Morgunblaðið - 28.10.2006, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 61
FRÉTTIR
Snjósleðar til sölu
Vegna endurnýjunar hefur Björgunarsveit
Hafnarfjarðar til sölu fjóra Yamaha Rx1 Mtn.
snjósleða, árg. 2003, tekna í notkun í jan. 2004,
151" belti, ekna um 2.000 km. Um er að ræða
vel útbúna og vel með farna sleða.
Sleðarnir eru ríkulega útbúnir aukahlutum,
s.s. rafstarti, bakkgír, púðurskíðum, aukakæl-
um, stýrishækkun, stýrishornum, tanktösku,
brúsagrindum, farangurskassa, aukarafkerfi,
negldu belti, festingu fyrir gps, vhf loftnet,
dráttarkrók o.fl. Um er að ræða góða ferða-
sleða.
Verð á sleða 690.000 stgr. Upplýsingar í síma
898 8773 Pálmi eða 660 1566 Júlli.
Til sölu
Raðauglýsingar 569 1100
Deildakeppnin – seinni
lotan um helgina
Síðari helgi SHELL-deildakeppn-
innar fer fram um helgina.
Tímaáætlun verður eins og fyrri
helgina, byrjað klukkan 11:00 á laug-
ardag og 10:00 á sunnudag.
Keppnisstjóri verður Kristján
Hauksson.
Hörkukeppni hjá Bridsfélagi
Kópavogs
Heimir og Árni eru sennilega
byrjaðir að hugsa um hvernig þeir
ætla að ráðstafa verðlaunafénu sem í
boði er í Bergplaststvímenningnum,
en Steini og Jenni eru samt ekki al-
veg á því að gefa það allt frá sér,
enda fengu þeir góða aðstoð frá for-
manninum til þess.
Staðan eftir tvö kvöld:
Heimir Tryggvason – Árni M. Björnss. 491
Jens Jensson – Þorsteinn Berg 487
Alda Guðnadóttir – Esther Jakobsdóttir 462
Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 462
Georg Sverrisson – Ragnar Jónsson 455
Hæsta skor NS:
Heimir Tryggvason – Árni M. Björnss. 248
Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 241
Elín Jóhannsd. – Hertha Þorsteinsd. 237
AV:
Alda Guðnadóttir – Esther Jakobsdóttir 237
Bernódus Kristins. – Hróðmar Sigurbjss.
232
Jens Jensson – Þorsteinn Berg 230
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudagskvöldið 22.10. var
þriðja kvöldið í fjögurra kvölda tví-
menningskeppni. Spilað var á tíu
borðum. Meðalskor var 216. Þær
Ingibjörg Halldórsdóttir og Sigríður
Pálsdóttir eru enn langefstar.
Staða efstu para eftir þrjú kvöld
er þessi:
Ingibjörg Halldórsd. – Sigríður Pálsd. 787
Unnar Guðmss. – Jóhannes Guðmarss. 753
Sturlaugur Eyjólfs. – Helga Sturlaugsd. 733
Hæsta skor kvöldsins í N/S:
Ingibjörg Halldórsd. – Sigríður Pálsd. 256
Gunnar Guðmss. – Sveinn Sveinsson 236
Sturlaugur Eyjólfss. – Helga Sturld. 229
A/V:
Unnar Guðmss. – Jóhannes Guðmarss. 260
Garðar Jónss. – Guttormur Vik 256
Haukur Guðbjarts. – Sveinn V. Krist. 248
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19.
Bridsdeild FEBK Gullsmára
Bridsdeild FEBK spilaði tvímenn-
ing á 14 borðum fimmtudaginn 16.10.
sl. Miðlungur 264.
Beztum árangri náðu í NS
Dagný Gunnarsd. – Steindór Árnason 303
Tómas Sigurðsson – Ernst Backman 301
Gréta Finnbogad. – Trausti Eyjólfsson 288
Auðunn Bergsv. – Sigurður Björnss. 285
AV
Elís Kristjánsson – Páll Ólason 363
Gróa Guðnadóttir – Unnar Guðmss. 320
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 316
Helga Helgad. – Ásgrímur Aðalsteinss. 302
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Fimmtudaginn 26. október sl.
hófst spilamennska í aðaltvímenn-
ingi félagsins. Mótið heitir Sigfúsar-
mótið, í höfuðið á Sigfúsi Þórðarsyni,
heiðursfélaga Bridsfélags Selfoss, en
hann gaf verðlaunagripinn sem spil-
að er um.
Í mótinu spila 16 pör, og stendur
mótið yfir í fjögur kvöld.
Úrslit fyrsta kvöldið:
Þröstur Árnason – Ríkharður Sverriss. 37
Guðm. Gunnarsson – Þórður Sigurðss. 36
Björn Snorrason – Guðjón Einarsson 31
Gísli Hauksson – Magnús Guðmss. 25
Helgi Helgas. – Kristján M. Gunnarss. 24
Gunnar B. Helgas. – Daníel M. Sigurðss. 21
Nánar má finna um gang mála á
heimasíðu félagsins www.bridge.is/
bsel.
Áfram verður spilað í mótinu 2., 9.
og 16. nóvember.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
BJÖRGUM Óðni, sögunnar vegna,
eru einkunnarorð Hollvinasamtaka
varðskipsins Óðins en stofnfundur
þeirra var haldinn á fimmtudag í
Víkinni, sjóminjasafni Reykjavíkur.
Hollvinasamtökin voru stofnuð
að frumkvæði sjómannadagsráðs
eftir að Guðmundur Hallvarðsson,
alþingismaður og formaður ráðs-
ins, lagði fram tillögu þess efnis.
Hugmyndin er að gera varðskipið
Óðinn að sögusafni þorskastríð-
anna og þar verði einnig varðveitt
björgunarsaga íslenskra varðskipa.
Á fundinum fluttu ávörp Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri og Stefán Jón Haf-
stein, stjórnarformaður Vík-
urinnar, sjóminjasafns Reykjavík-
ur. Húsfyllir var á fundinum.
Óðinn er nánast óbreyttur frá því
skipið var smíðað árið 1959 og talið
er að aðalvélar skipsins, sem eru
frá Burmeister & Wain, séu þær
einu sinnar gerðar, sem enn eru
gangfærar. Hollvinasamtök varð-
skipsins Óðins leggja til að því verði
komið fyrir við Víkina.
Sögusafn þorska-
stríðanna verði í Óðni
þar við Systrafoss gróðursetti fjöl-
skyldan á Klaustri mikið af trjám
sem í dag prýða staðinn. Þetta tré
mun hafa verið gróðursett um eða
upp úr 1950, en þurfti nú að víkja
vegna útsýnis að Systrafossi. Í stað-
inn verður komið upp áningarstað
fyrir ferðamenn í þessum fagra
lundi fyrir andvirði trésins, segir í
fréttatilkynningu.
JÓLATRÉÐ sem búið er að reisa
við Blómaval í Skútuvogi er stærsta
íslenska jólatréð sem fellt hefur ver-
ið hér á landi að sögn Hreins Ósk-
arssonar, skógarvarðar á Suður-
landi, sem sá um að velja og fella
tréð.
Þetta tré sem er sitkagreni, um
16,80 metrar að hæð, var fellt í skóg-
arlundi við Kirkjubæjarklaustur, en
Hár baðmur Jólatréð við Blómaval er næstum 17 m hátt og óx á Klaustri.
Hærra torgtré hefur aldrei
verið fellt áður á Íslandi
Stærsta íslenska jólatréð við Blómaval
UM HELGINA frumsýnir Bílabúð
Benna Chevrolet Captiva, nýjan
sportjeppa, þann fyrsta sem Chevr-
olet markaðssetur í Evrópu. Sýn-
ingin verður í Chevrolet Salnum að
Tangarhöfða 8-12. Opið verður á
laugardag kl. 12-16 og sunnudag kl
13-16.
Captiva er með stærri sport-
jeppum og fáanlegur með sætum
fyrir 5 eða 7 manns. Búnaðarstig
Captiva er einnig mjög hátt.
Captiva er með nýrri dieselvél
með forþjöppu og forðagrein (com-
mon rail), sem skilar 320 Nm / togi
og 5 hraða sjálfskiptingu sem stað-
albúnað
Captiva verður líka frumsýndur
hjá Bílahorninu hjá Sissa í Reykja-
nesbæ, Bílasölunni Ós á Akureyri
og Bílasölu Austurlands á Egils-
stöðum.
Frumsýning hjá
Bílabúð Benna
F-listinn varar við yfirvofandi um-
hverfisslysi við Laugaveg, eins og
það er orðað í frétt frá F-listanum.
Svokallaður Frakkastígsreitur er
kominn í hefðbundið auglýs-
ingaferli hjá Reykjavíkurborg á
vegum skipulagsfulltrúa. F-listinn
vill vekja sérstaka athygli borg-
arbúa á þeim róttæku breytingum,
sem fyrirhugaðar eru á götumynd á
horni Laugavegar og Frakkastígs.
F-listinn leggur áherslu á að hús-
in við Laugaveg 41 og 45 verði ekki
rifin, enda er heimiluð umfangs-
mikil uppbygging á svæðinu þó svo
þau fái að standa. Varað er við yf-
irvofandi umhverfisslysi á þessum
stað og hvetur F-listinn borgarbúa
til að gera athugasemdir til skipu-
lagsfulltrúa fyrir 10. nóvember. Sjá
www.skipbygg.is og sýningarskála
skipulagssviðs, Borgartúni 3.
Varar við
umhverfisslysi
við Laugaveg
97 kandídatar verða í dag, laug-
ardaginn 28. október, brautskráðir
frá Kennaraháskóla Íslands. Alls
verða brautskráðir 32 úr grunn-
deild og 65 úr framhaldsdeild. Við
athöfnina verða veitt verðlaun vís-
indaráðs Kennaraháskóla Íslands
fyrir besta meistaraprófsverkefnið
árið 2006.
Brautskráningin fer fram í
Skriðu, fyrirlestrarsal í Hamri, og
hefst athöfnin kl. 14.00 með tónlist-
arflutningi. Síðan ávarpar rektor
kandídata og að því loknu hefst
brautskráningin. Að brautskrán-
ingu lokinni ávarpar fulltrúi kandí-
data samkomugesti og athöfninni
lýkur með því að kór Kennarahá-
skólans og samkomugestir syngja
Ísland ögrum skorið.
Brautskráðir verða 6 með meist-
aragráðu í uppeldis- og mennt-
unarfræði:
Kristín Eiríksdóttir – Hefur leik-
skólastjóri það í hendi sér hvernig
leikskólastarfið gengur?; María
Hildiþórsdóttir – Möguleikar fatl-
aðs fólks til náms að loknum fram-
haldsskóla; Kristín Valsdóttir –
Einhver svona Alí Baba – Rannsókn
á viðhorfum og starfsumhverfi far-
sælla tónmenntakennara; Sigrún
Þórisdóttir – Hvernig telja kenn-
arar að grunnskólinn mæti nem-
endum með athyglisbrest með of-
virkni; Jónína Lárusdóttir –
Skilgreining leikskólakennara á ár-
angursríku leikskólastarfi; og Guð-
mundur Ó. Ásmundsson – Hug-
myndir skólanefnda grunnskóla um
völd sín og áhrif.
Brautskráning
frá Kennara-
háskólanum
Jagúar eru ekki Hjálmar!
Þau leiðu mistök urðu í Morg-
unblaðinu í gær að á bls. 30 þar sem
mælt var með miðnæturtónleikum
hljómsveitarinnar Jagúar sem fram
fara í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld,
var birt mynd af hljómsveitinni
Hjálmum. Beðist er velvirðingar á
þessu og mynd af þeim félögum í
Jagúar birt hér í staðinn.
LEIÐRÉTT
LJÓSMÆÐRAFÉLAG Íslands og
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
mótmæla því, að leggja eigi niður
áhættumeðgönguvernd á vegum
Miðstöðvar mæðraverndar sem rek-
in er af Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins.
Í ályktun frá félögunum segir
m.a.: Miðstöð mæðraverndar sinnir
nú um 700 konum árlega, sem lang-
flestar eru í áhættumeðgöngu, auk
þess að sinna ráðgjafarþjónustu fyr-
ir heilsugæslustöðvar. Á vegum Mið-
stöðvarinnar fer einnig fram fæðing-
arfræðsla, gerð fræðsluefnis,
símaráðgjöf og kennsla ljósmæðra-
og læknanema. Fram kom á fundi
sem ljósmæður höfðu óskað eftir
með framkvæmdastjórn Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins, að fyr-
irhugað væri að stofna nýja deild
innan LSH fyrir konur í áhættumeð-
göngu. Þegar einungis þrjár vikur
eru til stefnu liggur ekki ljóst fyrir
hvar sú starfsemi verður eða hvernig
henni verður háttað.
Ljósmæðrafélag Íslands og Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga vilja fá
svör við því hvaða fagleg rök búi að
baki breytingunum og hvort þær
samræmist stefnu heilbrigðisráð-
herra.
Áhyggjur vegna Mið-
stöðvar mæðraverndar