Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 45
RÍKISENDURSKOÐUN kynnti
nýlega umfangsmikla stjórnsýslu-
úttekt á embætti ríkislög-
reglustjóra. Niðurstöður hennar
eru jákvæðar fyrir embættið og
gefa góða mynd af þróun þess. Þar
koma fram ágætar ábendingar um
atriði sem eru starfsemi embættis-
ins til framdráttar. Í fréttatilkynn-
ingu Ríkisendurskoðunar segir
meðal annars að embætti ríkislög-
reglustjóra hafi stuðlað að marg-
víslegum framförum innan lögregl-
unnar og beitt sér fyrir ýmsum
nýjungum til að bregðast við
breyttu eðli og umfangi afbrota.
Staðið undir væntingum
Fram kemur að þau markmið
sem að var stefnt með stofnun
embættis ríkislögreglustjóra hafi
náð fram að ganga. Embættið hafi
skilað góðum árangri fyrir lögregl-
una og eflt réttaröryggi borg-
aranna. Aukin fjárframlög til lög-
gæslumála hafi skilað samfélaginu
umtalsverðum ávinningi. Ríkisend-
urskoðun áréttar nauðsyn þess að
tryggja að skipulag og starfshættir
lögreglunnar séu jafnan með þeim
hætti að nýting fjármuna sé sem
best.
Meginhlutverk
ríkislögreglustjóra
Eitt meginhlutverka ríkislög-
reglustjóra er að miðla ákvörð-
unum og boðum æðstu handhafa
ríkisvaldsins til lögreglustjóra
landsins. Fram kemur hjá Rík-
isendurskoðun að frá stofnun emb-
ættisins hafi það tekið virkan þátt í
að útfæra og framkvæma áherslur
ráðherra á sviði löggæslu í sam-
vinnu við lögregluembættin. Í við-
horfskönnun Rík-
isendurskoðunar
meðal lögreglustjóra
kemur fram að um
90% svarenda telja að
embættið hafi sinnt
meginhlutverki sínu.
Aukin viðfangsefni
Ríkisendurskoðun
rekur hvernig Alþingi
og ráðuneyti hafa fal-
ið embætti ríkislög-
reglustjóra ný og
aukin viðfangsefni
sem áður voru á
ábyrgð ráðuneyta og annarra rík-
isstofnana. Að hluta til hafi ný við-
fangsefni á forræði embættisins
leitt til lægri kostnaðar hjá lög-
regluembættum landsins og dæmi
séu um að ný viðfangsefni hafi
skapað möguleika á hagræðingu í
rekstri þeirra.
Efnahagsbrotadeild
Það er mat Ríkisendurskoðunar
að í samanburði árabilsins 2001–
2005 séu vísbendingar um að máls-
meðferðartími sé almennt lengri
hjá efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra en hjá systurstofnunum
í Svíþjóð og Noregi. Fram kemur
að sakfellingarhlutfall sé hærra hjá
deildinni en í samanburðarlöndum.
Sakfellingarhlutfall efnahags-
brotadeildar var að meðaltali 96% á
árunum 2004–2005 sem er töluvert
hærra en í samanburðarlöndum;
90% í Svíþjóð og 81,5% í Noregi.
Árangursstjórnunarsamningar
Ríkisendurskoðun
leggur til að embætti
ríkislögreglustjóra
verði falin frekari
verkefni á sviði stjórn-
sýslu og nefnir gerð
samninga við lögreglu-
embættin um árang-
ursstjórnun. Ríkisend-
urskoðun telur að
frumkvæðis- og þróun-
arstarf og rannsóknir
embættis ríkislög-
reglustjóra og annarra
embætta á und-
anförnum árum, svo
sem viðamikil söfnun upplýsinga
um afbrot og afbrotatölfræði, hafi
skapað forsendur til að halda
áfram þróun árangursstjórn-
unarsamninga innan lögreglunnar.
Eðlilegt sé að slíkar upplýsingar
verði nýttar við markmiðssetningu
í framtíðinni bæði fyrir einstök lög-
regluembætti og lögregluna í heild.
Um þessar mundir er unnið að
gerð árangursstjórnunarsamnings
milli dómsmálaráðherra og rík-
islögreglustjóra.
Styrk fjármálastjórn
og fækkun afbrota
Sú ályktun verður dregin af
stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoð-
unar að fjármálastjórn hjá embætti
ríkislögreglustjóra sé styrk og að
starfsemin sé bæði skilvirk og
markviss. Fram kemur að emb-
ættið hafi ávallt verið rekið innan
fjárheimilda, að árinu 2000 und-
anskildu vegna endurnýjunar á
bílaflota lögreglunnar í landinu.
Ríkisendurskoðun getur þess að
framlög til lögreglunnar hafi tvö-
faldast í krónum talið. Velt er upp
þeirri spurningu hverju þessi aukn-
ing hafi skilað og tekið fram að
nærtækt sé að benda á tölur um
fækkun afbrota. Í úttektinni segir
um þetta: „Aukin framlög til lög-
reglunnar hafa án efa orðið til að
efla löggæslu í landinu og má í því
samhengi nefna að á tímabilinu
2001–2004 fækkaði skráðum hegn-
ingarlagabrotum um tæplega 11%
á landinu öllu. Þótt erfitt sé að
meta nákvæmlega hvaða áhrif
stofnun og starfsemi RLS hafa haft
á þessa þróun er ljóst að embættið
hefur stuðlað að margvíslegum
framförum innan lögreglunnar og
beitt sér fyrir ýmsum nýjungum til
að bregðast við breyttu eðli og um-
fangi afbrota. Embættið hefur
þannig m.a. unnið að því að sam-
ræma og bæta skipulag og fram-
kvæmd löggæslu í takt við breyttar
aðstæður og kröfur.“
Embætti ríkislögreglustjóra í ljósi
úttektar Ríkisendurskoðunar
Haraldur Johannessen skýrir
frá niðurstöðu úttektar Rík-
isendurskoðunar
»Niðurstöður hennareru jákvæðar fyrir
embættið og gefa góða
mynd af þróun þess.
Haraldur Johannessen
Höfundur er ríkislögreglustjóri.
MORGUNBLAÐIÐ hefur
tekið í notkun nýtt móttöku-
kerfi fyrir aðsendar greinar.
Formið er að finna ofarlega á
forsíðu fréttavefjarins
www.mbl.is undir liðnum
„Senda inn efni“.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að skrá
sig inn í kerfið með kennitölu,
nafni og netfangi, sem fyllt er
út í þar til gerða reiti. Næst
þegar kerfið er notað er nóg að
slá inn netfang og lykilorð og er
þá notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur
þeirri hámarkslengd sem gefin
er upp fyrir hvern efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að
senda blaðinu greinar í um-
ræðuna eða minningargreinar,
eru vinsamlegast beðnir um að
nota þetta kerfi. Nánari upplýs-
ingar eru gefnar í síma
569 1210.
Nýtt mót-
tökukerfi
aðsendra
greina
Fréttir á SMS