Morgunblaðið - 24.08.2006, Page 37

Morgunblaðið - 24.08.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 37 DAGBÓK Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fagnar í ár60 ára afmæli félagsins. Á föstudagstendur félagið fyrir ráðstefnu í Hafn-arborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, undir yfirskriftinni „Útivistar- og yndisskógar“. Hólmfríður Finnbogadóttir er framkvæmda- stjóri Skógræktarfélagsins: „Skógræktarfélag Hafnarfjarðar er áhugamannafélag og eitt af fjöl- mennustu skógræktarfélögum landsins með um 680 meðlimi. Þetta er kraftmikið félag sem átt hefur ákaflega gott samstarf við Hafnarfjarðarbæ og aðra aðila. Í starfi okkar hefur sjónum einkum verið beint að ræktun útivistarskóga og land- græðsluskóga, og að gera þá að aðgengilegum og yndislegum sælureitum fyrir almenning að njóta. Skógræktarfélagið hefur ræktað útivistarskóga í Gráhelluhrauni og Höfðaskógi og vígir á laug- ardag kl. 16 við hátíðlega athöfn útivistarskóg í Undirhlíðum. Athöfnin fer fram í Skólalundi, elsta trjálundi félagsins, sem Ingvar Gunnarsson lagði grunnin að með gróðursetingu tjáplantna fyrir 76 árum,“ segir Hólmfríður. Skógræktarfélagið og Hafnarborg hafa í sumar staðið fyrir sameiginlegri dagskrá undir yf- irskriftinni „Hin blíðu hraun“ og var meðal annars haldin sýning með sama nafni í Hafnarborg og staðið fyrir viðburðum, fræðslugöngum og fyr- irlestrum tvisvar í viku, bæði í Hafnarborg, í skóginum og höfuðstöðvum Skógræktarinnar. Botninn verður sleginn í þá dagskrá með ráð- stefnu föstudagsins: „Þetta er skemmtileg ráð- stefna og spannar vítt svið, en 11 manns munu flytja erindi,“ segir Hólmfríður. Fyrstur tekur til máls Jón Geir Pétursson skógfræðingur sem fjalla mun um útivistarskóga á Íslandi. Þá ræðir Jóhann Pálsson grasafræð- ingur um undirgróður í skógum og Þröstur Ey- steinsson skógfræðingur fjallar um vanmetnar trjátegundir í yndisskógrækt. Steinar Björg- vinsson garðyrkjufræðingur flytur erindið „Nýir gaukar í skóginum“ og Yngvi Þór Loftsson lands- lagsarkitekt fjallar um umhverfi og útivist í Hafn- arfirði. Jón Proppé, heimspekingur og listsýning- arstjóri, segir í erindi sínu frá listamönnum og táknlestri náttúrunnar, Hallmar Sigurðsson leik- stjóri flytur erindið „Náttúra, umhverfi og mis- munandi hagsmunir“ og Trausti Jónsson veð- urfræðingur fjallar um árstíða- og dægursveiflnavinda á höfuðborgarsvæðinu. Kristín Þorleifsdóttir landslagsarkitekt fjallar um umhverfissálfræði og áhrif umhverfis á vellíð- an, Hallgrímur Indriðason, skógræktarráðunaut- ur og skipulagsfulltrúi Skógræktar ríkisins, ræðir um gildi skógivaxinna útivistarsvæða í skipulagi þéttbýlis og Sigurður Blöndal, fyrrverandi skóg- ræktarstjóri, fjallar um þróun hugmynda um fjöl- nytjaskóga. Ráðstefnan 25. ágúst hefst kl. 13 og er áætlað að henni ljúki kl. 18. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Náttúra | Skógræktarfélag Hafnarfjarðar heldur ráðstefnu í Hafnarborg á föstudag kl. 13 Útivistar- og yndisskógar  Hólmfríður Finn- bogadóttir fæddist á Lágafelli í Austur- Landeyjum 1931. Hún lauk námi frá Húsmæðra- skólanum að Laugarvatni 1949 og hefur sótt fjölda endurmenntunarnám- skeiða og fyrirlestra, t.d. á vegum Garðyrkjuskól- ans. Hólmfríður var lengi heimavinnandi húsmóðir, vann við versl- unarstörf og við sjálfboðastörf fyrir Rauða krossinn í aldarfjórðung. Hólmfríður hefur starfað hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar í 25 ár. Eiginmaður Hólmfríðar er Reynir Jó- hannsson húsasmíðameistari. Eiga þau eina dóttur, þrjú barnabörn og tvö barnabarnabörn. Árnaðheilla ritstjorn@mbl.is 140 ÁRA afmæli.Rektorshjónin í Skálholti, Rannveig Sigurbjörnsdóttir og sr. Bernharður Guð- mundsson, fagna sam- tals 140 æviárum og kveðja stað og starf með opnu húsi í Skál- holtsskóla sunnudag- inn 27. ágúst kl. 15– 17.30. Gjafir eru frá- beðnar en þakksamlega tekið á móti framlögum í sjóð við Skálholts- skóla sem eflir kyrrð- arstarfið þar í minn- ingu mæðra þeirra hjóna, Magneu Þor- kelsdóttur og Svövu Bernharðsdóttur. 70 ÁRA afmæli. Ítilefni 70 ára afmæla Sigríðar og Ágústs í Birtingaholti 22. og 29. ágúst bjóða þau vinum og ætt- ingjum til morg- unverðar að heimili sínu laugardaginn 26. ágúst frá kl. 10. 60 ÁRA afmæli. Halldór Björns-son hjá Malbikun HG verður sextugur á morgun, föstudaginn 25. ágúst næstkomandi, og ætlar hann og fjölskylda hans að taka á móti gestum í tilefni þessara tímamóta í Félagsheim- ili Kópavogs á afmælisdaginn milli kl. 18 og 21. Halldór vonast til að sjá sem flesta ættingja og vini, núverandi og fyrrum starfsmenn Halldórs og Guð- mundar og Malbikunar HG. EM í Varsjá. Norður ♠75 ♥G873 S/NS ♦ÁK ♣G9872 Vestur Austur ♠96 ♠KDG10843 ♥1042 ♥95 ♦G10632 ♦87 ♣D106 ♣54 Suður ♠Á2 ♥ÁKD6 ♦D954 ♣ÁK3 Ítalska bridsvélin hikstar sjaldan, en það er þó helst í slemmuspilum þar sem sagnbarátta kemur við sögu. Við sáum í spili gærdagsins hvernig Lauria og Versace fóru sér að voða eftir hindrunaropnun Magnúsar Magnússonar, en hér eru það Fantoni og Nunes sem fara fullgætilega gegn Jóni Baldurssyni og Þorláki Jónssyni. Spilið er frá leik Íslands og Ítalíu í 17. umferð Evrópumótsins: Vestur Norður Austur Suður Jón Fantoni Þorlákur Nunes – – – 2 grönd Pass 3 lauf * 4 spaðar Pass Pass Dobl Allir pass Eftir sterka tveggja granda opnun og Stayman svar, hindrar Þorlákur með fjórum spöðum. Slemma vinnst í NS, en Fantoni og Nunes fundu ekki betra svar en að dobla Þorlák. Og vörnin var ónákvæm, aldrei þessu vant: Suður tók tvo slagi á lauf og spil- aði næst þrisvar hjarta. Þorlákur trompaði og spilaði smáum spaða að blindum. Nunes dúkkaði, svo Þorlákur fékk slaginn á níuna og gat þá hent tígli niður í laufdrottningu: þrír niður og 500 í NS. Sagnir fóru eins af stað á hinu borð- inu: Vestur Norður Austur Suður Versace Matthías Lauria Magnús – – – 2 grönd Pass 3 lauf * 4 spaðar Pass Pass 5 grönd Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass En þegar kom að Matthíasi Þor- valdssyni að segja við fjórum spöðum stökk hann í fimm grönd í merking- unni „veldu slemmu, makker“. Magn- ús vissi að makker átti ekki láglitina (þá hefði hann ekki sagt þrjú lauf), svo hann fór strax í sex hjörtu. Tólf slagir voru auðveldir, 1.430 í NS og 14 stig til Íslands. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Snorri bestur ÉG undrast að þessi neikvæðu skrif um nýja diskinn hans Snorra Snorra- sonar. Ég er búin að kaupa hann og er mjög hrifin enda var Snorri allan tímann sem hann var í Idolinu mitt idol. Mér finnst hann gera lögunum góð skil og það er gama að heyra hann syngja kántrý. Ég hlakka til þegar næsti diskur kemur. Til ham- ingju, Snorri. Aðdáandi. Til Magnúsar Kristjánssonar Hrafnabraut HINN 14.8. mátti lesa bréfstúf frá MK hér í Velvakanda, þar sem hann fer nokkrum orðum um ágæti lúp- ínunnar, sem lýsi sér m.a. í því hversu sólgnar kindur séu í hana. Þetta er alveg rétt hjá honum og benti ég á það í lesendabréfi hér um árið að þegar lúpínan væri orðin of mikil um sig að mati manna væri upplagt að nota svoleiðis svæði til beitar. Sjá lesendabréf frá 23.7. 2004). Hins vegar verður það að vera vel gróið lúpínuland, þar sem kindurnar éta jafnóðum upp allar lúpínur sem skjóta upp kollinum. Það sér maður best þar sem lúpínu hefur verið sáð í friðað land sem liggur að beitarlandi. Í því friðaða blómstrar lúpínan sem og aðrar plöntur, alveg upp að girð- ingu, en ekki eina einustu er að sjá hinum megin girðingar, á beitarland- inu. Reyndar fátt um annað blóm- skrúð þar, því kindurnar virðast vera jafn sólgnar í aðrar blómategundir. Tillaga MK er góð, að ala kindur á lúpínu. Þannig gætum við friðað kjarr og viðkvæman gróður í brött- um hlíðum og á hálendinu. Sann- kallað þjóðarkjöt þar sem féð væri al- ið væri á þjóðarblóminu. En er MK að fagna því að lúpínan geti rofið straum af rafgirðingum? Reyndar get ég upplýst hann að há- vaxið, þétt gras getur gert sama skaða, því miður. Margrét Jónsdóttir, Melteigi 4, Akranesi. Bíllyklar glötuðust LYKLAR að Volkswagen Golf týnd- ust annaðhvort fyrir utan Valsheim- ilið á Hlíðarenda eða við Smáralind. Ef einhver hefur orðið var við þá vinsamlegast hafið samband í síma 898-6249. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 Aðalfundur Valsmanna hf. 1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs. 2. Ársreikningur félagsins. 3. Ákvörðun um hvernig fara eigi með hagnað/tap ársins. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5. Kjör stjórnar. 6. Kjör endurskoðanda. 7. Tillaga um breytingu á atkvæðis rétti hlutabréfa Knattspyrnu félagsins Vals í félaginu. 8. Tillaga um heimild stjórnar Valsmanna hf. til að stofna einkahlutafélagið Valsmenn 2 ehf. 9. Tillaga um að stjórn Vals- manna hf. verði heimilað að selja hlut í Valsmönnum 2 ehf. 10. Tillaga um heimild stjórnar Valsmanna hf. til að stofna styrktarsjóð fyrir Knatt- spyrnufélagið Val. 11. Önnur mál. Aðalfundur í Valsmönnun hf. verður haldinn fimmtudaginn 31. ágúst nk. kl. 19:00 í Friðrikskapellu að Hlíðarenda. Dagskrá aðalfundar er venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög nr. 2/1995 og verður sem hér segir: Fyrir fundinn kl. 18:00 verður hluthöfum boðið upp á skoðunar- ferð um hin nýju glæsilegu íþróttamann- virki Vals og einnig verður byggingar- svæði Valsmanna hf. skoðað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.