Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
JÓN Arnþórsson, fyrrverandi safn-
stjóri Iðnaðarsafnsins á Akureyri,
hvetur til þess að Gefjunarhúsið á
Gleráreyrum verði varðveitt. Nið-
urrif gömlu Sambandsverksmiðj-
anna á svæðinu hefst eftir fáeina
daga og verður verslunarmiðstöðin
Glerártorg stækkuð um helming.
Jón segir í grein í blaðinu Viku-
degi á fimmtudaginn að Gefj-
unarhúsið hafi þótt sérstakt afrek
vegna stærðar á þeim tíma sem það
var byggt, 1907, auk þess að vera
nýjung í byggingatækni.
Jón vitnar í greinargerð frá Hús-
friðunarnefnd ríkisins þar sem segir
m.a.: „Gefjunarhúsið hefir mikið
varðveislugildi vegna fágætis, menn-
ingarsögu og byggingarlistar.“
Jón segir að hvergi á Norðurlandi
hafi sama iðngreinin verið stunduð
jafn lengi á einum stað og ull-
arvinnslan í Gefjunarhúsinu, sam-
fellt í 90 ár. „Á þessum tíma hafa því
þúsundir Akureyringa þegið laun á
þessum vinnustað og oftar en ekki
jafnvel þrjár kynslóðir úr sömu fjöl-
skyldu verið þar að verki samtímis.
Athygli er vakin á þessum stað-
reyndum m.a. vegna þess að fram-
undan eru miklar bygging-
arframkvæmdir áætlaðar á
Gleráreyrum, sem m.a. hafa það í för
með sér að flestöll hús gamla sam-
bandsiðnaðarins, þ.á m. Gefjunar,
Iðunnar og Heklu, verði rifin til að
rýma fyrir bílastæðum og götum.“
Jón segir að nú um stundir sé
gjarnan rætt um að ekki megi tefja
við liðna tíð, en horfa frekar fram á
veginn. „Ágæt rök eru færð fyrir
þessu og ekki við neinn að sakast.
Hins vegar er full ástæða til að
minnast þess að okkar blómlegi bær
væri ekki svona stór og fallegur ef
ekki hefði notið við þess fjölda fólks
sem vann við iðnaðinn á Gler-
áreyrum og varð til þess að Ak-
ureyri var á landsvísu þekkt sem
iðnaðarbærinn Akureyri.“
Hann segir ennfremur að það sé
vænlegt að byggja upp versl-
unarrekstur í bænum vegna þess
m.a. „að um áratugaskeið unnu
menn hörðum höndum við að byggja
upp bæinn sinn með atvinnuöryggi
sem tryggan förunaut í því verki“.
Því væri verðugt minnismerki um
mikilvægi liðinnar tíðar á þessum
vettvangi að Gefjunarhúsið yrði
varðveitt „til að minnast þúsund-
anna sem unnu að iðnaði á Gler-
áreyrum á liðinni öld“.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sérstakt afrek Séð yfir gamla verksmiðjusvæðið. Gamla Gefjunarhúsið er hið ljósbrúna fyrir miðri mynd. Í fjarska verslunarmiðstöðin Glerártorg.
Vill varðveita Gefjunarhúsið
Í HNOTSKURN
»Gefjunarhúsið þótti sér-stakt afrek þegar það var
byggt, árið 1907.
» Jón Arnþórsson segir aðþað yrði verðugt minn-
ismerki um mikilvægi liðinnar
tíðar á þessum vettvangi að
Gefjunarhúsið yrði varðveitt
„til að minnast þúsundanna
sem unnu að iðnaði á Gler-
áreyrum á liðinni öld“.
» „Gefjunarhúsið hefir mikiðvarðveislugildi vegna fá-
gætis, menningarsögu og
byggingarlistar,“ segir í grein-
argerð húsafriðunarnefndar.
Yfirlitssýning á grafíklistaverkum
Drafnar Friðfinnsdóttur verður
opnuð í dag í Listasafninu á Ak-
ureyri. Dröfn lést árið 2000, aðeins
54 ára að aldri, og hefði orðið sextug
á árinu. Að-
alsteinn Ingólfs-
son listfræð-
ingur, sem ritar
grein í bók sem
gefin er út um
Dröfn í tilefni
sýningarinnar,
segir að það
hryggilegasta við
feril Drafnar sé
hve seint hún
byrjaði á því sem hún gerði best,
sem voru tréristurnar. „Það er kom-
ið fram á níunda áratuginn þegar
hún er orðin þroskaður listamaður á
því sviði. Hún á um tíu ár á þessu
sviði en töluvert mikið liggur samt
eftir hana. Hún var forkur til vinnu
og dró ekkert af sér,“ segir Að-
alsteinn í bókinni.
Herra Norðurland verður krýnd-
ur í Sjallanum í kvöld. Níu piltar
taka þátt í keppninni en þremur
efstu sætunum fylgir þátttökuréttur
í keppninni um herra Ísland í næsta
mánuði.
Vörður, félag ungra Sjálfstæð-
ismanna á Akureyri, fagnar þeim
áformum Iceland Express að hefja
innanlandsflug til og frá Akureyri
næsta vor. „Samkeppni á þessum
markaði er gífurlegt fagnaðarefni í
ferðamálum og fyrir almenning enda
er Akureyri einn vinsælasti áfanga-
staður íslenskra ferðamanna. Með
auknu framboði og lægri flugfar-
gjöldum kemur Akureyri til með að
styrkja stöðu sína sem góður kostur
fyrir erlenda ferðamenn,“ segir m.a.
í ályktun Varðar.
Verk Drafnar
í Listasafninu
Dröfn
Friðfinnsdóttir
AKUREYRI
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | Endurhönnun nýbygging-
ar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
á Selfossi er lokið og eru fram-
kvæmdir hafnar að nýju eftir að hafa
legið niðri í sex mánuði.
Gert er ráð fyrir verklokum fyrsta
áfanga 1. október 2007 sem er bygg-
ing hússins og frágangur lóðar,
ásamt innréttingum á 2. hæð húss-
ins. Í þessum áfanga er ekki gert ráð
fyrir að ljúka við innréttingu 1. hæð-
ar þar sem heilsugæslan verður til
húsa né kjallara þar sem gert er ráð
fyrir sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og
fleiru. Ekki er heldur komin fjárveit-
ing til innréttinga 3. hæðarinnar sem
bættist við þar sem gert er ráð fyrir
hjúkrunardeild.
Samfella verði í framkvæmdum
Fyrirliggjandi er að gerðar verða
breytingar á fyrstu hæðinni í eldri
byggingu Heilbrigðisstofnunar Suð-
urlands vegna tilfærslna á starfsemi
innanhúss en ekki er fjárveiting til
þess. Að sögn Magnúsar Skúlasonar
framkvæmdastjóra er lögð áhersla á
það af hálfu Heilbrigðisstofnunar-
innar að fjármagn fáist til fram-
kvæmdanna þannig að samfella
verði í framkvæmdum við nýbygg-
inguna þar til hún verður tekin í
notkun og við þær breytingar sem
gera þarf, þannig að það trufli sem
minnst starfsemi stofnunarinnar.
Með tilkomu 2. og 3. hæðar ný-
byggingarinnar verða til 40 hjúkr-
unarrými en gert er ráð fyrir að
hjúkrunardeild HSu á Ljósheimum á
Selfossi þar sem eru 24 hjúkrunar-
rými flytjist á 2. hæð nýbyggingar-
innar. Með tilkomu aðstöðunnar á
þriðju hæð byggingarinnar verður
unnt að mæta mikilli þörf sem er fyr-
ir hjúkrunarrými á Selfossi og ná-
grenni.
Rekstrarhalli verði bættur
Á heimasíðu stofnunarinnar er
sagt frá nýlegri heimsókn Árna Mat-
hiesen fjármálaráðherra og aðstoð-
armanns hans til Heilbrigðisstofnun-
ar Suðurlands og því að hann hafi
farið yfir starfsemi og rekstur stofn-
unarinnar með framkvæmdastjórn
hennar sem lagði sérstaka áherslu á,
að sú leiðrétting á fjárveitingu til
stofnunarinnar, sem viðurkennd er í
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2007,
yrði einnig viðurkennd við uppgjör á
rekstrarhalla síðustu ára. Ennfrem-
ur var lögð mikil áhersla á, að sem
fyrst lægi fyrir áætlun um næstu
áfanga við að ljúka viðbyggingu við
húsnæði Heilbrigðisstofnunarinnar
á Selfossi.
Nýbygging aftur af stað
Framkvæmt á ný Nýbygging Heilbrigðisstofnunar Suðurlands mun líta þannig út, eftir endurhönnun.
Í HNOTSKURN
»Fyrsta áfanga viðbygg-ingar HSu á Selfossi lýkur
að ári. Frágangi að utan verð-
ur lokið sem og lóð og 2. hæðin
innréttuð.
»Þá verður eftir að ljúka viðinnréttingu aðstöðu
heilsugæslu á 1. hæð og kjall-
ara fyrir sjúkraþjálfun og
iðjuþjálfun. Ekki er heldur
komin fjárveiting til innrétt-
ingar hjúkrunardeildar á 3.
hæð hússins.
Selfoss | „Þessi samn-
ingur skapar mikilvægt
tækifæri fyrir fatlað
fólk til að reyna fyrir
sér á almennum vinnu-
stað,“ sagði Ragnheiður
Hergeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Svæð-
isskrifstofu málefna
fatlaðra á Suðurlandi,
en svæðisskrifstofan
gerði nýlega sam-
komulag um verkefni
hjá Mjólkursamsölunni
á Selfossi (MS) fyrir
þrjá fatlaða starfsmenn.
VISS, fyrir hönd svæð-
isskrifstofunnar, ber
ábyrgð á að verkefnin
séu unnin og veitir fötl-
uðum starfsmönnum
stuðning til þess. Í
samningnum er tryggt
ákveðið lágmark verk-
efna til eins árs.
„Vinnuframlag fatl-
aðs fólks er alltof oft
vanmetið, það er þjóð-
hagslega hagkvæmt að
veita fötluðu fólki vinnu
á almennum vinnu-
markaði. Ég vonast til þess að þetta
samstarf okkar við MS verði öðrum
fyrirtækjum og stofnunum á svæð-
inu hvatning til þess að veita fötl-
uðu fólki atvinnu, það liggur mikill
mannauður hjá þeim hópi og ég
hvet atvinnurekendur til að hafa
það í huga við skipulagningu verk-
efna á sínum vinnustöðum,“ sagði
Ragnheiður.
Gott samstarf við fyrirtæki
„Við höfum átt mikið samstarf og
Mjólkurbú Flóamanna og Mjólk-
ursamsalan hafa sýnt mikinn áhuga
á að skapa fötluðu fólki á Suður-
landi atvinnutækifæri í gegnum tíð-
ina. Það eru líka ýmis fyrirtæki
önnur á svæðinu sem við höfum átt
mjög gott samstarf við og tækifæri
fatlaðra til vinnu á almennum
vinnumarkaði hafa verið að aukast.
Það þarf þó að gera miklu betur og
ég trúi því að möguleikarnir liggi
víða, við þurfum bara að koma
auga á þá,“ sagði Ragnheiður Her-
geirsdóttir, framkvæmdastjóri
svæðisskrifstofunnar.
Fatlaðir fá tækifæri
til almennra starfa
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Samvinna Ragnhildur Jónsdóttir hjá VISS og
Ragnheiður Hergeirsdóttir semja við Guðmund
Geir Gunnarsson, mjólkurbússtjóra hjá MS.