Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 37 Við bjóðum fram aðstoð við að komast á kjörstað. Hringdu í síma 858 5914 og 858 5900. Guðlaugur Þór Í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISMANNA Í REYKJAVÍK www.gudlaugurthor.is gudlaugurthor@gudlaugurthor.is Akstur á kjörstað hússins er stiginn upp á loftið. Að öðru leyti skyggir ekkert á stofuna sem er þremur þrepum neðar en eld- hús og borðstofa. Við blasir garð- urinn þar sem endaveggur hússins er einn samfelldur gluggi, frá gólfi upp í loft. Handan garðsins er óbyggt land og fjær þéttur barrskógur. Hannaði garðinn í smáatriðum Draumur Jörgs um land hefur ræst og nú ætlar hann að búa til lysti- garð. Í byrjun hannaði hann garðinn nákvæmlega og keypti svo 14 risastór tré og gróðursetti á fyrirfram ákveðnum stöðum. Tvö risastór tré voru þarna fyrir, grenitré og eik- artré. Grenitréð var höggvið, enda stóð það þar sem nú er stofa hússins en hins vegar var teikningunum breytt svo eikartréð þyrfti ekki að víkja fyrir bókaherbergi. Jörg sagði að a.m.k. eitt almennilegt tré yrði að vera á landinu. „Hann hefur óskaplega gaman af garðræktinni og er með stórkostlegar hugmyndir. Ég vissi ekki að ég hefði áhuga á garðyrkju og hélt að ég myndi ég bara sitja og láta fara vel um mig og lesa blöðin en mér fannst æðislegt þegar ég fór að vinna í garð- inum.“ Kannski er ekki að undra að garð- yrkjuáhugi leynist með Rítu því Nils Einar faðir hennar átti lengi heið- urinn af fallegum garði dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar þar sem vann hann sem garðyrkjumaður í áratugi. Ætlunin var að Ríta og Jörg flytt- ust í nýja húsið en hún segist ekki geta hugsað sér að aka þessa 70 km milli Berlínar og Buchholz kvölds og morgna á veturna. Þess í stað eru þau öllum stundum í húsinu þegar þau eru ekki að vinna og það er eiginlega orðið að sum- arhúsi. Uppkomin börn þeirra hafa líka mikla ánægju af að dveljast þarna og njóta yndislegs umhverfis, dýralífs og fallegs gróðurs. Tímafrekt að innrétta Bygging hússins hófst 2003 og 23. desember 2004 var reisugillið. Þá reiknuðu eigendurnir með að geta flutt inn eftir svo sem þrjá mánuði. Raunin varð önnur og þau fluttu inn í janúar sl. Þótt búið væri að reisa hús- ið var vinnan innandyra ótrúlega tímafrek og að mörgu að hyggja. Ríta vildi til dæmis hafa gluggana þannig að sem minnst bæri á römmunum ut- an um glerið. Þegar hún nefndi þetta við gluggasmiðina var svarið einfald- lega: „Það er ekki hægt.“ Sama svar fékk hún við ýmsu öðru en gafst ekki upp fyrr en hún fann einhvern sem gat uppfyllt óskir hennar. Hurðirnar í húsinu og opnanlegu gluggarnir, sem eru öllu heldur hurðir út í garðinn, eru líka miklu hærri en venja er og Ríta þurfti að berjast hatramlega fyr- ir þessu öllu. Þegar komið er upp stigann er gengið beint inn í hjóna- herbergið sem er yfir stofunni. Allur útveggurinn er gluggi og rúmið er beint á móti honum. Það hlýtur að vera ólýsanlegt að vakna á morgnana með breytilega náttúruna eins og leikmynd fyrir framan sig því Ríta segir að landslagið og útsýnið sé sí- breytilegt. Á efri hæðinni er bókaherbergi húsbóndans, herbergi dótturinnar og annars sonarins en þau búa í Berlín. Þar er líka risastórt baðherbergi. Húsið er að mestu málað í gráum lit en Ríta fór til Kaupmannahafnar á meðan á byggingarframkvæmdum stóð og skoðaði Thorvaldsenssafnið og kirkjuna og sá gráu litina sem ein- kenna verk listamannsins og um- hverfi þeirra. Hún varð svo hrifin að hún ákvað að hafa húsið allt grátt að innan. Loftin eru þó hvít á neðri hæð- inni og hvítur rammi efst á veggj- unum uppi undir lofti. „Ég lærði það í ensku blöðunum að hafa kontrastinn uppi hvítan annars halda menn ein- faldlega að grái liturinn sé skuggi af loftinu.“ Halda að loftið sé óklárað Loftið á efri hæðinni er klætt furu. Í fyrstu var ekki ákveðið hvernig ætti að meðhöndla hana svo að hún guln- aði ekki. Endirinn varð sá að loft- klæðningin var hvítmáluð og máln- ingin síðan slípuð af að mestu. „Sumir spyrja hvort ekki sé búið að klára loftið og halda að það sé ekki full- málað. Svona á það að vera og svona verður það. Á gólfum efri hæðarinnar eru breið furuborð og venjulegir þi- lofnar til upphitunar. Hitinn er í gólf- unum niðri en þau prýðir sérstaklega hert eik. Ýmsar reglur gilda í Buchholz, ekki bara varðandi útlit húsanna. Til dæmis eru öll götuljós slökkt kl. 12 á miðnætti og enginn er með óþarfa útiljós. Myrkrið grúfir sig yfir þorpið og Ríta og Jörg eru líka með mjög lít- ið af ljósum umhverfis húsið. „Hér er ekkert „ljósasjó“ eða Hollywood- stemmning, enda ekki við hæfi í þess- ari kyrrð og friðsæld.“ Friðurinn ríkir reyndar líka um há- bjartan dag í glaðasólskini þegar ekið er eftir hlykkjóttum veginum sem liggur af þjóðveginum og inn í þorpið. Vegurinn minnir einna helst á ís- lenskan malarveg, þótt hann sé mal- bikaður en þónokkuð holóttur og með malbiksbætur hér og þar. „Það er eiginlega nauðsynlegt að eiga hér jeppa eins og á Íslandi. Hér er oft snjór á veturna þótt hann sé kannski ekki eins mikill og heima,“ segir Ríta Duppler að lokum. dansa og stíga oft dans á eikargólfinu í félagsskap fólksins á myndinni. Risatómatar Eiginmaðurinn á mestan heiður af garðræktinni Risastórt Baðherbergið á annari hæð er jafn stórt og önnur herbergi á hæðinni. Það er allt í gráum tónum eins og annað í húsinu. Einfalt Úr eldhúsinu eru innrétting og tæki frá Miele Inngangur Húsið séð frá þessari hlið líkist sannarlega hefðbundnum þýskum húsum. Bjart Borðstofuhornið. Til hægri átti bókaherbergi að vera en var fórnað fyrir tré.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.