Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 31
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 31
Haustið hefur um margt verið veðragott því
aldrei hríðaði í september eins og í fyrra og
reyndar var mánuðurinn að hluta til töluverð-
ur sumarauki. Gott veður hélst svo fram í miðj-
an október og voru kýr víðast hvar lengur úti
en vanalega. Mörgum tókst að láta gripina
klára grænfóður og engir tugir hektara af káli
og korni fóru undir snjó.
Segja má að skemmtilegir útivinnudagar
hafi verið margir og bændur komu ýmsu í
verk, sérstaklega þeir sem staðið hafa í fram-
kvæmdum. Illviðrin hafa enn ekki látið á sér
kræla þó svo að vetur konungur hafi sýnt að
hann er enn til, enda jörðin hvít.
Hrafnar eru meira á flugi yfir byggðum bólum
en oft áður og sumir segja að þeir hafa sjaldan
verið fleiri. Líkleg skýring á hrafnaganginum
er sú að gorgryfjur sunnan Húsavíkur eru oft
góður staður fyrir fugla í ætisleit og þar hefur
safnast ótrúlegur fjöldi máfa og annarra fugla
sem þykir gorið gott.
Hrafnar ollu miklu tjóni á mófugli sl. sumar
og átu egg úr hreiðrum meira en oft áður enda
eru þeir mun fleiri en þeir hafa verið um ára-
bil.
Rjúpur eiga í vök að verjast á þessum árstíma
eins og raunar allt árið og ekki er langt síðan
tveir hrafnar réðust á rjúpu á flugi uppi í
Reykjahverfi og hökkuðu hana í sig. Margir
sækjast eftir rjúpunum og á síðustu árum hafa
útlendir veiðihundar gert veiðimönnum kleift
að ná mun fleiri fuglum en áður var. Þá er ref-
urinn einnig stórtækur en sl. sumar fundust
nokkur ný greni í héraðinu þar sem yrðlingar
komust á legg, sem sýnir að fjölgun tófunnar
heldur áfram þrátt fyrir veiðarnar.
Veðurspár eru bændum hugleiknar og nú
velta menn fyrir sér hvernig veturinn verður.
Sumir skoða útlendar tölvuspár en enn eru til
nokkrir sem fara eftir gömlum aðferðum eins
og t.d. hvernig músaholurnar snúa að hausti
þegar mýsnar hafa safnað sér forða. Þá fylgj-
ast sumir bændur með atferli forystukinda,
hlusta á hljóðin í hrafninum eða fylgjast með
því hvenær litlu fuglarnir koma í moðin. Og
enn eru til draumamenn sem vita meira en
aðrir og heydraumar geta gefið ákveðna vís-
bendingu um tíðarfar vetrarins.
LAXAMÝRI
Eftir Atla Vigfússon fréttaritara
Jón Ingvar Jónsson kveður sérhljóðs vegna skilnaðar bítilsins
Pauls McCartneys og tekur fram að
þetta sé í fyrsta skipti sem
lostakríunnar Mills sé getið í
íslensku kvæði:
Ýmsir sem elska víf
átt hafa torvelt líf,
hlaupið í hjónaband
hiklaust og siglt í strand.
Verður það oft til ills,
einkum með Heather Mills.
Björn Ingólfsson leggur út af
orðum Jóns Ingvars:
Þar kom auga á enn eitt pils
Íslands kvennaljómi
Við það hefur Heather Mills
hlotnast mikill sómi.
Ingólfur Ómar Ármannsson
yrkir:
Haustfagnaður í hönd nú fer
hefst þá fjör og gaman.
Drengir glaðir gamna sér
glösum lyfta saman.
VÍSUHORNIÐ
Af Mills og
McCartney
pebl@mbl.is
Hófleg langtíma líkamsþjálfun getur
dregið úr kvefpestum meðal eldri
kvenna, að því er nýleg bandarísk
rannsókn staðfestir og frá var greint
í netmiðli NBC í vikunni.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
klínískt eru könnuð áhrif líkams-
þjálfunar á algengar kvefpestir, en
að baki rannsókninni stóðu rannsak-
endur frá Fred Hutchinson krabba-
meinsrannsóknastöðinni. Þeir fundu
það út að konur, sem höfðu haft tíða-
hvörf og stunduðu reglulega líkams-
rækt, voru í helmingi minni áhættu á
að fá kvefpestir en þær sem slepptu
því að stunda ræktina.
„Það hefur alltaf verið grunur um
að þetta gæti verið staðreyndin og
hafa nokkrar litlar rannsóknir ýtt
undir þann grun að hófleg æfing
gæti bætt ónæmiskerfið,“ sagði Cor-
nelia Ulrich, einn aðalrannsakenda,
en rannsókn þessi hefur nú þegar
verið birt í bandaríska læknablaðinu.
Rannsóknin náði til 115 kvenna á
breytingaskeiðinu og í yfirvigt sem
ekki höfðu stundað æfingar fyrr en
kom að rannsókninni.
Konunum var skipt í tvo hópa.
Annar hópurinn var látinn stunda
reglulega þjálfun í 45 mínútur á dag,
fimm daga vikunnar, á meðan hinn
hópurinn iðkaði aðeins teygjuæf-
ingar vikulega, 45 mínútur í senn.
Fyrri hópnum var uppálagt að
stunda þjálfun á borð við göngur,
kraftgöngur eða hjólreiðar og skrá
svo reglulega hjá sér hve oft upp
komu kvefpestir á tímabilinu.
Líkams-
þjálfun og
ekkert kvef