Morgunblaðið - 24.08.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 45
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar Morgun-
blaðið eftir að ráða fólk á öllum aldri í blaðburð víða á
höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband í síma 569 1440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
Vel launuð líkamsrækt
− fyrir fólk á öllum aldri
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Staðfest hefurverið að
kvikmyndaverið
Paramount Pict-
ures og kvik-
myndaleikarinn
Tom Cruise hafi
ákveðið að rifta
fjórtán ára fram-
leiðslusamningi
sínum og segir fulltrúi dótturfyr-
irtækis Paramount að rekja megi
það til óviðunandi hegðunar Cruise
að undanförnu. Þetta kemur fram á
fréttvef Yahoo.
„Þrátt fyrir að við kunnum afar
vel að meta hann persónulega þá
teljum við ekki rétt að endurnýja
samninginn, segir Sumner Red-
stone, framkvæmdastjóri Viacom
Inc. í viðtali við Wall Street Journal.
„Hegðun hans að undanförnu hefur
ekki verið Paramount að skapi.“
Paula Wagner meðeigandi Cruise
í kvikmyndafyrirtækinu Cruise/
Wagner Productions segir ummæli
Redstone dónaleg og óvirðuleg.
„Hvað svo sem herra Redstone
finnst um Tom Cruise persónulega
eða sem leikara þá hefur það ekkert
með viðskiptasamninginn að gera,“
segir hún og bætir því við að það hafi
verið þau Cruise sem ákváðu að rifta
samningnum. „Það hlýtur eitthvað
annað að liggja að baki því að kvik-
myndaverið kýs að taka einn tekju-
stofn sinn og rægja hann með þess-
um hætti,“ segir hún og staðhæfir að
rekja megi um 15% af tekjum Pa-
ramount á síðasta ári til kvikmynda
Cruise.
Hljómsveitin The Pixies er afarósátt með nýja heimildarmynd
þar sem rokksveitinni var fylgt eftir
á tónleikaferðalagi, en hljómsveit-
armeðlimirnir gagnrýna kvik-
myndagerðarmennina fyrir að hag-
ræða ýmsu til þess að fá sögu.
Í Loud Quiet Loud, sem var frum-
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Ed-
inborg í gær, segir frá tónleika-
ferðalagi sem sveitin fór í árið 2004
þegar hún kom saman á nýjan leik.
Hljómsveitin er afar ósátt með
það hvernig farið er með persónuleg
málefni í myndinni, sem þeir Steven
Cantor og Matthew Galkin leik-
stýrðu.
Frank Black, söngvari The Pixi-
es, segir: „Ég hef ekkert á móti
myndinni eða kvikmyndagerð-
armönnunum, en þeir hafa hagrætt
öllu. Þeir vildu sögu og sagan varð
þessi spenna innan hljómsveit-
arinnar og hversu illa okkur kom
saman, og hvernig Dave (Lovering,
trymbill hljómsveitarinnar) var á
niðurleið. Aftur á móti var það í
raun Dave sem hélt okkur saman,“
sagði Black.
„Kim (Deal, bassaleikari) var alls
ekki ánægð með myndina. Það er
eins og hún sé ekki á staðnum í
myndinni, með bjórinn sinn og
keðjureykjandi. Það leit út eins og
við værum nýbúnir að draga hana
upp úr ræsinu.“
Tónlistarkonan og Penetreitor-leikstjórinn Kristín Eysteins-
dóttir mun um helgina ganga að
eiga kærustu
sína Katrínu
Oddsdóttur. Af
því tilefni var
Kristín gæsuð í
gær og var liður
í þeirri uppá-
komu óvæntir
tónleikar á
Hressó. Tón-
leikarnir voru
fyrst og fremst
óvæntir fyrir Kristínu þar sem hún
sjálf átti að spila og syngja óskalög
úr salnum án nokkurs undirbúnings.
Að sögn viðstaddra stóð gæsin sig
vel en henni til halds og trausts var
fyrrum Bellatrix-bassaleikarinn
Kidda rokk.
Laugardaginn 9. septembernæstkomandi mun Jón Jósep
Snæbjörnsson, betur þekktur sem
Jónsi Í svörtum
fötum, taka að
sér gesta-
hlutverk í söng-
leiknum Foot-
loose. Jónsi
leysir af Guð-
mund Inga Þor-
valdsson á
þessari einu
sýningu og mun
fara með hlut-
verk Tona, kærasta Evu, sem leikin
er af Höllu Vilhjálmsdóttur. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem Jónsi
reynir við leiklistina, en hann lék
meðal annars í Grease sem var sett
upp í Borgarleikhúsinu árið 2003.
Þá leikur hann einnig í Hafinu
bláa sem verður tekið aftur til sýn-
ingar í Austurbæ í september.
Söngleikurinn Footloose er
byggður á samnefndri dansmynd
eftir Dean Pithcford sem kom út ár-
ið 1984. Árið 1998 var söngleikurinn
síðan settur á svið á Broadway og
hefur hann verið sýndur víða um
heim við miklar vinsældir.
Hér á landi var söngleikurinn
frumsýndur í Borgarleikhúsinu 29.
júní síðastliðinn.
Fólk folk@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
Frá leikstjóra Sixth Sense, Signs og Village.
PAUL GIAMATTI (SIDEWAYS) SÝNIR STJÖRNULEIK
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
eeee
S.U.S. XFM 91,9.
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
eee
S.V. Mbl.
KVIKMYNDIR.IS
60.000 GESTIR
JAMIE FOXX COLIN FARRELL
SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
"COLLATERAL" OG "HEAT"
B.J. BLAÐIÐ
LADY IN THE WATER kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 12.ára.
LADY IN THE WATER LUXUS VIP kl. 5:30 - 8 - 10:20
5 CHILDREN AND IT M/- ensku tal. kl. 4 - 6
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5 - 7 - 8 - 10 B.i. 12.ára.
THE LONG WEEKEND kl. 8 - 10:10 B.i. 14.ára.
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 4 - 6 Leyfð
OVER THE HEDGE M/- ensku tal. kl. 11 Leyfð
SUPERMAN kl. 8 B.i. 10.ára.
BÍLAR M/- Ísl tal. kl. 4 Leyfð
LADY IN THE WATER kl. 5:40 - 8:10 - 10:30 B.i. 12.ára. DIGITAL SÝN.
5 CHILDREN AND IT M/- ensku tal. kl. 4 - 6
MIAMI VICE kl. 8 - 10:45 B.i. 16.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8 - 11 B.i. 12.ára. DIGITAL SÝN.
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 4 Leyfð DIGITAL SÝN.
OVER THE HEDGE M/- ensku tal. kl. 4 - 6 Leyfð DIGITAL SÝN.
eee
„Þrusugóð
glæpamynd“
Tommi - kvikmyndir.is
eee
V.J.V - TOPP5.IS
4 vikur
á toppnum
á Íslandi !
eee
S.V. - MBL