Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 4

Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 4
4 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kafteinn Ofurbrók og líftæknilega horskrímslið - Fáránlegu slímklessurnar. Sláist í för með þeim Georg, Haraldi og Kafteini Ofurbrók í nýjum spennuþrungnum, skjálftavekjandi tímatrylli. Góða skemmtun! www.jpv.is „MÉR finnst hún vera alveg eins og þú,“ sagði Arna Pálsdóttir við Jóhann Kristján Eyfells í gær um ófædda dóttur þeirra þegar þau fylgdust með um sex mánaða gömlu fóstrinu í óm- skoðun í þrívídd í fyrsta sinn. Þegar fóstrið var 20 vikna gamalt fór Arna í reglubundna tvívídd- arómskoðun á Landspítalanum og þá fengu þau að vita að stúlka væri á leiðinni. Þau vildu sjá meira á með- göngunni og fengu tíma hjá fyrirtæk- inu 9 mánuðir ehf. í Kópavogi í þeim tilgangi. „Það styttir biðina að fá að sjá hana,“ sagði Arna áður en þau fóru í skoðunina í gær og Jóhann Kristján bætti við að þetta væri góð leið fyrir hann til að taka þátt í með- göngunni. „Ég ætla að sjá að hún sé alveg eins og ég,“ hélt Arna áfram. „Ef við sjáum einhver svipbrigði verður það æðislegt,“ sagði Jóhann. Nýleg þjónusta Guðlaug María Sigurðardóttir, ljósmóðir, nálastungufræðingur og nuddari með meiru, stofnaði fyr- irtækið 9 mánuðir ehf. í ágúst 2002 og fyrir um níu mánuðum byrjaði hún að bjóða upp á þrí- og fjórvíddarsón- arskoðanir á meðgöngu. Guðlaug segir að hún hafi fyrst kynnst són- artækinu í Ungverjalandi fyrir um fimm árum en hafi ekki verið tilbúin að fara út í slíkan rekstur. Það hafi breyst eftir að hún hafi heyrt meira um viðbrögð verðandi foreldra, sér- staklega feðranna. „Þetta er svo mik- il tenging fyrir þá, því þeir finna ekki spörkin.“ Guðlaug segir að þessi þjónusta sé fyrst og fremst fyrir foreldrana og leggur áherslu á að ekki sé um grein- ingu að ræða heldur skoðun og ljós- myndun. Engin kona fái tíma hjá sér nema viðkomandi hafi farið í grein- ingu í sónar eftir 20 vikna meðgöngu og hún ráðleggi fólki að fara ekki í þrívíddarsónar fyrr en eftir 24. viku í meðgöngu og helst fyrir 32. til 34. viku. Verðandi foreldrar urðu ekki fyrir vonbrigðum með það sem þeir sáu. Arna sagði einna merkilegast að sjá að ófædd dóttir þeirra líktist frekar föðurnum og Jóhann sagði að það að sjá fóstrið og hreyfingarnar hefði aukið á spennuna. „Við bíðum spennt eftir fæðingunni.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Stolt Arna Pálsdóttir og Jóhann Kristján Eyfells, verðandi foreldrar, fylgjast með hverri hreyfingu á skjánum. „Mér finnst hún vera alveg eins og þú“ Fylgdust með sex mánaða fóstri sínu í þrívíddarsónar Í HNOTSKURN » Guðlaug María Sigurð-ardóttir, ljósmóðir, nála- stungufræðingur og nuddari með meiru, stofnaði fyr- irtækið 9 mánuðir ehf. fyrir um fjórum árum. » Fyrirtækið byrjaði aðbjóða upp á þrí- og fjór- víddarsónarskoðanir á með- göngu fyrir um níu mánuðum. » Skoðunin á ekkert skyltvið greiningu. Morgunblaðið/Brynjar GautiGuðlaug María Sigurðardóttir TENGLAR .............................................. Myndskeið á mbl.is www.9manudir.is RAGNAR Arn- alds, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, fékk í gær afhent gögn um hleranir á símum hans á ár- unum 1963 og 1968. Hann segir skýringar Þjóð- skjalasafnsins á því að það hefur fjarlægt númer ann- arra en Ragnars úr þeim afritum sem hann fékk vera „lélegan brand- ara“ og að safnið hafi tekið að sér rit- skoðun. Hann segir að margir muni líta málið öðrum augum þegar í ljós komi hversu víðtækar og ósvífnar hleranirnar voru. Í gögnunum kemur fram að í fyrra skiptið var veitt heimild til að hlera vinnusíma Ragnars hjá Samtökum hernámsandstæðinga í ótilgreindan tíma árið 1963, fyrir komu Lyndons B. Johnson, varaforseta Bandaríkj- anna. Ragnar var þá framkvæmda- stjóri samtakanna og alþingismaður. Í seinna skiptið var sími samtakanna einnig hleraður og sömuleiðis heima- sími Ragnars og stóð heimildin til að hlera í 19 daga fyrir ráðherrafund Atlantshafsbandalagsins. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Ragnar að í hvorugt þessara skipta hafi Samtök hernámsand- stæðinga haft í hyggju að efna til óspekta. „Þetta er fjarstæða,“ sagði Ragnar og bætti við að hann hefði heldur ekki vitað til þess að aðrir hefðu haft slíkt í hyggju. Hleranirn- ar hefðu því verið algjörlega ástæðu- lausar. Aðspurður sagði Ragnar að sig hefði aldrei grunað að sími sinn hefði verið hleraður. Ragnar sagði að hleranirnar væru ekki lengur aðalatriðið heldur sú staðreynd að Þjóðskjalasafnið hefði þurrkað út símanúmer annarra sem hlerað var hjá. Gögnin fjalli nánast eingöngu um formsatriði en ekkert sé fjallað um hvers vegna sími hvers og eins var hleraður eða hvað kom fram í þeim. „Þegar búið er að þurrka út öll númerin þá er heimild- argildi þessara gagna orðið gjör- breytt og nánast ekki neitt. Og ég gagnrýni það mjög sterklega að Þjóðskjalasafnið skuli leyfa sér að strika út upplýsingar í opinberum gögnum og einmitt þær upplýsingar sem mestu máli skipta og eru aðal- kjarni málsins,“ sagði hann. Ákvæði um persónuvernd pössuðu ekki í þessu tilviki og safnið hefði enga heimild til að strika yfir númerin. Útstrikanir til að fela umfang Ragnar sagðist ráða af þeim upp- lýsingum, sem fram hefðu komið um málið, að öruggt væri að símar margra þjóðkunnra stjórnmála- manna og forystumanna í verkalýðs- hreyfingunni hefðu einnig verið hler- aðir. Tilgangurinn með því að strika yfir númerin á þeim gögnum sem hefðu verið afhent væri einmitt sá að hylma yfir hversu víðtækar og ósvífnar þessar persónunjósnir hefðu verið á þessum tíma. „Það kann að vera að viðhorf margra breytist þegar þeir sjá að á þessum tíma voru menn að njósna um póli- tíska andstæðinga, þjóðkunna menn, sem þeir störfuðu með á Alþingi,“ sagði Ragnar. Sagðist hann t.a.m. viss um að bæði heima- og vinnusím- ar Hannibals Valdimarssonar, sem þá var forseti Alþýðusambands Ís- lands, Eðvarðs Sigurðssonar, for- manns Dagsbrúnar, og Lúðvíks Jós- epssonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, hefðu verið hleraðir í tengslum við samning við Breta um landhelgismál árið 1961. Þetta snerist ekki um að menn hefðu hlerað út af hugsanlegum óspektum heldur hafi þeir verið að njósna um starfandi stjórnmálamenn á Alþingi. Ragnar sagðist ekki trúa öðru en safnið gæfi þetta eftir og bætti við að fólki í öllum flokkum þætti þetta kjánalegt. „Og ég trúi ekki öðru en að forysta Sjálfstæðisflokksins ákveði bara að það sé ekki þess virði að þráast við því þetta er tapað spil,“ sagði hann. Birti öll hleruðu símanúmerin Skýringar á því að strokað er yfir símanúmer annarra „lélegur brandari“ Ragnar Arnalds. Í HNOTSKURN » Ragnar fékk afrit af skjölumum hleranir sem eingöngu fjalla um hann sjálfan. » Hann segir að ákvæði umpersónuvernd sé ekki hægt að nota til að afsaka að síma- númer hafi verið fjarlægð úr gögnunum. » Ragnar segir stjórnvöld allsenga ástæðu hafa haft fyrir hlerununum, aldrei hafi staðið til að efna til óspekta. un sem er í samræmi við neysluvísi- tölu og er eðlileg miðað við launa- hækkanir og hækkanir á matvöru hér á landi.“ Hún segir að í ljósi þessa hafi ekki verið talin ástæða til að bera málið undir hagsmunasam- tök eldri borgara. „Ef þetta hefði verið meiri hækkun þá hefði það þurft að skoðast. Af því að hún er innan eðlilegra marka þá var engin sérstök ástæða til þess.“ Hefði ekki verið gripið til þessara ráðstafana hefði þurft að skera niður þjónustu til að mæta auknum kostnaði. Jórunn segir meirihlutann nú þeg- ar hafa bætt kjör aldraðra. Búið sé að rýmka reglur um akstursþjón- ustu, brátt hefjist skipulagðar heim- sóknir til aldraðra og verið sé að byggja tvo þjónustukjarna og íbúðir fyrir eldri borgara. SAMÞYKKT var í velferðarráði Reykjavíkurborgar á miðvikudaginn að hækka gjaldskrá velferðarsviðs borgarinnar um 8,8% frá og með 1. janúar 2007. Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs, segir að hækkunin sé eðlileg og í samræmi við almennar vísitöluhækkanir. Einkum er um að ræða kostnað við heimaþjónustu, félagsstarf, fæði, veitingar og þjónustugjöld í félags- og þjónustumiðstöðvum aldraðra. Meirihlutinn í velferðarráði lagði fram tillöguna og var hún samþykkt á fundi þess síðastliðinn miðvikudag. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Jórunn Frímannsdóttir, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður velferðarráðs, að hækkun- in væri í samræmi við almennar hækkanir verðlags. „Þetta er hækk- Þjónustugjöld eldri borgara hækkuð Í samræmi við almennar hækkanir seg- ir formaður velferðarráðs Reykjavíkur TVEIR menn sitja nú í gæslu- varðhaldi vegna ætlaðs smygls á miklu magni af hassi til landsins. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er um að ræða meira en tíu kíló sem fundust í póstsendingu. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, staðfesti að tveir væru í haldi og að málið væri rannsakað í samvinnu við dönsk lögreglu- yfirvöld. Hann vildi ekki ræða frek- ar um rannsókn málsins að svo stöddu. Tveir menn í haldi vegna hasssmygls HVALUR 9 skutlaði fjórðu lang- reyðina um hádegið í gær og er væntanlegur með hana til Hval- fjarðar um klukkan 10:30 í dag. Að sögn Gunnlaugs Fjólars Gunnlaugssonar, starfsmanns Hvals, veiddist hvalurinn út af Snæ- fellsnesi, á svipuðum slóðum og hin- ar langreyðirnar þrjár. „Hann er svipaður og hinir, ekki síður feit- ur,“ sagði Gunnlaugur. Fjórða langreyðurin skutluð af Hval 9

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.