Morgunblaðið - 28.10.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 293. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
KALLIÐ MIG EGIL
RUGLAÐ SAMAN VIÐ SÖGUPERSÓNU SÍNA Í
NÝRRI ÍSLENSKRI BÓKMENNTASÖGU >>LESBÓK
HVÍTABIRNIR
SORGLEGT OG
FYNDIÐ Í SENN
HÖNNUN >>34
Nairobi. AP. | Embættismenn Sam-
einuðu þjóðanna segja í nýrri
skýrslu að þúsundir hermanna frá
Eþíópíu og Erítreu séu í Sómalíu og
það auki líkurnar á styrjöld í þessum
heimshluta.
Íslamskir róttæklingar, sem njóta
stuðnings stjórnvalda í Erítreu,
héldu nokkra fjöldafundi í Sómalíu í
gær til að hvetja til heilags stríðs
gegn Eþíópíumönnum og banda-
mönnum þeirra í sómölsku bráða-
birgðastjórninni.
Aðeins einn bær í Sómalíu, Baid-
oa, er á valdi bráðabirgðastjórnar-
innar, en íslömsk hreyfing hefur náð
yfirráðum yfir öðrum svæðum.
Svartsýnir á friðarviðræður
Í skýrslu embættismanna SÞ
kemur fram að Eþíópíumenn hafa
sent 6.000–8.000 hermenn til Sómal-
íu og Erítreumenn 2.000. Bráða-
birgðastjórnin nýtur stuðnings
stjórnvalda í Úganda og Jemen, auk
Eþíópíu, en íslamska hreyfingin hef-
ur fengið aðstoð frá Íran, Líbýu,
Sádi-Arabíu og Persaflóaríkjum.
Fulltrúar fylkinganna koma sam-
an í Súdan í næstu viku en frétta-
skýrendur eru svartsýnir á að sam-
komulag náist um frið. Þeir óttast að
styrjöld blossi upp í Sómalíu og við
landamæri Eþíópíu og Erítreu ef
friðarviðræðurnar fara út um þúfur.
Reuters
Í stríðshug Sómalskir íslamistar á
mótmælafundi gegn Eþíópíu í gær.
Vaxandi
líkur á
styrjöld
Tvö grannríki senda
hersveitir til Sómalíu
ARNA Pálsdóttir og Jóhann Krist-
ján Eyfells eiga von á barni, dóttur,
eftir um það bil þrjá mánuði og í
gær sáu þau um sex mánaða gamalt
fóstrið í þrívídd í fyrsta sinn. Það
var þegar þau fóru í ómskoðun hjá
fyrirtækinu „9 mánuðum ehf.“ í
Kópavogi. Ekki er um greiningu að
ræða eins og til dæmis í ómskoðun
á Landspítalanum, heldur skoðun
fyrir foreldra.
Þau Arna og Jóhann voru mjög
spennt fyrir skoðunina en þó var
það ekki þannig, að þau vissu alveg
við hverju þau mættu búast. Undr-
unarsvipurinn leyndi sér hins vegar
ekki meðan á skoðuninni stóð og
þegar barnið þeirra og fóstrið setti
hönd undir kinn eins og það væri að
stilla sér upp fyrir myndatöku,
sagði Arna:
„Hún er fljót að læra og er lík-
lega bara fædd fyrirsæta. Það vildi
líka svo til, að ég var einmitt að
horfa á America’s Next Top Models
í gær.“ | 4
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„Hún
er fædd
fyrirsæta“
Svipur Þau Arna Pálsdóttir og Jóhann Kristján Eyfells með þrívíddarmynd af ófæddri dóttur sinni.
Washington. AP. | Repúblikanar í Bandaríkjunum virð-
ast hafa tapað miklu fylgi meðal millistéttarfólks og
það gæti orðið til þess að þeir misstu meirihluta sinn í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings, ef marka má nýja skoð-
anakönnun á vegum fréttastofunnar AP og fréttavefjar
AOL.
Könnunin bendir til þess að 56% þeirra, sem eru lík-
legir til að mæta á kjörstað 7. nóvember, ætli að kjósa
frambjóðendur demókrata í kosningum til fulltrúa-
deildarinnar. Aðeins 37% sögðust ætla að kjósa repú-
blikana. Demókratar voru með 10 prósentustiga for-
skot samkvæmt sams konar könnun fyrr í mánuðinum
en munurinn hefur nú aukist í 19 prósentustig.
Kosið verður um öll 435 sætin í fulltrúadeildinni og
33 sæti af 100 í öldungadeildinni.
Flestir þeirra sem tóku þátt í könn-
uninni sögðu að stríðið í Írak og
efnahagsástandið í Bandaríkjunum
væru helstu kosningamálin.
Könnunin bendir til þess að að-
eins 38% kjósendanna séu ánægð
með störf George W. Bush Banda-
ríkjaforseta og enn færri, eða 23%,
eru sátt við störf þingsins. Tveir
þriðju Bandaríkjamanna telja að landið sé á rangri
braut.
Umdeildar kosningaauglýsingar | 20
Demókrötum spáð sigri
Millistéttin í Bandaríkjunum snýr baki við repúblikönum
George W. Bush
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
EIGENDUR Iceland Express, Fons eignar-
haldsfélag, stefna að stórauknum umsvifum í
farþegaflugi, fyrst og fremst milli Skandinavíu,
Íslands og Norður-Ameríku þar sem þeir munu
væntanlega bjóða upp á lágfargjaldaflug í sam-
keppni við stór flugfélög á borð við Icelandair
og SAS. Fons ræður þegar yfir öflugu sölukerfi
í gegnum Iceland Express, Ticket í Svíþjóð og
Hekla Rejser í Danmörku.
Í dag var greint frá kaupum Fons á meiri-
hluta hlutafjár í breska flugfélaginu Astraeus
sem er með tíu Boeing 737- og 757-farþegaþot-
ur í rekstri og flytur um átta hundruð þúsund
farþega á ári. Fons kaupir 51% hlutafjár Astra-
eus, stjórnendur félagsins eiga 24,5% og Aber-
deen Private Equity, stór skoskur fjárfestinga-
sjóður, á 24,5%. Astraeus mun verða rekið
áfram sem sjálfstætt félag en verður í náinni
samvinnu við Iceland Express og fastlega má
gera ráð fyrir að Boeing 757-vélar Astraeus,
sem taka 233 farþega, verði notaðar í áætl-
unarflug yfir hafið til Norður-Ameríku. Þá má
einnig ganga út frá því að Astraeus muni sækja
um íslenskt flugrekstrarleyfi innan skamms en
Iceland Express hefur ekki slíkt leyfi. Hug-
myndir eru um að fljúga vestur um haf frá
Ósló, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn og þá með
viðkomu á Íslandi og bjóða upp á lægra verð en
keppinautarnir.
„Menn er þegar sestir niður að skoða mögu-
leikana,“ segir Matthías Páll Imsland, stjórn-
arformaður ferðaskrifstofanna Ticket og Heklu.
„Við erum með mjög sterkt sölunet til þess
að bakka þetta 100% upp. Ticket selur gríð-
arlegan fjölda flugmiða og við sjáum fram á að í
samstarfi við Ticket séu miklir möguleikar á því
að Iceland Express og Astraeus taki skandinav-
íska markaðinn í flugi til Bandaríkjanna, með
viðkomu í Keflavík, meira eða minna til sín. Það
er gamla Loftleiðamódelið,“ segir Matthías.
Lággjaldaflug til Ameríku
Í HNOTSKURN
» Breska flugfélagið Astraeus flýgurmeð um átta hundruð þúsund farþega á
ári.
» Astraeus er með tíu Boeing 737- og Boeing 757-farþegaþotur í rekstri og
flýgur til fjölda áfangastaða í Evrópu, Asíu,
Miðausturlöndum, Norður-Ameríku og
Afríku.