir að öll börn eigi rétt á að stunda nám í sínum heima- skóla. Íslendingar eru skuldbundnir samkvæmt Salamanca-yfirlýsingunni en stjórnvöld undirrituðu hana árið 1994 en í henni er þessi stefna sett. Sa- lamanca-yfirlýsingin er áætlun um að- gerðir vegna nemenda með sérþarfir. Í henni felst meðal annars að grunn- skólar eigi að koma til móts við börn sem búa við sértækan vanda og eru fötluð á einhvern hátt. Undanfarin ár hefur Reykjavíkurborg komið þessari stefnu í framkvæmd og gert margt vel enda hafa fræðsluyfirvöld sett sífellt meira fjármagn í málaflokkinn. Grunnskólarnir sitja hinsvegar einir uppi með að leysa verkefnið sem af stefnunni hlýst,“ segir Ásgeir og út- skýrir að hvergi sé nægilega skilgreint hvernig grunnskólarnir skuli þjónusta sérgreind börn. Þörf á kerfisbundinni fræðslu „Það þarf að samræma þjónustu- skilgreiningar, að þær verði einungis þróaðar miðlægt þannig að hver skóli sitji ekki uppi með að móta sínar eigin skilgreiningar. Við hér í Háteigsskóla reynum það hins vegar eins og ég trúi að flestir geri. Það er fyrst og fremst reynslan sem hefur kennt okkur hvernig við eigum að vinna og í stórum dráttum segir hún okkur að það henti frekar yngri börnum með sértækan vanda að hafa stuðningsfulltrúa á með- an unglingarnir þurfa frekar einstak- lingabundna kennslu,“ segir Ásgeir. „Við sem störfum í grunnskólanum búum við ákveðið þekkingarleysi og við teljum að það vanti meiri ráðgjöf og kerfisbundna fræðslu. Við höfum kallað til ráðgjafa og fyrirlesara sem bætt hafa úr en slík fræðsla þarf að vera mun skipulagðari. Í Háteigsskóla höfum við útbúið sérstakt skema sem sýnir starfsfólki hvernig bregðast skuli við mismunandi einkennum,“ segir Ásgeir og útskýrir hvernig það geti til dæmis verið slæmt að skamma barn sem þjáist af andstöðuþrjósk- uröskun því það missi oft stjórn á sér við það. „Asperger-heilkenni er annað dæmi. Börn sem búa við það að skilja ekki svipbrigði hjá fólki sem talar við þau og skilja það sem sagt er oft á allt annan veg en önnur börn,“ bætir hann við. 14% lækkun á úthlutun „Það hefur verið stefna hjá fræðslu- yfirvöldum að færa fjármagnið úr mið- lægum sjóðum og yfir til skólanna. Þeir þurfa svo að finna lausnirnar sem kostur er á miðað við fjármagnið,“ segir Ásgeir og ítrekar að það skorti fræðslu og þjónustulýsingar í mála- flokknum. „Á meðan við stöndum svo í þessum tilraunum okkar til að leysa málin lendum við í því að fjármagnið er skor- ið niður um 14% milli ára,“ segir hann og útskýrir hvernig úthlutanir til ákveðinna barna sem skólinn sækir um til Menntasviðs Reykjavíkur séu rúmlega 14% lægri fyrir þetta skólaár en í fyrra. Ásgeir kveðst hafa leitað skýringa á þessari lækkun en ekki fengið. „Auk þess hækkuðu laun stuðnings- fulltrúa með síðustu kjarasamningum moða vegna einstakr er um fyrir hafa læk um er að fjölga þarf a því,“ segir hann og ú að varla eigi skólar nemendur að líða fyr eiga að veita sem be fræðsluyfirvöld að ba „Okkur finnst sko ustuviðmið. Við vilju séum að uppfylla það okkur. Í lýsingum á sem koma frá greinin er listað hvað þurfi a það okkar að meta hv verkefnið fyrir fjár fáum, en það er dæmi alveg upp. Almennt hafi vel fyrir skólana málaflokki síðan byr stefnu yfirvalda um ingar í verk. Stefnan eins og flest annað, o í djúpu laugina og s kennarar eins og a ótrúlega góðir að bja ar og aðrir starfsmen og engin hækkun kom á móti í verk- efnið. Í samningunum var vinna stuðn- ingsfulltrúa einnig skilgreind nánar sem er gott því að þar er gert ráð fyrir samstarfstímum með kennurum en viðvera með börnunum minnkar að sama skapi. Þetta er jákvætt en leiðir til kostnaðar fyrir skólana sem er ekki heldur komið til móts við í fjárúthlut- unum,“ segir Ásgeir sem áréttar þó að hann telji þá peninga sem komi til málaflokksins vera umtalsverða. „Það er hinsvegar erfitt að skipuleggja skólastarfið fyrir þessa nemendur fram í tímann þegar maður getur átt von á lækkunum og niðurskurði,“ bæt- ir hann við. Fleiri greiningar Spurður um skýringar á þessari lækkun tekur Ásgeir fram að mögu- lega sé upphæð Reykjavíkurborgar til málaflokksins í heild, jafnhá eða hærri, en það komi þá væntanlega til af því að börnum með sértækan vanda hafi fjölgað, en upphæðirnar sem skólinn hefur úr að Skólastjóri Háteigsskóla um málefni sér Nauðsynlegt a til móts við sk Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri Háteigsskóla. FJÁRÚTHLUTANIR til sérgreindra barna, en það eru börn sem þurfa á aðstoð að halda vegna hvers konar fötlunar, fara fram með þrennum hætti í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum Arthurs W. Morthens, verk- efnastjóra sérkennslu hjá Menntasviði Reykjavíkur, nema úthlutanir til málaflokksins tæpum 1.400 millj- ónum króna árlega og dreifast nokkuð jafnt innan hvers þáttar. Í fyrsta lagi greiðir jöfnunarsjóður sveitarfélaga fyrir rekstur sérskóla í borginni. Í Reykjavík eru þeir Öskjuhlíðarskóli, Safamýrarskóli, Brúarskóli og auk þess eru þrjár sérdeildir fyrir einhverf börn og innan eins skóla er starfrækt táknmálssvið fyrir heyrnarlaus börn. Um þriðjungur nemenda þessara skóla er þó úr öðrum sveitarfélögum en Reykjavík. Í annan stað fer um þriðjungur upphæðarinnar beint til skólanna í beinu hlutfalli við nemendafjölda. Í þriðja lagi fara svo um 440 milljónir aukalega til skóla sem hafa nemendur með fötlun, hegðunartrufl- anir og geðraskanir og sækja skólarnir um þessa út- hlutun sérstaklega. 250–300 er hafnað Úthlutun fer eftir greiningu en hún fer oftast fram á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, en þar fara all- ar greiningar á fötlun og þroskaröskun fram. Meðal Þrenns konar úthlutan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.