Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LOKSINS FÁANLEG AFTUR Á ÍSLANDI BÓKIN SEM BREYTT HEFUR LÍFI MARGRA TIL HINS BETRA Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is ÞING Mið-Ameríukuríkisins Ník- aragva hefur samþykkt lög sem kveða á um að fóstureyðingar skuli vera með öllu óheimilar í landinu. Skiptir þá engu þótt viðkomandi kona hafi orðið fyrir nauðgun eða líf hennar teljist í hættu. Þingheimur lagði blessun sína yfir frumvarpið á fimmtudag. Stuðning- ur við það reyndist yfirgnæfandi, 52 þingmenn studdu bannið en enginn greiddi atkvæði gegn því. Enrique Bolanos forseti studdi frumvarpið sem fram er komið eftir þrýsting af hálfu katólsku kirkjunnar. Samkvæmt frumvarpinu eiga læknar þeir sem framkvæma fóstur- eyðingu fjögurra til átta ára fangels- isdóm yfir höfði sér. Breytir þá engu þótt viðkomandi kona hafi orðið fyrir nauðgun eða líf móður teljist í hættu. Sama refsing bíður þeirra kvenna sem gangast undir fóstureyðingu. Vildi þyngri refsingar Bolanos forseti hafði ákaft hvatt til þess að kveðið yrði á um þyngri refsingar. Lagði hann til að þeir sem framkvæmdu fóstureyðingar yrðu dæmdir til 10 til 20 ára vistar innan fangelsismúra. Forsetinn var og talsmaður þess að refsingin yrði allt að 30 ár í þeim tilfellum sem kona yrði fyrir tilfinningalegum skaða eft- ir að hafa gengist undir fóstureyð- ingu. Sömu refsingu vildi forsetinn innleiða kostaði fóstureyðing við- komandi konu lífið. Kvennasamtök efndu til mótmæla við þinghúsið í höfuðborginni, Mana- gua, er nýju lögin voru rædd. Banda- rískir kvenréttindahópar hafa og fordæmt nýju lögin. Segja talsmenn þeirra þau brjóta gegn mannréttind- um kvenna í Níkaragva. Þá bjóði lög- in þeirri hættu heim að margar kon- ur grípi til þess úrræðis að gangast undir ólöglega og hættulega fóstur- eyðingu. Slíkt er nú þegar afar al- gengt í Níkaragva enda er dánar- tíðni ófrískra kvenna þar í landi mikil. Málsvarar kvennahópa segja firringu þingheims því algjöra. Fóstureyðingabann leitt í lög í Níkaragva AP Mótmæli Kvennasamtök efndu til mótmæla við þinghúsið í Managua er nýju lögin voru rædd. Gerðu konurnar hróp að þingheimi. TVEIR þýskir hermenn hafa verið leystir tímabundið frá skyldustörf- um í Afganistan þar eð grunur leikur á um að þeir hafi raskað grafarró með því að leika sér að hauskúpum látinna Afgana. Myndir af fíflalátum mannanna hafa verið birtar í Þýska- landi og vakið þar almenna hneyksl- an og viðbjóð. Franz Josef Jung, varnarmálaráð- herra Þýskalands, greindi frá því í gær að mennirnir tveir hefðu verið leystir frá störfum. Rannsókn færi fram á því hvort þeir hefðu gerst sekir um að raska grafarró. Í Þýska- landi liggur allt að þriggja ára fang- elsisvist við slíku athæfi. Dagblaðið Bild birti á miðvikudag myndir af þýskum hermönnum sem komið höfðu fyrir hauskúpu á bryn- vagni sínum. Daginn eftir birti sjón- varpsstöðin RTL fleiri myndir af þýskum hermönnum þar sem þeir höfðu brugðið á leik með hauskúpur. Ein þeirra sýnir hermann kyssa hauskúpu og önnur er af hauskúpum sem raðað hefur verið upp í bing. Bild hyggst birta fleiri myndir um helgina og er hermt að á einni þeirra geti að líta hermann sem beinir byssu sinni að hauskúpu. Myndirnar voru teknar árið 2004 og í fyrra. Jung varnarmálaráðherra sagði flesta þá sem lægju undir grun um að hafa tekið þátt í þessu athæfi hafa lokið skyldustörfum sínum og kvatt þýska herinn. Þeir sem enn væru í Afganistan undir merkjum þýska ríkisins yrðu reknir úr hernum. Bild birti í gær viðtal við ónefndan hermann sem viðurkennir að hann sé einn þeirra sem brá á leik fyrir myndavélina skammt frá Kabúl, höf- uðborg Afganistans. Hermaðurinn segist hafa sætt þrýstingi um að taka þátt í „leiknum“ og að þeir sem þrá- ast hafi við hafi verið úthrópaðir sem skræfur. Hann kveður hermennina hafa fundið hauskúpurnar í gryfju einni og segist þekkja mörg dæmi þess að viðlíka hafi átt sér stað í Afg- anistan. Hinir lægra settu í hernum telji slíka „leiki“ hina bestu skemmt- un. Hauskúpumynd- ir vekja viðbjóð Þýskir hermenn leystir frá störfum Reuters Þýski varnarmálaráðherrann á blaðamannafundi í Berlín í gær. TVEIR slökkviliðsmenn reyna að koma í veg fyrir að skógareldar í Banning í Kaliforníu breiðist út til íbúðarhverfa í nágrenninu í gær- morgun. Allt tiltækt slökkvilið hef- ur unnið að því hörðum höndum að stöðva útbreiðslu skógareldanna í Kaliforníu síðustu daga en þeir hafa þegar kostað fjóra slökkviliðs- menn lífið nálægt Palm Springs. Hundruð manna hafa þurft að yf- irgefa heimili sín vegna skógareld- anna en þeir hafa breiðst hratt út, m.a. fyrir tilstilli heitra vinda á svæðinu. Yfirvöld fullyrða að brennuv- argar hafi upphaflega kveikt eld- ana og hafa fyrirskipað morðrann- sókn vegna dauða slökkviliðs- mannanna fjögurra. Þau segja að eldurinn hafi verið kveiktur vísvit- andi og í því skyni að valda sem mestum skaða. Er hverjum þeim, sem veitt getur upplýsingar um hina ábyrgu, heitið 100.000 dollara verðlaunafé. Sem fyrr segir létust fjórir slökkviliðsmenn og sá fimmti liggur þungt haldinn á spítala. Brennuvarga leitað í Kaliforníu AP Kabúl. AFP. | Talsmenn Atlantshafs- bandalagsins staðfestu í gær að a.m.k. tólf óbreyttir borgarar hefðu týnt lífi í loftárásum NATO í suður- hluta Afganistans á þriðjudag, en skotmarkið voru vopnaðar sveitir talibana sem átt höfðu í bardögum við hersveitir NATO á svæðinu. 48 talibanar eru sagðir hafa verið drepnir í árásunum. Hamid Karzai, forseti Afganist- ans, hafði áður skipað nefnd til að rannsaka mannfall í röðum óbreyttra borgara í aðgerðum NATO í Panjwayi í Kandahar á þriðjudag. ISAF-sveitir NATO í landinu hafa þegar harmað dauða óbreyttra borgara en bardagarnir brutust út eftir að um 40 talibanar réðust að sveitum NATO í Panjwayi. Fjórtán óbreyttir borgarar til við- bótar – mest gamalmenni og börn – týndu lífi í gær þegar vegsprengja grandaði bifreið þeirra í Uruzgan- héraði. Ekki var ljóst hver kom sprengjunni fyrir. Staðfesta mannfall Lilongwe. AP. | Sú ákvörðun söngkon- unnar Madonnu að ættleiða barn frá Malaví hefur orðið til þess að al- þjóðleg umræða hefur kviknað um það hvernig best megi hjálpa öllum þeim milljónum barna í Afríku sem skilin hafa verið eftir munaðarlaus af skaðvaldinum mikla, AIDS. Ástæða þess að málið er svo mjög í sviðsljósinu er sú ákvörðun 67 mannréttindahópa í Malaví að fara með það fyrir dómstóla en þeir segja yfirvöld hafa brotið lögin þegar þau heimiluðu að Madonna færi með David Banda, sem er 13 mánaða, úr landi, aðeins örfáum dögum eftir að hún bað um að fá að ættleiða hann. Venjan er sú í Malaví að hjón sem vilja ættleiða barn fara í gegnum átján mánaða langt athugunarferli. Dómarinn sem veitti Madonnu og Guy Ritchie, manni hennar, yfirráð yfir barninu, David Banda, 12. októ- ber sl. sagði hins vegar að engu máli skipti hvar þau væru búsett. Þau gætu því farið með drenginn til London þar sem Madonna heldur heimili og þar sem félagsráðgjafi getur séð til með barninu næstu átján mánuðina. Sjálf segist Ma- donna engin lög hafa brotið og hún neitar því að hún hafi nýtt frægð sína og auðæfi til að fá með hraði til- skilin leyfi til að ættleiða barnið. Bresku samtökin ActionAid fagna því að Madonna hafi vakið athygli umheimsins á hlutskipti barna í Malaví og þau segjast ekki efast um að Madonna muni veita David Banda gott heimili. Ýmsar aðrar leiðir séu þó gagnlegri þegar til lengri tíma sé litið til að bæta hlut- skipti munaðarlausra barna í Afríku. Ættleiðingarmál Madonnu vekja miklar umræður Í HNOTSKURN »Móðir Davids Banda dóskömmu eftir fæðinguna en faðir hans, Yohane Banda, er á lífi og er samþykkur ætt- leiðingunni. Yohane hefur misst tvö börn til viðbótar af völdum malaríu. »Malaví er meðal fátækusturíkja heims. Um 14% íbúa eru smituð af HIV-veirunni sem veldur alnæmi. Ein millj- ón barna er munaðarlaus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.