Morgunblaðið - 28.10.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.10.2006, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Suðurströnd 4 Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000 Bestu dekkin átta ár í röð! Í átta ár í röð hafa Toyo dekkin verið valin þau bestu af Tire Review Magazine, sem er tímarit sjálfstæðra hjólbarðasala í Bandaríkjunum. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is „NÚ FER fjörið að byrja,“ sagði kona á miðjum aldri þegar hún gekk í salinn á ársfundi Alþýðusambands Ís- lands á Hótel Nordica í gær, skömmu áður en atkvæðagreiðsla um róttæk- ar breytingar á skipulagi ASÍ hófst. Þar hitti hún naglann á höfuðið því fundarmenn höfnuðu óvænt tillögum stjórnarinnar. Greiða átti atkvæði um tvær megin lagabreytingatillögur. Í annarri var lagt til að fjölgað yrði í miðstjórn sam- takanna úr 15 í 31, en fundum hennar yrði fækkað. Á sama tíma yrði svo stofnuð framkvæmdastjórn þar sem sæti ættu 9–11 manns; forseti, vara- forseti, formenn landssambanda og þriggja stærstu aðildarfélaganna. Hin breytingartillagan gekk út á að ASÍ hættu að halda ársfund á hverju ári, og héldu þess í stað þing á tveggja ára fresti. Ein kona í framkvæmdastjórn? Almennt var litið svo á fyrir árs- fundinn, eins og heyra mátti á máli ársfundargesta, að aðildarfélög á landsbyggðinni væru andsnúin þess- um breytingartillögum þar sem þær þættu draga úr vægi miðstjórnar en koma völdum í hendur framkvæmd- arstjórnar þar sem sæti væru eyrna- merkt stóru aðildarfélögunum. Einn- ig var gerð athugasemd við það að ef tillögurnar hefðu fengið brautargengi hefði einungis 1–2 konur átt sæti í 9– 11 manna framkvæmdastjórn, en fyr- ir ársfundinn höfðu 5 konur átt sæti í 15 manna miðstjórn. Aukinn meirihluta þurfti til að sam- þykkja lagabreytingartillögurnar og hefði því 2⁄3 hluti fundarmanna þurft að samþykkja þær svo nýtt skipulag yrði að lögum. Atkvæðagreiðslan var leynileg og þegar atkvæði höfðu verið talin kom í ljós að 61,5% fundar- manna höfðu samþykkt tillögurnar en 38,5%, höfðu hafnað þeim. Þrír seðlar voru ógildir. Í framhaldinu var gerð tillaga um að breytingu á lögum varðandi ársfund yrði vísað frá án atkvæðagreiðslu og samþykkti þorri fundarmanna frávís- unina með handauppréttingu. Ekki þurfti að kjósa varaforseta þar sem óbreytt skipulag gerir ráð fyrir að hann verði kosinn á næsta ársfundi. Grétar Þorsteinsson var hins vegar endurkjörinn forseti ASÍ. Vonbrigði, segir forseti ASÍ Grétar segir það ákveðin vonbrigði þegar tillögur sem hafi verið vel und- irbúnar eru felldar. „Þetta þýðir væntanlega það að æði stór hluti af okkar samfélagi er tiltölulega sáttur við það skipulag sem við búum við. Það breytir því hins vegar ekki í mín- um huga að miðað við þær miklu breytingar sem hafa orðið á okkar umhverfi á síðustu árum – og eru fyr- irséðar í næstu framtíð – þá hljóta þær að kalla á það að umræða um skipulagsmálin verði ágeng.“ Hann segist ekki líta svo á að með þessu séu fundarmenn að lýsa van- trausti á stjórn ASÍ. „Ég tel að við sem höfum borið ábyrgð á þessum umræðum höfum unnið samvisku- samlega eins og fyrir okkur var lagt á síðasta ársfundi. […] Það kom í ljós að það var ekki nægilegt fylgi við til- löguna eins og hún var lögð upp. Þetta var afgreitt með lýðræðislegum hætti og ég lít ekki á þetta sem van- traust, fjarri því.“ Ánægður með niðurstöðuna Aðalsteinn Á. Baldursson, formað- ur Verkalýðsfélags Húsavíkur, var yfirlýstur andstæðingur skipulags- breytinga sem sneru að miðstjórn og stofnun framkvæmdastjórnar og sagðist hann ánægður með niðurstöð- una eftir atkvæðagreiðsluna. „Skoðanir eru skiptar um þetta en það er ljóst að andstaðan var til stað- ar á landsbyggðinni og þetta var fellt, sem betur fer,“ segir Aðalsteinn. Hann segist hafa verið hlynntur því að halda ársfundi annað hvert ár, en þeirri tillögu hafi verið vísað frá. Andstaða landsbyggðarfólks varð einkum vegna þess að ákveðið var ná- kvæmlega hverjir ættu sæti í fram- kvæmdastjórn, í stað þess að kosið yrði um sæti í stjórninni, segir Að- alsteinn. „Þá sáu menn fyrir sér að vægi landsbyggðarinnar væri ekki neitt, okkur hefur fundist á undan- förnum árum að okkar rödd ætti erf- itt uppdráttar gagnvart höfuðborgar- valdinu.“ Einnig bendir Aðalsteinn á að jafnréttinu hefði ekki verið gert hátt undir höfði með 9–11 manna framkvæmdastjórn með 1–2 konum innanborðs. Róttækar skipulagsbreytingar á skipulagi ASÍ hlutu ekki brautargengi á ársfundi samtakanna í gær Landsbyggð- in hafði sigur á stjórn ASÍ Morgunblaðið/Ómar Leynileg kosning Ársfundarfulltrúar greiddu í gær atkvæði um róttækar skipulagsbreytingar sem sneru að skipulagi forystu ASÍ. Ekki þurfti að kjósa varaforseta á þinginu þar sem skipulagsbreytingum var hafnað. Í HNOTSKURN » Tillögur að breytingum ámiðstjórn ASÍ, um tilurð framkvæmdastjórnar, og um að ársfundir verði að þingum sem haldin væru á tveggja ára fresti var hafnað í gær. » Viðamiklar breytingar áskipulagi voru síðast gerð- ar á þingi ASÍ árið 2000. Þá var ákveðið að hætta að halda þing á fjögurra ára fresti og halda þess í stað ársfundi á hvejru ári. AÐEINS fjórðungur fulltrúa í stjórnum landssambanda sem aðild eiga að Alþýðusambandi Íslands eru konur, og þriðjungur fulltrúa í stjórnum aðildarfélaga og deilda inn- an ASÍ. Þetta kemur fram í kynja- bókhaldi ASÍ, sem kynnt var á árs- fundi sambandsins í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt kynjabókhald ASÍ er birt. Þar kem- ur einnig fram að 47% félagsmanna eru konur, en konur voru samt að- eins 38% fulltrúa á ársfundinum. Ástandið innan félaganna er nokk- uð misjafnt, þannig snerist kynja- hlutfallið við í Landssambandi ís- lenskra verzlunarmanna, þar sem 71% stjórnarmanna eru konur, en þar eru konur 61% félagsmanna. Í Rafiðnaðarsambandi Íslands, þar sem 11% félagsmanna eru konur, eru þær 15% fulltrúa í stjórn. Innan Samiðnar, sambands iðnfélaga, eru hlutföllin síðan þau, að þar eru konur 6% félagsmanna og 7% stjórnar- manna. Kynjabókhaldið kynnt á fundi ASÍ ÖGMUNDUR Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), segir það vera alvar- legt að mörg fyrirtæki og stofnanir skuli ganga of langt í eftirliti með starfsfólki sínu. 41. þingi BSRB var slitið í gær og voru samþykktar ályktanir um ýmis málefni. Var Ög- mundur Jónasson endurkjörinn for- maður bandalagsins. Í erindi Sigrúnar Jóhannesdóttur, forstjóra Persónuverndar, á þingi BSRB í fyrradag, kom fram að nið- urstöður könnunar sem Persónu- vernd lét gera bentu til þess að eft- irliti fyrirtækja og stofnana með starfsfólki væri oft ábótavant út frá sjónarmiðum persónuverndar. Fram kom að ýmislegt hefði mátt bæta í eftirliti 75% þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í könnuninni. Einkum væri um það að ræða að starfsmenn fengju ekki nægilega fræðslu um notkun eftirlitsmyndavéla, starfs- mönnum væri ekki kunnugt um eft- irlit með netnotkun sinni, gögnum um eftirlit væri ekki eytt og reglur skorti um eftirlit og þá sér í lagi um eftirlit með akstri. Ögmundur Jón- asson segir að BSRB hafi áður lagt áherslu á að reglur séu settar um eft- irlit með starfsfólki í samráði við starfsmenn og þeim séu þær kunnar. Deila megi um hversu langt eigi að ganga í slíku eftirliti en þegar síðan komi í ljós að slíkt sé gert án vit- undar starfsfólks þá hljóti slíku að vera mótmælt harðlega. „Þarna er greinilegt að atvinnurekendur hafa fært út sína landhelgi óhæfilega langt og þarna segjum við að við vilj- um færa út mannhelgina,“ sagði Ög- mundur í samtali við Morgunblaðið í gær. Samþykkti þing BSRB í gær ályktun um að bæta þyrfti úr þeim brotalömum sem væru á eftirliti fyr- irtækja og stofnana með starfs- mönnum sínum. Óttast markaðsvæðingu almannaþjónustunnar Þingið var haldið undir kjörorðinu „eflum almannaþjónustuna – eflum lýðræðið“. Ögmundur segir að með kjörorðinu vilji bandalagið leggja áherslu á að milli þess að þrengt sé að almannaþjónustunni þá sé jafn- framt þrengt að lýðræðinu. „Við samþykktum að efna til vitundar- vakningar um gildi almannaþjónust- unnar og höfða til annarra samtaka launafólks á Íslandi og annarra sam- taka sem telja það mikilvægt að standa vörð um þessi gildi.“ Hann segir menn staðnæmast sérstaklega við þá þróun sem vart hafi orðið í Leifsstöð. „Þar hefur öryggisgæslan verið markaðsvædd og það var ályktað mjög hart gegn þessu á þinginu. Sömuleiðis vara menn mjög eindregið við því að einkahluta- félagavæða Ríkisútvarpið.“ Margt annað bar á góma á þinginu. M.a. var hvatt til samstöðu í baráttunni fyrir hækkun lægstu launa og hvatt til að lögum um lífeyr- issjóði yrði breytt svo sjóðunum væri ekki skylt að líta einungis til há- marksávöxtunar fjármagns án tillits til annarra mikilvægra hagsmuna sjóðafélaga. „Við viljum færa út mannhelgina“ Ályktað var um persónuvernd á síðasta degi þings BSRB Morgunblaðið/Ómar Endurkjörinn Ögmundur Jónasson var endurkjörinn formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á lokadegi þings þess í gær.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.