Morgunblaðið - 24.08.2006, Síða 44
myspace.com/thejulietkilo
myspace.com/pantsyellmusic
SMEKKLEYSA og The Reykjavík Grape-
vine hafa staðið fyrir sumartónleikaröð alla
fimmtudaga í sumar og engin breyting verð-
ur á í kvöld. Vegna opnunargleði Smekk-
leysu og Elvis í kvöld í nýjum húsakynnum
á Klapparstíg 27 verða fyrri tónleikarnir þó
með öðru sniði en vanalega. Þeir verða hluti
opnunargleðinnar, sem stendur frá kl. 19 til
22. Boðið verður upp á léttar veitingar en
fram koma Mr. Silla & Mongoose og tæknó-
dúettinn Electrotroll þeytir skífum.
Í nýja verslunarrýminu verða einnig Gall-
erí humar eða frægð og bókaverslun Nýhils
til húsa.
Á seinni tónleikum kvöldsins sem hefjast
kl. 21 á Café Amsterdam munu Pants Yell,
Mr. Silla & Mongoose og The Juliet Kilo
spila.
Pants Yell kemur frá Boston og hafa gefið
út tvær breiðskífur og eina sjö tommu.
Hljómsveitin leikur lágstemmt gítarpopp og
er á ferðalagi um Evrópu um þessar mund-
ir. Hún mun einnig koma fram á Café Amst-
erdam annað kvöld ásamt hljómsveitunum
Dýrðin, The Foghorns og The Way Down.
Dúettinn Mr. Silla & Mongoose hefur
vakið mikla athygli undanfarið en meðlim-
irnir kynntust við nám í Listaháskóla Ís-
lands. Þau sækja áhrif sín í blúsmeistarana
Robert Johnson og Leadbelly, en einnig Co-
coRosie, MF Doom og Billie Holiday.
The Juliet Kilo er tónlistarmaður frá
Boston, líkt og Pants Yell, en heitir réttu
nafni David Levin. Hann leikur tónlist sem
er einskonar sambland af lágstemmdum
popptónlistarmönnum á borð við Iron &
Wine, Guided By Voices, Belle & Sebastian
o.fl. og raftónlistarmönnum á borð við Jim
O’ Rourke og Schneider TM. Hann kom ný-
verið fram við góðan orðstír í Galleríi humar
eða frægð.
Tónlist | Pants Yell á sumartónleikaröð Smekkleysu og The Reykjavík Grapevine
Pants Yell leikur á tvennum tónleikum hér á Íslandi, í kvöld og annað kvöld.
Opnunargleði
hjá Smekkleysu
og Elvis í kvöld
44 FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
Frá leikstjóra Sixth Sense, Signs og Village.
PAUL GIAMATTI (SIDEWAYS) SÝNIR STJÖRNULEIK
LADY IN THE WATER kl. 6 - 8:20 - 10:40 B.i. 12.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 9 - 10:30 B.i. 12.ára.
SUPERMAN kl. 6 B.i. 10.ára.
THE BREAK UP kl. 5:30 - 8 - 10:30 Leyfð
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
úr smiðju Jim Henson
Frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna
með hinum knáa
Freddie
Highmore
úr
„Charlie &
the
Chocolate
Factory“
Allt getur gerst ef þú bara trúir á það.
TVEIR BRÆÐUR. EIN
HELGI. ENGIN SKÖMM.
MEÐ CHRIS KLEIN ÚR “AMERICAN PIE” MYNDUNUM.
H.J. MBL.
eee
S.U.S. XFM 91,9
V.J.V. TOPP5.IS
eeeeeeee
S.U.S. XFM 91,9.
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.ISB.J. BLAÐIÐ
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
5 CHILDREN AND IT kl. 6 Leyfð
HALF LIGHT kl. 8 - 10:20 B.i.16
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9
STORMBREAKER kl. 8
SILENT HILL kl. 10 B.I.16
MIAMI VICE kl. 8 B.I.12
eee
V.J.V - TOPP5.IS
60.000
4 vikur
á toppnum á Íslandi !
gestir
eee
S.V. - MBL
Aðalsteinn Guðmundsson hefur
stundum verið kallaður Steini Plastik
og verið viðloðandi íslensku raf-
tónlistarsenuna ansi lengi. Þar hefur
hann starfað
undir ýmsum
nöfnum en
gengið hvað
best sem Ya-
gya; plötunni
Rhythm of
Snow (2002)
var t.a.m.
ágætlega tekið víða um heim. Á nýrri
plötu sinni – Will I Dream During the
Process? – leikur Yagya ambíent-
tæknó ekki ýkja fjarri því sem The
Orb, Biosphere og Aphex Twin og
Autechre sendu frá sér í upphafi fer-
ilsins fyrir u.þ.b. fimmtán árum síðan.
Frumleiki er ekki efstur á blaði hjá
Yagya; tónlistin sver sig á köflum
óþægilega í ætt við þegar troðnar
slóðir ofangreindra listamanna og
tugi annarra. Litlu er bætt við kunn-
uglegar en draumkenndar hljóð-
myndirnar sem eru í flestum tilfellum
drifnar áfram af dynjandi bassa-
trommu. Hér eru „pad“-hljóð, herm-
istrengir, gervivindur, loftmiklar
kvenmannsraddir; bókstaflega allir
helstu góðkunningjar lögreglunnar
eru samankomnir í þessu næntís-
eftirpartíi.
Yagya þarf ekki að skammast sín
fyrir áferð tónlistarinnar, því hljóð-
mynd hvers lags er nær undantekn-
ingalaust mjög rík og haganlega sam-
sett. Þó að lagasmíðarnar virðist
einfaldar við fyrstu hlustun eru þær
oft í mörgum lögum og maður heyrir
ekki öll smæstu hljóðin nema að
leggja sig virkilega eftir því. En þótt
hvert lag sé vel unnið og litríkt, eru
litirnir þeir sömu frá lagi til lags – þó
að manni bjóðist að skoða milljón lit-
brigði af fjólubláum þá nennir maður
því ekki í klukkustund og kortér.
Hljóðin eru alltaf þau sömu, hljóm-
arnir virðast svipaðir, byggingin
sömuleiðis, og þrátt fyrir margend-
urteknar hlustanir hefur gagnrýn-
anda ekki enn tekist að skilja eitt lag
almennilega frá því næsta.
Með aðstoð umslagsins (sem á ekki
skilið mikla umfjöllun nema til þess
að benda á fjölda fjólublárra lit-
brigða, og til að spyrja hvað hafi eig-
inlega farið úrskeiðis þegar mynd-
irnar voru valdar á það!) má þó
greina hápunkta og lágpunkta þótt
hvergi sé hvikað langt frá miðlínu.
Upphafslagið „Wind and Thunder“
sýnir t.d. hvað best tilfinningu Yagya
fyrir byggingu. Smávægilegar og
hægar breytingar í styrk, tíðnibreidd,
og áferð hinna ýmsu hljóðfæra gera
það að verkum að laginu vindur fram
með áreynslulausum hætti; ekki of
hratt (en það eru algeng mistök í
þessari tegund tónlistar) og ekki of
hægt (enn algengari mistök). Þessa
framvindu hefði mátt yfirfæra á
byggingu plötunnar í heild, en hún er
ansi langdregin sé hlustað á hana alla
í einu.
Það er ekki jafnbjart yfir „We
Lose Ourselves“ – laginu tekst aldrei
að komast almennilega á flug og á
þriðju mínútu er maður farinn að þrá
þá áttundu þegar laginu loks lýkur.
Sama má segja um flest laganna um
miðbik plötunnar, t.d. „Like the
Noise of Great Waters“ og „Their
Blood Is Black and Yellow“. Mun-
urinn á þessum lögum og lögunum í
upphafi liggur mögulega í tromm-
unum og hraðanum; um miðbikið hef-
ur dynjandi taktur tæknósins nefni-
lega orðið eftir og spennan og
krafturinn sem því fylgir sömuleiðis.
Undir lokin birtir aftur til;
„Change“ hefði t.d. sómt sér ágæt-
lega á síðustu Gusgus plötu með smá-
vægilegum breytingum og lokalagið
„When They Stood, They Let Down
Their Wings“ er ekki síðra en verk
Tangerine Dream.
Fagmannleg vinnsla og flottar pæl-
ingar í fyrstu lögunum og þeim sein-
ustu tekst því miður ekki að bjarga
Will I Dream During the Process fyr-
ir horn. Það hefur hreinlega verið
samið of mikið af sambærilegri og
jafngóðri eða betri tónlist til þess að
þessi plata geti náð að skapa sér ein-
hverja sérstöðu. Þó að hér sé margt
fallegt þá jafnast Will I Dream …
einfaldlega ekki á við fegurð Akra-
fjalls og Skarðsheiðar.
Eins og fjólubláir draumar
TÓNLIST
Geisladiskur
Öll lög eru eftir Aðalstein Guðmundsson.
Arnar Helgi Aðalsteinsson hljómjafnaði.
Sending Orbs gefa út. 10 lög, 73:59.
Yagya – Will I Dream During the Process?
Atli Bollason
POPPDROTTNINGIN Ma-
donna heldur tónleika í Moskvu
í Rússlandi 11. september næst-
komandi og mun degi síðar
snæða kvöldverð með forseta
Rússlands, Vladímír Pútín, og
dætrum hans
Maríu og Ka-
týu. Ónefndur
heimild-
armaður
breska götu-
blaðsins Sun
heldur þessu
fram.
Heimildarmaðurinn segir
Madonnu hafa langað mikið til
að hitta Pútín en hann hafi verið
tvístígandi. Dætur hans séu hins
vegar miklir aðdáendur Mad-
onnu og það hafi ráðið úrslitum.
Madonna mun þá nota tækifær-
ið og ræða heimsmálin við Pútín.
Svo gæti farið að tónleikarnir
verði ekki haldnir á þeim stað
sem fyrirhugað var, af ótta við
að háskólanemar fari sér að
voða. Nemar við Lomonosov-
háskólann, sem er í beinni sjón-
línu við tónleikastaðinn, geta
horft á tónleikana frá gluggum
skólans og hætta er talin á því
að þeir detti út um gluggana.
Tónlist | Madonna í Moskvu
Snæðir kvöldverð með
Pútín og dætrum hans
Reuter
Madonna á aðdáendur í Kreml.
Vladimir Putin