Morgunblaðið - 24.08.2006, Síða 27

Morgunblaðið - 24.08.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 27 UMRÆÐAN E N N E M M / S ÍA / N M 2 3 0 12 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 464 7940 TVEIR FYRIR EINN Þú getur til dæmis tekið Nissan Pathfinder og Nissan Micra á rekstrarleigu og greitt sömu upphæð fyrir báða bílana og fyrir rekstrarleigu á einum Toyota Land Cruiser, eða 99.800 kr. á mánuði** Í TILEFNI 35 ÁRA AFMÆLIS NISSAN Á ÍSLANDI BÝÐUR INGVAR HELGASON NÚ ÓTRÚLEGT REKSTRARLEIGUTILBOÐ* Á ÖLLUM NISSAN BÍLUM Nissan Pathfinder er lipur blanda af kraftmiklum fjórhjóladrifnum jeppa og rúmgóðum fólksbíl og hann er að mati bílablaðamanna sambærilegur Toyota Land Cruiser. Dæmi um rekstrarleigutilboð: Nissan Pathfinder SE sjálfskiptur 75.300 kr. á mánuði m/vsk. Nissan Micra beinskipt 24.500 kr. á mánuði m/vsk. Nissan Patrol Elegance 80.757 kr. á mánuði m/vsk. ÞÚ FÆRÐ MEIRA FYRIR MINNA MEÐ NISSAN *Innifalið í rekstrarleigu er smur- og þjónustueftirlit skv. þjónustubók. Rekstrarleiga getur tekið gengisbreytingum myntkörfu fjármögnunarfyrirtækis. Leiga miðast við 39 mán. og 65 þús. km. **www.toyota.is NORSK stjórnvöld gerðu áætlun um breytta nálgun í geðheilbrigð- ismálum fyrir tímabilið 1998 til 2006 sem nú hefur verið framlengt til 2008. Þau stefndu á að fólk með geð- ræn vandkvæði gæti lifað eins eðli- legu lífi og unnt væri og áherslur í meðferðarvinnu yrðu til að auka sjálfstæði þess til að ráða við daglegt líf. Miklu fjármagni hefur verið varið í uppbyggingu þjónustunnar í kjöl- farið. Allt sem hægt er að mæla hef- ur gengið vel; þjónusta aukist, bú- setuúrræðum fjölgað, fleira starfsfólk ráðið, meira fé sett í menntun heilbrigðisstarfsfólks og fleiri sjúklingar njóta meðferðar. En kannanir og rannsóknir meðal not- enda leiða í ljós að ekki hafi tekist að aðstoða geðsjúka við að ná betri tök- um á eigin lífi, að þeir séu ekki hafðir með í ráðum frekar en áður og að þverfagleg samvinna og samfella í meðferð hafi ekki aukist í takt við væntingar. Lærdómur sá er draga má af þessu, og íslensk stjórnvöld geta nýtt sér, er að það er langt frá því nóg að auka fjármagn til málaflokks- ins ef innihald og forsendur þjónust- unnar verða ekki skoðaðar jafnhliða. Einnig þarf að setja fjármagn í gæðaþróunarverkefni með virkri þátttöku geðsjúkra. Þannig fæst svörun notenda um skilvirkni þjón- ustunnar. Gæðaþróunarverkefnið „Notandi spyr notanda“ byrjaði í Þrændalögum 1999 og notendahóp- urinn Hugarafl hér heima, í sam- starfi við fagaðila, framkvæmdi slíkt gæðaeftirlit á geðdeildum LSH sum- arið 2004. Eftirspurn eftir könn- unum/niðurstöðum slíkra verkefna hefur stóraukist í Noregi. Íslensk stjórnvöld hafa því efnivið, þar sem þekking og reynsla er til staðar. Gæðaþróunarverkefnið „Notandi spyr notanda“ gæti orðið vegvísir við úthlutun fjármagns og síðar áfram- haldandi fjárstuðning og/eða grunn- ur að lögum og/eða reglugerðum. Ef mikil uppbygging verður hér á stuttum tíma í starfsemi samfélags- þjónustu fyrir geðsjúka, eins og í Noregi, er hætta á að ráðið verði starfsfólk sem tileinkað hefur sér þær vinnuaðferðir sem viðgangast á sjúkrahúsunum. Þeir sem tengjast samfélagsþjónustunni flytja því sjúkrahúsmenninguna með sér út í samfélagið. Margir starfsmenn sem hafa reynslu sína frá sjúkrahúsnálg- unum hafa ekki þekkingu til að vinna út frá styrkleika, draumum eða von- um skjólstæðinga. Þeir koma ekki frá menningu þar sem unnið er á jafningjagrunni og einkenni tengd við umhverfisþætti. Þeir leita frekar í sérúrræði fyrir geðsjúka en að tengja við almenn úrræði í samfélag- inu. Þeir sem vinna í samfélagsþjón- ustunni þurfa ekki síður að beina sjónum sínum og orku að umhverf- isþáttum, s.s. að vinna gegn for- dómum á vinnustöðum, í skólunum og á meðal nágranna og vina. Vegna þekkingarleysis tengir almenningur t.d. geðsjúka við hættulegt fólk. Jú, geðsjúkir geta orðið hættulegir en við getum líka öll orðið hættuleg ef við höfnum í ákveðnum aðstæðum eða vítahring. Lífsskilyrði eins og fá- tækt, að hafa ekkert val, lélegar fé- lagslegar aðstæður, langvarandi átök, einangrun, höfnun eða að þurfa að sæta meðferð gegn eigin vilja, getur gert hvert okkar hættulegt. Geðsjúkir sem átt hafa við langvar- andi veikindi að stríða eru oftast at- vinnulausir, þurfa oft að sæta með- ferð sem þeir vilja ekki, mæta fordómum, upplifa afneitun, mæta vanvirðingu og lifa við kröpp kjör. Geðsjúkir, atvinnulausir, fólk sem tilheyrir minnihlutahópum, flótta- fólk og fátækt fólk eru dæmi um hópa sem geta lent í slíkum víta- hring vegna félagslegra aðstæðna. Menntun og rannsóknir verða að vera í takt við stefnumótun í geðheil- brigðismálum, því það mótar næstu kynslóð fagmanna og áherslur í þjónustunni. Ef þjónustan á að tengjast nýjustu skilgreiningum um geðheilbrigði sem gengur út á að auka þol einstaklinga til að ráða við tilfinningaleg áföll og vonbrigði, auka virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og trú á eigin verðleika og annarra, eða ef útgangspunkturinn fyrir meðferð geðsjúkra er að þeir nái stjórn á eigin lífi, hafi áhrif, fé- lagslegri stöðu þeirra sé breytt og að þeir fái aukna hlutdeild í almennum úrræðum á vegum samfélagsins, þá verður að skoða hvernig menntun og rannsóknir styðja við slíka stefnu og markmið. Norsk stjórnvöld, í sam- vinnu við menntastofn- anir, hafa boðið upp á þverfaglegt framhalds- nám, til að styrkja þverfaglega nálgun og eins er reynt að styðja við rannsóknir sem varpa ljósi á árangur óhefðbundinna nálg- ana. Fjárhagslegir hvatar frá stjórnvöld- um hafa gert það að verkum að rannsókn- arsamfélög eru að myndast með þverfag- legri sýn, oft í sam- vinnu við notendur. Notenda- og batarannsóknir hafa ekki getað sýnt fram á að ein aðferð sé árangursríkari en önnur eða ein fagstétt öðrum fremri til að efla bataferlið. Mestu máli skipta tengsl milli skjólstæðings og fagaðila eða allteins góð tengsl við einhvern einn aðila. Geðsjúkir sem náð hafa bata hafa reynslu af ein- staklingum sem gáfu þeim tíma, trúðu þeim og treystu, hjálpuðu þeim að skilja hvað væri á ferðinni og skildu hvað þeir höfðu fram að færa. Víða hafa hagsmunasamtök geð- sjúkra sett sem leið- arvísi fyrir þjónustuna – að hafa val og vera í stjórn – því það virðist lykilatriði í bata geð- sjúkra. Aukið fé til geðheilbrigðis- mála leysir ekki vandann Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar um geðheilbrigðismál ’… það er langt frá þvínóg að auka fjármagn til málaflokksins ef innihald og forsendur þjónust- unnar verða ekki skoð- aðar jafnhliða.‘ Elín Ebba Ásmundsdóttir Höfundur er meðlimur Hugarafls og lektor við HA.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.