Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 20
20 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
París. AFP, AP. | Franska lögreglan
hafði mikinn viðbúnað í úthverfum
Parísar í gær en óttast var að til
óeirða kæmi í tengslum við athafnir
til minningar um tvo unglingspilta af
afrískum uppruna sem létust fyrir
nákvæmlega ári, en dauði þeirra
hratt af stað margra vikna umsát-
ursástandi í hverfum innflytjenda í
mörgum borga Frakklands.
Talsverð spenna hefur verið í
hverfum innflytjenda í París undan-
farna daga. Kveikt var í um eitt
hundrað bílum í fyrrinótt, um helm-
ingi þeirra í París, og var þessi tala
hærri en undanfarna daga – og þó
mun lægri en þegar mest gekk á í
fyrra, en þá urðu um fjórtán hundr-
uð bifreiðar eldi að bráð.
Nicolas Sarkozy innanríkisráð-
herra hafði heitið því á fimmtudag að
lögreglan í úthverfum Parísar myndi
halda uppi röð og reglu í almenn-
ingsfarartækjum; en óeirðaseggir
hafa valdið usla í þeim undanfarna
daga. Var kallað út um 500 manna
varalið í þessari viku enda var vitað
að spenna myndi magnast í kringum
eins árs afmæli atburðanna í fyrra.
Mikil reiði kviknaði meðal innflytj-
enda í útverfum Parísar og annarra
stórborga þegar fréttist um dauða
drengjanna tveggja, Zyed Benna og
Bouna Traore, 27. október í fyrra.
Þeir höfðu verið á flótta undan lög-
reglunni en innflytjendur í Frakk-
landi segja frönsku lögregluna oft og
iðulega áreita þá og sýna þeim lítils-
virðingu. Mikið atvinnuleysi er einn-
ig í hverfum innflytjenda og glæpir
og fátækt setja svip sinn á líf þeirra.
Frönsk stjórnvöld hafa á því ári sem
liðið er fengið samþykkt ný lög sem
kveða á um jafnrétti borgaranna og
þau hafa ennfremur dælt fé í verk-
efni í hverfum innflytjenda. Engu að
síður ríkir óánægja meðal innflytj-
enda. Claude Dillain, borgarstjóri í
Clichy-sous-Bois, hvatti fólk hins
vegar til að sýna stillingu í gær og
haft var eftir ættingja Traores í gær
að þó að misrétti ríkti í Frakklandi
myndi ofbeldi engan vanda leysa.
Spenna í hverfum
innflytjenda í París
AP
Minntust drengjanna Fjölskyldur unglingspiltanna tveggja héldu í gær á
lofti borða þar sem stóð „Dóu til einskis“ en þá var ár liðið frá dauða þeirra.
Í HNOTSKURN
» Óeirðir urðu í fyrra eftirað tveir táningar, Zyed
Benna og Bouna Traore, lét-
ust af völdum raflosts sem þeir
fengu er þeir leituðu skjóls
undan lögreglunni í orkustöð í
Clichy-sous-Bois í París.
» Um 28.000 manns búa íClichy-sous-Bois og er at-
vinnuleysið þar 23,5% og
raunar 32% hjá 15 til 24 ára.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
AUGLÝSINGAR vegna kosning-
anna sem fram fara í Bandaríkjunum
annan þriðjudag þykja hafa verið
með eindæmum neikvæðar. Eru það
einkum repúblikanar sem ganga
langt í því skyni að útmála andstæð-
inga sína sem óalandi og óferjandi en
skýringin er sú að þeir eiga undir
högg að sækja í þessum kosningum.
Blaðið The Washington Post rakti
nokkrar umtöluðustu auglýsingarn-
ar í gær, en þær eru með þeim hætti
að afstaða keppinautarins er gjarnan
skrumskæld með öllu. Þar er m.a.
fjallað um auglýsingar repúblikana í
New York sem beinast gegn Michael
A. Arcuri, sem sækist eftir sæti í full-
trúadeild þingsins. Er Arcuri, sem
hefur verið saksóknari undanfarin
ár, þar sakaður um að hafa eytt
skattfé borgaranna með því að kaupa
sér símaklám. Staðreyndin mun hins
vegar vera sú að aðstoðarmenn Arc-
uris hugðust eitt sinn hringja í dóms-
málaráðuneyti ríkisins en hringdu í
vitlaust númer, þ.e. í klámsímalínu,
en númerið líktist hinu afar mikið.
Kostaði símtal þetta rúman dollara,
um 90 íslenskar krónur.
Repúblikaninn Paul R. Nelson,
sem vill fella demókratann Ron Kind
af þingi, er á sömu slóðum, fullyrt er í
auglýsingum hans að Kind „borgi
fyrir kynlíf“. Segir þar að Kind hafi
eytt skattfé til að rannsaka „kynlífs-
hegðun víetnamskra vændiskvenna“
og „sjálfsfróun gamalla manna“.
Byggist auglýsingin á því að Kind
greiddi, eins og margir repúblikanar
í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, at-
kvæði gegn þingsályktun þar sem
lagt var til að heilbrigðisstofnunum
yrði meinað að gera rannsóknir á
kynlífshegðun fólks.
Sérfræðingar segja ástæðu þess
að menn noti neikvæðar auglýsingar
einfalda: þær virki. „Fólk segir
kannski að því finnist þær ógeðfelld-
ar, en það man eftir þeim,“ hefur
AFP eftir Tom Baldino, prófessor
við Wilkes-háskóla. Aðrir benda á að
svona auglýsingar stuðli að því að
fólk fyllist andstyggð á stjórnmála-
mönnum. „Neikvæðar auglýsingar
styrkja menn í þeirri trú að þátttaka
í bandarískum stjórnmálum sé eitt-
hvað sem allt sómakært fólk eigi að
forðast,“ segir Rich Hanley, prófess-
or við Quinnipiac-háskóla.
Umdeildar kosn-
ingaauglýsingar
Neikvæður tónn í baráttunni vestra
AP
Michael Arcuri og repúblikaninn
Ray Meier í kappræðum nýlega.
ÞRÓUN mála í Norður-Kóreudeil-
unni undanfarnar tvær vikur sýnir
að Bandaríkin hafa glatað stöðu
sinni sem stórveldi. Þetta segir Dav-
id Wall, sérfræðingur við Chatham
House-rannsóknarstofnunina í
London, en hann var á Íslandi í vik-
unni í tengslum við ráðstefnu IceM-
UN-félagsins svokallaða.
Wall rökstuddi þessa skoðun sína
með því að benda á að sú ályktun
sem öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefði á endanum samþykkt um
kjarnorkumál Norður-Kóreu væri
víðsfjarri öllu því sem Bandaríkja-
menn hefðu viljað ná fram. Stað-
reyndin væri hins vegar sú að þeir
hefðu ekki getað fengið meira afger-
andi ályktun samþykkta. „Nið-
urstaðan var niðurlægjandi fyrir
þá,“ segir Wall. Ekkert í samþykktri
ályktun hafi nokkra merkingu.
Wall segir raunar einnig að rangt
sé að líta svo á að eitthvað hafi
breyst með tilraunum Norður-
Kóreumanna til að sýna heiminum
fram á að þeir hafi sprengt kjarn-
orkusprengju. „Það hefur ekkert
gerst. Norður-Kórea ógnar ekki
neinum, þeir hafa engin áform um
að ná undir sig meira landsvæði og
þeir ógna engan veginn Bandaríkj-
unum eða nokkru bandalagsríki
þeirra.“
Kim er að gera umbætur
Wall hefur talsvert aðra sýn á
Norður-Kóreu en venjulega má
finna í vestrænum fjölmiðlum í hvert
sinn sem fjallað er um Norður-
Kóreu og leiðtoga landsins, Kim
Jong-Il. Meðal annars segir Wall –
sem hefur tvívegis komið til N-
Kóreu og dregur enga dul á þá skoð-
un sína að um vondan stað sé að
ræða – að Kim Jong-Il sé bráðgáf-
aður og að N-Kórea sé langt frá því
að vera jafnlokað ríki og um sé talað.
Wall segir að Kim hafi verið að
hrinda í framkvæmd efnahags-
umbótum á liðnum árum sem minni
mjög á þróunina í Kína. „Hann hefur
sent 1.600 manns til að læra vest-
rænar hagfræðikenningar og hann
er sannfærður um að kínverska leið-
in sé sú rétta,“ segir Wall.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umbótaþróun í N-Kóreu David Wall er sérfróður um málefni Austur-Asíu.
Bandaríkin ekki
lengur stórveldi
Stuðningsmenn Björns
Bjarnasonar bjóða alla
sjálfstæðismenn velkomna
í kosningakaffi í dag,
laugardag, frá kl. 12
í kosningamiðstöð Björns.
Einnig er boðið er upp
á akstur á kjörstað.
Tekið er við beiðnum
í síma 551 6300.
Samstaða til sigurs!
Stuðningsmenn
Kosningakaffi og
akstur á kjörstað
Kosningamiðstöð Björns Bjarnasonar / Skúlagötu 51 / 551-6300
Opið í dag frá kl. 12.00 / www.bjorn.is
Síðari dagur prófkjörs sjálfstæðismanna í Reykjavík fer fram í dag,
28. október. Kjörstaðir eru opnir frá kl. 10.00 til 18.00.
Björn Bjarnason í 2. sæti