Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 56

Morgunblaðið - 28.10.2006, Side 56
56 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Hátíð alla helgina í Hallgrímskirkju ÞESSA dagana er verið að halda upp á 20 ára vígsluafmæli Hall- grímskirkju, en hún var vígð 26. okt. 1986 af þáverandi biskupi Ís- lands hr. Pétri Sigurgeirssyni. Í gærkvöldi var hin árlega Hall- grímsmessa, sem jafnan er haldin á dánardegi Hallgríms 27. okt. hvert ár. Í dag verður málþing um Hall- grím Pétursson og samtíð hans. 12 fyrirlesarar taka til máls bæði inn- lendir og erlendir (en útdráttur á íslensku hefur verið gerður af er- indum þeirra). Málþingið stendur frá kl. 10.00 – 15.40. Dr. Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurð- ardóttir hafa undirbúið málþingið. KL. 17.00 verður sunginn aftan- söngur í Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar, kant- ors og sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Schola cantorum syngur, en aftan- söngurinn er eftir enskri fyr- irmynd. Evensong ensku kirkj- unnar hefur verið sunginn nánast óbreyttur frá 1549. Sunnudaginn 29. okt. verður há- tíðarmessa og barnastarf kl. 11.00 Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni. Hópur úr Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Hulda Björk Garðarsdóttir syngur einsöng með kórnum, en flutt verður Laudate Dominum eftir W.A. Mozart. Messuþjónar verða úr röðum Listvinafélagsins, en söfnun dagsins rennur til lista- starfsins í kirkjunni. Barnastarfið verður undir stjórn Magneu Sverr- isdóttur, djákna. Ensk messa í Hallgrímskirkju Á morgun, sunnudag, 29. október nk. kl. 14:00 verður haldin ensk messa í Hallgrímskirkju. Prestur verður sr. Bjarni Þór Bjarnason. Org- anisti verður Hörður Áskelsson. Jónína Kristinsdóttir mun leiða al- mennan safnaðarsöng. Fimmta ár- ið í röð er boðið upp á enska messu í Hallgrímskirkju síðasta sunnudag hvers mánaðar. Messu- kaffi. Service in English Service in English at the Church of Hallgrímur (Hallgrímskirkja) 29th of October, at 2 pm. Holy Communion. The Twenty-First Sunday after Pentecost. Celebrant and Preacher: The Revd Bjarni Thor Bjarnson. Organist: Hörður Áskelsson. Leading singer: Jónína Kristinsdóttir. Refreshments after the Service. Fyrirlestur í Áskirkju FYRIRLESTUR verður í Áskirkju á Siðarbótadaginn 31. október. Sr. Frank M. Halldórsson flytur erindi um Katarínu frá Bora eftir bæna- stund og súpu kl. 13. Allir vel- komnir. Áhrif áfalla á hjónabönd Á vorönn 2006 var boðið upp á nýtt helgihald í Garðaprestakalli. En það voru kvöldmessur síðasta sunnudagskvöld í mánuði kl. 20:00 í Garðakirkju og Bessastaðakirkju til skiptis. Þema helgihaldsins var hjónaband og sambúð. Margir góð- ir fyrirlesarar komu og þjónuðu í messunum. Í október og nóvember munu tvær kraftmiklar konur sjá um hjóna- og sambúðarráðgjöfina en þær heita Erla Grétarsdóttir sál- fræðingur og Berglind Guðmunds- dóttir sem er nýkomin úr dokt- orsnámi í Bandaríkjunum. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og Nanna Guð- rún Zöega þjóna fyrir altari. Þriðja messa haustsins verður haldin sunnudaginn 29. október kl. 20:00 í Garðakirkju. Á sunnudags- kvöldið munu Erla og Berglind fjalla um áhrif áfalla á hjónabönd. Tónlistin verður í þetta skipti í umsjá Gunnars Gunnarssonar org- anista og djassista og með honum verða Gunnar Hrafnsson sem spil- ar á kontrabassa og Þorvaldur Þorvaldsson sem leiðir sönginn. Þessar messur eru góð leið til að rækta undirstöður hjónabands og sambúðar sem eru ástin, trúfestin og virðingin. Allt fólk er velkomið, óháð aldri og kynhneigð. Sjá www.gardasokn.is. Stefan Engels á orgeltónleikum Í tilefni af 80 ára afmæli orgelsins okkar, ásamt 55 ára afmælis Fé- lags Íslenskra organista, kemur hinn virti organisti og prófessor frá Leipzig, Stefan Engels og leik- ur á tónleikum í kirkjunni. Org- elið, sem er af gerðinni Sauer er eitt elsta hljóðfæri landsins, sem enn er í fullri notkun. Tónleikarnir eru klukkan 17:00 og eru öllum opnir. Aðgangur er ókeypis. Færeyskur kór í Tómasarmessu Í Breiðholtskirkju ÖNNUR Tómasarmessan á þessu hausti verður í Breiðholtskirkju í Mjódd sunnudagskvöldið 29. októ- ber, kl. 20. Tómasarmessan hefur unnið sér fastan sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík messa hefur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, síðustu níu árin og verður sami háttur hafður á ívetur. Fram- kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholtskirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guð- fræðinema og hópur presta og djákna. Og að þessu sinni fáum við einnig góða heimsókn frá Fær- eyjum, þar sem Betestakórinn frá Klakksvík mun syngja í messunni. Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tónlist, mikil áhersla er lögð á fyrirbæn- arþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbún- ingi og framkvæmd messunnar, bæði leikmenn, djáknar og prest- ar. Æðruleysismessa í Fríkirkjunni í Hafnarfirði ANNAÐ kvöld sunnudagskvöldið 29. október verður æðruleys- ismessa í Fríkirkjunni í Hafn- arfirði og hefst hún kl.20. Æðru- leysismessur hafa veriðhaldnar mánaðarlega í kirkjunni síðustu tvö árin en þær hafa jafnan verið vel sóttar. Í æðruleysismessum eru sporin 12 lesin og flutt persónuleg hugleiðing frá einstaklingi sem unnið hefur með sporin 12. Að lokinni góðri stund í kirkj- unni bjóða þau sem að þessu helgi- haldi standa upp á kaffiveitingar í safnaðarheimilinu. Prestar Frí- kirkjunnar hafa leitt helgihaldið og hljómsveit kirkjunnar séð um hressilega tónlist auk þess sem góðir gestir hafa komið fram. Æðruleysismessa í Hafnarfjarðarkirkju ÆÐRULEYSISMESSA í fer fram í Hafnarfjarðarkirkju sunnudags- kvöldið 29. okt. kl. 20. Prestar eru sr. Ólafur Jens Sigurðsson og sr. Gunnþór Þ. Ingason. Reynslusaga verður sögð. Tón- listarflutningur verður á léttum og björtum nótum hljómsveitarinnar Gleðigjafa. Æðruleysismessur eru sniðnar að þörfum þeirra sem stunda 12 sporakerfi AA samtakanna þótt þær séu auðvitað öllum opnar og öllum hollar. Þrír AA hópar sækja nú viku- lega fundi í Vonarhöfn safn- aðarheimilisins Strandbergs og eru mjög ánægðir og þakklátir fyrir þá aðstöðu og allan stuðning kirkjunnar við þýðingarmikið mannræktarstarf samtakanna. AA- menn, fjölskyldur þeirra og vel- unnarar og allir þeir sem telja sig eiga samleið með 12 spora kerfinu eru hvattir til að sækja æðruleys- ismessuna á sunnudagskvöldið í Hafnarfjarðarkirkju. Eftir mess- una er boðið upp á kvöldhressingu í safnaðarheimilinu Strandbergi. Kyrrðarstund og opið hús í Grafarvogskirkju Kyrrðarstund kl. 12:00 alla mið- vikudaga. Altarisganga og fyr- irbænir. Hörður Bragason org- anisti kirkjunnar leikur á orgel. Að lokinni stundinni frammi fyrir altarinu, er boðið upp á léttan há- degisverð og gott samfélag. Allir eru velkomnir. „Opið hús“ fyrir eldri borgara kl. 13:30-16 alla þriðjudaga. Hefst með helgistund, síðan er unnið við handavinnu undir leiðsögn, einnig er spilað og spjallað. Kaffiveitingar eru í boði og alltaf eitthvað gott með kaffinu. Grafarvogskirkja. Helgihald í Kolaportinu. Helgihald verður sunnudaginn 29. okt. kl. 14 í Kolaportinu í „Kaffi Port“. Þess má geta að þennan dag er haldið upp á 210 ára af- mæli Dómkirkjunnar í Reykjavík. Frá kl. 13.30 syngur og spilar Þor- valdur Halldórsson ýmis þekkt lög bæði eigin og annarra. Hann ann- ast einnig tónlistina í helgihaldinu. Sr. Þorvaldur Víðisson prédikar og Ragnheiður Sverrisdóttir djákni leiðir samveruna. Að venju er boðið upp á að koma með fyri- bænarefni og munu Margrét Scheving og Ragnheiður Sverr- isdóttir biðja með og fyrir fólki. Í gegnum tíðina hefur skapast andrúmsloft tilbeiðslu í þessu helgihaldi. Þó margt sé um að vera í Kolaportinu eru ávallt margir þátttakendur sem gjarnan fá sér kaffisopa, syngja, biðja og hlusta. Í lok stundarinnar er geng- ið um með olíu og krossmark gert í lófa þeirra sem vilja. Um leið eru flutt blessunarorðin: „Drottinn blessi þig og varðveiti þig“. Allir velkomnir, Miðborgarstarfið. Kyrrðardagur í Neskirkju „Mig langar á kyrrðardaga, en ég hef ekki tíma til að ganga í klaust- ur í þrjá daga!“ En nú efnir Nes- kirkja til kyrrðardags laugardag- inn 4. nóvember. Dagskráin hefst kl. 10 árdegis og lýkur um 17. Fjöldi fólks hefur uppgötvað hversu þögn og róleg hrynjandi kyrrðardaga hafa góð áhrif. Hinn innri maður fær allt í einu næði til að vera, hugsa djúpu spurning- arnar og lífsmynstrið. Dagskrá kyrrðardags er flétta íhugana, bænagerðar, gönguferða og slök- unar. Máltíðir verða á kaffitorgi Neskirkju. Prestarnir Halldór Reynisson og Sigurður Árni Þórð- arson sjá um hugleiðingar og Ás- laug Höskuldsdóttir stýrir slökun. Kyrrðardagur hentar öllum, sem hafa áhuga á tilgangi eigin lífs, slökun og trú. Skráning er í Neskirkju. Kyrrð- ardagur er dekurdagur fyrir sál- ina. Árleg fjársöfnun ferm- ingarbarna á Selfossi Mánudaginn 6. nóvember næst komandi kl. 18-19.30 ganga ferm- ingarbörn á Selfossi í hús og safna fé til styrktar ungmennum í Afr- íku. Eins og á undanförnum árum er söfnunin á vegum Hjálparstarfs þjóðkirkjunnar og rennur afrakst- urinn allur til verkefna, sem hjálp- arstarfið hefur á hendi suður þar. Ég þakka Selfyssingum drengi- legar undirtektir á liðnum árum, og bið þá enn á ný að taka vel á móti börnunum og hafa framlag tilbúið, þegar þau knýja dyra. Ekki þarf háa upphæð, til þess að góðu gagni komi. Og munum líka, að margt smátt gerir eitt stórt. Með bestu kveðjum og fyrirfram þakklæti, Gunnar Björnsson, sókn- arprestur. Steina, Ellu, Lalla og fjölskyldur þeirra á þessum erfiðu tímum. Guð veri með þér, Sigrún mín. Kærar kveðjur. Aðalbjörg Guðgeirsdóttir og fjölskylda. Í dag verður Sigrún Bjarnadóttir fyrverandi kennari við Grunnskólann á Hellu jarðsungin. Sigrún hóf störf við Grunnskólann á Hellu haustið 1976 og starfaði þar við hannyrðakennslu og tónmennta- kennslu allt fram til ársloka 2001. Framganga Sigrúnar í starfi ein- kenndist af miklum dugnaði, glað- værð og kærleika. Nemendum og starfsmönnum skólans ber saman um þann mikla áhuga sem hún náði fram hjá nemendum sínum og þann árangur sem starf hennar skilaði. Segja má með sanni að Sigrún hafi náði að kveikja áhuga nemenda sinna við hannyrðir og saumaskap, svo ekki sé talað um tónlist og söngáhuga. Í kennaratíð Sigrúnar voru nemendur skólans þekktir fyrir góðan og glað- væran söng hvar sem þeir komu. Skemmtilegir söngtextar og íslensk alþýðulög einkenndu tónlistar- kennslu hennar. Um leið og við þökkum Sigrúnu fyrir samfylgd liðinna ára, sendum við eftirlifandi eiginmanni hennar Vali Haraldssyni, börnum þeirra hjóna og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Sigrúnar Bjarnadóttur. Nemendur og starfsfólk Grunnskólans á Hellu. Í dag fylgi ég Sigrúnu síðasta spöl- inn. Þó mig væri farið að gruna að hún ætti ekki langt eftir var ég alls ekki viðbúin þegar ég fékk fréttirnar. Hvenær er maður svo sem viðbúinn þegar einhver, sem maður hefur þekkt lengi, fellur frá? Hún var mamma bestu vinkonu minnar, sem sat við hliðina á mér all- an grunnskólann frá því við vorum í 3. bekk. Sigrún kenndi okkur handa- vinnu þegar við vorum í skólanum og man ég eftir því að hún gat auðveld- lega sýnt þeim sem voru örvhentir „réttu“ handtökin. Seinna fór hún í réttindanám og útskrifaðist með kennararéttindi sama vor og dóttir hennar, 1992. Á tímabili á unglingsárunum vor- um við vinkonurnar algerar samlok- ur og var ég mikið hjá henni. Alltaf var mér tekið opnum örmum. Það má segja að Sigrún hafi eignast mikið í mér og þegar tvíburarnir mínir fæddust voru myndirnar sem ég sendi þeim Val settar á barnabarna- vegginn. Sigrún var alltaf kát og yfirleitt alltaf með eitthvað í höndunum. Ef hún sat ekki við saumavélina eða var með heklunál eða prjóna voru það hljóðfærin, píanóið, gítarinn og síðast en ekki síst harmonikkan. Orðin eru fátækleg og aðeins tæpt á örfáum af fjöldamörgum minning- um. Elsku Valur, Ella, Steini, Lalli, fjölskyldur og aðrir ættingjar og vin- ir, innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll og styrki ykkur í sorginni. Anna Sigríður Hjaltadóttir. Vantar nú í vinahóp, völt er lífsins glíma, þann sem yndi og unað skóp oss fyrir skemmstum tíma. (M. Joch.) Þannig er okkur innanbrjósts fé- lögunum í Harmonikufélagi Rang- æinga þegar við sjáum á bak góðum félaga okkar, Sigrúnu Bjarnadóttur. Hún var ein af stofnfélögum og mátt- arstoð félagsins alla tíð. Hún var for- maður félagsins um árabil og einnig gegndi hún formennsku í Landsam- bandi harmonikuunnenda. Þessum störfum sem og öðrum, sem hún tók að sér, gegndi hún af stakri sam- viskusemi, smekkvísi og landsfræg- um dugnaði. Sigrún var góður harm- onikuleikari og lagði sig fram um að mennta sig í tónlistinni. Hún var af- kastamikill lagasmiður og hafa lög hennar verið mikið leikin af félögum hennar. Ótalin eru þau skipti sem æf- ingar fóru fram á Heiðvangi 10, heimili Sigrúnar og Vals. Þá lék Sig- rún við hvern sinn fingur en Valur sá um veisluborðið. Í því sem og öðru, sem þau hjón tóku sér fyrir hendur, voru þau samhent svo af bar. Sigrún og Valur voru ómissandi ferðafélag- ar, hvort sem farið var í félagsferðir eða á harmonikumót vítt og breitt um landið. Margir munu sakna morgun- tónleika Sigrúnar í þessum ferðum en hún var duglegust allra að drífa upp spilerí eftir hæfilegan svefn að hennar mati, enda var hún morgun- hress með afbrigðum. Þegar við sem eftir stöndum hugsum til Sigrúnar er okkur efst í huga þakklæti og stolt yf- ir að hafa átt slíkan félaga. Við biðj- um öllum ástvinum Sigrúnar bless- unar og huggunar í sárum harmi. Stjórn Harmonikufélags Rangæinga. Það var mér þungbært að heyra af andláti Sigrúnar. Hún og Valur hafa um langt skeið verið mér og fjöl- skyldu minni innan handar. Þau hafa með stuðningi sínum og ráðlegging- um gert líf mitt auðugra. Sigrún var lengi búin að berjast við erfiðan sjúkdóm, en aldrei bar hún erfiðleika sína á torg, var ávallt bros- andi, boðin og búin til aðstoðar þrátt fyrir miklar annir. Ég minnist þeirra stunda sem við áttum á ferð um nágrennið og þess að njóta tónlistarhæfileika hennar. Ég sendi þér, Valur minn, og fjöl- skyldu þinni mínar innilegustu sam- úðarkveðjur og bið Guð að gefa ykk- ur öllum styrk. Erla Stolzenwald Ólafsdóttir. Kveðja frá Harmonikufélagi Reykjavíkur Sigrún Bjarnadóttir er látin langt um aldur fram. Ég kynntist Sigrúnu fyrst og fremst sem harmonikuleik- ara. Hún kom mér fyrir sjónir eins og ein af þessum skörulegu söguper- sónum fyrri tíðar, hjartahlý, ákveðin og úrlausnagóð enda kom það sér vel þegar hún tók að sér formennsku í Sambandi íslenskra harmonikuunn- enda en hún er fyrsta og eina konan sem gegnt hefur því embætti. Hver man ekki eftir Sigrúnu á hinum fjöl- mörgu harmonikuhátíðum á lands- byggðinni. Alltaf fyrst út með harm- onikuna á morgnana og spilaði af hjartans lyst, síðan bættust fleiri og fleiri í hópinn og úr urðu hinir bestu tónleikar. Fleyg eru orð Sigrúnar sem hún lét eitt sinn falla á Lands- móti S.Í.H.U. en þar sagði hún að harmonikufólk væri eins og ein stór fjölskylda. Þessi orð Sigrúnar munu lifa með okkur um ókomna tíð og ekki þætti mér ólíklegt að harmonikufólki fyndist að Sigrún hefði sómt sér vel sem ættmóðir þessarar stórfjöl- skyldu. Sigrún var búin að stríða við alvar- leg veikindi um langt árabil og eitt sinn var hún spurð að því hvort hún ætti ekki erfitt með að spila. Var hún fljót til svars og sagði: ,,Harmonikan verður það síðasta sem tekið verður frá mér.“ Þetta voru orð að sönnu því Sigrún og Valur eiginmaður hennar voru heiðursgestir á afmælishátíð Harmonikufélags Reykjavíkur og Harmonikufélags Selfoss á Hótel Örk hinn 29. september síðastliðinn. Þar spilaði Sigrún með félögum sín- um fyrir dansi og þar fengum við tækifæri til að sýna henni smá virð- ingarvott fyrir allt það sem hún hefur lagt til í heimi okkar, sem heillast höfum af harmonikutónlistinni og sem veitt hefur svo mörgum gleði og ánægju. Við þökkum Sigrúnu fyrir alla þá góðu samvinnu og vináttu sem hún hefur sýnt okkur í H.R. Ég mun ávallt minnast Sigrúnar sem fyrir- myndar annarra kvenna. Sigrún stóð aldrei ein, Valur eiginmaður hennar stóð við bak hennar eins og klettur í hverju því sem hún tók sér fyrir hendur. Við sendum Vali og afkom- endum hans og Sigrúnar okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Blessuð veri minning Sigrúnar Bjarnadóttur. Guðrún Guðjónsdóttir. Sigrún Bjarnadóttir MINNINGAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.