Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 29 SUÐURNES Keflavíkurflugvöllur | „Þetta er stórt skref fyrir Fylgifiska. Með þessu erum við að stækka upp á við, ekki til hliðar,“ segir Guðbjörg Glóð Loga- dóttir, framkvæmda- stjóri Fylgifiska. Fyr- irtækið hefur samið við Flugstöð Leifs Eiríks- sonar hf. um að opna sjávarréttabar að er- lendri fyrirmynd í flug- stöðinni. Fylgifiskar reka tvær fiskbúðir í Reykjavík þar sem áhersla er lögð á sölu tilbúinna fiskrétta og boðið er upp á heita fiskrétti og súpu í há- deginu. Guðbjörg Glóð segir að starfsmenn fyr- irtækisins muni nýta sér þá þekkingu sem aflað hefur verið við uppbyggingu sjávarréttabars- ins í flugstöðinni, auk fyrirmynda að utan. Fiskurinn verður eldaður hjá Fylgifiskum í Reykjavík en settur saman á diska á sjávarréttabarnum í flugstöðinni. Á boðstólum verða íslenskir sjávarréttir, reyktur og grafinn lax, ostrur, kavíar, sushi og súpur. Þá verður léttvín til sölu og nýjungar eins og fiskibökur og sjávarréttasalöt. Lögð er áhersla á skjóta af- greiðslu og að viðskipta- vinirnir geti tekið matinn með sér, jafnvel út í flug- vélar. Sjávarréttabarinn verður opnaður með vor- inu. Sjávarréttabar Fylgi- fiska verður í nýrri mat- armiðstöð flugstöðv- arinnar sem nú er verið að endurnýja, við hliðina á Kaffitári sem komin er á sinn endanlega stað. Fram kemur í frétta- tilkynningu frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar að þetta er í fyrsta skipti sem íslenskir sjávarréttir eru seldir með þessum hætti í flugstöðinni og Guðbjörg Glóð bætir því við að hún viti ekki til þess að slíkur staður hafi verið rekinn hér á landi. Samn- ingurinn er liður í viðleitni FLE til að bæta þjónustu við flugfarþega og auka hlut einkaaðila í rekstri þar. Fylgifiskar Þrír af fjórum starfandi eigendum Fylgifiska, Sveinn Kjart- ansson, Guðbjörg Glóð Logadóttir og Gunnar Logason. Sjávarréttabar verður í flugstöðinni Keflavíkurflugvöllur | Björgvin G. Sigurðsson alþingismaður telur að neðri hluti fyrrum varnarliðssvæðis á Keflavíkurflugvelli sé upplagður fyrir háskólaþorp með nemenda- görðum. Telur hann vel koma til greina að flytja þangað háskóladeild. Þingmenn Suðurkjördæmis fund- uðu í fyrradag á fyrrum varnarsvæð- inu með nokkrum bæjarstjórum á Suðurnesjum, sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli og fleirum. Fram kemur í pistli á heimasíðu Björgvins að það hafi verið hress- andi upplifun að fara um svæðið og koma auga á þá gífurlegu kosti sem fyrir hendi séu við nýtingu þess. Vekur hann sérstaka athygli á að þarna sé mikið af góðu íbúðarhús- næði auk annars vel nýtilegs hús- næðis, sem sumt sé í háum gæða- flokki. Björgvin segir í samtali við Morg- unblaðið að sér þyki vert að fara vel ofan í það hvort ekki mætti byggja þarna upp háskólastarfsemi af ein- hverjum toga. Nefnir hann til dæmis flutning á einhverri deild eða skor Háskóla Íslands, Kennaraháskólans eða annarra háskóla. Með því mætti efla menntun í landinu um leið og þessi miklu mannvirki yrðu nýtt og samfélagið suður með sjó eflt. Ráðherra spurður Telur hann að nýskipuð stjórn fasteignafélagsins sem hefur umsjón með svæðinu hljóti að skoða þessa hugmynd. Sjálfur ætlar Björgvin að leggja fram fyrirspurn til mennta- málaráðherra eftir helgi um það hvort hann telji koma til greina að hefja skoðun á flutningi starfsemi háskóla á þetta svæði. Völlurinn upplagður fyrir háskólaþorp HAFURSEY á Mýrdals-sandi er ein af perlunum ínáttúru Íslands, læturekki svo mikið yfir sér úr fjarlægð en því meir sem nær dreg- ur. Hún er dýrmætur hluti hinnar fornu bújarðar Hjörleifshöfða, án hennar hefði ekki verið rekinn líf- vænn búskapur þar. Eyjan er nánast heimaland býlis, ekki afréttur. Þar var allur búsmali í sumargöngu og vetrarbeit ætíð ein- hver. Bændur úti í Mýrdal fengu þar oft leigða hagagöngu og fyrir kom að sú hagaganga forðaði þeim frá fjár- missi á hörðum úrmánuðum. Búsmali í Hjörleifshöfða var nytkaður að sumri uppi í Hafursey um aldaraðir, lok í þeim búhætti eftir 1850. Síðasti selsmali í Hafursey var Sigurður Loftsson, dáinn 1919, bróðir Mark- úsar Loftssonar bónda og fræði- manns í Hjörleifshöfða. Selið í Hafursey er ein af hinum merku söguminjum Íslands. Það er sunnan í Eynni, nokkuð vestur frá fjárréttinni gömlu. Aðkoma að því er einkar fögur. Það er í bóli, frekar en helli og neð- an við brött brekka, gamla selgatan enn vel sýnileg í brekkunni. Sellæk- urinn, lítill og tær niðar jafnt og þétt rétt vestan við Selið. Hlaðnir kampar eru í bólmunnanum og stendur sá eystri enn vel. Lítill hellisskúti, svo- nefnd Stúka, er rétt neðan við Selið. Björguðust undan Kötlugosi Selið á sér merkilega sögu í eldgosasögu Íslands. Hinn 17. októ- ber 1755 hófst öflugt Kötlugos. Í Haf- ursey voru þá fjórir menn í viðar- skógi, segir í heimild um gosið, og hlutu að bíða af sér. Nesti þeirra var þrotið og þeim varð það til happs að tveir útróðramenn á leið til Vestmannaeyja björguðust undan gos- hlaupinu upp í Hafurs- ey. Þeir höfðu mötu sína meðferðis, smálka (kæfu) og smjör, við það fæddust þeir fé- lagar næstu sex daga. Fyrst hugðu þeir á að- setur í Stúkunni en þótti ótryggt og fluttu sig svo upp í Selið. Einn þeirra hjó dag- setningu, ártal og fangamörk þeirra skýru letri í bergvegg- inn inni í Selinu. Nú, ár- ið 2006, var svo komið að rétt mark- aði fyrir inngangi í Stúkuna og Selið var orðið hálffullt af aðfoki moldar og Kötluösku. Áletranir frá 1755 sá eng- inn en beint á móti selsdyrum horfðu við nokkur krossmörk höggvin í bergið, eitt þeirra sýnu stærst og býsna fornlegt. Áletranir komnar í ljós Núverandi eigendur Hjörleifs- höfða og þar með Hafurseyjar, Þórir N. Kjartansson í Vík og systur hans Áslaug og Halla, láta sér mjög annt um arfleifð sína. Ætt þeirra sat að búi í Hjörleifshöfða frá 1832 og bóndinn Ólafur Ólafsson, sem síðastur hélt bú í hinu forna bæjarstæði, Bæjarstað í Hjörleifshöfða, sem Kötlugosið 1721 afmáði með öllu, var einnig forfaðir þeirra. Sumarið 2005 gerðu Þórir Kjart- ansson, Brandur Guðjónsson í Vík og Sigþór Sigurðsson í Litla-Hvammi tvær atrennur að því að hreinsa út úr Stúkunni og í dag er sem best hægt að leggjast þar til svefns, raki þó í meira lagi. Hún reynd- ist rúmir 5 m á lengd og mest 1,70 m á hæð. Hinn 5. október sl. fór Þórir svo enn á vett- vang til að grafa út Sel- ið og hafði sér til að- stoðar þá Hörð Harðarson hópferðabíl- stjóra, Reyni Ragnars- son frá Höfðabrekku og Sigþór Sigurðsson í Litla-Hvammi. Þeir unnu í senn sem sögu- sinnar og náttúru- verndarsinnar því út- mokstur var allur látinn renna niður selbrekk- una á plastdúk. Árangur verks varð sá að nú blasa hinar fornu áletranir frá 1755 við hverjum sem inn lítur. Þetta var eins og að endurheimta á föstu bergi markvert, glatað heimildaskjal. Norðurkampur Sels er hruninn og enn mun nokkuð ómokað niður að hinu forna gólfi. Hér er því enn end- urbóta þörf. Góður minjastaður selsögunnar Selsaga landsins á þarna firna góð- an minjastað til umfjöllunar þegar að því kemur að hún verði rituð. Selstöð- ur Mýrdælinga eru víða undir slút- andi bergi, eins og í Hafurseyjarseli. Svona rétt í lokin er gagnlegt að geta þess að á móbergshamar neðan við Stúkuna hefur Markús í Hjör- leifshöfða höggvið áletrun innan fer- hyrndrar umgerðar með stóru og skýru latínuletri upphafsstafa: MARKÚS LOFTSSON 1850. Hún er líkt og innsigli þeirrar staðreyndar að þetta er land sem fræðabóndinn merki vissi sig eiga með öllum rétti. Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson Eyja á sandinum Myndin er tekin af norðurhlíðum Hafurseyjar, séð frá jaðri Kötlujökuls. Fangamörkin frá 1755 nú orðin sýnileg í Selinu Sex menn björguðust upp í Hafursey í Kötlu- gosinu 1755 og höfðust þar við í hellisskúta í sex daga. Einn þeirra risti fangamörk þeirra og ártalið í bergvegg- inn en þau hafa lengi verið hulin jarðvegi. Í frásögn Þórðar Tóm- assonar, safnvarðar í Skógum, kemur fram að grafið hefur verið út úr hellinum og fanga- mörkin komin í ljós. Fangamörk Risturnar frá 1755 eru nú greinilegar á bergveggnum í Selinu. Þórður Tómasson LANDIÐ VINJETTUDAGUR verður á Suð- urnesjum í dag, í tilefni af útkomu sjöttu vinjettubókar Ármanns Reyn- issonar. Lesið verður upp úr bókinni í kaffihúsi Kaffitárs í Njarðvík og síðan útgáfuteiti í Kaffi Grindavík. Bókin tengist Suðurnesjum nokk- uð því ein sagan, Þriðja hjartað, fjallar um Helga Einar Harðarson hjartaþega sem rekur Kaffi Grinda- vík og önnur sagan heitir Reykjanes. Upplesturinn í Kaffitári hefst kl. 14.30 og lesa þrjár konur með Ár- manni. Þá er tónlist og tilboð á kaffi. Útgáfuteitið í Kaffi Grindavík verð- ur milli 17.30 og 19.30. Vinjettur á Suðurnesjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.