Morgunblaðið - 24.08.2006, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 24.08.2006, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ HrafnhildurGuðrún Anna Sigurðardóttir menntaskólakenn- ari fæddist í Reykjavík 26. sept- ember 1943. Hún andaðist á kvenna- deild Landspítala – háskólasjúkrahúss 11. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar Guð- rúnar voru hjónin Sigurður Sigurðs- son landlæknir, f. 2. maí 1903, d. 5. apríl 1986 og Bryndís Ásgeirsdóttir húsmóðir, f. 4. febrúar 1905, d. 3. júlí 1980. Systur Guðrúnar eru Sigrún Erla grunnskólakennari, f. 17. febrúar 1935 gift Páli Ás- mundssyni lækni og Svanhildur Ása grunnskólakennari, f. 9. des- ember 1938, gift Birni Björnssyni guðfræðiprófessor. Hinn 30. mars 1972 giftist Guð- ity of Leeds 1966–1967 og fékk Postgraduate Diploma in English Studies 1967. Hún lauk prófi í uppeldis- og kennslufræðum frá Háskóla Íslands 1971. Auk þessa sótti hún fjölmörg námskeið í ensku, frönsku og kennslufræð- um hér á landi og erlendis. Þá má nefna námskeið fyrir leiðsögu- menn erlendra ferðamanna. Hún sinnti ýmsum störfum á meðan hún var í námi, m.a. almennum skrifstofustörfum, ritarastarfi hjá franska sendiráðinu og þýð- ingum hjá Sjónvarpinu. Guðrún var stundakennari í Kennara- skóla Íslands 1967–1970. Frá 1970 var hún fastráðin ensku- kennari við Menntaskólann við Tjörnina er síðar varð Mennta- skólann við Sund. Þar gegndi hún starfi deildarstjóra með hléum 2–4 ár í senn. Endurmenntunar- stjóri var hún frá 2002 og sótti mörg námskeið í tengslum við það starf. Hún var í stjórn Kenn- arafélags MT 1975–1976 og í stjórn Félags enskukennara á Ís- landi 1979–1981. Útför Guðrúnar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. rún Birni Jónassyni rafvirkja og verslun- armanni, f. 20. maí 1946. Börn þeirra eru: 1) Jónas Páll framkvæmdastjóri, f. 18. ágúst 1972. Kona hans er Soumia Islami, f. 21. desember 1975. Börn þeirra eru: a) Sofia Sóley, f. 17. desember 2002 og b) Elías Andri, f. 1. september 2005. 2) Bryndís masters- nemi í viðskiptafræði í Kaup- mannahöfn, f. 17. febrúar 1978. Guðrún og Björn skildu árið 1983. Guðrún tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1962, varð BA í ensku og frönsku frá Háskóla Íslands 1965. Hún stundaði framhaldsnám í ensku og bókmenntum við The Univers- Fyrir rúmlega hálfri öld tók ung- ur maður að venja komur sínar í hús eitt í Norðurmýri. Elsta heimasæt- an á heimilinu hafði fangað hug hans en þau voru þá bæði í MR. Piltinum var vel tekið af fjölskyldu stúlkunn- ar enda um mikið öðlingsfólk að ræða. Stúlkan átti tvær systur og var sú yngri 9 ára. Hún sá í piltinum efnilegan leikfélaga og gerði sitt besta til að fá hann til leiks við sig með ýmsum spaugilegum tilburð- um, jafnvel bakföllum. Hann var nokkuð tilkippilegur og þótti stóru systur loks nóg um enda var strák- urinn jú kominn til að heimsækja hana. Var sú stutta loks rekin fram svo turtildúfurnar fengju að vera í friði. Þessi voru fyrstu kynni mín af Guðrúnu mágkonu minni sem nú er öll, fallin í valinn langt um aldur fram fyrir miskunnarlausum vá- gesti. Mér hefur ætíð þótt vænt um Gunnu þótt skin og skúrir hafi skipst á í samskiptum okkar. Hún var skapstór kona sem stóð fast á sinni meiningu og stundum var erf- itt að skiptast á skoðunum við hana ef hvorugt vildi undan láta. Öll él birti þó upp um síðir og væntum- þykja og gagnkvæm virðing náði ætíð yfirhöndinni. Guðrún var miklum gáfum gædd og allt nám reyndist henni auðvelt. Hún nam ensku, frönsku og enskar bókmenntir hér heima og í Eng- landi. Guðrún hreifst mjög af listum, jafnt tónlist sem myndlist en bók- menntum unni hún hvað mest. Hún kaus sér starf kennarans, rækti það starf af mikilli alúð og samviskusemi og lét sér mjög annt um nemendur sína. Hún kenndi ensku við Mennta- skólann við Tjörnina er síðar varð Menntaskólinn við Sund. Um tíma var að henni sótt í starfi en hún hélt fast á rétti sínum og stóð uppi sem sigurvegari. Var það aðdáunarvert hvernig hún tók upp þráðinn að nýju og sinnti starfi sínu með sóma uns yfir lauk. Guðrún giftist Birni Jónassyni rafvirkja og eignuðust þau tvö ynd- isleg börn. Þótt þau Björn skildu hélst þó jafnan vinátta þeirra á milli. Ég hygg að þar hafi ráðið miklu ást þeirra á börnum sínum, Jónasi Páli og Bryndísi, og barnabörnunum ungu. Það er óhætt að segja að líf Guðrúnar hafi að miklu leyti verið helgað því að koma börnunum til manns og verður ekki séð annað en það hafi tekist með miklum ágætum. Líf Guðrúnar var ekki alltaf dans á rósum. Vera má að skaphöfn henn- ar og stolt hafi á stundum verið henni fjötur um fót. Víst er þó að orðið uppgjöf var ekki til í hennar orðasafni og hún stóð keik allt til hinstu stundar. Hún gat samt án efa horft aftur til margra gleðistunda allt frá yndislegri æsku í húsi góðra og göfugra foreldra. Hún hlakkaði mjög til að njóta lífsins í ellinni með fjölskyldu sinni og vinum. Það var henni ekki ætlað. Við öll sem nærri henni stöndum syrgjum mikilhæfa, góða konu og geymum ljúfar minningar. Megi góður Guð vernda börnin hennar, tengdadótturina Soumiu og barna- börnin Sofiu Sóleyju og Elías Andra. Páll Ásmundsson. Með þessum fáu orðum vil ég minnast frænku minnar Guðrúnar Sigurðardóttur. Gunna var ávallt hlý og góð við okkur krakkana þegar við lékum okkur á Ægisíðunni og síðar þegar við heimsóttum hana í Garðabæ. Fékk maður oft fallegt bros frá henni þótt við krakkarnir værum stundum helst til hávaða- söm. Gunna var afbragðs málamann- eskja og sýndi snemma mikla náms- hæfileika. Eftir stúdentspróf ákvað hún að leggja stund á ensku og enskar bókmenntir. Gerðist hún síð- an enskukennari og naut hún sín einkar vel við kennslu. Gunna geisl- aði af áhuga þegar talið barst að starfinu og var öllum ljóst sem þekktu hana hversu miklu máli það skipti hana. Henni fannst gaman að umgangast ungt fólk og kenna því þetta mikilvæga tungumál – ensku sem segja má að gegni sama hlut- verki í nútímanum og latína gerði á miðöldum. Gunna var yndisleg manneskja sem naut þess að gefa af sjálfri sér og hjálpa þeim sem þurftu á hjálp að halda. Gunna frænka var listelsk. Hún hafði gaman af tónlist og öðrum fögrum listum. Hún las mikið af bókmenntaverkum og átti allgott safn enskra bókmennta. Minnist ég hennar sem víðsýnnar manneskju sem var vel menntuð í besta skilningi þess orðs og sem gott var að leita til. Blessuð veri minning þín, elsku Gunna mín og Guð geymi þig allar stundir. Megi kærleikur Krists styrkja börnin þín tvö og vísa þeim veginn áfram. Ingibjörg Elsa Björnsdóttir. Haustið 1958 hófu tæplega 200 nemendur nám í þriðja bekk Menntaskólans í Reykjavík, þar af var um þriðjungur stúlkur. Hafði hlutfall stúlkna aukist í skólanum og sífellt fleiri þeirra stefndu á fram- haldsnám að stúdentsprófi loknu. Ein þessara stúlkna var Guðrún Sigurðardóttir Hún reyndist af- burðanemandi, hafði lítið fyrir nám- inu og lauk stúdentsprófi 18 ára gömul. Að loknu BA prófi frá Há- skóla Íslands stundaði hún fram- haldsnám í Bretlandi og gerði síðan tungumálakennslu að ævistarfi sínu. Snemma á menntaskólaárunum mynduðum við nokkrar skólasystur hóp, eða saumaklúbb, sem enn hitt- ist reglulega. Á fyrstu árum sauma- klúbbsins var keppst við að prjóna peysur á grófa prjóna sem nýttust vel í vetrarkuldanum, en á síðari ár- um hefur meira verið spjallað. Við höfum rætt um daginn og veginn, okkar eigin hagi, nýlegar bækur, leiksýningar, kvikmyndir o.fl. Guð- rún tranaði sér ekki fram í samræð- unum en þegar hún tók til máls var hlustað, því hún var víðlesin og skarpskyggn, sá oft nýja fleti á mál- um og gat lumað á skemmtilegum húmor. Guðrún ólst upp á fallegu lista- og menningarheimili þar sem húsráð- endur létu sér sérlega annt um vini dætranna og gáfu sér tíma til að spjalla við þá. Og minningar um tón- listarkynningar húsbóndans eru enn ljóslifandi hjá þeim sem þeirra nutu. Þetta var fyrir daga sjón- varpsins þegar hljómflutningstæki voru ekki á hverjum bæ. Það var því tilhlökkunarefni að koma heim til Gunnu. Saumaklúbburinn hefur nú lifað sínu sjálfstæða lífi í nær hálfa öld og vináttuböndin hafa styrkst eftir því sem árin hafa liðið. Gunna er sú fyrsta sem fellur frá og við söknum hennar sárt. Við höfum dáðst að því hve hún tók veikindum sínum af miklu æðruleysi. Hún ræddi veik- indin við okkur í saumaklúbbnum af ótrúlegri yfirvegun. Hún ætlaði ekki að gefast upp, því það var ekki henn- ar stíll. Hún las sér til um sjúkdóm- inn og leitaði leiða, en þær reyndust ekki færar – því miður. Við sendum börnum Guðrúnar, Bryndísi, Jónasi og hans fjölskyldu, svo og systrum hennar Sigrúnu og Svanhildi og þeirra fjölskyldum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Saumaklúbburinn. Það var sárt að heyra að Guðrún Sigurðardóttir enskukennari við Menntaskólann við Sund hefði látist 11. ágúst síðastliðinn eftir erfið veikindi. Kynni okkar Guðrúnar hófust árið 2001 þegar ég kom til starfa við Menntaskólann við Sund. Guðrún hafði þá starfað þrjá og hálf- an áratug við skólann og var því í hópi reyndustu kennara skólans. Okkar samskipti voru góð frá fyrsta degi og þannig var það þann tíma sem ég fékk að starfa með Guðrúnu. Ég er afar þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Guðrúnu. Það var auðvelt að láta sér þykja vænt um hana. Guðrún var afar vel menntuð á sínu sviði. Hún var stúdent frá MR árið 1962. Hún lauk BA-námi í ensku og frönsku frá HÍ 1965 og postgraduate diploma í ensku frá Háskólanum í Leeds 1967. Þó svo að Guðrún hafi lokið sínu formlega námi fyrir nær fjórum áratugum hætti hún aldrei að læra. Hún var al- veg einstaklega dugleg að sækja námskeið og ráðstefnur til að bæta og auka þekkingu sína á því tungu- máli sem hún unni svo mjög og hafði kosið að verja starfsævinni í að miðla til unga fólksins. Það lá því beinast við þegar stofnað var emb- ætti endurmenntunarstjóra við Menntaskólann við Sund að fá Guð- rúnu til að taka það verkefni að sér. Það gerði hún með sóma og hún átti stóran þátt í því að tryggja það að í skólanum er endur- og símenntun GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, STEFÁNNÝ NÍELSDÓTTIR, áður til heimilis á Faxatröð 9, Egilsstöðum, sem lést sunnudaginn 20. ágúst, verður jarðsung- in frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 26. ágúst kl. 14.00. Árni Halldórsson, Elsa Þorbjörg Árnadóttir, Jóhann Bjarnason, Ingi Halldór Árnason, Guðrún Jóna Jónasdóttir, Kristín Árnadóttir, Þorsteinn Pálsson, Margrét Magna Árnadóttir, Jón Steinar Elísson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar, VILBORG VILHJÁLMSDÓTTIR, Vatnsholti 2, Reykjavík, er látin. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. ágúst kl. 13.00. Ketill Ingólfsson, Ursula Ingólfsson Fassbind og dætur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGÞÓRA EIRÍKSDÓTTIR, Skjóli, áður Akralandi 3, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 20. ágúst, verður jarðsung- in frá Áskirkju þriðjudaginn 29. ágúst kl. 15.00 Una J.N. Svane, Þorgeir Hjörtur Níelsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskaður sonur okkar, bróðir, frændi, barnabarn og vinur, SIGURÐUR RÚNAR ÞÓRISSON, lést laugardaginn 19. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Þórir Rúnar Jónsson, Kristín Sæunn Pjetursdóttir, Guðmunda S. Þórisdóttir, Sigvaldi E. Eggertsson, Þóra G. Þórisdóttir, Sævar Þ. Guðmundsson, Valgerður G. Þórisdóttir Gisler, Alex Gisler, Þórir Kr. Þórisson, Karen Martensdóttir, Signý Magnúsdóttir, Rakel E. Sævarsdóttir, Þórir H. Sigvaldason, Marten B. Þórisson, Róbert Thór Gisler, Þóra Gunnarsdóttir og vinahópurinn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR JÓHANNA MATTHÍASDÓTTIR, Túngötu 11, Ísafirði, lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði sunnudaginn 13. ágúst. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 26. ágúst kl. 14. Jóhannes G. Jónsson, Guðni Geir Jóhannesson, Margrét Jónsdóttir, Halldóra Jóhannesdóttir, Hörður Steingrímsson, Jón S. Jóhannesson, Kristín Silla Þórðardóttir, Þorbjörn H. Jóhannesson, Pálína Jensdóttir, Jóhannes Berg, barnabörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.