Morgunblaðið - 24.08.2006, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Manneskjan með bestu mannasiðina er
sú sem lítur framhjá ókurteisi annarra.
Hrúturinn er glaðastur ef hann tileinkar
sér umburðarlyndi og leyfir öðrum að
ganga í sínum takti án þess að finnast
hann þurfa að stjórna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gildi efnafræðinnar er ómetanlegt þó að
um platónskt samband sé að ræða.
Gerðu þér far um að halda sambandi við
einhvern sem þú nýtur snöggra tilsvara
með og leiftrandi samræðna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er ekki hégómleiki að hafa gott álit á
sjálfum sér. Án sjálfsvirðingar er
ómögulegt að bera virðingu fyrir öðrum.
Himintunglin hvetja þig áfram ef þú ferð
með sjálfan þig eins og eina af stærstu
ástum lífs þíns.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Góðu fréttirnar eru þær að himintunglin
gera þér verulega auðvelt að breyta kar-
aktergöllum í kosti. Vondu fréttirnar eru
þær að þú þarft að viðurkenna gallana
fyrst – að minnsta kosti fyrir sjálfum
þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tilhneiging þín til að hugsa um of gæti
verið vandamál. Sjálfstraust snýst um
það að treysta sjálfum sér nógu vel til að
taka hvatvísi sína alvarlega. Reyndu að
ritskoða ekki sjálfan þig alveg svona
mikið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan á skap með fjölda manns í
augnablikinu. Jarðbundin nálgun þín á
óáþreifanlegum eða vitsmunalegum við-
fangsefnum skapar sameiginlegan veru-
leika. Þetta er hæfileiki sem oft er van-
metinn, klappaðu sjálfum þér á bakið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Himintunglin raða sér upp og beina
geislum sínum að veruleika þínum – þú
verður að standa í sviðsljósinu enda
þarftu að tjá þig um svolítið í heyranda
hljóði. Þér er sama hvort það sem þú hef-
ur að mæla er við hæfi, aldrei þessu vant.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er snillingur í því að finna
út úr því hvað knýr aðra áfram, en jafn-
vel hann gæti lent í því að láta heillandi
nýliða hindra sig. Ef mikið liggur við
skaltu leita ráða hjá einhverjum sem
ekki á hagsmuna að gæta í þínum mál-
um.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hjartasorgir fortíðarinnar eru besti efni-
viðurinn í fallega listsköpun. Ef þú virkj-
ar þennan skapandi hluta af lífi þínu
blómstrar ástin. Áhorfendur eru líka lyk-
illinn að því að þú skarir fram úr.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin nýtur aðdáunar og er undir
smásjá og aðrir líta á hana sem verðugan
keppinaut. Þetta eru allt merki um að þú
sért á toppnum. Vonandi er þér sama þó
að allra augu hvíli á þér. Hagaðu þér
skynsamlega.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vinnuhlið vatnsberans og hið raunveru-
lega sjálf togast eilítið á því hann er ekki
viss um hvernig tilteknir einstaklingar
eiga eftir að taka honum. Þess vegna er
mikilvægara en nokkru sinni að þú getir
tjáð þig frjálslega heima.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er frábært að þú skulir eiga vini sem
hafa þekkt þig að eilífu, þar til einhver
þeirra minnir þig á eitthvað sem þú hef-
ur gleymt. Jæja, passaðu bara að þú ger-
ir sömu mistökin ekki aftur.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Orka sólar og tungls í
meyju kitlar okkur með
hugmyndinni um full-
komnun. Reyndar er fullkomnun afstæð,
þar sem það sem helst gleður eina mann-
eskju er hugsanlega ekki nógu gott fyrir
aðra. Besta leiðin til þess að skemmta sér
núna er að lækka staðalinn, búast ekki
við neinu og gleðjast yfir því sem kemur
upp í hendurnar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 mikilsverður, 8
huglaus, 9 vondur, 10
ráðsnjöll, 11 karlfugl, 13
labba, 15 eyðilegging, 18
öflug, 21 vætla, 22 rödd,
23 hremma, 24 ring-
ulreið.
Lóðrétt | 2 ótti, 3 tré, 4
ólgu, 5 reyfið, 6 fituskán,
7 vaxa, 12 dans, 14 nátt-
úrufar, 15 úrgangur, 16
voru í vafa, 17 smá, 18
frásögnin, 19 kven-
mannsnafni, 20 útungun.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 samba, 4 fleka, 7 korns, 8 rífum, 9 auk, 11 slap,
13 æðum, 14 ólmur, 15 gull, 17 agða, 20 ell, 22 máfur, 23
jólin, 24 lærði, 25 náðin.
Lóðrétt: 1 sukks, 2 murta, 3 ausa, 4 fork, 5 erfið, 6 aum-
um, 10 ummál, 12 pól, 13 æra, 15 gömul, 16 lofar, 18 gal-
ið, 19 annan, 20 ergi, 21 ljón.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Bar 11 | Hljómsveitin Ask the Slave heldur
tónleika ásamt Plastic Gods.
Café Paris | Dj Lucky spilar Soul Funk og
Reggae frá kl. 21.30–01.
Hótel Örk, Hveragerði | Baggalútur held-
ur síðsumarhljómleika 25. ágúst kl. 22.
Flutt verða lög af hljómplötunum Pabbi
þarf að vinna og Öpunum í Eden. Verð
1.500 kr.
Myndlist
101 gallery | Serge Comte – sjö systur –
seven sisters. Til 2. sept. Opið fim.–laug.
kl. 14–17.
Anima gallerí | Bára Kristinsdóttir sýnir
ljósmyndir. Myndirnar eru allar teknar í
Jupiter í Flórída á þessu ári. Sýningin
stendur til 9. sept. opið miðvikudag–
laugardag kl. 13–17. www.animagalleri.is
Art-Iceland Mublan | Fyrsta samsýning
gallerísins Art-Iceland.com. Listamenn-
irnir sem sýna eru: Árni Rúnar Sverrisson,
Helga Sigurðardóttir og Álfheiður Ólafs-
dóttir. Sýningin er í Versluninni Mublunni,
Nýbýlavegi 18, Kópavogi.
Byggðasafn Garðskaga | Samsýning:
Reynir Þorgrímsson, Reynomatic-myndir,
nærmyndir af náttúrunni. Björn Björnsson
tréskúlptur. Opið kl. 13–17, alla daga. Kaffi-
hús á staðnum.
Café Karólína | Karin Leening sýnir, til 1.
sept.
DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým-
isverk til 26. ágúst. Opið virka daga og
laugardaga kl. 14–18 í sumar.
Eden, Hveragerði | Vaddý (Valgerður Ing-
ólfsdóttir) sýnir akríl-, vatnslita-, olíu- og
pastelmyndir til 28. ágúst.
Energia | Sölusýning á landslagsmyndum
eftir myndlistarmanninn Mýrmann. Stend-
ur út ágústmánuð. Nánari upplýsingar á
http://www.myrmann.tk
Gallerí BOX | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir
textaverk inn í BOXinu og skilti í Lista-
gilinu. Opið á fimmtudögum og laug-
ardögum kl. 14–17.
Gallerí Fold | Sýning á verkum Þorvaldar
Skúlasonar er haldin í tilefni 100 ára fæð-
ingarafmælis listamannsins. Verkin eru úr
einkasafni Braga Guðlaugssonar dúklagn-
ingameistara en verk úr því hafa aldrei
áður komið fyrir almennings sjónir.
Gerðuberg | Guðjón Stefán Kristinsson –
Sagnir og seiðmenn. Ketill Larsen – And-
blær frá öðrum heimi. Jón Ólafsson –
Kvunndagsfólk. Opið mán.–föst. kl. 11–17,
miðvikud. kl. 11–21 og um helgar kl. 13–16.
Sýningarnar standa til 10. september.
Nánari upplýsingar: www.gerduberg.is.
Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin
blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og
með henni er sjónum beint að hrauninu í
Hafnarfirði. Tólf listamenn sýna. Til 28.
ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning á verkum
Ásgerðar Búadóttur veflistakonu stendur
til 26. ágúst.
Handverk og hönnun | Til sýnis íslenskur
listiðnaður og nútíma hönnun 37 aðila. Á
sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír,
tré, roði, ull og silfri. Stendur til 27. ágúst.
Opið alla daga kl. 13 –17, aðgangur er
ókeypis.
Hrafnista Hafnarfirði | Þórhallur Árnason
og Guðbjörg S. Björnsdóttir sýna myndlist
í Menningarsal til 24. október.
Kaffi Sólon | Kolbrún Róberts sýnir af-
strakt málverk. Sýningin ber titilinn Him-
inn & jörð. Stendur til 1. sept.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf
opinn.
Listasafn Íslands | Landslagið og þjóð-
sagan, sýning á íslenskri landslagslist frá
upphafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna.
Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jóns-
sonar. Leiðsögn þriðjudaga og föstudaga
kl. 12.10–12.40, sunnudaga kl. 14. Opið í
Safnbúð, kaffitár í kaffistofu. Opið kl. 11–17,
lokað mánudaga. Ókeypis aðgangur.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ás-
mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti
listamaðurinn notaði mismunandi efni –
tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma.
Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erro
– Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tíma-
bilum í list Errós, þær nýjustu frá síðast-
liðnu ári. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum úr eigu safnsins. Margir
af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á
sýningunni sem spannar tímabilið frá
aldamótunum 1900 til upphafs 21. ald-
arinnar. Til 17. sept.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning
á völdum skúlptúrum og portettum Sig-
urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema
mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á
sama tíma. Tónleikar á þriðjudags-
kvöldum. Sjá nánar á www.lso.is
Norræna húsið | Out of Office – Innsetn-
ing. Listakonurnar Ilmur Stefánsdóttir og
Steinunn Knútsdóttir í sýningarsal til 30.
september. Opið alla dag kl. 12–15, nema
mánudaga. Gjörningar alla laugardaga og
sunnudaga kl. 15–17.
Sumarsýning í anddyri til 27. ágúst. Ljós-
myndir frá Austur-Grænlandi eftir danska
ljósmyndarann Ole G. Jensen. Opið virka
daga til kl. 9–17, laugardaga og sunnu-
daga kl. 12–17.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina
til 28. ágúst.
Saltfisksetur Íslands | Sýningu Sigridar
Österby lýkur 30. ágúst. Opið alla daga kl.
11–18.
Sögusetrið á Hvolsvelli | Einkasýning
Helenu Hansdóttur samanstendur af víd-
eógjörningi, innsetningu og ljósmyndum.
Til 3. september, opið alla daga kl. 10–18.
Thorvaldsen bar | Málverkasýning Arnars
Gylfasonar stendur til 8. sept.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í tilefni af
70 ára afmæli Laugarnesskóla stendur yf-
ir á Reykjavíkurtorgi, Tryggvagötu 15, 1.
hæð. Opin virka daga kl. 11–19 og um helg-
ar kl. 13–17. Ókeypis aðgangur.
Sýning á skipulagstillögum sem aldrei var
hrint í framkvæmd; þar á meðal líkön og
ljósmyndir af Ráðhúsi í Reykjavík og
teikningar af skipulagi nýs miðbæjar. Gróf-
arhúsi, Tryggvagötu 15, 3. hæð. Opið kl.
10–16. Aðgangur ókeypis.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú
búinn húsmunum og áhöldum eins og
tíðkaðist í kringum aldamótin 1900. Veit-
ingar í Gamla prestshúsinu. Opið daglega
kl. 9–18, fimmtudaga kl. 9–22. 500 kr. inn,
frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga í sumar kl. 9–17. Hljóðleiðsögn á ís-
lensku, ensku, þýsku og sænsku. Marg-
miðlunarsýning og gönguleiðir í nágrenn-
inu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is og í 586 8066.
Iðnaðarsafnið | Á safninu gefur að líta
vélar og verkfæri af öllum stærðum og
gerðum, framleiðsluvöru o.fl. Opið dag-
lega frá kl. 13–17 til 15. sept. 400 kr. inn,
frítt fyrir börn.
Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í
Bjarnarfirði sem er bústaður galdramanns
og litið er inn í hugarheim almúgamanns
á 17. öld. Opið alla daga kl. 12–18 til 31.
ágúst.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |